Dagur - 06.07.1988, Blaðsíða 5
6. júlí 1988 - DAGUR - 5
Héraðsmót USAH í frjálsum
íþróttum fór fram á Blönduós-
velli á laugardag og sunnudag og
verður síðar getið um úrslit þess.
Hápunktur hátíðarhaldanna
var á sunnudaginn. f>á var guðs-
þjónusta í nýju kirkjunni sem
reyndar er aðeins fokheld. Að
lokinni guðsþjónustu var nýja
útivistarsvæðið í Hrútey opnað.
Það mun hafa verið Sigmar
heitinn Jónsson, fyrrum hrepps-
nefndarmaður sem fyrstur vakti
máls á því í hreppsnefndinni að
eyjan yrði opnuð sem útivistar-
svæði. Ekkja Sigmars heitins,
Sigrún Kristófersdóttir opnaði
brúna út í eyjuna. Talið er að um
800 manns hafi farið út í Hrútey
um leið og hún var opnuð sem
útivistarsvæði eftir 13 ára friðlýs-
ingu.
Um kvöldið var mikil grill-
veisla í Fagrahvammi og er talið
að um eða yfir 1200 manns hafi
mætt þar til kvöldverðar. Þar var
á boðstólum lambakjöt,
Blöndulax og folaldakjöt sem
reyndist mjög vinsælt af grillinu.
Þessu var skolað niður með
Blöndu sem er ávaxtadrykkur
framleiddur í Mjólkurstöð SAH.
Gott veður var á Blönduósi um
helgina þótt það hefði gjarnan
mátt vera ögn hlýrra. Á mánu-
daginn, daginn sem Blönduós
varð varð bær, var hlýjasti dagur
sumarsins með sólskini og heið-
ríkju. Verði mannlífið á Blöndu-
ósi, á ókomnum árum, í samræmi
við veðrið þann dag þá er bjart
framundan hjá Blönduósbúum.
fh
Allir sem vettlingi gátu valdið tóku þátt í hátíðarhöldunum.
Margt var til skemmtunar...
og var bæði spilað og sungið.
Öllum íbúum bæjarins var boðið til grillveislu...
... og var ekki annað að sjá en þeir kynnu vel að meta það sem var á boð-
stólum. Myndir: fh.