Dagur - 06.09.1988, Síða 2
2 - DAGUR - 6. september 1988
Bridds
Sumarbridds í kvöld kl. 19.30 í Dynheimum.
Ekkert þátttökugj ald - allir briddsspilarar velkomnir.
:
Brídgefélag Akureyrar.
AKUREYRARB/ER
Dagvistardeild félags-
málastofnunar auglýsir:
Enn vantar dagmæöur fyrir börn á aldrinum 6
mán.-2ja ára. Vinsamlegast hafið samband við
hverfisfóstru í síma 24620 og umsjónarfóstru í
síma 24600 alla daga frá kl. 10-12.
Dagvistarfulltrúi.
Frá Ólafsfirði
S M Þ M F 19.30 8.30 8.30 F 8.30
Frá Dalvík
20.00 9.00 9.00 9.00 9.00 9.00 15.00
Frá Akureyri
21.00 12.30 12.30 12.30 12.30 12.30 17.00
Ferðir á mánud., miðvikud. og kl. föstudögum aðeins til Dalvíkur. 12.30 á
ÆVAR KLEMENSSON.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Verkmenntaskólinn á Akureyri
býður upp á eftirfarandi námskeið
★ Fatasaumur.
★ Silkimálun og munsturgerð.
★ Vefnaður.
Upplýsingar í síma 26810 (hússtjórnarsvið).
Kennslustjóri.
Hjukrunar-
fræðingar
Staða hjúkrunarfræðings í heilsugæslustöð er
laus til umsóknar nú þegar.
Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina í
Asparfelli 12, Reykjavík, sem ætlað er að gegna
heilli stöðu hjúkrunarfræðings við Hólabrekkuskóla í
Reykjavík.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri Heilsugæslu-
stöðvarinnar Asparfelli 12, Reykjavík.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
við hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
1. september 1988.
Framkvæmdir við byggingu félagsheimilis Þórsara ganga vel og stefnt er að því að gera húsið fokhelt fyrir veturinn.
Mynd: TLV
Félagsheimili Þórs:
Stefiit að því að gera
fokhelt fyrir veturinn
Framkvæmdir við félagshcim-
ilisbyggingu íþróttafélagsins
Þórs á Akureyri ganga nokk-
urn veginn samkvæmt áætlun
en stefnt er að því að gera hús-
ið fokhelt fyrir veturinn. Húsið
er um 1200 fermetrar að stærð
á þremur hæðum.
„Ég mundi segja að fram-
kvæmdir hafi gengið ágætlega.
Við stefnum að því að gera fok-
helt eftir u.þ.b. mánuð, ef allt
gengur að óskum en þá verður
um ár frá því framkvæmdir
hófust. Það á enn eftir að steypa
nokkrar steypur, glerja og setja
þakið á,“ sagði Gísli Kristinn
Lórenzson bygginganefndarmað-
ur í samtali við blaðið.
„Þegar húsið er orðið fokhelt,
setjumst við niður og metum
stöðuna, þá bæði peningalega og
eins með framhaldið. Ég reikna
fastlega með því að eitthvað
verði unnið inni í húsinu í vetur
og það þarf eitthvað stórt að
koma fyrir, til að svo verði ekki.
Við erum þegar búnir að ein-
angra kjallarann og hlaða mest
allt af veggjum og hann er nánast
.tjjb.úinn undir múrverk. Nú og
þegar búið er að pússa kjallarann
á ég ekki von á öðru en að haldið
verði áfram upp á næstu hæð.“
Gísli sagði að upphaflega hafi
verið reiknað með að bygginga-
framkvæmdir tækju um tvö ár,
þó svo að ekkert hafi verið fast
ákveðið í því sambandi. „Auk
þess sem við erum rétt að gera
fokhelt, erum við tilbúnir með
bílastæði að mestu. Það er búið
að skipta hér um jarðveg að
mestu leyti og það er ýmislegt
búið að gera hér sem kemur okk-
ur að góðum notum í seinni lot-
unni,“ sagði Gísli Kristinn enn-
fremur. -KK
Ríkisútvarpið:
Samdráttur í
auglýsingum
- Sjónvarpið þó yfir áætlun
Auglýsingatekjur Ríkisút-
varpsins hafa verið sveiflu-
kenndar á árinu, t.a.m. var
útlit fyrir að tekjurnar í ágúst
yrðu 17 milljónum króna
minni en áætlað var. Sjónvarp-
Akureyri:
Ferðamálabraut
við Meimtaskólaun
í haust verður boðið upp á
svonefnda ferðamálabraut við
öldungadeild Menntaskólans á
Akureyri. Kennsla á brautinni
verður með svipuðu sniði og
því sem nú er á málabraut
skólans, nema hvað sérstök
áhersla verður lögð á greinar
sem nýtast í ferðamálum.
Lögð verður áhersla á landa-
fræði, náttúrufræði og íslands-
sögu og hvernig hagnýta megi
þekkingu í þessum greinum í
umgengni við ferðamenn, hvort
sem unt er að ræða leiðsögn eða
önnur störf að ferðamálum. Þá
verða einnig kenndir áfangar þar
sem fjallað verður um ferðamál
almennt, svo og samskipti og
þjónustu við ferðamenn.
Unnt verður að ljúka stúd-
entsprófi af þessari braut, en rétt
er að taka fram að slíkt stúd-
entspróf veitir ekki sjálfkrafa
leiðsögumannsréttindi, en mun
örugglega gera fólki auðveldara
að afla sér slíkra réttinda síðar.
Þá er einnig bent á að fólki er
heimilt að stunda nám í einstök-
um greinum án þess að stefna að
stúdentsprófi. EHB
ið var þó yfír áætluninni en
mikill samdráttur var í lesnum
auglýsingum og tilkynningum í
útvarpi og tekjurnar því mun
minni en áætlað var. Þennan
samdrátt má eflaust rekja til
aukinnar samkeppni.
Halldór Kristjánsson hjá aug-
lýsingadeild Ríkisútvarpsins
sagði að heldur hefði ástandið
batnað seinni hluta ágústmánað-
ar og því útlit fyrir minni sam-
drátt en áætlað var. Hann sagði
að árið hefði byrjað vel, fyrstu
þrír mánuðirnir lofuðu góðu en
síðan hefði komið bakslag.
„Alþingi setti okkur þann kost
að auka auglýsingatekjurnar um
10% umfram verðbólgu, þrátt
fyrir aukna samkeppni og fjölgun
miðla. Þetta er sú áætlun sem við
eigum að fara eftir og við gerum
okkur vonir um að hún standist
þegar upp verður staðið. En það
er óneitanlega erfitt að fá áætlun
frá Alþingi,“ sagði Halldór.
Aðspurður sagði hann að
Ríkisútvarpið á Akureyri gengi
vel. Almenn ánægja væri með
starfsemi þess og auglýsingaöflun
þaðan gengi mjög vel. SS