Dagur - 12.07.1988, Page 9
8 — DAGUR — 12. júlí 1988
íþróttir
Knattspyma 4. deild:
Kormákur
jafiiaði á
lokasekúnduniim
Kormákur og UMSE-b skildu jöfn þegar lið-
in mættust í D-riðli á laugardag. Urslitin
urðu 1:1 og þótt úrslitin hafí trúlega verið
sanngjörn verða leikmenn Kormáks að telj-
ast heppnir þar sem þeir jöfnuðu á síðustu
sekúndum leiksins.
UMSE-b náði forystunni í fyrri hálfleik
með marki Rósbergs Óttarssonar en Kor-
máksmenn voru nokkrum sinnum nálægt því
að jafna. Þeir náðu síðan að jafna þegar
flestir voru búnir að bóka sigur UMSE-b og
voru þá liðnar 48 mínútur af síðari hálfleik
og dómarinn flautaði til leiksloka nánast um
leið og markið hafði verið skorað. Það var
Páll Leó Jónsson sem skoraði jöfnunarmark
Kormáks. JHB
Efling tók
þijú stig á
Akureyri
Efling lyfti sér úr næst neðsta sæti D-riðils
þegar liðið sigraði Vask á Akureyri á föstu-
dagskvöldið með einu marki gegn engu.
Leikurinn fór fram á aðalleikvanginum á
Akureyri og var fátt sem gladdi augað. Það
var Þórarinn Jónsson sem skoraði mark Efl-
ingar og tryggði liðinu þannig þrjú mikilvæg
stig. JHB
Æskan vann
Neista
Æskan hafði ekki erindi sem erfíði þegar lið-
ið heimsótti Neista um helgina. Leikurinn
var liður í D-riðli 4. deildar Islandsmótsins í
knattspyrnu og lauk honum með öruggum
sigri Neista, 3:0.
Eitt marka Neista í þessum leik sáu liðs-
menn Æskunnar um að skora en hin tvö
mörkin fyrir Neista gerðu þeir Magnús
Jóhannsson og Haukur Þórðarson. JHB
Staðan
4. deild
Úrslit í 7. umferð D-riðiIs urðu þessi:
Neisti-Æskan
Vaskur-Efling
Kormákur-UMSE-b
3:0
0:1
1:1
Kormákur
HSÞ-b
Neisti
Efling
UMSE-b
Vaskur
Æskan
6 3-1-2 11: 8 10
5 2-2-1 13: 9 8
6 2-2-2 10: 8 8
5 2-1-2 7: 7 7
5 2-1-2 8:10 7
4 2-0-2 4: 5 6
5 1-1-3 7:13 4
Markahæstir:
Ari Hallgrímsson HSÞ-b 6
Albert Jónsson Kormáki 4
Þórarinn Jónsson Eflingu 4
l
1
Þórsarar loks að vakna
- Unnu sannfærandi 2:0 sigur á slökum KR-ingum í gærkvöld
Þórsarar léku trúlega sinn
besta leik í sumar þegar liðið
sigraði KR á Akureyrarvelli í
gærkvöld. Lokatölurnar urðu
2:0 eftir að staðan í leikhléi
hafði verið jöfn 0:0 og vænk-
aðist staða Þórsara í deildinni
heldur við þetta og er ekki
ástæða til annars en að ætla að
liðið sé að rífa sig upp úr þeirri
lægð sem það hefur verið í
mestan part sumars. Baráttan
var í góðu lagi hjá Þórsurum
og ekki skemmdi fyrir þeim að
KR-ingarnir virkuðu þungir og
ósannfærandi.
Leikurinn fór rólega af stað og
frekar fátt markvert gerðist fram-
an af. Bæði liðin fengu eitt sæmi-
legt marktækifæri en það var ekki
fyrr en á síðustu mínútu fyrir hlé
sem besta tækifæri hálfleiksins
leit dagsins ljós. Kristján Krist-
jánsson komst þá einn inn í víta-
teig KR með tvo varnarmenn á
hælunum en skot hans hafnaði í
hliðarnetinu.
KR-ingar komu ákveðnari til
síðari hálfleiks og virtust heldur
sterkari fyrstu mínúturnar. Þórs-
arar voru þó greinilega ekki hætt-
ir og á 54. mínútu náðu þeir for-
ystunni. Kristján Kristjánsson
sendi þá lausa sendingu fyrir
mark KR og Halldór Áskelsson
var á réttum stað og skallaði
knöttinn í net KR-marksins sem
var autt þar sem markvörðurinn
var illa staðsettur.
