Dagur - 26.08.1988, Blaðsíða 1
71. árgangur Akureyri, föstudagur 26. ágúst 1988 160. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMKNR
SiGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
jPÍÍI.:. "*■
jr«-'
r**fe<»**" 'iuii
»«** »**•.
vJ*«**fc»*»
******* .. J
,t.4’
;;.j***f......*
>« • * **«#•*!
1
Rannsóknarlögreglan:
Komst á snoðir
um hasssendingu
Nýlega fékk rannsóknarlög-
reglan á Akureyri vísbendingu
um iiknicfnasendingu sem
væntanleg væri til Akureyrar í
pósti. Sendingin kom til Akur-
eyrar í fyrradag og hefur málið
þegar verið upplýst.
Þarna var um að ræða frekar
lítið magn al' hassi og var eigandi
þess þegar handtekinn og færður
tii yfirheyrslu. Ekki munu fleiri
tengjast þessu rnáli og var
manninum sleppt að lokinni yfir-
heyrslu. Hann mun áður hafa
komið við sögu rannsóknarlög-
reglunnar á Akureyri vegna
ffkniefnanotkunar. VG
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, heimsótti m.a. minjasafnið að Reykjum í Hrútafirði í gær.
Mynd: fh
Hraðfrystihús Magnúsar Gamalíelssonar:
Öllu starfsfóM
sagt upp störfum
- vegna ótryggs ástands
varðandi hráefnisöflun
OIIu starl'sfólki sem vinnur við
fiskverkun hjá Magnúsi Gam-
alíelssyni í Olafsfirði hefur ver-
ið sagt upp störfum frá og með
deginum í dag og tekur upp-
sögnin gildi eftir fjórar vikur.
Um er að ræða á milli 30 og 40
manns, sem unnið hafa í frysti-
húsinu samkvæmt fastráðning-
Forsetiim heimsækir Húnaþing
- ferðaðist um Hrútaijörð, Miðfjörð og til Hvammstanga í gær
Forseti Islands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, er nú í heim-
sókn í Húnavatnssýslu og hófst
heimsóknin kl. 11 í gærmorgun
þegar sýslumaður Húnavatns-
sýslu og sýslunefnd Vestur-
Húnavatnssýslu tóku á móti
Vigdísi á sýslumörkum Húna-
vatns- og Strandasýslu við
Hrútafjarðará.
Dumbungsveður var og frekar
kalt þegar forsetinn kom að
sýslumörkunum en þrátt fyrir
það var talsvert fjölmenni sem
tók þar á móti honum.
Stansað var mjög stutt við
sýslumörkin en þar heilsaði Vig-
dís sýslumanninum og sýslu-
nefndinni og Iítil stúlka færði
forsetanum fallegan blómvönd.
Þaðan var haldið að minjasafninu
Akureyri:
Heildsalar þvertaka
fyrir verðhækkanir
- telja ásakanir um samræmdar aðgerðir heildsala
úr lausu lofti gripnar
Heildsalar á Akureyri segja
fráleitt að vöruverð hafi hækk-
að undanfarið hjá heildversl-
unum. Frá suðvesturhorni
landsins berast þær fregnir að
heildsalar hafi verið ásakaðir
um að hækka vöruverð um 7 til
15 prósent til að búa í haginn
fyrir væntanlegar efnahagsað-
gerðir, einkum svonefnda
niðurfærslu verðlags og kaup-
gjalds, en slíkt virðist a.m.k.
ekki gilda um heildverslanir á
Akureyri.
Hólmgeir Valdemarsson hjá
Heildverslun Valdemars Bald-
vinssonar sagði að vöruverð hefði
ekkert breyst hjá fyrirtækinu
undanfarið. „Ég kannast ekki við
þetta í mfnu fyrirtæki og það er
alrangt að vöruverð hafi hækkað
hjá okkur enda gengur slíkt ekki,
samkeppnin er of mikil. Menn
geta skoðað hálfsmánaðargamlan
verðlista hjá mér og séð að
verðið hefur ekkert hækkað.
Ég hef enga trú á að heildsalar
geti sameinast um verðhækkanir
því slíkt er ekki hægt og engin
dæmi til þess,“ sagði hann.
