Dagur - 26.08.1988, Blaðsíða 19
26. ágúst 1988 - DAGUR - 19
íþrótfir
Akureyrarslagurinn í kvöld
í kvöld verður mikið um dýrðir
hjá akureyrskum knattspyrnu-
áhugamönnum því þá mætast
erkifjendurnir KA og Þór á
Akureyrarvelli. Leikurinn er
liður í Akureyrarmótinu í
knattspyrnu og fer aðeins þessi
eini leikur fram þannig að ef
liðin gera jafntefli verður
framlenging og síðan víta-
spyrnukeppni ef með þarf.
Leikurinn hefst kl. 19.
Það verður án efa fróðlegt að
fylgjast með þessum leik því
viðureignir liðanna hafa sjaldnast
einkennst af ládeyðu. KA-liðið
hefur komið nokkuð á óvart í
sumar og virðist vera á fljúgandi
siglingu um þessar mundir. Þórs-
liðinu hefur hins vegar gengið
verr en reiknað var með og hefur
nú hlotið 6 stigum færra en KA
þegar fjórar umferðir eru eftir af
Islandsmótinu.
En þrátt fyrir þetta er ómögu-
legt að spá fyrir um úrslit leiksins
í kvöld og kemur þar margt til.
Ef litið er á innbyrðis viðureignir
liðanna í ár hafa Þórsarar vinn-
inginn. Liðin hafa leikið þrjá
leiki og Þórsarar hafa unnið tví-
vegis en einu sinni varð jafntefli.
Á móti má benda á að KA-menn
unnu þennan sama leik í fyrra og
hafa eflaust ekki í hyggju að
afhenda Þórsurum Akureyrar-
meistaratitilinn án átaka.
- erkiflendurnir Þór og KA mætast á Akureyrarvelli kl. 19
Dagur hafði samband við þjálf-
ara liðanna og spurði þá hvernig
leikurinn leggðist í þá og rabbaði
einnig við þá um gengi liðanna
hingað til.
Guðjón Þórðarson,
þjálfari KA
„Þetta leggst bara ágætlega í mig.
Ég hef ekki trú á að Þórsarar hafi
neitt tak á okkur. KA vann þenn-
an leik í fyrra og þó að okkur hafi
ekki gengið vel með þá á þessu
ári þá hef ég trú á að það verði
breyting þar á í kvöld."
- Hvað hefur þér fundist um
Þórsliðið í sumar?
„Það er nú ekki í mínum
verkahring að gagnrýna önnur lið
og ég vil helst skorast undan
því.“
Jóhannes hættir
með Þór!
Nú er orðið nokkuð Ijóst að
Jóhannes Atlason mun láta af
störfum sem þjálfari 1. deild-
arliðs Þórs í knattspyrnu að
loknu þessu keppnistímabili.
Einnig er hugsanlegt að
Jóhannes hætti alfarið störf-
um sem þjálfari. Þetta má
ráða af orðum Jóhannesar í
samtali við Dag í gær.
„Ég er núna búinn að vera
viðloðandi þjálfun í 23 ár og ég
hef verið að segja að minn
skammtur í þjálfun sé að verða
búinn. Þar fyrir utan hef ég ver-
ið hér í 8 ár, ég hef verið í 2 ár
með ÍBA, 3 ár með KA og 3 ár
með Þór, og þetta er náttúrlega
að verða ansi gott. Ég held að
ég sé að verða búinn að skila
mínum skammti til Akureyrar.
Ef ég á eftir að þjálfa meira þá
held ég að það verði ekki úti á
landi. En þetta hefur verið
ógleymanlegur tími hér fyrir
norðan og maður á eftir að búa
að þessu alla tíð,“ sagði
Jóhannes Atlason. JHB
- En KA-liðið?
„KA-liðið hefur staðið sig
ágætlega. Þessi árangur hefur
ekki komið mér á óvart. En ég er
ekki ánægður, við eigum að vera
búnir að vinna fleiri leiki. Þetta
hefur gengið ágætlega undanfarið
en nú eru að skapast ákveðnir
erfiðleikar. Ég er búinn að missa
tvo úr hópnum til útlanda og nú
eru nokkrir að fara til Reykjavík-
ur í skóla. Þetta ruglar allan
undirbúning og skapar erfið-
leika."
- Hvernig leikur verður þetta í
kvöld?
