Dagur - 26.08.1988, Blaðsíða 6

Dagur - 26.08.1988, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 26. agust 1988 /------------------------------------\ Akureyri - Nágrenni Óskum eftir ad taka á leigu 150-300 m' iðnaðar- eða lagerhúsnæði frá og með næstu mánaða- mótum. Allt getur komið til greina, jafnvel gamlar hlöður. Nánari upplýsingar í gegnum pósthólf 121 Akureyri ^ eða í síma 96-22276. A á góðum degi Er furða þótt menn verði gjaldþrota? — Tilkynning frá Sparisjóði Glæsibæjarhrepps Opið verður föstudaginn 26. ágúst frá kl. 10-12. Lokað eftir hádegi vegna jarðarfarar Skarphéðins Halldórssonar fyrrverandi sparisjóðsstjóra. Sparisjóður Glæsibæjarhrepps. V_________________________/ Svalbarðsströndungar í tilefni af 100 ára afmæli Búnaðarfélags Sval- barðsstrandar býður félagið Svalbarðsströndung- um og burtfluttum fyrrverandi félögum til sam- komuhalds sunnudaginn 4. september kl. 20.30. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í símum 24902 Helgi eða 22309 Grímur. Stjórnin. AKUREYRARB/íR Unglingavinna Dansleikur unglingavinnu Akureyrar verður haldinn í Dynheimum laugardaginn 27. ágúst kl. 22.00-02.00. Þessi dansleikur er aðeins fyrir unglinga, sem störfuðu hjá unglingavinnu Akureyrar sumarið 1988. Forstöðumaður. á veginn! Flestir slasast í umferðinni á sumrin. Þá er enn meiri þörf á að halda athyglinni vakandi en ella. Látum ekki of hraðan akstur eða kæruleysi spilla sumarleyfinu. Tökum aldrei áhættu! Er eitthvað gott hægt að skrifa á þessum góða degi, þegar harma- kvein um svarta framtíð glymur yfir okkur jafnt frá ljósvakafjöl- miðlunum og fréttablöðum lands- ins. Eru mögru kýrnar Faraósins hins forna gengnar á íslenska grund og enginn Jósef Jakobsson til aö ráða fram úr þeim vanda sem þær boða, eins og sá sem forðum sat í egypska fangelsinu og leysti svo farsællega úr vand- anum að hann ekki einungis hjálpaði egyptunum heldur mörg- um fleiri þjóðum. í sjónvarps- fréttum fyrir skemmstu sagði einn af þeim mönnum sem valinn hefur verið af stjórninni til að reyna að finna lausn á vandan- um, að óhjákvæmilegt væri að lífskjör okkar mundu skerðast stórlega hvort sem eitthvað yrði aðhafst til að vinna gegn vandan- um eða látið reka á reiðanum áfram. Hvert viðtalið á fætur öðru birtist á sjónvarpsskjánum við háttvirtan viðskiptaráðherra. Hann kemur vel fyrir í þessum viðtölum, en lætur ekkert uppi um hvort farið verður niður með kaup og verðlag eða gengi krón- unnar lækkað eða hvorutveggja með viðeigandi hliðarráðstöfun- um. Ég hjó eftir að í einu viðtal- inu kom hann með orðið „meiri- háttar“. Þetta er fallegt og alíslenskt orð en því miður nú orðið svo misnotað af fjölda landsmanna að varla leggja menn mikla áherslu á nokkurn skapað- an hlut nema að hnýta aftan við hann að hann sé meiriháttar. Þetta er átakanlegt dæmi um hvernig eyðileggja má falleg orð í okkar ylhýra máli. Að vísu bætti ráðherrann verulega um er hann í sama viðtali kom með nýyrðið, þarfarýmisathugun! ★ Vatteraðir herrastakkar kr. 2590-2790.- ★ Ný sending af leðurjökkum ★ Gallabuxur, nýjar tegundir Dúnstakkar 3 Mtir kr. 6.990.