Dagur - 29.06.1988, Side 3

Dagur - 29.06.1988, Side 3
29. júní 1988- DAGUR-3 Zebra og Saga í sumarstarfi: Leikklúbb urinn á leið til Þýskalands - selur miða á dansleik í Zebra til fjáröflunar Hallgrímur Arason veitingamaður á Bautanum, Svandís Guðmundsdóttir matreiðslumaður og Edda Kristinsdóttir sem sér um framreiðsluna. Á laugardagskvöldum verður hægt að borða í Laxdalshúsi, en aðra daga vikunnar verður aðaláherslan lögð á kaffíveitingar. MynU: gb Bautinn tekur við rekstri Laxdalshúss: Vöfflur með rjóma - fiskréttir og útigrill Bautinn hf. á Akureyri hefur tekið að sér rekstur Laxdals- húss. Húsið verður opið í sum- ar alla daga frá kl. 14-17 og þar verða framreiddar allar al- mennar kaffiveitingar. A laugardögum er opið frá kl. 14- 23 og er þá framleiddur matur þar sem sérstök áhersla verðu lögð á fískrétti. Það er Svandís Guðmunds- dóttir sem sér um matreiðsluna, en hún hefur lengi unnið á Baut- anum. Um framreiðslu sér Edda Kristinsdóttir, en hún hefur einnig unnið á Bautanum. Opið verð- ur á öðrum tímum óski menn þess og er þá miðað við að um 10 manns séu saman í hóp. Laxdals- hús hentar einkar vel fyrir smærri veislur og einnig fyrir ferðamanna- hópa. I húsinu er aðstaða fyrir útigrill og verður boðið upp á útigrillað- an mat þegar vel viðrar, en einnig verður hægt að panta slíkan mat sérstaklega. Húsið tekur með góðu móti um 70 manns í sæti, en salir eru bæði á efri og neðri hæð þess, einnig er aðstaða til að borða úti í garði kjósi menn það. Fyrir þvt' eru jafnvel dæmi að menn hafi borðað þar úti í rigningu og líkað vel! Þá má að lokum geta þess að Laxdalshús er elsta húsið á Akur- eyri, byggt árið 1795. Hallgrímur Arason veitingamaður sagðist vænta þess að bæjarbúar, sem og gestir muni njóta þess að koma við í Laxdalshúsi í sumar. Leikklúbburinn Saga á Akur- eyri tekur þátt í alþjóðlegri leiklistarhátíö í Þýskalandi í haust. Ferðin kostar 450 þús- und krónur og hefur verið sótt um styrk til Bandalags íslenskra leikfélaga vegna ferð- arinnar, en ríkið hefur beitt niðurskurðarhnífnum varðandi framlög til leikfélaga að undanförnu og bjóst Arnar Kristinsson Sögumaður ekki við að ferðastyrkur yrði veittur af þeim sökum. En þeir deyja ekki ráðalausir félagar í leik- klúbbnum og hafa nú tekiö upp samstarf við veitingahúsiö Zebra á Akureyri til að afla fjár til ferðarinnar. Þaö var reyndar Manuel Boissiere markaðsstjóri hjá Zebra sem átti hugmvndina og er hún fólgin í því að leikklúbbsfé- lagar selja miða á dansleik í veit- ingahúsinu á laugardagskvöldum og fá andvirðið að launum. Lág- marksverð á miðanum er 200 krónur. en þeir sem styrkja vilja félagana mega að sjálfsögðu borga meira. Félagar í Sögu munu verða ;i dansleikjum \eit- ingahússins íklæddir merktum peysum og hafa þeir í hyggju að skemmla fólki með smá uppá- komum og einnig vera til staðar og spjalla við gesti og gangandi. Leikklúbburinn Saga ætlar að sýna Grænjaxla eftir Pétur Gunn- arsson á lciklistarhátiðinni og taka síðan þátt í námskeiðum af ýmsu tagi. „Við erum bjartsýn á að okkur takist með þessu móti að afla peninga til ferðarinnar. Það er ntikið af áhugasömu fólki í Sögu og við ætlum okkur að gera stóra hluti í framtíöinni." sagði Arnar og benti jafnframt á að þeir aðilar sem áhuga hafa á að styrkja ungt leiklistarfólk gætu haft samband. „Við verðum úti unt allan bæ að seíja miða seinni partinn á föstudögum og fólk á að geta liitt okkur þá." sagði hann að lokum. mþþ DAGUK Akurewi S 96-24222 Norðlenskt datjblað Lónsbakka • Glæsibæjarhreppi 601 Akureyri símar 96-21400 09 96-23960.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.