„Ég vona bara að þetta verði
skemmtilegur leikur og liðin
kappkosti að spila skemmtilegan
og góðan fótbolta.“
Jóhannes Atlason,
þjálfari Þórs
„Þessi leikur leggst ágætlega í
mig. Ég á von á að hann verði
keimlíkur fyrri leikjum þessara
liða, niikil barátta þar sem hvor-
ugt liðið þolir að tapa fyrir hinu.“
- Nú hefur KA-liðinu gengið
betur það sem af er íslandsmót-
inu. Þið virðist hins vegar hafa
eitthvert tak á þeim. Hefurðu ein-
hverja skýringu á því?
„Nei ég veit nú ekki af hverju
það er. Þetta er þannig í knatt-
spyrnunni að viss lið eiga ár
eftir ár í erfiðleikum með önnur.
Við getum tekið sem dæmi að
Keflvíkingum gengur alltaf vel
uppi á Akranesi. En ég veit ekki
af hverju þetta stafar. Það rná
hins vegar benda á að KA-mönn-
um tókst að vinna Þórsara í
Akureyrarmótinu í fyrra eftir að
hafa farið halloka fyrir þeim í
þremur leikjum fyrr um sumar-
ið.“
- Hvert telur þú vera sterkasta
vopn KA-liðsins?
„KA-liðið er mjög jafnt lið.
Það hefur oftast verið teknískara
en Þórsliðið en Þórsararnir hafa
verið sterkari og oftast baráttu-
glaðari. En leikir þessara liða
hafa alltaf verið jafnir og hefur
þá engu breytt þótt annað liðið
hafi verið í 1. deild og hitt f 2.
deild."
- Hefur KA-liðið konuð þér á
óvart í sumar?
,Svona bæði og. Við skulum
ekki gleyma því að KA-liðið varð
í 6. sæti í fyrra og spilaði þá oft á
tíðum mjög góðan fótbolta. Að
spá þeim botnsæti í ár var nátt-
úrlega út í hött en ef við tökum
mið af þeirri spá hefur liðið stað-
ið sig frábærlega."
- Hvað með gengi Þórsliðsins?
„Það hefur valdið mér von-
brigðum að undanskildum
nokkrum leikjum. Mér hefur
fundist nokkuð skorta á baráttu-
gleðina - síðasti leikur er gott
dæmi um það. Þar vantaði mjög
baráttugleði og trú á að liðið gæti
þetta. Menn hafa viljað leysa
málið með því að kenna einum
eða tveimur mönnum um en það
er auðvitað ekki rétt eins og sést
hefur í leikjum gegn KA og KR
svo dæmi séu tekin. Við getum
sagt að þetta hafi verið skortur á
Halldór
ekki með?
Halldór Áskelsson, knatt-
spyrnumaðurinn snjalli úr
Þór, á nú við meiðsli að
stríða. Halldór hefur kennt
sér meins í hægri ökkla og rist
um nokkurn tíma og nú er
það orðið það slæmt að óvíst
er að hann geti leikið með
Þórsurum gegn KA í kvöid.
Halldór sagði í samtali við
blaðið að ekki væri ljóst af
hverju meiðslin stöfuðu en
hugsanlega væri um þreytu að
ræða. Taldi hann ekki mikla
möguleika á að hann gæti leikið
í kvöld. JHB
Knattspyrna 2. deild:
Botnbaráttan í algleymingi
- Tindastóll fær Fylki í heimsókn og KS fer á Selfoss
Fjórir leikir eru í 2. deild í
kvöld og hefur spennan í botn-
baráttunni sjaldan eða aldrei
verið meiri. Aðeins 4 stig skilja
að liðið í 3ja sæti og því
níunda, þannig að allt getur
gerst. FH og Fylkir eru nánast
örugg um 1. deildarsæti, en
Fylki vantar tvö stig til að
tryggja sig. Þeir eiga að spila
við Tindastól á Sauðárkróki í
kvöld og þá eiga Siglfirðingar
leik á Selfossi.
Tindastóll er í sjöunda sæti fyr-
ir leikinn í kvöld með 16 stig og
KS í áttunda með 13. Dagur
hafði samband við þjálfara
Tindastóls og KS og innti þá eftir
áliti á leikjum liða sinna í kvöld.
Fyrst var Bjarni Jóhannsson
þjálfari Tindastóls fyrir svörum:
„Fylkir er með eitt besta liðið í
2. deild og það verður á brattann
að sækja fyrir okkur, en þeir eru
alls ekkert ósigrandi. Við munum
leggja allt í sölurnar til að vinna
þennan leik. Við erum náttúrlega
í basli í deildinni ásamt 8 liðum
og hver leikur er úrslitaleikur,
við tökum einn leik fyrir í einu og
reynum að gera okkar besta. Það
er sterkt að eiga tvo heimaleiki í
Bjami Jóhannsson: „...hver leikur
er úrslitaleikur.“
--------Ui____________________:--------
röð, sem þýðir að við verðum að
vinna þá, það er ekki sterkt ef við
töpum þeim báðum,“ sagði
Bjarni, en Tindastóll á síðan Sel-
foss heima eftir Fylkisleikinn.
