Dagur - 03.08.1988, Blaðsíða 16
PenwUex'
Margs konar lím, pústkítti
og fleira.
Margir lögðu leið sína út í náttúruna um helgina og gistu í tjöldum. Eins og vera ber var líf í tuskunum á útihátíð-
unum og á síðu 13 í blaðinu í dag eru myndir frá hátíðinni á Melgerðismelum í Eyjafirði. Mynd: tlv
Um 4000 maims
á Melumim
- Vilji fyrir nýrri hátíð að ári
Berjaspretta á
Norðurlandi:
Verður góð
ef hlýnar
Þrátt fyrir rysjótta tíð og kulda
undanfarna daga, viröist vera
útlit fyrir góða berjasprettu í ár
eins og í fyrra. Þetta veltur þó
á því, að á næstunni hlýni og
sjáist til sólar.
Bjarni Gunnarsson bóndi á
Auðbjargarstöðum í Kelduhverfi
sagði í samtali við Dag, að þar
væri dágóður berjastofn, en það
þyrfti ekki nema eina frostnótt til
þess að eyðileggja öll ber. „Að
öllu forfallalausu, sýnist mér þó
að það geti orðið sæmileg berja-
spretta í ár,“ sagði hann.
Sama máli talaði Helgi Ingólfs-
son á Húsabakka í Aðaldal. í
dalnum er vinsælt aðalbláberja-
land og taldi hann berin jafnvel
geta orðið fyrr á ferðinni í ár en
venjulega þar sem krækiberin eru
þegar farin að dökkna. Taldi
hann eftir útlitinu að berjaspretta
í ár gæti orðið eins góð og í fyrra
ef tíðin verður góð.
Skógræktarfélag Eyjafjarðar
hefur girt af berjaland á Miðháls-
stöðum, Laugalandi og Þela-
mörk. Hallgrímur Indriðason
sagði full snemmt að spá fyrir um
berjasprettu þó að vel hafi
blómstrað í vor. Vætan síðustu
daga hafi verið kærkomin fyrir
allan gróður og svo framarlega
sem ekki verði nein áföll mætti
gera ráð fyrir að um ágætis berja-
ár verði að ræða.
„Það er enginn farinn að stel-
ast ennþá, sem mér þykir benda
til að berin séu ekki enn nógu
þroskuð," sagði Árni S. Her-
mannsson bóndi á Ytri-Bægisá í
Glæsibæjarhreppi. Þar sem ann-
ars staðar blómstraði vel í vor og
veltur á veðri hvað verður úr.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur hef-
ur selt Bjarna Aðalgeirssyni
eignarhluta sinn, helminginn
af Útgerðarfélaginu Brík hf.
sem fyrirtækið hefur átt ásamt
Bjarna. Brík hf. hefur gert út
loðnubátinn Galta ÞH sem nú
stundar rækjuveiðar. Bjarni er
aðaleigandi annars útgerðar-
félags, Langaness hl'., það hef-
ur átt og gert út Björgu Jóns-
dóttur ÞH sem nú hefur verið
seld Júlíusi Stefánssyni í Kópa-
vogi.
Eins og fram hefur komið í
fréttum stóð til að Fiskiðju-
samlagið keypti Björgu Jónsdótt-
ur sem seld var fyrrverandi eig-
anda sínum í Kópavogi eftir að
fyrirtækið hætti við kaupin.
Áðspurður um orsakir þessa
sagði Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjusamlags-
ins: „Við erum að leita að bát
sem hentar okkur, það sem okk-
ur vantar fyrst og fremst er tog-
Útihátíðin á Melgerðismelum í
Eyjafirði um verslunarmanna-
helgina fór vel fram, að sögn
Ómars Péturssonar hjá Fjöri
hf. Um fjögur þúsund manns
komu á Melana og sagði
skip en ekkert slíkt skip er innan
seilingar eins og er.“
Kvótinn á Björgu, sem nú hef-
ur verið seld frá Húsavík, er 460
tonn af þorski, 200 tonn af rækju
og auk þess síldarkvóti.
Aðspurður sagði Bjarni Aðal-
geirsson að það hefði verið með
tilliti til kvótans sem Fiskiðju-
Ómar að ekki hefði komið til
alvarlegra slysa eða óhappa á
hátíðinni.
Ómar Pétursson sagði að lög-
regla, skátar og aðrir sem störf-
uðu við útihátíðina hefðu verið
samlaginu hefði verið boðinn for-
kaupsrétturinn að bátnum.
Breytt hefur verið um nöfn á
bátunum og ber Galti nú nafnið
Björg Jónsdóttir ÞH-320. í fram-
haldi af þessum breytingum
verða útgerðarfélögin Brík og
Langanes sameinuð undir nafn-
inu Langanes hf. IM
mjög sáttir við útkomuna í heild
varðandi umgengni og annað.