- Sem leikmaður get ég engan veginn séð að þessi ríkisstjórn eigi sök á þeim vanda sem fram- undan er. Ég held hreinlega að við höfum „étið yfir okkur“, bæði hvað mat og aðra lifnaðarhætti snertir. Það er sagt að mörg fyrir- tæki og einstaklingar muni verða gjaldþrota á næstu mánuðum og kann það rétt að vera, en eitt er víst að þær stofnanir sem reknar eru til þess að við getum náð af okkur aukakílóunum verða ekki gjaldþrota í bráð. Einnig trúi ég að mörg fínu veitingahúsin með sínar fallegu innréttingar og sælkeramáltíðir standi enn um sinn. Það er sífellt verið að reyna að koma verðbólgunni niður og það á að vera lausn allra þessara vandamála. En þegar við lækkum verð á bifreiðum þannig að marg- ar vörugeymslur fyllast af þessum lúxuskerrum og góðir notaðir bíl- ar verða óseljanlegir, allt í þvf skyni að lækka vísitölu fram- færslukostnaðar, sem heldur svo verðbólgunni að nafninu til niðri, þá held ég að við séum farin að plata okkur .sjálf. Hér við bætist svo að á meðan við hendum afurðum okkar á öskuhauga eða komum þeim öðruvísi í lóg, hvort heldur er kjöt eða grænmeti meðan upp- skerubrestur þjáir margar þjóðir, getur varla vel farið. Mörgum okkar var kennt að það væri ljótt að henda mat og ég held enn að slík sóun geti aldrei talist lofsverð. Ég fyrir mitt leyti held að verðbólgan liggi í því að við erum svo fá að við getum ekki risið undir öllum þessum höllum og lúxus og satt að segja mesta furða að við sem heild séum ekki löngu orðin gjaldþrota. Það er dugnaður þeirra, sem afla verð- mætanna sem hefur komið í veg fyrir það og ríkisstjórnin á hverj- um tíma, þrátt fyrir allt. Eins og ég hef áður getið um sagði Kiljan eitt sinn að það væri dýrt að vera íslendingur, ég held að það sé lúxus. Sjáum alla bank- ana og útibú þeirra, nú eiga þeir að vera tengiliður í að bjarga þjóðarskútunni, ,með kaupum á ríkisskuldabréfum. Maður sem ég ræddi við um daginn sagði við mig: „Það er voðalegt hvernig þessi ríkisstjórn ætlar að sigla öllu í strand hér á þessum kletti.“ Síðan sá ég á eftir honum stíga upp í glæstan bílinn sinn að verð- mæti langt yfir 1 milljón króna. Auk þess á hann þrjá-fjóra ódýr- ari bíla sem hann notar svona í snatt. Það er ekki langt síðan fyrsti sparisjóðurinn var stofnaður, bankarnir eru jú þróunin frá þeim. Fyrsti sparisjóðurinn mun víst hafa verið stofnaður á Seyð- isfirði rétt fyrir árið 1870 en leið undir lok fyrir 1872. Um 1886 var sparisjóður Sauðárkróks stofnað- ur. í 2. grein samþykktar sjóðsins segir svo: „Aðaltilgangur sjóðs- ins er að koma í veg fyrir óþarfa kaup og eyðslusemi, en geyma og ávaxta fé efnalítilla manna, sem þeir kynnu að hafa afgangs, að öðru leyti er það sjálfsagt að hinir efnabetri eigi frjálsan aðgang að sjóðum.“ Alþýðan hafði að vísu löngum lítið af peningum að segja, en ýmsir peningamenn meðal hennar - svonefndir maurapúkar - geymdu sjóð sinn á kistubotni og komust peningar þeirra allajafna lítið í umferð, meðan þeir lifðu, nema einhverj- um hugkvæmdist að stela þeim og það tækist. En nú er öldin önnur og bankarnir, þessi risa- vöxnu afkvæmi gömlu sparisjóð- anna, þjóna nú öðrum tilgangi. Ég minntist á gjaldþrotamálin sem spáð er að séu framundan. Ekki er neitt nýtt undir sólinni, eins og þar stendur. í Reykjavík- urdagblaði frá 30. 1. 1943 er að finna frétt undir þessari fyrir- sögn: „Hæsti skattgreiðandi í fyrra - gjaldþrota í ár: Umboðs- og heildsali nokkur, er var hæsti skattgreiðandi allra einstaklinga á skattskrá Reykjavíkur í fyrra, hefur nú verið úrskurðaður gjald- þrota. Þetta eru mikil umskipti og snögg. Helstu skattar þessa manns í fyrra voru: Tekjuskattur 127 þús. kr., stríðsgróðaskattur 311 þús. og útsvar 50 þús. kr. Skattar námu alls rúmlega hálfri milljón. Nú hefur maðurinn verið úrskurðaður gjaldþrota í miðri stríðsgróðaveltunni. “ Er þá nokkur furða þótt menn verði gjaldþrota í dag t.a.m. menn sem setja á stofn fyrirtæki með lítið sem ekkert eigið fé, en stóla algjörlega á banka- eða lánastofnafyrirgreiðslu?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.