Dagur - 26.08.1988, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 26. ágúst 1988
Uppblástur á
norðausturafrétt:
Störf
hafin hjá
ráðherra-
neftidiraii
42,5%
verðbólga
- miðað við hækkun
framfærsluvísitölu
síðustu þrjá mánuði
Nefnd skipuð af landbúnaðar-
ráðherra fór í kynnisferð sl.
sunnudag um norðausturaf-
réttinn, upp af Mývatnssveit.
Erindið var að huga að hvað
væri til ráða varðandi upp-
blásturinn á þessum slóðum og
hélt nefndin sinn fyrsta fund
um kvöldið.
Landbúnaðarráðherra skipaði
nefndina í framhaldi af umræð-
um sem orðið hafa um uppblást-
urinn á þessu svæði. Hlutverk
nefndarinnar er aö kanna ástand-
ið og hvað helst megi verða til
bjargar.
Næsta skref varðandi þessi mál
er að Landgræðslan mun senda
frá sér ákveðnar tillögur um hvað
hún telur að gera þurfi. Nefndin
kemur til með að hittast eftir að
greinargerð Landgræðslunnar
hefur verið lögð fram og fjallar
hún eflaust um tillögurnar og
verður ráðherra til halds og
trausts en í framhaldi af þessu
tekur ráðuneytið ákvarðanir um
hvað gera skuli.
Níels Á. Lund, starfsmaður
landbúnaðarráðuneytisins, er
formaður nefndarinnar en auk
hans skipa nefndina: Stefán
Skaftason, ráðunautur, Straum-
nesi, Helgi Jónasson, Græna-
vatni, formaður gróðurverndar-
nefndarinnar í Mývatnssveit,
Málmfríður Sigurðardóttir,
alþingismaður, Héðinn Sverris-
son, Geiteyjarströnd frá Skútu-
staðahreppi, Andrés Arnalds frá
Landgræðslu ríkisins og Ólafur
Dýrmundsson frá landnýtingar-
ráðuneyti Búnaðarfélags Islands.
'IM
Samspil hins forna og nýja.
Staða sauöíj árbúskapar
og framtíðarhorfur
- eru meginmálefni aðalfundar
Landssambands félaga sauðprræktenda
Aðalfundur Landssambands
félaga sauðfjárræktarbænda
hefst í dag að Flúðum í Hruna-
mannahreppi. Skipulagsmál
landbúnaðarins, félagsmál,
staða búgreinafélaga innan
landbúnaðarkerfisins, atkomu-
mál, málefni sláturhúsa, mark-
aðs- og sölumál verða megin-
Prjónninn ekki
frá okkur
- segir verksmiðjustjóri
Kjötiðnaðarstöðvar KEA
Leifur Ægisson, verksmiðjustjóri
Kjötiðnaðarstöðvar KEA, hafði
samband vegna prjónsins sem
fannst í kjötfarsinu á dögunum,
en einn viðskiptavinur verslunar
KEA í Höfðahlíð kvartaði vegna
þessa máls eins og kunnugt er.
Leifur hélt fund með starfs-
fólki í pökkun vegna málsins og
kom þar fram að öruggt væri að
prjónn sem þessi hefði ekki kom-
ið þar inn fyrir dyr stöðvarinnar í
öll þau 22 ár sem hún hefur verið
starfrækt. „Við notum ekkert
slíkt, þetta er eingöngu notað í
búðarborðum þar sem eru opnir
bakkar til að stinga verðmiðum í.
Ég get ekkert sagt um hvaðan
prjónninn kom nema að hann
kom ekki með kjötfarsinu frá
okkur, það er 100 prósent
öruggt. Það væri eðlilegri fram-
gangsmáti að fólki sýndi þann
heiðarleika, ef það hefur eitthvað
til að kvarta yfir, að snúa sérfyrst
til seijanda og/eða framleiðanda
með mál sín áður en það fer í
blöðin undir nafnleynd," sagði
Leifur Ægisson.
málefni aðalfundarins að þessu
sinni.
Að sögn Jóhannesar Kristjáns-
sonar, bónda á Höfðabrekku og
formanns landssambandsins,
finnst sauðfjárbændum flestum
brýnt að ræða málefni sauðfjár-
ræktarinnar og stöðu greinarinn-
ar og framtíðarhorfur í landbún-
aðarkerfinu. Margar tillögur
koma eflaust fram á fundinum og
verða þær ræddar í nefndum. Ef
ákveðnar tillögur koma fram sem
ræða verður á víðtækari grund-
velli verða þær sendar áfram til
umfjöllunar á fundi Stéttarsam-
bands bænda, sem haldinn verð-
ur síðar í haust.
Jóhannes var spurður sérstak-
lega um hvað honum fyndist um
nýframkomnar hugmyndir um að
flýta göngum og réttum. Hann
sagði að hugmyndin væri ágæt
sem slík en til þess að hún væri
framkvæmanleg þyrfti að kynna
hana með meiri fyrirvara. Bænd-
ur þyrftu að komast að með hluta
fjárins til slátrunar ef taka ætti fé
í hús o.s.frv. „Mér líst ekki illa á
hugmyndina ef menn vita um
málið í tíma og vel gengur með
heyskap en það er fullseint að
Akureyri:
Vinsæll
ráðsteftiubær
Akureyri nýtur vaxandi vin-
sælda meðal þeirra sem skipu-
leggja ráðstefnur og hafa þegar
verið bókaðar þó nokkrar ráð-
stefnur í haust auk þess sem
óskað hefur verið eftir tilboð-
um í fleiri.