Ekki liðu nema tvær mínútur
áður en Þórsarar bættu síðara
marki sínu við og aftur var Hall-
dór á ferðinni. Einn varnarmaður
KR-hugðist þá hreinsa frá mark-
inu en hitti boltann illa og hann
Knattspyrna 3. deild:
Stórleikur Auðuns
á Homafírði
- er Hvöt sigraði Sindra 3:1
Hvöt sigraði Sindra þegar liðin
mættust á Hornafjarðarvelli á
laugardag með þremur mörk-
um gegn einu. Leikurinn var
liður í B-riðli 3. deildar
íslandsmótsins í knattspyrnu.
Staðan í leikhléi var 2:1 fyrir
Hvöt.
Sindraliðið fékk reyndar
óskabyrjun í leiknum þegar það
náði forystunni þegar aðeins 5
mínútur voru liðnar af leiknum.
Blöndósingarnir gáfust þó ekki
upp og jöfnuðu á sömu mínút-
unni. Þar var að verki Baldur
Reynisson.
Hvatarmenn náðu síðan for-
ystunni á 30. mínútu með marki
Gísla Gunnarssonar. Fyrri hálf-
leikur var nokkuð jafn og var
hann mjög opinn og skemmtileg-
ur. Bæði liðin fengu nokkur ágæt
marktækifæri en tókst ekki að
nýta fleiri en þessi þrjú fyrir
leikhlé.
Hvatarmenn hófu síðari hálf-
leikinn með miklum látum og
fengu tvö dauðafæri strax í upp-
hafi og tókst að nýta annað. Það
var Vilhjálmur Stefánsson sem
skoraði með viðstöðulausu skoti
eftir góðan undirbúning hans og
Ásgeirs.
Eftir þetta mark hresstust
Hornfirðingar mjög og næstu 15
mínútur áttu þeir algerlega. Þeir
pressuðu mjög stíft og fengu tvö
góð færi en markvörður Hvatar,
Auðunn Sigurðsson, varði glæsi-
lega í bæði skiptin. Hvöt kom
síðan smátt og smátt meira inn í
leikinn og átti orðið mun meira í
honum undir lokin. Þrátt fyrir
ágæt færi urðu mörkin ekki fleiri
og úrslitin því sanngjarn sigur
Hvatar.
Leikur þessi var opinn og
skemmtilegur og hefðu fleiri
mörk allt eins getað litið dagsins
ljós. Auðunn Sigurðsson varði
mjög vel í leiknum og var besti
maður Hvatar og einnig var
markvörður Sindra góður. JHB
barst til Halldórs. Halldór þakk-
aði ægilega vel fyrir sig og sendi
hann með þrumuskoti neðst í
stöng marksins og þaðan í netið.
Fallegt mark og staðan orðin 2:0.
Eftir þetta drógu Þórsarar sig
nokkuð til baka og KR-ingar
náðu upp nokkurri pressu. Þeir
voru nokkrum sinnum nálægt því
að skora, t.d. átti Rúnar Kristins-
son skot í stöng, en ekkert gekk
upp og Þórsarar komu aftur inn í
leikinn og eftir það var sigur
þeirra aldrei í hættu.
Sigur Þórsara í þessum leik var
sanngjarn. Þeir léku á köflum
ágætlega og sýndi nú þá baráttu
sem löngum hefur einkennt þá.
Flestir leikmenn liðsins áttu
ágætan dag en ekki verður þó
komist hjá því að nefna sérstak-
lega Halldór Áskelsson, Guð-
mund Val Sigurðsson og Nóa
Björnsson. KR-liðið átti í heild
slakan dag og erfitt er að nefna
þar einn öðrum betri. JHB
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Júlíus
Tryggvason, Birgir Skúlason, Nói Björnsson,
Valdimar Pálsson, Siguróli Kristjánsson, Krist-
ján Kristjánsson, Jónas Róbertsson, Guðmund-
ur Valur Sigurðsson, Halldór Áskelsson, Hlyn-
ur Birgisson.
Lið KR: Stefán Jóhannsson, Hálfdán örlygs-
son (Sæbjöm Guðmundsson á 67. mín.), Gylfi
Aðalsteinsson, Jóhann Lapus, Willum Þór
Þórsson, Jósteinn Einarsson, Ágúst Már
Jónsson, Gunnar Oddsson, Björn Rafnsson,
Hilmar Björnsson (Rúnar Kristinsson á 46.
mín.), Pétur Pétursson.
