Dagur - 31.08.1988, Side 3
31. ágúst 1988 - DAGUR - 3
Norðurland vestra:
Vantar 8-10 kennara
- ástand verst á Siglufirði, Skagaströnd og Hofsósi
Ástand í kennararáðningum á
Norðurlandi vestra er að sögn
Guðmundar Inga Leifssonar
fræðslustjóra svipað og á sama
tíma í fyrra. Eftir er að ráða í
um 8-10 stöður í kjördæminu
og er ástandið einna verst á
Skagaströnd, Hofsósi og Siglu-
firði. Aðeins fleiri menntaðir
kennarar hafa ráðist til starfa
en áður, þótt enn séu Ieiðbein-
endur víða við kennsiu.
Á Siglufirði vantar 2 stöður,
2Vi stöðu á Skagaströnd, IV2 á
Hofsósi og annars staðar eina eða
minna en eina stöðu. „Á þessum
stöðum eru ekki einu sinni leið-
beinendur í sigtinu, þannig að
það lítur ekkert vel út, sérstak-
lega á Siglufirði. Annars staðar
verður þessu líklega reddað með
stundakennurum eða réttinda-
mönnum sem tækju kennsluna
sem aukastarf," sagði Guðmund-
ur Ingi.
„Það er svolítið erfitt að bera
þessa stöðu saman við sama tíma
í fyrra því þá voru nýju lögin
fyrst að taka gildi um hvernig
ráða ætti réttindalausa kennara,
eða leiðbeinendur. Þá biðu menn
svolítið lengur með að ráða leið-
beinendur, en þetta er nú í heild
svipað og í fyrra,“ sagði Guð-
mundur ennfremur.
Það kom frá hjá Guðmundi að
ágætlega leit út í vor með
kennararáðningar fyrir haustið.
En sfðan hefur verið mikið um
það að kennarar hafa tilkynnt á
miðju sumri að þeir hafi fengið
önnur störf og sagði Guðmundur
að þetta kæmi sér afar illa fyrir
skólana.
Um þessar mundir eru kennar-
ar mikið á námskeiðum víða um
land og sagði Guðmundur að
mun meira væri um það í sumar,
heldur en árið áður og kenndi því
að kennarar hafi nýtt sér skatt-
lausa árið í fyrra og unnið mikið
að sumrinu. Aðspurður um
nýjungar í skólastarfi næsta vetur
sagði Guðmundur að búið væri
að gera samkomulag á milli
skólastjóra í kjördæminu að
halda einum skóladegi í viku
opnum fyrir fræðslu- og sam-
starfsfundi fyrir kennara. Stefnt er
að því að þriðjudagar verði fyrir
valinu, m.a. vegna þess að það er
mokstursdagur og menn gætu
eitthvað ferðast á milli staða.
Stundatöflu verður þannig hag-
rætt að kennarar eigi auðvelt
með að losna frá kennslu eftir
hádegi á þriðjudegi og hitt
kollega sína til skrafs og ráða-
gerða. -bjb
Hreindýraveiði ekki hafin
- þótt veiðitímabilið sé meira en hálfnað
Hreindýraveiðinienn á Aust-
urlandi hafa enn ekki axlað
byssur sínar og haldið til veiða.
Egill Gunnarsson hreindýra-
eftirlitsmaður á Egilsstöðum
sagði að sér væri ekki kunnugt
um neinn sem farið hefði af
stað og bjóst hann ekki við að
veiðar byrjuðu af alvöru fyrr
en um mánaðamót. Veiði-
tímabilið hófst þann 1. ágúst
og stendur til 15. september. Á
síðasta ári mátti fella 600 dýr,
en kvótinn hefur verið
minnkaður verulega, eða niður
í 330 dýr.
Veiðisvæðið er stórt eða allt
Austurlandið, frá Hornafirði til
Bakkafjarðar. Samkvæmt reglum
fær hver hreppur leyfi til að fella
ákveðinn fjölda dýra, minnst eitt
dýr og mest 35 og dreifist veiðin á
32 hreppa, að sögn Runólfs Þórð-
arsonar í menntamálaráðuneyt-
inu.
Egill Gunnarsson er ekki alls
kostar ánægður með þessar regl-
ur ráðuneytisins og segir barna-
legt að vera að úthluta hreppum
þar sem aldrei koma hreindýr,
leyfi til að fella eitt dýr. „Menn
eru búnir að fá leyfi til að skjóta
eitt dýr, þeir fara af stað og eng-
inn veit hvað gerist,“ sagði Egill,
sem hafði stóran grun um að oft
væru felld fleiri en þetta eina dýr
sem leyfi var fyrir. „Menn hafa
verið staðnir að verki.“
Egill segir að hreindýrum hafi
fækkað stórkostlega á síðustu 6-8
árum og færi þeim enn fækkandi.
Hann sagði það sína skoðun að
friða ætti dýrin um tíma, eða allt
upp í þrjú ár. Hugmyndir sínar
hefðu þó engan hljómgrunn
hlotið. „Allir vilja meira og
stærra og þegar menn mega
skjóta fá dýr, þá velja þeir þau
stærstu úr,“ sagði Egill og var
ófáanlegur til að segja hversu
mikið veiðimenn fengu fyrir
hvert dýr. „Þetta er hálúxusvara
og verðið er geigvænlegt,“ sagði
hann. Framboð af hreindýrakjöti
minnkar talsvert nú með minnk-
Nýlega var ekið á tvo kyrr-
stæða bíla á Akureyri og sitja
eigendur þeirra eftir með sárt
ennið ef ekki tekst að finna
tjónvaldana. Rannsóknarlög-
reglan á Akureyri óskar eftir
vitnum að þessum atvikum en
báðar ákeyrslurnar urðu sama
daginn; miðvikudaginn 24.
