Dagur - 29.06.1988, Side 2

Dagur - 29.06.1988, Side 2
2-DAGUR-29. júní 1988 Skagafjörður: Sláttur hafinn — lítil spretta eftir rok- og vætutíð „Það hefur sprottið mjög lítið núna, þessa roktíð. Það er eins og tún hafi ekki getað tekið við sér í þessu veðri, því nú hefur verið miklu meiri væta heldur en í fyrra,“ sagði Víkingur Gunnarsson hjá Búnaðar- sambandi Skagafjarðar, að- spurður um ástand túna í Skagafirði. Hins vegar hefur sláttur hafist á nokkrum bæjum, m.a. á Efra-Ási Hjalta- dal og Grænumýri Ákra- hreppi. Á Efra-Ási hófst slátt- ur sama dag og í fyrra, 25. júní sl. Að sögn Víkings er ástand túna nokkuð jafnt yfir sýsluna, en einna best líta þau út í Blönduhlíð. í fyrra hófst sláttur víða um mánaðamótin júní-júlí og viröist hann byrja á svipuöum tíma í ár. Víkingur sagði að það væru alltaf nokkrir bæir sem byrjðu mun seinna en aðrir, og síðan sumir sem væru alltaf með þeim fyrstu. Reglugerð um merkingu neytendaumbúða: Umbúðamerkingar mega ekki vera blekkjandi Kórfélagar ganga frá borði. Á litlu myndinni er Anna Magnúsdóttir (t.h.) frá Siglufirði, að taka á móti einni af þýsku söngkonunum. Myndir: gb Sungið á Siglufirði: Þýskir kórar í heimsókn Kvennakór Siglufjarðar hefur fengið góða gesti í heimsókn, sem eru tveir blandaðir kórar frá Þýskalandi. Um er að ræða 55 manna hóp frá tveimur litl- um þorpum í námunda við Brernen, Leeste og Ryede. Kórfélagar verða hér á landi í um vikutíma og fóru m.a. í skoðunarferð um IMývatns- sveit. Tónleikar verða haldnir á Sauöárkróki á löstudagskvöld kl. 20.30 og veröa þeir haldnir í húsi Tónskólans. Þá verða tónleikar í kirkjunni ;i Siglufirði á laugardag klukkan 17.00. Tengiliðir á milli Kvennakórs Siglufjarðar og kóranna þýsku, eru hjón búsett í Þýskalandi, en konan, Silke Óskarsson stofnaði Kvenmikór Siglufjarðar og stjórnaði honum í þrjú ár. Er hún flutti til Þýskalands ásamt manni sínum sem er Siglfiröingur. komst samstarfið á. Á mánudag var móttaka við Ráðhúsið á Siglufirði þar sem kórfélagar afhentu heimamönn- um gjafir, m.a. vatnslitamynd af nýju ráöhúsi í Leeste og silfur- skjöld með skjaldarmerki Ryede, en svo skemmtilega vildi til að Siglufjarðarkauptaður eignast merkið fyrstur staða en merkið er alveg nýtt. í drögum að nýrri reglugerð um merkingu neytendaum- búða fyrir matvæli og aðrar neysluvörur er skýrt kveðið á um að umbúðamerkingar skuli vera greinilegar og ekki á nokkurn hátt blekkjandi fyrir kaupanda eða móttakanda varðandi uppruna, tegund, samsetningu, þyngd, eðli eða áhrif vörunnar. Ákvæði þetta á einnig við um myndskreyt- ingar á umbúðum og í auglýs- ingum skal þess gætt að ekki komi fram blekkjandi upplýs- ingar. „Hugtök sem gefa til kynna skerðingu hráefna í matvælum og öðrum neysluvörum má aðeins nota við umbúðamerkingar, sé gerð um það krafa, eða slíkt hafi verið heimilað með reglugerð þessari eða af Hollustuvernd ríkisins. Ákvæði þetta á við um hugtök eins og „sykurskert“, „fituminna" og eirinig merkingu eins og „lítið salt“.“ Samkvæmt þessari reglugerð er heimilt að nota hugtakið „fitu- minna“ við merkingu á unnum kjötvörum og öðrum neysluvör- um sé fituinnihald innan við 50% af magni fitu í samskonar eða sambærilegri vöru. Sérmerkingar eins og „aðeins x g fita" eða „minna en x g fita“ eru óheimilar (x táknar tilgreint magn af fitu). Svipuð ákvæði gilda varðandi merkingar á borð við „minna salt“ eða „saltskert“ en merking- una „ekkert salt" má nota fyrir vörutegundir sem innihalda inn- an við 5 mg natríum/ 100 g. Merkinguna „lítið salt" má nota fyrir vörutegundir sem innihalda innan við 140 mg/ 100 g. Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki: Ríkið yfírtekur reksturinn - 5 manna skólanefnd í stað 11 Fyrir skömmu var á Sauðár- króki haldinn fundur með formönnum skólanefnda og skólameisturum þeirra fram- haldsskóla sem fleiri en eitt sveitarfélag standa að. Banaslys í Jökulsá á Dal - bresk kona drukknaði Banaslys varð við Jökulsá á Dal síðastliðinn mánudag. Hópur ferðamanna frá Ferða- skrifstofu ríkisins var á ferð og áði við neðstu brúna á Jökulsá á Dal. Bresk kona úr hópnum féll þá af klettum niður í Jökulsá á Dal, talið er að hún hafi fallið aftur fyrir sig. Leit var strax hafin. Hjálparsveit skáta og björgunar- sveit slysavarnafélagsins á Egils- stöðum ásamt fólki úr nágrenn- inu hófu leit að konunni. Einnig var leitað með lítilli flugvél og þyrla Landhelgisgæslunnar var fengin til leitar. Atburðurinn gerðist um kl. 17.30, en um kl. 21.30 fannst konan látin á eyrum neðar í ánni. kjó Skólarnir voru Fjölbrautaskól- inn á Sauöárkróki, Fjölbrauta- skóli Suðurlands Selfossi, Fjöl- brautaskóli Suðurnesja Kefla- vík og Fjölbrautaskóli Vestur- lands Akranesi. Tilefni fundar- ins voru ný lög um framhalds- skóla sem afgreidd voru frá Alþingi í vor, sem kveða á um að ríkið yfirtaki rekstur skól- anna, en hingað til hafa þeir verið í rekstri ríkis og sveitar- félaga. Stofnkostnaður verður þó áfram að hluta til í höndum sveitarfélaga. Með nýju lögunum breytist til- högun skólanefndanna. Skóla- nefnd Fjölbrautaskólans á Sauð- árkróki hefur verið skipuð full- trúum þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að skólanum, alls 11 mönnum, en með nýju lögunum verður nefndin skipuð 5 mönn- um. Ekki hefur skipan verið ákveðin, en menntamálaráðherra mun skipa formann hennar. Að sögn Jóns Hjartarsonar skólameistara F.á S. liggur það í lausu lofti hverjir verða aðstand- endur skólans, aðrir en ríkið og Sauðárkróksbær, og á fundinum voru viðraðar ýmsar tillögur. Þá funduðu einnig fjárhaldsmenn skólanna og skólameistarar og unnu sameiginlega að tillögum hvernig vinna eigi úr nýju lögun- um, varðandi fjárhald, námskrár o.fl. Þá var einnig fundur fræðslu- stjóra Norðurlands vestra með skólastjórum þeirra grunnskóla í kjördæminu sem eru með 9. bekk. Rætt var um samstarf skól- anna við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki og hvernig því verði háttað í framtíðinni. Á lokafundi þeirrar skóla- nefndar F.á S. sem mun víkja samkvæmt nýjum lögum, var ákveðið að efna til ráðstefnu á „Ég tel mig hafa komið því til leiðar að a.m.k. eitt fyrirtæki í Reykjavík hafi farið að senda vörur út á landsbyggðina á sinn kostnað. Þetta er fyrirtækið Pfaff og það sendir mér og öðrum vöruna á sinn kostnað. Þetta þýðir að við getum boðið viðskiptavinum okkar vörur á sama verði og í Reykjavík en það hefur verið erfitt þegar maður hefur þurft að borga flutningsgjald og síðan sölu- skatt af því,“ sagði Ingvi Rafn Jóhannsson sem rekur raftækja- Sauðárkróki í ágúst nk. um skólamál. Á fundinn verða boð- aðir sveitarstjórnarmenn og skóla- menn á Norðurlandi vestra og þar rætt um fyrirkomulag fræðslumála í kjördæminu. Með nýjum lögum er margt á döfinni um þessar mundir, bæði innan grunnskólanna og framhaldsskól- anna og verða þau mál efst á dagskrá. -bjb verslunina Raftækni á Akur- eyri. Að sögn Ingva flytur Rafha einnig vörur út á land án flutnings- kostnaðar, en það er þá aðeins þeirra eigin framleiðsla. Hann kvað þetta heilmikið mál fyrir landsbyggðina vegna þess að annars flyttist öll verslun suður. Fólk þyrfti þá ekki að borga sölu- skatt af flutningsgjaldinu ef varan væri skráð á þess nafn. En eins og áður sagði þurfa fyrirtækin þess. Kristmann Magnússon hjá Matvæli sem innihalda sætu- efni skulu auðkennd „sykurlaus" þegar hlutfall sykurs í vörunni er innan við 0,25% (minna en 1 kcal/ 100 g úr sykri) og „sykur- skert“ þegar hlutfall sykurs í vör- unni er innan við 50% af venju- legu sykurmagni í samskonar eða sambærilegri vöru. Þessar vöru- tegundir er einnig heimilt að merkja með orðunum „diet" eða „létt" samkvæmt reglum þar að lútandi. SS Pfaff sagðist ekki vita til þess að annað fyrirtæki veitti þessa þjón- ustu. „Það má segja að þetta sé jafnaðarverð yfir landið. Við gerðum þetta til þess að styrkja landsbyggðina því við viljum að viðskiptavinirnir kaupi tækin á þeim stað sem þeir geta síðan lát- ið gera við þau. Því ætti fyrirtæki á Akureyri að gera við þvottavél sem ég hef selt hérna fyrir sunnan? Við viljum hafa verslun- ina í héraði eins og sagt er. Ég vona síðan bara að fleiri fylgi á eftir.“ KR „Þurl'um að borga söluskatt af flutningsgjöldum" - segir Ingvi Rafn Jóhannsson raftækjasali á Akureyri

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.