Dagur - 31.08.1988, Page 1
71. árgangur Akureyri, miðvikudagur 31. ágúst 1988 163. tölublað
Filman þin
á skiliö þaö
besta1
Nýja Filmuhúsið
Hafnarstræti 106 Sími 27422 Pósthólf 196
Hrað-
framköllun
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Ólafsfjarðarmúli:
Vegurinn
stórskenundiu*
- óvíst hvenær hann
verður opnaður á ný
„Vegurinn í Ofærugjá var
gersamlega horfínn, það var
ekki hægt að sjá að nokkurn
tíma hefði verið vegur á þess-
um stað,“ sagði Fylkir Guð-
mundsson, ungur Olafsfírðing-
ur sem fór fótgangandi fyrir
Múlann á mánudag.
Fylkir var staddur á Akureyri
um helgina en þurfti að komast
aftur til Ólafsfjarðar í vinnu á
mánudag. Hann fór í bíl að svo-
nefndri Tófugjá og gekk þaðan til
Ólafsfjarðar. Fylkir sá að vegur-
inn er horfinn á 50-60 metra löng-
um kafla í Ófærugjá og á alllöng-
um kafla við fyrirhugaðan
gangamunna. Varð Fylkir að
klifra nokkuð upp í fjallið til að
Ólafsíjörðiir:
Mikið
álag á
símakerfið
Kvartað hefur verið yfír erfið-
leikum á að ná símasambandi
við Olafsfjörð undanfarna
daga. Stafar þetta að hluta til
af miklu álagi á símakerfí
bæjarins.
íbúar við efstu göturnar í
bænum, Hlíðarveg, Hornbrekku-
veg, Túngötu, Brekkugötu og
Brimnesveg, hafa dvalið annars
staðar eftir að skriðurnar féllu.
Ekki er vitað um skemmdir á
símalínum í hverfinu en þó
komst raki í línurnar í Ægisgötu,
sem er í grennd við höfnina.
Starfsfólk Pósts og síma beinir
þeim tilmælum til fólks að
hringja ekki til Ólafsfjarðar
nema nauðsyn beri til. EHB
komast leiðar sinnar.
Eftir ferð Fylkis er Ijóst að
þrjár stórar skriður féllu á veginn
Dalvíkurmegin. Tíu til fimmtán
skriður féllu ytir veginn og fram
af honum út í sjó Ólafsfjarðar-
megin, auk margra tuga af
smáskriðum sem stöðvuðust á
veginum. Fylkir taldi ekki ólík-
legt að 70 til 80 skriður hefðu fall-
ið á veginn en erfitt er að segja
nákvæmlega til um fjöldann.
Hjá Vegagerð ríkisins á Akur-
eyri fengust þær upplýsingar að
tjónið á veginum fyrir Ólafsfjarð-
armúla væri mjög mikið. Pað yrði
kannað við fyrsta tækifæri en
norskur verkfræðingur, sem
staddur er í Ólafsfirði á vegum
Krafttaks hf., sagði að fyllufótur-
inn undir veginn væri horfinn
a.m.k á kafla. Ef uppistaða veg-
arins er verulega skemmd getur
viðgerð tekið langan tíma og
kostað háar upphæðir, í versta
falli milljónatugi. Björn Harðar-
son, verkfræðingur Vegagerðar-
innar, var á leiðinni til Ólafs-
fjarðar í gær frá Reykjavík til að
kanna skemmdirnar. EHB
Frá Ólafsfírði. Aurskriðurnar hafa valdið niiklu tjóni og vinna hópar fólks að björgunarstarfí í bænum. Takið eftir
vatnsfíóðinu fyrir neðan brekkuna. Mynd: TLV
Gífurlegt tjón í Ólafsfirði
- björgunarmenn leggja nótt við dag - hitaveitan og vatnsveitan skemmdust
Alvarlegt ástand ríkir í Ólafs-
fírði eftir aurskriðurnar sem
féllu á bæinn og umhverfí
hans. Vegurinn fyrir Ólafs-
fjarðarmúla er stórskemmdur
og alveg horfínn á köflum,
hitavcita og vatnsveita hafa
orðið fyrir áföllum auk gífur-
legs tjóns á eignum og lóðum.
Ljóst er bærinn hefur orðið
fyrir gífurlegu áfalli en Ólafs-
fírðingar taka þessu mótlæti
með jafnaðargeði og leggja
nótt við dag í björgunarstarf-
inu.