„Næstu tveir leikir hjá okkur
eru útileikir og tapleikurinn gegn-
UBK um síðustu helgi gerði okk-
ur erfitt fyrir. Af næstu tveim úti-
leikjum verðum við a.m.k. að
vinna annan. Ef við töpum þeim
báðum verður staðan mjög erfið
hjá okkur. Leikurinn gegn UBK
var ekki lélegur af okkar hálfu,
við vorum óheppnir. En mér
finnst leikmenn ekki eins sann-
færandi í leikjum eins og á æfing-
um, þá eru þeir afslappaðir, en
þegar í leik er komið er eins og
þeir verða taugaóstyrkir. Það er
góður andi í liðinu, þannig að ég
vona að okkur gangi vel í næstu
leikjum, ef ekki, þá erum við í
miklum vandræðum,“ sagði
Eddie May þjálfari KS í samtali
við Dag.
irir'lý1!1''))á.*il*íSÍ i? iít' !t
Fimm umferðir eru eftir í 2.
deild þannig að lítið er hægt að
spá um hvenær línur fara að
skýrast. -bjb
metnaði."
- Viltu spá einhverju um úrslit
í kvöld?
„Ég get alveg spáð því að þetta
verður hörkuleikur. Það verður
barist til síðustu mínútu eins og
venjulega. Við ætlum okkur að
sjálfsögðu að vinna þennan leik
og þeir ætla sér að vinna okkur
þannig að þetta verður bara að
koma í ljós.“ JHB
Golfklúbbur Húsavíkur:
Úrslit fírma-
keppnimiar
í dag
Úrslit í Firmakeppni Golf'-
klúbbs Húsavíkur 1988 fara
fram á Katlavelli í dag, föstu-
daginn 26. ágúst og hefst
keppnin kl. 17:30.
Keppt verður til úrslita í nafni
15 fyrirtækja en forkeppnin hefur
staöið yfir síðan í vor. Öllum er
velkomiö að koma og fylgjast
meö keppninni sem áætlað er að
standi yfir til kl. 21:00.
Að keppninni lokinni verður
fyrirtækinu sem sigrar afhentur
verðlaunagripur. IM
Pakkaferðir á
Evrópuleiki
Fram og Vals
Knattspyrnufélögin Fram og
Valur hafa ákveðið í samvinnu
við ferðaskrifstofuna Sam-
vinnufcrðir/Landsýn að bjóða
upp á sérstakar pakkaferðir
utan af landi í sambandi við
Evrópuleiki félaganna 6. og 7.
september næstkomandi.
Leikirnir fara fram á Laugar-
dalsvelli. Þriðjudaginn 6. sept-
ember leika Valur og Monaco kl.
18.15 og miðvikudaginn 7. sept-
ember leika Fram og Barcelona
og hefst sá leikur einnig kl. 18.15.
Innifalið í pakkanum er flug til
og frá Reykjavík, gisting í tvær
nætur (þrenns konar gistimögu-
leikar) og miðar á báða leiki.
Boðið er upp á mjög hagstætt
verð.
Upplýsingar veita umboðs-
menn Samvinnuferða um allt
land, innanlandsdeild á aðalskrif-
stofu (91-691010) svo og skrif-
stofur knattspyrnudeilda Vals
(91-623730) og Fram (91-
680343).
Einnig er unnt að ferðast til
Reykjavíkur með áætlunarbif-
reiðum BSÍ og fá miða á leikina á
skrifstofu BSI.
Akureyri:
Coca-Cola mótið
í golfi
Um helgina fer fram Coca-
Cola mótið í golfi á Jaðarsvelli
á Akureyri. Mótið er öllum
opið og verða leiknar 36 holur
í karla- og kvennaflokki, með
og án forgjafar.
Upphaflega átti mótið að vera
stigamót þar sem leiknar yrðu 72
holur en nú hefur verið horfið frá
• '* ■ > i a1 ið'L'ikldlili il'
því. Mótið hefst kl. 8 á laugardag
og verður því framhaldið á sama
tíma á sunnudag. Búist er við
góðri þátttöku en þegar hefur
nokkur fjöldi golfara af höfuð-
borgarsvæðinu boðað komu sína.
Sigurvegararnir hljóta vegleg
verðlaun og einnig verður veittur
mikill fjöldi aukaverðlauna.
JHB