Dagur - 29.06.1988, Side 15

Dagur - 29.06.1988, Side 15
hér & þar 29»fjúní.1988*rr DAGUR<t- 15 r- Madonna búin að fá nóg af aðdáendunum Um daginn réðst Madonna á 10 ára gamlan strák sem bað hana um eiginhandaráritun og vildi fá að taka mynd af henni. Á staðn- um var staddur annar maður með myndavél og náði sá myndum af því þegar verið var að stoppa stjörnuna af. Gefum ljósmyndar- anum nú orðið: ,,Ég varð yfir mig hneykslaður þegar ég sá hana ráðast á drenginn - og málfarið sem hún notaði var alveg hrika- legt. Hún elti hann, henti honum í jörðina, reyndi að toga mynda- vélina af hálsinum á honum og æpti ókvæðisorð í eyrað á honum." eftir þessu og óskar þess að þetta hefði ekki gerst,“ sagði blaðafull- trúinn. En ljósmyndarinn er ennþá hneykslaður yfir Jdví sem hann varð vitni að. „Ég mun aldrei geta litið Madonnu réttu auga eftir þetta.“ Daginn sem þetta atvik átti sér stað höfðu nokkrir aðdáendur safnast saman fvrir utan heimili Madonnu í vor. um eiginhand- aráritun og myndir. Þar á meðal voru Keith 10 ára og systir hans Darlene 18 ára. Þegar Madonna kom út neitaði hún að gefa eiginhandaráritanir. Keith hljóp þá til og ætlaði að smella einni mynd af henni en þá byrjaði hún að óskra á hann. „Ég híjóp í burtu eins hratt og ég gal en hún náði mér og henti mér í jörðina,“ sagði Keith. Systir hans hljóp til og reyndi að berjast á móti Madonnu. Ljósmyndaranum varð svo mikið um að hann fór með mynd- irnar til blaðafulltrúa Madonnu og sagði honum hvað gerst hefði. Lítið varð um svör hjá fulltrúan- um nema að hann sagði að stór- stjarnan hefði verið undir miklu álagi undanfarið og einhvern tím- ann myndi jú sjóða uppúr hjá öllum. „Hvernig myndi þér líða ef þú ynnir allan sólarhringinn og þegar þig langaði síðan til að slappa af og fara út að labba þá myndi fólk byrja að ónáða þig?“ „Ég er viss um að Madonna sér Darlene reynir ásamt vegfaranda að stoppa Madonnu. Stórstjarnan hefur slitið sig lausa og Keith hirðir eigur sínar upp af götunni. Shoutsaa Lohaútsala Iðunnar er opin frá Kl. 12- út bessa viKu Gríplð þetta einstæða tækifæri og gerið góð kaup Gífurlegt úrval! Hlægilegt werð! Skógerðin Iðunn AKUREYRARB/ÍR Unglingavinna Flokksstjórar óskast til starfa nú þegar. Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri og hafi reynslu af verkstjórn. Upplýsingar um starfið eru veittar á skrifstofu umhverfisdeildar í síma 25600. Garðyrkjustjóri. J|& Laus staða HyPM við Búvísindadeildina á Hvanneyri Staða kennara við Búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri er laus til umsóknar. Aðalstarf kennarans verður fólgið í því að sjá um skipulagningu og fram- kvæmd á endurmenntun fyrir bændur og starfsmenn landbúnaðarins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist landbúnaðarráðuneytinu, Rauðarár- stíg 25, 150 Reykjavík, fyrir 15. júlí nk. Landbúnaðarráðuneytið, 23. júní 1988. Vantar þig atvinnu? Við leitum að starfsmanni sem getur tekið að sér deildarstjórastarf í matvörudeild okkar. Þarf að geta unnið sjálfstætt og byrjað strax. Upplýsingar veitir verslunarstjóri milli kl. 16 og 18 næstu daga (ekki í síma). HAGKAUP Akureyri Vantar vélstjóra á 60 tonna rækjubát frá Dalvík nú þegar. Upplýsingar í síma 96-61416 eða um borð í bátnum í síma 985-20162. Otur hf. Oskum eftir handlangara í múrverk. Mikil vinna. Góð laun fyrir góðan mann. Upplýsingar í síma 25126 eftir kl. 19.00. MÚRPRÝÐI sf. Símar 25126 ■ 27673 ■ 25545 Skrifstofustarf Óskum eftir að ráða starfsmann á skrifstofu okkar sem fyrst. Um er að ræða afleysingastarf í u.þ.b. 1 ár. Upplýsingar á skrifstofutíma í síma 62337. Magnús Gamalíelsson h.f.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.