Dómari: Haukur Torfason og dæmdi hann
mjög vel.
Línuverðir: Bragi Bergmann og Geir Guð-
steinsson.
Sti 1 iðan . deild
Úrslit í 9. umferð sem lauk í
gærkvöld urðu þessi:
Leiftur-Völsungur 0:1
Valur-KA 4:3
Víkingur-IBK 3:1
Þór-KR 2:0
ÍA-Fram 0:4
Fram 9 8-1-0 21: 2 25
Valur 9 5-2-2 15: 9 17
ÍA 9 4-3-2 13:10 15
KR 9 4-1-4 12:12 13
KA 9 4-1-4 13:16 13
Þór 9 2-5-2 10:10 11
Víkingur 9 2-3-4 8:14 9
Leiftur 9 1-4-4 6:10 7
ÍBK 9 1-4-4 11:16 7
VöJsungur 9 1-2-6 4:14 5
Knattspyrna 2. deild:
Tindastóll lá
í Laugardal
- tapaði 1:0 fyrir ÍR
TindastóII kom heldur betur
niður á jörðina aftur, eftir góð-
an árangur í bikarkeppninni,
þegar þeir töpuðu fyrir ÍR 1:0
á laugardaginn í Laugardaln-
um. Leikurinn var frekar slak-
ur en sigur ÍR var sanngjarn
Fyrri hálfleikur var tíðindalítill
og átti hvorugt liðið nein sérstök
marktækifæri. Besta tækifærið
kom þó eftir aukaspyrnu hjá
Tindstólsliðinu. Eyjólfur Sverris-
son átti þá gott skot á markið, en
Þorsteinn Magnússon í marki ÍR
varði það mjög vel.
Leikurinn fór mest fram á
miðjum vellinum og var ekki
leikinn neitt sérstaklega áferðar-
fallegur bolti. IR vörnin var sterk
í þessum leik og höfðu varnar-
menn sérstakar gætur á Eyjólfi
Sverrissyni og bar því ekki eins
mikið á honum í þessum leik.
eins og oft áður í leikjum
Tindstóls.
Staðan í leikhléi var því jöfn,
0:0. Leikurinn þróaðist svipað í
seinni hálfleik og skiptust liðin á
að sækja.
Mark ÍR verður að skrifast að
hluta á Gísla Sigurðsson mark-
mann Tindastóls, sem annars
hafði staðið sig vel í leiknum.
Eftir aukaspyrnu inn að marki
Tindastóls mistókst honum að
hreinsa frá marki og eftir mikinn
barning inn í teignum tókst Egg-
erti Sverrissyni að skalla í
markið. Eggert var þá nýkominn
inn á og var þetta ein fyrsta snert-
ing hans í leiknum.
Eftir markið var eins og allur
þróttur væri úr norðanmönnum
og sótti ÍR stíft að marki þeirra.
Nokkrum sinnum komust þeir í
góð færi en Gísli markvörður
kom í veg fyrir að tuðran færi oft-
ar í markið.
Tindastólsmenn náðu sér ekki
á strik í þessum leik. Eyjólfur var1
í strangri gæslu og því bar ekki
mikið á honum í þessum leik.
Sverrir bróðir hans átti ágæta
spretti og einnig átti Guðbrandur
Guðbrandsson þokkalegan leik.
ÍR liðið átti einn af sínum betri
leikjum í sumar. Þorsteinn var
öruggur í markinu og varnar-
mennirnir Karl Þorgeirsson og
Hörður Theodórsson áttu góðan
leik. AP
Knattspyrna 3. deild:
UMFS Dalvík
steinlá
UMFS Dalvík átti aldrei
möguleika þegar liðið mætti
Þrótti Neskaupstað á útivelli
á sunnudagskvöldið. Þróttarar
unnu öruggan og sanngjarnan
sigur, 4:0, eftir að staðan í leik-
hléi hafði verið 1:0.
Þróttarar byrjuðu strax mun
betur og náðu ágætum tökum á
leiknum. Fá færi sköpuðust í fyrri
hálfleiknum og þegar flautað var
til leikhlés hafði aðeins eitt mark
verið skorað og var það Birgir
Ágústsson sem skoraði fyrir Þrótt
úr vítaspyrnu um miðjan fyrri
hálfleik.
