Dagur - 06.07.1988, Side 13

Dagur - 06.07.1988, Side 13
6. júlí 1988-DAGUR - 13 Innanbúðar í Apóteki Ólafsfjarðar, Auður Traustadóttir og Jónína Freydís Jóhannesdóttir lyfjafræðingur. „Mér líkar vel héma“ - spjallað við apótekarann í Ólafsfirði Mývatnssveit: Hreppurinn hefur gjaldtöku fyrir skoðun Höfða Apótekið í Ólafsfirði stendur við Aðaigötu, sem er „aðalgat- an' " þar í bæ. Innanbúðar hitt- um við Jónínu Freydísi Jóhannesdóttur lyfjafræðing og Auði Traustadóttur. Það var bara býsna mikið að gera þegar við litum þar inn fyrir skömmu og erindin voru af margvíslegum toga. Einn vildi kaupa blómafræila, annar magnyl og ein konan sagðist vera orðin svo gleymin upp á síðkastið að hún spurði apót- ekarann hvort ekki væru til sölu minnistöflur! Jónína Freydís varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1981, eða á 101 árs afmæli skólans, sem skiptir raunar ekki höfuðmáli í þessu sambandi. Hins vegar hélt hún til náms við Háskólann og eftir eins árs umhugsun við vinnu ákvað hún að skella sér í lyfjafræðina. „Ég ætlaði að prófa hvernig þetta nám ætti við mig svona til að byrja með. En mér líkaði það vel og hélt því áfram,“ segir Jónína, en hún útskrifaðist úr lyfjafræð- inni í fyrrasumar eftir fimm ára nám. „Ég stefndi alltaf að því að koma norður,“ segir hún enn- fremur, en Jónína er Akureyr- ingur. „Ég vissi að það var ekkert starf laust á Akureyri, svo ég hringdi í Óla Þór Ragnarsson lyfjafræðing á Dalvík og hann benti mér á þetta starf hérna.“ Jónína segist hafa fengið nokk- urn umhugsunarfrest áður en hún tók starfinu. Við nánari íhugun hafi hún ákveðið að slá til og hef- ur hún nú starfað í Ólafsfirði frá því í desember á síðasta ári. „Mér líkar bara vel hérna. Líf- ið hérna er rólegt og þægilegt. Við erum hæfilega mikið út úr, en líka nægilega stutt frá Akur- eyri.“ Jónína segist fara á heima- slóðirnar um svo til hverja helgi. „Ég var skíthrædd við Múlann til að byrja með, en það venst furðu fljótt af manni.“ Samkvæmt nýlegri könnun á lyfjaneyslu íslendinga kom í ljós að Ólafsfirðingar koma næstir á eftir Reykvíkingum í lyfjakostn- aði. Láta bæjarbúar dálítið af lyfjum ofan í sig? „Það þarf ekki endilega að vera að þeir borði meira af lyfjum en aðrir. Lyfin sem þeir nota geta hins vegar ver- ið nokkuð dýrari, það getur verið skýringin,“ sagði Jónína og bætti við að lyfjanotkun væri nokkuð misjöfn og færi eftir árstíðum hvað mest væri notað. Yfir vetur- inn eru sýklalyfin og hóstamixt- úrurnar vinsælastar, en talsvert væri um notkun hjartalyfja, en neysla þeirra er ekki bundin viss- um árstíðum. „Ég hef reyndar ekki gert neina úttekt á þessu,“ sagði Jónína og sagði upplýsing- arnar byggðar á reynslu við afgreiðslu. Undanfarin ár hefur Vitastofn- un íslands sett upp svokallaða radarsvara á nokkrum stöðum við strendur landsins. Byrjað var á suðurströndinni en nú má segja að röðin sé komin að norðurhluta landsins þar sem settir verða upp fjórir radar- svarar á þessu ári. Radarsvarar eru settir upp á strandsvæðum eða stöðum sem erfitt er að greina með venjuleg- um hætti í radar. Þetta á til dæm- is við um sandana sunnanlands svo og ýmis sker og annes. Umferðarslysum á Akureyri fækkaði um 74 fyrstu 5 mánuði ársins, miðað við sama tíma í fyrra. Þetta er óneitanlega þróun í rétta átt en betur má ef duga skal. Eins og kom fram í viðtalinu við Óla H. Þórðarson framkvæmdastjóra Umferðar- ráðs í blaðinu í gær, hefur umferðarslysum á landinu fækkað töluvert fyrstu 5 mán- uði ársins, miðað við sama tíma í fyrra. Umferðarslys á Akureyri fyrstu 5 mánuðina árið 1987, urðu 220 en 146 á sama tíma í ár. í eftirfarandi töflu um umferðar- slys fyrstu 5 mánuði áranna 1987 og ’88, má sjá hversu mörg slysim urðu, hversu alvarleg þau voru Jónína býr ásamt tveggja ára gamalli dóttur sinni í kjallara apóteksins, en mjög erfitt er að fá húsnæði í Ólafsfirði, eins og reyndar víðar. „Við byrjuðum á því að gera