Dagur - 03.05.1988, Page 1
71. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 3. maí 1988
83. tölublað
TEKJUBREF
KJARABRÉF
fjArmAl þín
SÉRGREIN OKKAR
FIARFESTlNGARFEL^GIDi
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Akureyri:
Niðurgreidd daggæsla
í heimahúsum
- Dagmæður safna undirskriftum foreidra
undir áskorun til bæjaryfirvalda
„Flugleiðir tilkynna brottför flugs til Reykjavíkur. Farþegi gjöri svo vel að ganga um borð.“ Þannig hljóðaði til-
kynning í kallkerfinu á Akureyrarflugvelli í gærmorgun og þessi maður gekk einn síns liðs út í vélina sem beið.
Mynd: GB
Sérkennileg mjólkurdreifing hjá myndbandaleigu í Keflavík:
Einn lítri af KEA-mjólk
með hverju myndbandi
Dagmæður á Akureyri safna
nú undirskriftum foreldra á
undirskriftalista, sem þær
hyggjast afhenda bæjarstjórn
Akureyrar. Dagmæður benda
á að óréttlæti ríki gagnvart for-
eldrum sem hafa börn sín í
gæslu hjá dagmæðrum, ef mið-
að er við að pláss á dagvistar-
stofnunum bæjarins eru niður-
Akureyri:
Góð útsvars-
innheimta
„Staðgreiðslukerfi skatta virð-
ist ganga mjög vel og maður er
að vona að þetta gangi allt upp
strax á næsta ári,“ sagði Sigfós
Jónsson, bæjarstjóri, þegar
hann var spurður um tekjuöfl-
un Akureyrarbæjar.
Sem kunnugt er þá varð Akur-
eyrarbær fyrir þó nokkrum tekju-
missi af ýmsum orsökum sl.
vetur, en meðal þess var skerðing
um 13 milljónir króna úr Jöfnun-
arsjóði sveitarfélaga. Þá var
hlutfall útsvars í staðgreiðslu
minna en Samband íslenskra
sveitarfélaga hafði mælst til við
félagsmálaráðuneytið.
Sigfús sagði að ekkert væri
nema gott eitt að segja um inn-
heimtu útsvars, og virtist sem
bæjargjöld skiluðu sér vel í góðri
innheimtu. „Þetta eru tíma-
bundnir erfiðleikar hjá bænum,
ég er viss um að útlitið verður
betra á næsta ári. En það er erfitt
að gera miklar áætlanir þegar
peningana vantar,“ sagði bæjar-
stjóri. EHB
greidd um 40 prósent. Afieið-
ingin sé só að foreidrar hafi
ekkert vai þegar þeim býðst
pláss á leikskóla fyrir börn sín,
því það sé ódýrari kostur en að
hafa barn hjá dagmóður.
Texti undirskriftalistanna
hljóðar svo: „Við undirritaðir
foreldrar, sem erum með börn
okkar í daggæslu í heimahúsum,
förum þess á leit við forráða-
menn þessa bæjarfélags að athug-
aður verði sá möguleiki að greiða
niður daggæslu í heimahúsum,
svo þeir foreldrar sem þar nýta
gæslu njóti sömu kjara og þeir
foreldrar sem hafa börn sín í dag-
vistum bæjarins.“ Undirskrifta-
söfnun lýkur fljótlega, og verða
listarnir þá afhentir bæjarstjóra
Akureyrar.
Hvaða breytingu hefði það í
för með sér fyrir dagmæður ef
þetta erindi næði fram að ganga?
Sólveig Jóhannesdóttir, dagmóð-
ir, er í stjórn Félags dagmæðra á
Akureyri, og hún svarar spurn-
ingunni þannig:
„Ef þetta nær fram að ganga
verða börnin lengur hjá okkur,
en vegna gjaldsins sem við tökum
flýta foreldrar sér að koma börn-
unum á leikskóla. Dagvistun á
vegum bæjarins er niðurgreidd
um 40 prósent og af hverju má
ekki gera eins við hina foreldr-
ana, sem hafa börn sín hjá dag-
•mæðrum? Ég hef sjálf dæmi um
að foreldrar hefðu kosið að hafa
börn sín áfram hjá dagmóður en
höfðu ekki efni á að hafna leik-
skólaplássi.
Þetta er hagsmunamál foreldra,
en börnin stoppa svo stutt við hjá
dagmæðrum að engin foreldra-
samtök hafa verið stofnuð í
tengslum við það. Við erum að
þessu til að fá að halda lengur í
börnin, en þau eru flest send
mjög ung til okkar,“ sagði Sól-
veig. EHB
„Þessi tilfelli eru teljandi á
fingrum annarrar handar en
eitthvað var jó um þetta. Ég
veit ekki til að mjólk hafi verið
seld hér til að fara með hana ót
af svæðinu en auðvitað finnst
manni það líklegt þegar ein-
hver kemur allt í einu og kaup-
ir eitt tonn af mjólk. Mér
fínnst það ekki vera okkar mál
hvort maðurinn kaupir einn
lítra eða eitt tonn ef hann stað-
greiðir vöruna. Slíkt er löglegt
og ekkert við því að segja,“
segir Þórarinn Sveinsson, sam-
lagsstjóri Mjólkursamlags
KEA þegar hann var spurður
hvort rétt væri að mikið hafi
verið um að mjólk væri keypt
hjá samlaginu og flutt suður
yfir heiðar.