Þróttarar áttu síðari hálfleik-
inn nær algerlega. Þeir bættu við
þremur mörkum en segja má að
Dalvíkingar hafi aldrei náð að
ógna marki þeirra. Bjarni Frey-
steinsson skoraði annað mark
Þróttara á 60. mínútu, Guðbjart-
ur Magnason bætti því þriðja við
þegar um 10 mínútur voru til
leiksloka og Bjarni var síðan aft-
ur á ferðinni á lokamínútunum
og innsiglaði sanngjarnan stórsig-
ur Þróttar. JHB
12. júlí 1988- DAGUR-9
Björn Axelsson fagnar sigri ásamt Árna Jónssyni og Kjartani Bragasyni,
Akureyrarmótið í golfi:
Bjöm og Inga sigmðu
Akureyrarmótinu í golfí lauk á
laugardag. Höfðu þá verið
leiknar 72 holur á 4 dögum og
var keppt í 8 flokkum. Sigur-
vegarar í meistaraflokkum
karla og kvenna urðu Björn
Axelsson og Inga Magnúsdótt-
ir. Annars varð röð efstu
manna þessi:
Meistaraflokkur karla
1. Björn Axelsson 318
2. Þórhallur Pálsson 320
3. Konráð Gunnarsson 320
Meistaraflokkur kvenna
1. Inga Magnúsdóttir 349
2. Árný Lilja Árnadóttir 363
3. Andrea Asgrímsdóttir 377
1. flokkur karla
. Jón Baldvin Árnason 333
2. Gísli Bragi Hjartarson 335
3. Þórleifur Karlsson 341
1. flokkur kvenna
1. Katrín Guðjónsdóttir 199
2. Halla Berglind Árnadóttir 209
3. Kristín Jónsdóttir 221
2. flokkur karla
1. Hallgrímur Arason 360
2. Ragnar Harðarson 360
3. Júlíus Haraldsson 363
3. flokkur karla
1. Haukur Jónsson 379
2. Gunnar Jakobsson 383
3. Vilhjálmur Bergsson 391
Öldungaflokkur
1. Guðjón E. Jónsson 330
2. Ragnar Steinbergsson 346
3. Hörður Steinbergsson 362
Unglingaflokkur
1. Egill Orri Hólmsteinsson 340
2. Áki Harðarson 350
3. Kristófer G. Einarsson 361
1. deild kvenna:
KA jafnaði
- á lokamínútunum gegn ÍBK
KA-stúlkurnar náðu að jafna
metin á lokamínútunum þegar
þær mættu ÍBK í 1. deild
kvenna á KA-velIinum á laug-
ardag. Þegar fáar mínútur
voru til leiksloka var staðan
2:0 fyrir ÍBK en KA-stúlkurn-
ar gáfust ekki upp og tókst að
tryggja sér stig á elleftu
stundu. KA-Iiðið hefur nú
hlotið 7 stig í deildinni, eða
jafn mörg og Keflavíkurliðið.
Leikurinn var mjög harður og
mikla athygli vakti leiðinleg
framkoma Keflavíkurstúlknanna
sem virtust hafa allt á hornum
sér. Þær spiluðu mjög fast og á
köflum gróft og það átti eftir að
hafa sínar afleiðingar. Á 18. mín-
útu síðari hálfleiks þurfti að kalla
til sjúkrabifreið og var Helga
Finnsdóttir KA flutt á sjúkrahús
með slitin krossbönd. Helga mun
ekki leika meira með liðinu í
sumar og er það mikið áfall þar
sem Helga hefur verið einn af
máttarstólpum liðsins.
Aðeins tveimur mínútum eftir
þetta atvik náði ÍBK forystunni
með ágætu marki. Og þremur
mínútum síðar fengu þær víta-
spyrnu eftir mjög klaufalegt brot
hjá markverði KA og skoruðu úr
henni. Staðan var því allt í einu
orðin 2:0.
En KA-liðið gafst ekki upp.
Þegar um 5 mínútur voru til
leiksloka minnkaði Borghildur
Freysdóttir muninn með góðu
skoti utan úr teig og þegar
leiktíminn var í þann mund að
renna út jafnaði Inga Birna
Hákonardóttir metin en hún er
fyrrum leikmaður með ÍBK.