ágúst.
í fyrra tilvikinu var ekið á bif-
reiðina A-2535, sem er brún
Toyota, þar sem hún stóð á bíla-
stæði við verslunina Norðurfell
við Kaupang. Þetta gerðist um
morguninn á tímabilinu frá 9.30
til 10.00. Bifreiðin skemmdist að
framan.
í síðara tilvikinu var ekið á
bifreiðina A-1904 sem er græn
Mazda fólksbifreið. Þetta gerðist
við verslun KEA í Höfðahlíð 1 á
tímanum milli kl. 14.00 og 15.00.
Bifreiðin, sem stóð beint á móti
versluninni, við norðurbrún
gangstéttarinnar við Höfðahlíð,
er mikið skemmd á vinstri hlið,
m.a. brotnaði rúða í henni.
andi kvóta, þannig að samkvæmt
lögmáli framboðs og eftirspurnar
eru líkur á að gott verð fáist fyrir
dýrin, sem reyndar enn á eftir að
fella. mþþ
í báðum tilvikum yfirgáfu þeir
sem óku á bílana staðinn án þess
að gefa sig fram. Er hér um til-
finnanlegt tjón að ræða fyrir eig-
endur bílanna og eru vitni beðin
um að gefa sig fram hið fyrsta.
EHB
Veðurspá:
Ekkert
sólbaðs-
veður
Það verður ekki hlýindunum
fyrir að fara á Norðurlandi
fram að helgi ef marka má
spádóma Veðurstofu íslands.
Á miðvikudag, fimmtudag og
föstudag er spáð norðlægri átt
með um fjórum til fimm vindstig-
um. Einnig verður skýjað og
rigning með köflum. Hiti þessa
þrjá daga verður á bilinu 6-8 stig.
Akureyri:
Stungu af
frá ákeyrslum
- rannsóknarlögreglan óskar
eftir vitnum
SKÓLAVÖRUR
Verslun á tveimur hæöum
REIKNIVÉLAR
Verslun á tveimur hæöum
Kaupvangsstræti 4 töevut/eki
sími 26100 Akureyri BOKVAL
Kaupvangsstræti 4
sírni 26100 Akureyri
RITVÉLAR
^tV*> _
Kaupvangsstræti 4
sími 26100 Akureyri
TAL
Leikfimi - Leikfimi
Síðasta 2ja vikna námskeiðið áður en
vetrarönn hefst, byrjar 5. september
Tímar 3x í viku.
Fyrir óvanar kl. 6 mánudag, miðvikudag,
fimmtudag.
Fyrir vanar kl. 7 mánudag, miðvikudag, fimmtu-
dag.
Tryggvabraut 22
Akureyri
Erobik ★
Þrekhringur
Vetrarstarfið hefst 19. september
Við leggjum okkur fram um að fylgjast með nýjungum
og bjóðum nú upp á fjölbreytta æfingatíma í heilsurækt.
Allir kennararokkar hafa sótt námskeið í sumar á ýmsum
sviðum heilsuræktar og koma því ferskir til starfa.
Þú getur örugglega fundið flokk við þitt hæfi hvort sem
þú ert karl eða kona, byrjandi eða í þjálfun. Aldur skiptir
ekki máli.
Aðstaðan er fyrsta flokks, með góðum æfingasölum,
sturtum og saunaklefum. Hringdu nú þegarogfáðu upp-
lýsingar.
ViÖ gerum okkar besta við aö veita þér góöa þjón-
ustu og hjálpa þér aÖ finna tíma viÖ þitt hæfi.
FLOKKAR:
1. Kvennaleikfimi: Rólegir tímar fyrir óþjálfaðar
konur og þær sem vilja fara sér hægt.
2. Róleg músikleikfimi: Framhaldstími.
3. Dagtími: Leikfimi með áherslu á
maga, rass og læri. Hentar vel barns-
hafandi konum og konum með barn
á brjósti.
Leikfimi og megrun: Styrkjandi
æfingar fyrir þær sem vilja grennast.
y Nýtl Leiðbeint um mataræði, persónuleg
~ leiðbeining fyrir hvern og einn.
Vigtun, mæling, aðhald.
Magi, rass og læri: Byrjendatími,
mjúkt erobik. Styrkjandi og vaxtar-
mótandi æfingar. Einnig unnið með
létt handlóð fyrir upphandleggi.
Engin hopp. Fjörugir tímar, fjörug
tónlist.
6. Framhaldstími: Aðeins fyrir vanar. Hröð og eld-
fjörug leikfimi fyrir þær sem eru í þjálfun.
Dúndrandi tónlist - fjör.
7. Erobic: Fyrir byrjendur - karla og konur. Þol-
þjálfun.
Erobic: Fyrir framhaldsfólk.
X Mýtt
IA V
4.
8.
9.
Þrekhringur: Erobik og
tækjaleikfimi í sama tíman-
um. Hörkutímar fyrir karla
og konur. Fjör, hvatning
með skemmtilegri tónlist.
Leiðbeinandi stýrir hópnum.
Dansnámskeiðin auglýst síðar
Opið mán.-föst. frá kl. 17-20.
Sími 24979.
/ /
Tryggvabraut 22
Akureyri
^^cdiœ ■■■■ E
VtSA
WB6MH&Í