Þeir Gunnar Kárason hjá
Heildverslun Valgarðs Stefáns-
sonar og Leifur Tómasson hjá
Heildverslun Tómasar Stein-
grímssonar sögðust heldur ekki
kannast við að vöruverð hefði
hækkað. Gunnar sagði að starfs-
maður Verðlagseftirlitsins hefði
fengið verðlista hjá sér nýlega en
engar hækkanir hefðu átt sér stað
hjá fyrirtæki sínu. „Við höfum
ekki tekið þátt í að breyta neinu
verði og ég tel fráleitt að heild-
salar hafi sameinast um aðgerðir,“
sagði hann.
„Við höfum ekki breytt einu
einasta verði og ég kannast ekki
við að heildsalar hafi samræmt
verðhækkanir," sagði Leifur
Tómasson. Hann taldi útilokað
að heildsalar gætu hækkað verð
án þess að neytendur og smásölu-
kaupmenn yrðu þegar varir við
slíkt. Leifur sagði einnig að hann
hefði ekki heyrt um verðbreyt-
ingar frá heildsölum sunnanlands
sem hann hefði samband við.
EHB
á Reykjum í Hrútafirði en þar er
margt gamalla og merkilegra
muna sem forsetinn skoðaði og
lét þess um leið getið a víða sæist
að þjóðin hefði átt listfengna
hagleiksmenn.
Eftir skoðunarferðina um
minjasafnið gróðursetti forsetinn
tré við gamla íþróttahúsið við
Reykjaskóla. Sýslunefnd og
hreppsnefnd buðu forsetanum til
hádegisverðar í Hótel Eddu á
Reykjaskóla. Að því loknu var
þar opið hús með kaffiveitingum
fyrir íbúa Staðarhrepps.
Þá var ekið um Miðfjörð og
skoðaður minnisvarði um Ásdísi,
móður Grettis Ásmundarsonar á
Bjargi og einnig var leiði Skáld-
Rósu skoðað í kirkjugarðinum á
Efra Núpi. Þá var komið við á
Laugabakka og þar var opið hús
og kaffiveitingar fyrir íbúa
Fremri- og Ytri-Torfustaða-
hreppa í boði hreppsnefndanna.
Þaðan var ekið til Hvamms-
tanga og var kvöldverður í Verts-
húsinu í boði sýslunefndar og
hreppsnefnda Hvammstanga- og
Kirkjuhvammshreppa.
Um kvöldið var opið hús og
kaffiveitingar í Vertshúsinu í
boði hreppsnefndanna.
Fyrstu nótt þessarar heimsókn-
ar í Húnavatnssýslur gisti forset-
inn í Vertshúsinu á Hvamms-
tanga. í dag mun hann ferðast
um Vatnsnes, Vesturhóp og
Víðidal og að Gljúfurá þar sem
sýslunefnd Austur-Húnavatns-
sýslu tekur á móti forsetanum um
kl. 16.15. fli
arsamningi aðila vinnumark-
aöarins frá 26. febrúar 1986.
Ekkert hefur verið unnið við
frystingu í húsinu að undanförnu,
en starfsfólk unnið við saltfisk-
verkun og rækjuvinnslu. Hráefn-
isskortur hefur háð starfsemi
frystihússins, enda kvóti skip-
anna langt kominn. Vegna hins
ótrygga ástands varðandi hráefn-
isöflun er óvíst hvenær vinnsla
getur hafist á ný í frystingunni,
en stefnt er að því að halda
vinnslu áfram í saltfiskverkun og
rækjuvinnslu eftir því sem hrá-
efni leyfir. Með tilliti til þess
verður hluti starfsfólksins endur-
ráðinn í störf sín eftir aðstæðum.
Starfsfólkinu var sagt upp
störfum snemma í þessum mán-
uð, en eftir vinnustaðal'und með
Sævari Frímannssyni formanni
Einingar var talið að ekki hefði
verið réttilega að uppsögninni
staðið. Fundarhöld vegna upp-
sagnanna hafa verið stíf að
undanförnu og varð að sam-
komulagi að fólkinu yrði sagt upp
störfum að nýju frá og með deg-
inum í dag að telja, en það geti
áfram unnið í saltfiski og rækju-
vinnslu.
„Við erum vitaskuld óhress
með þessar uppsagnir, en fólkið
gerir sér grein fyrir því að ekki er
um annað að ræða í þessu óvissu- •
ástandi,“ sagði Sævar Frímanns-
son. mþþ
Öllu starfsfólki Hraðfrystihúss
Magnúsar Gamalíelssonar í Ólafs-
firði hcfur verið sagt upp störfum
frá og með deginum í dag.