Dagur - 31.08.1988, Side 6
6 - DAGUR - 31. ágúst 1988
Knud menntaskólakennari leiðbeinir Guðrúnu Aðalgeirsdóttur.
urðu að lokum bestu vinir og pilt-
urinn snéri frá villu síns vegar.
Dögg sagðist aldrei áður hafa far-
ið á vinabæjamót, enda er hún 12
ára gömul. „Þetta var mjög
skemmtilega ferð, heilmikið
ævintýri allt saman,“ sagði hún.
Ferðin æðisleg
„Ferðin var æðislega skemmti-
leg,“ sagði Ásdís Frímannsdóttir
gullsmíðanemi. Ásdís hélt utan
með skartgripi sem hún hefur
gert, eyrnalokka, hringi og nælu.
Hún sagði að sýningin, sem var
samsýning norrænna listamanna,
hefði vakið athygli. í lok vina-
bæjamótsins var bæjaryfirvöldum
færð veggmynd að gjöf, en hana
unnu í samvinnu þeir þrír akur-
eyrsku listamenn sem þátt tóku í
sýningunni fyrir hönd Ákureyrar-
bæjar.
*
Arstíðirnar
Hrund Hlöðversdóttir var í svo-
kölluðum framhaldsskólahóp, en
í honum voru menntaskólanemar
á aldrinum 16-18 ára. Krakkarnir
höfðu aðsetur í menntaskóla ein-
um í Randers þar sem þau mynd-
uðu einn bekk og vann hann að
ýmsum verkefnum. „Við vorum
aðallega að vinna út frá árstíðun-
um,“ sagði Hrund, en krakkarnir
skiptu sér í hópa og gerðu leikrit
um hverja árstíð fyrir sig og
sýndu í lokin. Hrund sagði að
leikritið hefði vakið mikla
athygli, en krakkarnir gerðu allt
sjálfir, leiktjöld og annað sem til
þarf.
„Ferðin var öll mjög skemmti-
leg. Við bjuggum heima hjá fjöl-
skyldum og kynntumst fólkinu
því vel. Það voru allir svo opnir
og maður kynntist fullt af fólki,
sem við höldum áfram sambandi
við. Það var mjög mikið um að
vera alla vikuna og ekki hægt að
komast yfir allt sem í boði var,“
sagði Hrund.
Blásið í básúnu
Big band hljómsveit Tónlistar-
skólans stóð í ströngu á vina-
bæjamótinu og tók þátt í fjölda
hljómleika. Halldór Halldórsson
er básúnuleikari í hljómsveitinni
og hann sagði að ferðin hefði ver-
ið hin gagnlegasta. Hljómsveitin
var á námskeiðum fyrstu dagana
þar sem danskur stjórnandi fór í
saumana á hlutunum. „Þetta var
gott námskeið og við urðum betri
hljómsveit á eftir,“ sagði
Halldór.
Big bandið spilaði á mörgum
hljómleikum eins og áður sagði,
bæði eitt sér og með öðrum slík-
um frá hinum bæjunum. Eitt sinn
sameinuðust allar sveitirnar og
spiluðu á útitónleikum á stóru
torgi. Úr varð um 120 manna
hljómsveit. Þá spilaði hljómsveit-
in líka ein og sér og á tónleikum
með öðrum sveitum. „Það var
heilmikið spilað, maður er hálf
þreyttur eftir þetta allt saman.
En í fínu formi,“ sagði Halldór
sem var ánægður með framlag
hljómsveitarinnar og sagði hana
hafa staðið sig með stökustu
prýði.
Stórsveit Tónlistarskólans á Akureyri leikur á útitónleikum í Randers.
Rúmlega fimmtíu þátttakend- !
ur voru frá Akureyri og var
stærsti hlutinn félagar í Big band
hljómsveit Tónlistarskólans. !
Einnig fóru ungir myndlistar-
menn til Randers þar sem þeir
unnu að margvíslegum verkefn- i
um. Akureyrskir listamenn, þeir 1
Jón Geir Ágústsson og dóttir
hans Margrét Jónsdóttir og Ásdís
Frímannsdóttir fóru einnig og
tóku þátt í samsýningu norrænna j
listamanna. Þá voru og með í för j
fulltrúar bæjarstjórnar og Nor- j
ræna félagsins.
Ingólfur Ármannsson sem fór
fyrir íslenska hópnum sagði ferð-
ina hafa verið afar ánægjulega og
þátttakendur hefðu verið hinir
kátustu. „Það voru allir ánægðir
með það fyrirkomulag að gista á
einkaheimilum. Við það kynnt-
ust þau danskri menningu vel,“
sagði Ingólfur.
Hóparnir unnu sem áður sagði
að mismunandi verkefnum og í
gangi voru ýmiss konar hópar,
eins og myndbandshópur, mynd-
listarhópar af ýmsum toga og
einnig unnu nemendur í fram-
haldsskólum að verkefni sem
tengdist námi þeirra.
Töskuþjófurinn
í myndbandshópi voru tveir
Akureyringar, þau Dögg Matt-
híasdóttir og Baldvin Valgarðs-
son. Þau unnu alla vikuna að
gerð myndbands sem hlaut nafn-
ið Töskuþjófurinn, en þemað í
öllum myndböndunum átti að
vera vináttan.
Dögg sagði að það hefði verið
spennandi að taka þátt í að búa
til þetta myndband og ferðin í
heild hefði verið hin skemmtileg-
asta. Myndbandið fjallar eins og
nafnið bendir til um töskuþjóf og
var piltur einn í hlutverki hans,
en Dögg ásamt norrænum félög-
um sínum voru í hlutverki vin-
kvenna, sem reyndu að hafa uppi
á strák. Leikar fór svo að allir
Nokkrir ur norræna menntaskolabekknum að vinnu.
og Rannveig Helgadóttir lengst til vinstri.
Hrund Hlöðversdóttir
Myndir: JHÁ
Að loknu vel heppnuc
vinahæjamóti í Randei
Vinabæjamóti í Randers í Danmörku er nýlokið, en þangað lagði stór hópur Akureyr-
inga leið sína. Ferðin tókst í alla stað vel og voru menn ánægðir að henni lokinni. Vina-
bæjamót þetta var hið fyrsta í nýrri fimm ára áætlun þar sem áhersla verður lögð á víð-
tæk samskipti á milli þjóðanna, en áður hafa vinabæjamótin einkum verið á sviði
æskulýðs- og íþróttamála. Vinabæir Akureyrar eru, fyrir utan Randers í Danmörku,
Vásterás í Svíþjóð, Lahti í Finnlandi ogÁlasund í Noregi. Vinabæjamótin eiga sér langa
sögu og hafa þau stuðlað að aukinni samvinnu landanna á milli.