Dagur - 26.08.1988, Page 3
Sirkusauglýsingar límdar
upp án leýfis á Akureyri
Varla hefur það farið framhjá
mörgum Akureyringum að
spænskur sirkus er kominn í
bæinn, enda er slíkt ekki
hversdagslegur atburður.
Skrautleg auglýsingaplaköt frá
sirkusnum gefur að líta víða á
Akureyri en ekki eru allir jafn
sáttir við hvernig að uppsetn-
ingu plakatanna var staðið.
Einhverjir óþekktir aðilar hafa
límt upp fjölda auglýsingaplakata
frá sirkusnum án þess að hafa
fengið til þess leyfi húsráðenda.
Jón Rafn Högnason hjá Kórónu-
kjúklingum í Skipagötu 12 er
einn þeirra sem fengu óumbeðið
sirkusplakat á vegg- hjá sér á
dögunum. Hann sagði að erfitt
yrði að fjarlægja plakatið, líklega
þyrfti að rennbleyta það og reyna
síðan að rífa það af með vír-
bursta. Því næst þyrfti að mála
vegginn að nýju.
„Mér finnst lágmarkskurteisi
að biðja um leyfi í tilvikum sem
þessum,“ sagði Jón og bætti við
að hann tryði ekki öðru en að
kostnaður við að fjarlægja plak-
atið og mála vegginn yrði bættur
að fullu. Þess má geta að margir
húseigendur á Akureyri eru
óánægðir með hvernig að upp-
setningu sirkusplakatanna var
staðið, ekki síst vegna þess að
mikið verk er að fjarlægja þau.
Að sögn Jörundar Guðmunds-
sonar, umsjónarmanns sirkussins,
voru sum plakötin fest upp á
byggingar án þess að leyfi væri
fyrir hendi. Sirkusinn mun bæta
hugsanlegan skaða af þessum
völdum og verða þessi plaköt
fjarlægð af starfsmönnum hans.
EHB
26. ágúst 1988- DAGlJR - 3
OLYMPIAO ritvélar
Hausttilboð
Vegna hagstæðra innkaupa getum við boðið
Olympia Carrera ritvélar á kr. 17.600,- staðgreitt.
Venjulegt verð er kr. 19.900,-
Tilboð þetta gildir meðan birgðir endast.
Ritvélin sem fylgir þér hvert sem er
Skólaritvél í sérflokki með lyklaborð
aðlagað að fingrunum sem auðveldar hraða og
villulausa vélritun.
Skrifstofuritvél í sérflokki með ásláttarjafnara,
síendurtekningu á öllum tökkum,
leiðréttingarminni o.m.fl. sem tryggir góðan
frágang án fyrirhafnar.
Olympia Carrera er tengjanleg við allar tölvur.
Irank xeroxBSB EPSON OLYMPIAO
18 Bókabúðin Edda
■Bi Hafnarstræti 100 ■ Akurevri • Sími 24334 ^■■1
—J
FÓLK HEFUR YFIRLEITT
EKKI MEÐFÆTT ÁLIT Á
KJARABRÉFUM, - ÞAÐ VEX
VIÐ AÐ SKOÐA AÐRAR
SPARNAÐARLEIÐIR!
Við erum til húsa á Ráðhústorginu. Komdu við og fáðu
| upplýsingar og bæklinga um Kjarabréf,Tekjubréf, Markbréf,
Frjálsa lífeyrissjóðinn og aðrar hentugar sparnaðarleiðir.
FJÁRFESTINGARFÉIAGIÐ
RÁÐHÚSTORGI 3, AKUREYRI
FJÁRMÁL ÞÍN - SÉRGREIN OKKAR