Þegar á heildina er litið verða
þessi úrslit trúlega að teljast
sanngjörn. KA-liðið var óheppið
að skora ekki í fyrri hálfleik en
þá fengu þær nokkur mjög opin
færi, en þær voru einnig heppnar
að ná að jafna í lokin þegar allt
útlit var fyrir að ÍBK myndi hirða
öll stigin. JHB
Það var ýmsum brögðum beitt í Ieik KA og ÍBK. Mynd: gb
Knattspyrna 2. deild:
Botnbaráttan
blasir við KS
- eftir jafntefli við Þrótt, 3:3
Pað er þungur róður framund-
an hjá KS ef liðið ætlar að láta
sér nægja jafntefli í heima-
leikjum sínum, en það urðu
einmitt úrsiitin í leik KS og
Þróttar á Siglufírði á föstu-
dagskvöld. Lokatölur leiksins
urðu 3:3 eftir að KS-ingar
höfðu tvívegis náð tveggja
marka forystu.
Heimamenn voru mun sterkari
í fyrri hálfleik. Á 17. mínútu átti
Tómas Kárason hörkuskot sem
markvörður Þróttar varði af
snilld. Aðeins mínútu síðar óð
Hafþór í gegnum vörn Þróttar og
lagði boltann skemmtilega fyrir
Róbert Haraldsson sem skoraði
af öryggi.
Á 35. mínútu var mikill darr-
aðardans á marklínu Þróttar og
lauk honum með því að einun.
sóknarmanni KS var hrint. Góð-
ur dómari leiksins, Magnús Jóna-
tansson, dæmdi umsvifalaust
vítaspyrnu og úr henni skoraði
Baldur Benónýsson. 2:0 fyrir KS
og þannig var staðan í leikhléi.
Snemma í síðari hálfleik
minnkuðu Þróttarar muninn með
marki Peter Frains. En þegar 20
mínútur voru til leiksloka skoraði
Paul Fraier fyrir KS og önduðu
þá siglfirskir áhorfendur léttar og
sáu fram á sigur sinna manna.
En sú varð ekki raunin. Þrótt-
arar sóttu af miklu kappi það sem
eftir var af leiknum og náðu að
iafna með tveimur mörkum Sig-
urðar Hallvarðssonar. Hið fyrra
var skorað úr vítaspyrnu eftir að
markvörður KS hafði elt einn
sóknarmanna Þróttar út að hlið-
arlínu vítateigs og hent sér þar á
fætur hans. Algerlega óþarft út-
hlaup.
Sigurður var síðan aftur á ferð-
inni þegar 2-3 mínútur voru til
leiksloka og skoraði þá jöfnunar-
mark Þróttara eftir að boltinn
hafi rúllað eftir endalínunni,
framhjá markverði KS. Úrslit
leiksins því 3:3.
Gul spjöl fengu Óðinn Rögn-
valdsson KS, Peter Frain Þrótti
og Á.smundur Helgason Þrótti.
Þá fékk Nikulás Jónsson Þrótti
að sjá rauða spjaldið seint í síðari
hálfleik fyrir endurtekið brot.
Góður dómari leiksins var Magn-
ús Jónatansson. BÞ
Mynd: GB
Siglingar:
Um 50 keppendur
á Pepsi-Fiðlaramóti
Um helgina var haldið svokall-
að Pepsi-Fiðlaramót í sigling-
um á Pollinum við Akureyri.
Það var Nökkvi, félag sigl-
ingamanna á Akureyri, sem
gekkst fyrir mótinu en það
þótti heppnast mjög vel. Um
50 keppendur tóku þátt og
komu þeir frá Stór-Reykjavík-
ursvæðinu, Egiisstöðum og
Akureyri. AHir þátttakend-
urnir voru krakkar á aldrinum
8-17 ára og var keppt í Optim-
ist og Topper flokki. Urslit
mótsins urðu sem hér segir:
Topper:
1. Guðmundur I. Skúlason Ými
2. Bjarki Arnaldsson Ými
3. Benedikt H. Guðmundss. Ými
Optimist B flokkur:
1. Hólmfríður Kristjánsd. Ými
2. Bjarki Gústafsson Ými
3. Ragnar Steinssen Ými
Optimist C flokkur:
1. Ágúst Kristjánsson Nökkva
2. Ólafur Benediktsson Vogi
3. Helgi Pétursson
Kvennaflokkur Optimist:
1. Hólmfríður Kristjánssd. Ými
2. Ingibjörg Böðvarsdóttir Ými
3. Sigríður Ólafsdóttir Ými