Meðal þeirra sem komu norð-
ur í þessum erindagjörðum var
eigandi VHS-myndbandaleigunn-
ar í Keflavík. Hann kom norður
til Akureyrar sl. föstudag, keypti
1000 lítra af mjólk sem hann ók
snarlega suður og byrjaði að
dreifa á laugardaginn.
„Nei, nei, við seljum ekki
mjólkina heldur fær viðskiptavin-
urinn einn lítra af mjólk með
hverri spólu sem hann tekur,“
sagði Þuríður Magnúsdóttir
starfsmaður VHS-leigunnar í
Keflavík í samtali við Dag. „Fólk
tók að meðaltali 3 spólur og við
erum búin með meirihlutann af
þessum 1000 lítrum. Við vorum
með opið á laugardaginn og í gær
en í morgun var aftur byrjað að
dreifa mjólk hér þannig að núna
er rólegra,“ sagði Þuríður.
Eitthvað var líka um að versl-
anir í Reykjavík hafi um helgina
boðið mjólk til sölu, þrátt fyrir að
mjólk væri ekki dreift frá Mjólk-
ursamsölunni. „Ég veit ekki
hvaðan þessi mjólk er ættuð en
Hornafjörður og Egilsstaðir hafa
mest verið nefndir í þessu sam-
bandi. Ég hef líka heyrt um að
mjólk frá Akureyri hafi verið
seld hér í verslunum en ekki
fengið þær sögur staðfestar,“ seg-
ir Björgvin Guðlaugsson, for-
stjóri Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík. JÓH
Verkfallshnúturinn herðist enn:
Viðskiptabann væntanlegt
Fiest bendir til að samþykktir
framkvæmdastjórnar Vinnu-
veitendasambandsins og
stjórnar Vinnumálasam-
bandsins um viðskiptabann á
fyrirtæki sem semja sérstak-
lega við verslunar- og skrif-
stofufólk, verði að veruleika.
Fulltróar þeirra félaga sem
enn er ósamið við funduðu í
gær í Karphósinu og var þar
m.a. samþykkt harðorð
ályktun vegna áðurnefndra
„hótana“. Samþykkt var að
hvika hvergi frá kröfu um 42
þósund króna lágmarkslaun.
Segja má að báðir aðilar séu í
sjálfheldu vegna þeirra samn-
inga sem gerðir hafa verið og
því var ekki bóist við árangri
á sáttafundum í gærkvöld.
í gær hafði Félag verslunar-
og skrifstofufólks á Akureyri
samið við 38 fyrirtæki í bænum.
Þrettán þessara fyrirtækja eru
innan Kaupmannafélags Akur-
eyrar og því aðilar að VSÍ.
Aðgerðir VMSS og VSÍ munu
m.a. fela í sér stöðvun á
afgreiðslu mjólkurvara frá
Mjólkursamlagi KEA og stöðv-
un viðskipta heildsala við þessi
fyrirtæki. Viðskiptabannið tek-
ur hins vegar ekki til þeirra
verslana sem frá upphafi verk-
falls hafa verið opnar.
Að sögn Sigurðar Jóhannes-
sonar sem sæti á í stjórn Vinnu-
málasambandsins hafa aðgerðir
þessar verið undirbúnar og geta
hafist með stuttum fyrirvara,
jafnvel strax í dag. Fram-
kvæmdastjórn VSÍ fundar um
málið í dag og tekur endanlega
ákvörðun.
„Ég held að þessar hótanir
gangi ekki upp, og séu vart lög-
mætar,“ sagði Jóna Steinbergs-
dóttir formaður Félags verslun-
ar- og skrifstofufólks á Akur-
eyri.
Stjórn VMSS hefur enn ekki
tekið ákvörðun um hvort sett
verður verkbann á þá starfs-
menn sem ekki eru í verkfalli en
hafa þó ekki getað unnið vegna
þess.
A fundi fulltrúanna þrettán í
gær var samþykkt ályktun þar
sem segir nt.a: „Fram eftir árum
áttu launþegahreyfingin og
samvinnuhreyfingin samleið...
...það eru því nterk tíðindi öllu
launafólki, er samvinnuhreyf-
ingin skipar sér við hlið harð-
svíraðasta hluta vinnuveitenda-
aðalsins, í baráttu gegn sann-
gjörnum kröfum verslunar-
manna og annarra launþega, og
hefur í hótunum við hin ýmsu
samvinnufélög, vogi þau sér að
ganga til samninga."
Á fundinum í gær var verk-
fallsvarsla endurskipulögð og
fram kom að til greina kæmi að
VR færi í samúðarvcrkfall.
AP/ET