Aðsóknin var mjög þokkaleg og
væru menn ánægðir með hana
miðað við hvernig veðurútlitið
hefði verið dagana fyrir verslun-
armannahelgina. Norðlendingar
voru í meirihluta á Melgerðis-
melum en einnig var mikið af
aðkomufólki, einkum frá ísafirði
og fleiri stöðum á Vestfjörðum,
i auk fólks frá suðvesturhorni
landsins og ekki síst úr Reykja-
vík og Suðurnesjum. Hann taldi
að nokkuð hefði dregið úr
aðsókn vegna þess að veður var
gott sunnanlands fyrir helgina en
veðurútlit var þá óvissara á
Norðurlandi.
- En stóð hátíðin undir sér
peningalega?
„Pað á eftir að skoða það, við
vitum ekki alveg hvernig þau mál
standa en útkoman verður skoð-
uð næstu daga,“ sagði Ómar.
Hann svaraði þeirri spurningu
jákvætt hvort þeir félagar ætluðu
að halda aðra slíka hátíð að ári
og taldi að vilji væri fyrir því. „Ég
gat ekki séð að mikil ölvun væri á
Melgerðismelum. Því var slegið
upp í sjónvarpi að mikil ölvun
hefði verið á staðnum en mér
finnst undarlegt að slíkt fari sam-
an við ströngustu gæslu og áfeng-
isleit sem var á landinu," sagði
Ómar Pétursson. Lögreglan lagði
hald á töluvert magn áfengis
hátíðardagana og einnig voru
nokkrir menn hindraðir í að
reyna að smygla áfengi inn á
svæðið eftir öðrum leiðum en
gegnum hliðið.
EHB
SkagaQörður:
Bílvelta
við
Víðimel
- óveruleg meiðsl
á ökumanni
Verslunarmannahelgin var
frekar róleg í Skagafirði að
sögn lögreglunnar á Sauðár-
króki. Helsta óhappið var bíl-
velta við bæinn Víðimel hjá
Varmahlíð aðfaranótt mánu-
dags. Bifreiðin sem fór út af er
mikið skemmd og meiddist
ökumaður hennar óverulega,
aðrir farþegar sluppu.
J>á fór bíll út af við Silfrastaði í
Blönduhlíð og skemmdist tölu-
vert en farþegar sluppu með
meiðsl. Lögreglan tók 20 öku-
menn fyrir of hraðan akstur og
mestur mældist hraðinn 153 km,
en mest var um tölur á milli 100
og 110 km hraða.
Prír ökumenn voru teknir fyrir
ölvun við akstur, sem verður að
teljast lítið þó að þrír séu þrem of
mikið. Lögreglan sagði að
umferð í gegnum Skagafjörð um
verslunarmannahelgina hafi ver-
ið góð og menn yfirleitt ekið á
löglegum hraða, það væri helst á
leiðinni milli Varmahlíðar og
Sauðárkróks sem hraðinn vildi
aukast. Dansleikir í Miðgarði og
Árgarði fóru vel fram og þurfti
lögreglan lítil afskipti að hafa af
ballgestum.
Mikið var um rúðubrot um
helgina, aðallega á Sauðárkróki
og eitthvað í Varmahlíð. í Gagn-
fræðaskólanum á Sauðárkróki
voru brotnar 6 rúður og 2 í
íþróttahúsinu. Þá voru rúður
brotnar hjá rækjuverksmiðjunni
Dögun. -bjb
Egilsstaðir:
50kmí
næstu fanga-
geymslur
Ef svo bregður við að lögregl-
an á Egilsstöðum þurfi af ein-
hverjum ástæðum að koma
mönnum í fangageymslur, þarf
að aka með viðkomandi 50 km
til Eskifjarðar eða 25 km til
Seyðisfjarðar. Eskifjörður
verður oftar fyrir valinu, því
vegurinn til Seyðisfjarðar ligg-
ur hærra og því torfærari yfir
vetrartímann.
Svona hefur ástandið verið í 4-
5 ár, eða síðan gamla fangahúsið
var rifið. Síðan hefur staðið til að
byggja nýja lögreglustöð, en lög-
reglan á staðnum hefur aðeins
skrifstofuaðstöðu í gömlu leigu-
húsnæði sem stendur.
Að sögn Þórhalls Eyjólfssonar
sem sæti á í bæjarstjórn Egils-
staða, hefur verið til fjármagn til
þess að hefja byggingu í 2 ár.
„Það hefur strandað á samþykki
frá dómsmálaráðuneytinu. Húsið
hefur verið teiknað, en reglur
segja að það sé ívið of stórt.“
Þar stendur hnífurinn í kúnni.
Á meðan verður lögreglan á
Egilsstöðum að „rúnta" með
„næturgesti“ sína til Eskifjarðar,
ef ekki tekst að miðla málum á
staðnum. VG
Björg Jónsdóttir ÞH 321.
Húsavík:
Björgiii seld burtu
- Fiskiðjusamlagið hættir við kaup á Björgu Jónsdóttur