Á Hótel KEA verða um 30
norrænir iðnráðgjafar dagana
31. ágúst til 4. september, Lands-
bankinn með um 60 manns 8.-11.
september og Sjávarafurðadeild
Sambandsins með um 70 manns
12.-13. september. Þá munu um
70-80 tannlæknar sækja tann-
verndarráðstefnu dagana 16.-18.
september og 23.-25. sama mán-
aðar verður umhverfisráðstefna
Iandslagsarkitekta, alls um 70-80
manns. Þó nokkrir aðilar í viðbót
íhuga ráðstefnuhald hjá Hótel
KEA þótt enn hafi þær ekki verið
endanlega staðfestar.
Hjá Svartfugli hefur ekki verið
endanlega gengið frá samningum
vegna ráðstefna, en óskað eftir
tilboðum svo fljótlega ætti að
koma í ljós hverjir muni þinga
þar. VG
tala um þetta núna, þetta er ekki
eins og að opna fyrir vatnskrana.
En þessi hugmynd getur vel átt
við á ákveðnum stöðum á land-
inu,“ sagði Jóhannes.
Hvað önnur málefni þingsins
varðaði taldi Jóhannes öruggt að
rætt yrði um landfriðun og sauð-
fjárbeit. Taldi hann vænlegra að
árangur næðist með samstarfi
bænda og landfriðunarmanna en
einhliða áróðri því land yrði
aldrei friðað nema í samvinnu við
bændur. EHB
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í ágústbyrjun
1988. Vísitalan í ágústbyrjun
reyndist vera 109,3 stig eða 2,1%
hærri en í júlíbyrjun 1988. Sam-
svarandi vísitala samkvæmt eldri
grunni er 267,9 stig.
Af hækkun vísitölunnar um
2,1% frá júlí til ágúst stafa um
0,4% af hækkun á verði mat- og
drykkjarvöru. Verðhækkun inn-
fluttrar vöru annarrar en mat-
vöru hafði í för með sér 0,2%
hækkun. Húsnæðiskostnaður olli
um 0,4% hækkun vísitölunnar,
hækkun á afnotagjöldum pósts
og síma olli um 0,3% hækkun og
hækkun á verði bensíns um 6,7%
þann 15. júlí sl. olli um 0,3%
hækkun. Verðhækkun ýmissa
vöru- og þjónustuliða olli um
0,5% hækkun vísitölunnar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 28,8%. Hækkun vís-
itölunnar um 2,1% á einum mán-
uði frá júlí til ágúst svarar til
29,1% árshækkunar. Undan-
farna þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 9,3% og jafngildir sú
hækkun 42,5% verðbólgu á heilu
DAGUR
Akureyri
0 96-24222
Norðlenskt datíblað
Endurhæfmgarstöðin á Bjargi:
Vetrarvertíðin
að hefjast
- líkamsrækt og veggbolti
Vetrarvertíðin hjá Endurhæf-
ingarstöðinni Bjargi á Akur-
eyri er að hefjast um þessar
mundir. Boðið verður upp á
líkamsræktarprógram og vegg-
bolta en breytt fyrirkomulag
verður með tímapantanir og
kort.
Sólveig Þráinsdóttir sjúkra-
þjálfari á Bjargi sagði líkams-
ræktina verða með svipuðu sniði
og í fyrra. Viðskiptavinir sem
halda áfram frá fyrra vetri þurfa
ekki að panta tíma en nýir panta
fyrsta tímann en eftir það geta
þeir mætt þegar þeim hentar.
„Núna er hægt að kaupa mán-
aðarkort og fólk getur þá mætt að
vild á gildistíma kortsins. Þar
með geta þeir sem eru duglegir
fengið smá bónus,“ sagði Sól-
veig.
Hún sagði einnig að verið væri
að reyna að fá félagasamtök og
vinnustaði til þess að taka sig
saman og fá sértíma. „Við þurf-
um þá að fá að vita um það sem
allra fyrst svo við getum skipulagt
þá.“
--------------------------------
í veggboltanum verða nokkrir
möguleikar í sambandi við tíma-
pantanir. Hægt verður að tryggja
sér tíma fjóra mánuði fram í
tímann. Einnig er hægt að kaupa
tíu tíma kort og svo staka tíma og
verður verðið misjafnt eftir því á
hvaða tíma dagsins tíminn er.
„Fólk þarf að tryggja sér tíma
a.m.k á álagstímum því þetta
virðist vera mjög vinsæl íþrótt,“
sagði Sólveig.
„Það er eins með veggboltann
og líkamsræktina að hópar og
vinnustaðir geta tekið sig saman
og fengið sali til afnota. Einnig
verðum við með sérstök kjör fyr-
ir skólafélög framhaldsskólanna
og eldri bekki grunnskólanna."
Ef byrjendur í þessari íþrótt
hafa áhuga á að fá tilsögn þá
verða fastir tímar í vetur fyrir þá
og er þeim bent á að gefa sig fram
við afgreiðslufólk á Bjargi.
Miklar líkur eru til þess að ein-
hver veggboltamót verði haldin á
Bjargi í sambandi við íslands-
meistarakeppni en einnig verður
eitthvað um „gamnimót." KR