Guðbjörn Arngrímsson á
bæjarskrifstofunni í Ólafsfirði
sagði í gær að menn héldu að sér
höndum á meðan enn rigndi og
treystu sér tæplega upp í brekk-
urnar fyrir ofan bæinn til að
kanna aðstæður því hættuástand-
ið væri ekki liðið hjá. Búið er að
moka mesta aurnum út úr húsun-
Erfiðleikar hjá Óslaxi hf.:
Stööugt skipt um síur
vegna vatnsmengunar
Annasamt hefur verið hjá
starfsmönnum Óslax hf. í
Ólafsfírði undanfarna daga. Á
laugardag fór vatn að gruggast
í fískeldiskerum fyrirtækisins
og hefur þurft að standa nótt
sem nýtan dag yfír kerunum,
skipta um síur og gera aðrar
ráðstafanir til að koma í veg
fyrir tjón af völdum mengunar
í vatninu.
Ármann Þórðarson, sem hefur
yfirumsjón með fiskeldinu, sagði
að sem betur fer hefði ekki orðið
seiðadauði hjá fyrirtækinu en
vatn til Óslax hf. gruggaðist í
kjölfar skemmda á vatnsæð í
skriðuföllunum á sunnudaginn.
Reyndar var vatnið farið að
gruggast áður en leiðslan
skemmdist og það þegar á laugar-
dag, en ntiklir vatnavextir voru
þá vegna úrkomu.
„Petta er auðvitað búið að vera
hörmungarástand vegna þessara
náttúruhamfara, en með dugnaði
vona ég að menn hafi þetta af,“
sagði Ármann. Aðspurður um
hvort hann teldi að endurskoða
þyrfti forsendur fyrir fiskeldi í
Ólafsfirði í kjölfar nýjustu
atburða sagði hann: „Ég er ekki
tilbúinn til að viðurkenna það.
Þetta getur sjálfsagt komið fyrir
einu sinni á öld eða svo. Þessir
atburðir gefa tilefni til að um
málin sé hugsað og hvernig
bregðast eigi við áfalli sem
þessu.“
Óslax hf. virðist því hafa
sloppið við skakkaföll að mestu,
ef frá er talinn kostnaður við yfir-
vinnu og missir laxagildru í Ósn-
um um helgina. EHB
unt sem verst urðu úti í skriðun-
um á sunnudag en tjón hefur ekki
verið metið enda ógerlegt sem
stendur. Þó er ljóst að það skiptir
tugum milljóna króna, á húsbún-
aði, innanstokksmunum og bif-
reiðum, en a.m.k. ein bifreið er
gjörónýt eftir hamfarirnar og
margar bifreiðar meira eða
minna skemmdar, rispaðar og
dældaðar.
Ljóst er að tryggingar bæta
ekki tjón af völdum náttúruham-
fara sem þessara og verður því að
leita annarra ráð. Fulltrúi Við-
lagasjóðs var væntanlegur í gær
til Ölafsfjarðar til að kanna
aðstæður og skoða tjónið.
Hitaveituleiðslan í Garðsdal
fór í sundur í skriðu en Ólafsfirð-
ingar hafa þó enn hitaveitu því
hún er tekin úr tveimur stöðum.
Þá er Ijóst að kaldavatnsleiðslan
hefur skemmst eða orðið fyrir
hnjaski því lítill kraftur er á
rennslinu. Atvinnulíf er, að sögn
Guðbjarnar, meira og minna
lamað eftir skriðuföllin því fólk
þarf að huga að eigum sínum og
fleiru, eins og eðlilegt er eftir slíkt
áfall.
Björgunarsveitin var kölluð út
eftir hádegi í gær auk sjálfboða-
liða og fóru margir til björgunar-
starfa. Geysilegt starf hefur verið
unnið undanfarna daga við
hreinsun og björgun í bænum og
fyrirbyggjandi aðgerðir björguðu
því sem bjargað varð meðan vatn
rann yfir byggðina úr fjallinu.
Eftir helgina var farið á gröfum
og jarðýtum upp í fjallshlíðina og
farvegum breytt þannig að vatnið
liætti að safnast sarnan í brekkun-
um fyrir ofan bæinn.
Til að bæta gráu ofan á svart
voru áhöld um hvort tækist að
halda einu samgönguleiðinni,
veginum fram Ólafsfjörð og yfir
Lágheiði, opinni. Vakt er höfð
við veginn á verstu stöðunum en
hann var vægast sagt tæpur milli
bæjanna Hólmkots og Vatns-
enda. EHB
Ráðning
framkvæmdastjóra ÚA:
Málið enn
óafgTeitt
Stjórn Útgerðarfélags Akur-
eyringa kom saman til fundar á
mánudag. Á fundinum var
m.a. rætt um ráðningu nýs
framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins en ekki var tekin ákvörðun
í málinu.
Samkvæmt heimildum blaðsins
verður ekki gengið frá ráðning-
unni í þessari viku en stefnt að
því að gera það sem fyrst. Eins
og komið hefur fram í blaðinu
sóttu 14 aðilar um stöðuna og þar
af óskuðu 7 þeirra nafnleyndar.
-KK