allt upp, sparsla og mála og íbúðin er alveg ágæt núna,“ sagði Jónína að lokum og lét ágætlega af sér í Ólafsfirðin- um. mþþ Radarsvarar svara merkjum frá radartækjum með þriggja sentimetra bylgjulengd. Þegar þeir nema merkin frá radarnum senda þeir frá sér ákveðið svar sem kemur fram á radarskermum sem morsmerki. Þannig geta stjórnendur skipanna séð hvaða radarsvara um er að ræða og mælt stefnu og vegalengd að honum. Fljótlega verður hafist handa við uppsetningu slíks tækis í Sels- skeri út af Ingólfsfirði á Ströndum. Hinir staðirnir sem og einnig í hve mörgurn tilfellum um eignatjón var að ræða. 1987: Slys alls 220 Eignatjón alls 209 Slys með meiðslum 11 Dauðaslys 0 Slasaðir 16 Minni háttar meiðsl 7 Meiri háttar meiðsl 9 Látnir 0 1988: Slys alls 146 Eignatjón alls 140 Slys með meiðslum 6 Dauðaslys 0 Slasaðir 9 Minni háttar meiðsl 5 Meiri háttar meiðsl 4 Látnir 0 -KK Ferðalangar sem hafa hug á því að ganga um og skoða Höfða við Mývatn, þurfa fram- vegis að greiða fyrir það gjald. Verðið er 50 krónur pr. mann og hefst gjaldtakan á næstu dögum og stendur fram í ágúst en svæðið er opið frá kl. 10-20 alla daga vikunnar. Eigandi Höfða er Skútustaðahreppur og að sögn Jóns Líndal sveitar- stjóra, er þetta gert til þess að ná upp í kostnað við að halda svæðinu hreinu og í góðu lagi. Þá er meiningin í framhaldi af þessu að koma upp einhverri aðstöðu fyrir ferðamenn í Höfða. „Þessi gjaldtaka kemur kannski til með að mælast illa fyr- ir hjá fslendingum en ekki hjá erlendum ferðamönnum, sem eru vanir að ferðast. Svona gjald- taka tíðkast víða erlendis í ein- hverju formi, hvort sem menn borga fyrir að geyma bílinn sinn á bílastæði eða eitthvað annað,“ sagði Jón einnig. Að sögn Jóns koma á milli 15 og 20 þúsund ferðamenn í Höfða á hverju ári. Það er því ljóst að hreppurinn nær með þessu í dágóða fjárhæð, sem síðan verð- ur notuð til þess að halda þessari orðið hafa fyrir valinu eru Skagatá , Flatey á Skjálfanda og annað hvort Rifstangi eða Hraunhafnartangi á Sléttu. Áður hafa verið settir upp 12 radarsvarar. Sjö þeirra eru á suðurströndinni, þrír á suðvest- urhorninu. einn í Flatey á Breiðafirði og einn í Ásmundar- staðaey fyrir norðan Raufarhöfn. ET paradís í sem bestu ásigkomu- lagi. „Þetta hefur verið rætt í Nátt- úruvemdarráði en það hefur verið stefna ráðsins að taka ekki gjöld af fólki, fyrir það eitt að skoða landið," sagði Þóroddur Þór- oddsson framkvæmdastjóri Nátt- úruverndarráðs, aðspurður um hvort ráðið hygðist taka slíkt gjald af fólki fyrir skoðun á ein- hverjum þeim svæðum sem það hefur með að gera. „í þjóðgörðunum borga hins vegar næturgestir á þeim stöðum t.d. fyrir vatn og salernisaðstöðu. En eftir því sem við vitum best, er það stefnan hér á Norður- löndunum að selja fólki ekki aðgang að landinu eingöngu, heldur er þá miðað við einhverja þjónustu, t.d. fyrir salernisað- stöðu, húsaskjól, leiðsögn, bæk- linga eða eitthvað þess háttar,“ sagði Þóroddur. -KK Borgarbíó Alltaf / • nyjar myndir Til sölu fasteignir á Siglufirði og í Borgarnesi Tilboð óskast í eftirtaldar húseignir: Hvanneyrarbraut 27, Siglufirði. Stærð hússins er 1254 m’. Húsið verður til sýnis í samráði við Erling Óskarsson, bæjarfógeta, sími (96)71150. Brákarbraut 13, Borgarnesi. Stærð hússins er 2489 m3. Húsið verð- ur til sýnis í samráði við Rúnar Guðjónsson, sýslumann, sími (93)71209. Tilboðseyðublöð liggja frammi í húseignunum og á skrifstofu vorri. Kauptilboðum sé skilað á skrifstofu vora, Borgartúni 7, Reykjavík, fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 12. júlí nk., en þá verða þau opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SIMI 26844 Afsöl og sölutilkynningar Afsöl og sölutilkynningar vegna bilaviðskipta _________a atgreiðslu Dags._____ Vitastofnun íslands: Fjórir radarsvarar settír upp á Norðurlandi Akureyri: Umferðarslysum fækkaði um 74

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.