Dagur - 31.08.1988, Síða 16

Dagur - 31.08.1988, Síða 16
m Akureyri, miðvikudagur 31. ágúst 1988 TEKJUBREF• KJARABREF FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR TJARFESTINGARFELAGID Ráðhústorgi 3, Akureyri Stéttarsamband bænda: Aðalfimdur hefst í dag Aðalfundur Stéttarsambands bænda hefst í dag á Hótel Eddu á Akureyri. Fundurinn verður settur kl. 10 árdegis og eftir að starfsmenn fundarins hafa verið kosnir, flyt- ur formaður Stéttarsambandsins skýrslu sína. Að því loknu flytur landbúnaðarráðherra ræðu og gestir ávarpa þingið. Eftir matar- hlé hefjast umræður og nefnda- störf og liggja fjölmörg mál fyrir fundinum. Aðalfundi Stéttarsambands bænda lýkur á föstudagskvöld. Verðlagsstofnun: Strangt aðhald Ríkisstjórnin hefur falið Yerð- lagsstofnun að framfylgja ákvörðun sinni um verðstöðv- un sem sett var 27. ágúst til 30. september. Verðlagsstofnun mun gera viðmiðun við verð- lagningu um miðjan ágúst sl. Þar sem um er að ræða algjöra verðstöðvun eru allar verðhækk- anir óheimilar án tillits til af hvaða ástæðum kostnaðartilefni kunni að stafa. Starfsmenn Verðlagsstofnunar munu fara í fyrirtæki og komi í ljós að einhver þeirra hafi gerst brotleg við lögin verður gripið til viðeigandi ráðstafana í formi nafnbirtingar og kæru. Hvað snertir verðhækkanir sem orðið liafa frá miðjum ágúst fram að gildistöku verðstöðvun- arinnar niun Verðlagsstofnun eins og kostur er greina frá nöfn- unr þeirra fyrirtækja senr hafa hækkað og hvetja þau til þess að færa verðlagninguna í fyrra horf. Takist það ekki strax með þeim hætti mun stofnunin leggja til við verðlagsráð að gripið verði til beinna aðgerða t.d. að sett verði ákvæði um hámarksverð. Verðlagsstofnun hvetur fólk til þess að hafa samband verði það vart við að verð hækki á verð- stöðvunartímanum og verður um að ræða sérstakan síma þar sem fólk getur komið athugasemdum á framfæri. KR Veruleg hækkun á kjamfóðri í haust Ósköp væri það notalegt ef blessuð sólin léti sjá sig dálítið of'tar. Mynd: TLV Að öllu óbreyttu stefnir í veru- lega hækkun á kjarnfóðri í haust. Astæðurnar eru miklir þurrkar í Bandaríkjunum í sumar og einnig sú ákvörðun Evrópubandalagsins að hætta að niðurgreiða hráefni til kjarnfóðurframleiðslu til út- flutnings. Arni Bragason hjá Búnaðar- deild Sambandsins segir að þess- ara áhrifa sé ekki enn farið að gæta hér á landi og verðstöðvun ríkisstjórnarinnar fresti einungis óhjákvæmilegum verðhækkunum á kjarnfóðri. „Hækkanirnar skella á í haust og það er ekkert sem bendir til þess að heims- markaðsverð á kjarnfóðurhráefni eigi eftir að fara lækkandi á næst- unni,“ sagði Árni í samtali við Dag. í sama streng tók Hjörleifur Jónsson forstjóri Fóðurblönd- unnar hf. „Verðið ræðst mikið af því hvernig uppskeran verður í Bandaríkjunum nú í september. Nýjustu fréttir eru að ekki líti eins illa út með uppskeruna og var haldið fyrr í sumar Þetta gæti slegið eitthvað á verðið, en hækkunin verður alltaf tölu- verð,“ sagði Hjörleifur Jónsson hjá Fóðurblöndunni hf. „Þarf lagabreytingu tíl að greiða úr verðjöfnunarsjóði" - segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsmálaráðherra vegna erfiðleika rækjuvinnslustöðva í skýrslu sem Þjóöhagsstofnun sendi frá sér fyrir skömmu kcmur fram að rækjuvinnslan var rekin með tæplega 250 milljóna króna halla í fyrra. Þetta er langversta afkoma þessarar vinnslu frá upphafi og í ár hefur heimsmarkaðsverð á rækju farið lækkandi þannig að ekki lítur vel út í þessari vinnslugrein. Forráðamenn rækjuvinnslunn- ar gengu á fund Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráð- herra í síðustu viku til að ræða Hafnarstjórn Dalvíkur: Leitar tilboða í dýpkimarframkvæmdir Hafnarstjórn Dalvíkur leitar um þessar mundir tilboða í dýpkunarframkvæmdir í Dal- víkurhöfn. Að sögn Kristjáns Júlíussonar bæjarstjóra er hér um töluvert verk að ræða og æskilegt að framkvæmdir geti hafist sem fyrst. „Við fengum tillögur frá Vita- og hafnamálastofnun, sem við fórum yfir hér á hafnarnefndar- fundi og óskuðum í framhaldi af því eftir örlitlum breytingum. Stofnunin á síðan eftir að útfæra þær bctur en breytingar sem við fórum fram á eru það smávægi- legar að við erum farnir að leita eftir tilboði í verkið út frá þeim hugmyndum sem komnar eru fram,“ sagði Kristján. „Staðurinn byggir á sjávarút- vegi og okkar kappsmál er að koma þessari framkvæmd af stað sem fyrst en það ræðst af þeim verkefnum sem fyrir liggja hjá þeim aöilum sem þetta geta unnið,“ sagði Kristján ennfrem- ur. Ástandið í höfninni á Dalvík er þannig, að togarinn Björgvin EA, þarf að sæta sjávarföllum til þess að komast að og frá höfninni án þess að rekast í botninn. -KK málefni rækjuvinnslustöðva. Þeir fóru m.a. fram á að greitt yrði úr verðjöfnunarsjóði til vinnslu- stöðva, en innborgun rækju- vinnslunnar til sjóðsins nemur um 480 milljónum. Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra sagði í samtali við Dag að málefni verðjöfnunar- sjóðsins í heild væru í endurskoð- un. Nefnd sem hann hefði skipað síðasta vetur hefði skilað áliti og þar væri lagt til að sjóðurinn yrði lagður niður. Hins vegar væru í gildi lög fyrir sjóðinn og ekki væri hægt að greiða úr sjóðnum nema samkvæmt þeim lögum. Sagði ráðherrann að hann myndi leggja fram nýtt frumvarp um starfsemi verðjöfnunarsjóðs í haust, en ekki vildi ráðherrann segja hvaða forsendur myndu verða notaðar í sambandi við útgreiðslur á fjár- munum sjóðsins. Samkvæmt núverandi lögum er einungis greitt úr verðjöfnunar- sjóðnum þegar heimsmarkaðs- verð fer undir visst lágmarks- verð. Heimsmarkaðsverð á rækj- um hefur lækkað um 10% á þessu ári og er því vinnslan rekin með um 9% halla. Þess vegna er nú greitt úr sjóðnum og koma um 2% til útgreiðslu. Rækjuframleiðendum finnst það ekki mikið og Lárus Jónsson framkvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudisksframleiðenda sagði að rækjuframleiðendur um allt land stæðu nú mjög illa. „Við teljum eðlilegt að þegar lögunum verður breytt þá verði greitt í réttu hlutfalli við inngreiðslur.“ Hráefniskostnaður er mjög hár hluti af breytilegum kostnaði rækjuvinnslunnar, en Lárus sagði að einungis hluti af því væri til kominn vegna yfirboða kaup- enda. AP Heimsmarkaðsverð á hráefni hefur hækkað um allt að 100% frá því í maí á þessu ári og einnig hefur innlent hráefni, t.d. gras- kögglar og fiskimjöl, hækkað mikið. Þessi hækkun mun því leggjast þyngst á svínafram- leiðendur og einnig hænsnafram- leiðendur vegna þess að mest er notast við innflutt hráefni í þeirri framleiðslu. En hækkunin mun einnig koma við buddu kúa- og sauðfjárbænda, enda má gera ráð fyrir því að meðalkýr, hér á landi éti um 600 kg af kjarnfóðri á ári. Þórshöfh: Starfsfólk vantar að heilsugæslunni A undanförnum árum hefur oft gengið erfiölega að ráða sérmenntað starfsfólk að heilsugæslustöðvum í dreif- býli. Þórshafnarbúar hafa ekki farið farið varhluta af þessu frekar en íbúar annarra dreif- býlisstaða. Ástand þessara mála á Þórs- höfn er þannig í dag að þangað vantar sárlega hjúkrunarfræðing, sem getur tekið að sér starf hjúkrunarforstjóra, og Ijósmóð- ur. Læknir er á Þórshöfn en hann fer í lok október og er ekki vitað hvernig læknismálin munu standa eftir það. Sveitarstjórn Þórshafnar hefur reynt að hlúa sem best að heilsu- gæslu og öldrunarþjónustu og er m.a. vinna við innréttingu nýrrar heilsugæslustöðvar vel á veg komin. Til öldrunarþjónustu hef- ur gengið sæmilega að ráða starfsfólk og hefur verið reynt að fá sjúkraliða og jafnvel ófaglært fólk til að sinna henni meðan ekki fást hjúkrunarfræðingar til starfa. Áætlað er að heilsugæslu- stöðin nýja verði tilbúin til notk- unar snemma á næsta ári. EHB Skagaíjörður: Mjólkurbfll valt - vegkantur gaf sig undan þunganum Mjólkurbíll frá Mjólkursam- lagi Kaupfélags Skagfírðinga valt við bæinn Fell í Sléttu- Idíð sl. mánudag þegar hann var að mæta flutningabfl, sem vék illa. Vegkanturinn gaf sig og lagðist bfllinn á toppinn, fullur af mjólk. Tengivagn sem var aftan í valt ekki, en hann var einnig fullur af mjólk, og skemmdist ekkert. Mjólkurbíllinn er mikið skemmdur, aðallega stýris- húsið, en ökumaður síapp ómeiddur. Miklar rigningar hafa verið á þessu svæði og því ekki nema von að vegkanturinn hafi gefið sig undan þunganum, fullum mjólkurbíl með tengivagni aft- an í, sem í það heila eru upp undir 30 tonn að þyngd. -bjb Mjólkurbíllinn á hvolfí í Sléttuhlíðinni. Mynd: TLV

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.