Dagur - 06.09.1988, Page 6
6 - DAGUR - 6. september 1988
(------------------;-----------------------n
Sveitarstjómir, forsvarsmenn
félaga, fyrirtækja og stofnana
Þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra verða
til viðtals dagana 18.-21. september ’88 á eftir-
töldum stöðum:
Raufarhöfn sunnudaginn 18. sept.
Húsavík mánudaginn 19. sept.
Akureyri þriðjudag og miðvikudag 20. og 21.
sept.
Tímapantanir og frekari upplýsingar fást hjá Gunn-
ari Hilmarssyni sveitarstjóra Raufarhöfn, Bjarna Þór
Einarssyni, bæjarstjóra Húsavík og Valgarði Bald-
vinssyni, bæjarritara Akureyri.
Þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra.
V________________________1_________________/
„\innan við garðiim
verður aldrei bætt“
- rætt við hjónin Árna og Hönnu að Hlíðarvegi 69 í Ólafsfirði
sem urðu illa fyrir barðinu á skriðunum
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri, á
neðangreindum tíma:
Draupnisgötu 3, m-,n-,o-hl.,
Akureyri, talinn eigandi Valgeir
A. Þórisson, föstudaginn 9.
september 1988 kl. 16.00.
Uppboðsbeiðandi er Iðnlána-
sjóður.
Furuvöllum 13, b-hl., Akureyri,
þingl. eigandi Norðurljós hf.,
föstudaginn 9. september 1988
kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Iðn-
lánasjóður, innheimtumaður
ríkissjóðs og Guðjón Ármann
Jónsson hdl.
Gránugötu 7, hesthús, Akur-
eyri, talinn eigandi Kristján Þor-
valdsson, v/B.R.Þ. sf., föstu-
daginn 9. september 1988 kl.
15.00.
Uppboðsbeiðandi er Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson hdl.
Grenilundi 7, Akureyri, þingl.
eigandi Tryggvi Pálsson, föstu-
daginn 9. september 1988 kl.
16.15.
Uppboðsbeiðandi er Veðdeild
Landsbanka íslands.
Guðbirni EA-7, Akureyri, talinn
eigandi Haukur Tryggvason
o.fl., föstudaginn 9. september
1988 kl. 16.30.
Uppboðsbeiðandi er Gunnar
Sólnes hrl.
Múlasíðu 3 b, Akureyri, þingl.
eigandi Stjórn verkamanna-
bústaða, föstudaginn 9. sept-
ember 1988 kl. 15.15.
Uppboðsbeiðandi er Veðdeild
Landsbanka íslands.
Ránarbraut 9, Dalvík, þingl. eig-
andi Rán hf., föstudaginn 9.
september 1988 kl. 15.30.
Uppboðsbeiðandi er innheimtu-
maður ríkissjóðs.
Skaröshlíð 14 g, Akureyri, tal-
inn eigandi Friðrik Bjarnason,
föstudaginn 9. september 1988
kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Ólafur
Birgir Árnason hdl., Ásgeir
Thoroddsen hdl., Guðjón
Steingrímsson hrl., Ólafur Birgir
Árnason hdl., Sveinn Skúlason
hdl. og Bæjarsjóður Akureyrar.
Smárahlíð 4f, Akureyri, þingl.
eigandi Jón Pálmason, föstu-
daginn 9. september 1988 kl.
14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Ásgeir
Thoroddsen hdl., Veðdeild
Landsbanka íslands og Guðríð-
ur Guðmundsdóttir hdl.
Sæbóli, Dalvík, þingl. eigandi
Haukur Tryggvason, föstudag-
inn 9. september 1988 kl.
14.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Örlygur
Hnefill Jónsson hdl., og Ólafur
Birgir Árnason hdl.
Sæljóni EA-55, Dalvík, þingl.
eigandi Rán hf., föstudaginn 9.
september 1988 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi erTrygginga-
stofnun ríkisins.
Víði Trausta EA-517, Hauga-
nesi, þingl. eigandi Trausti sf.,
föstudaginn 9. september 1988
kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi erTrygginga-
stofnun ríkisins.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri, á
neðangreindum tíma:
Hjallalundi 17 a, Akureyri, þingl.
eigandi Björk Dúadóttir, föstu-
daginn 9. september 1988 kl.
16.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Jónas
Aðalsteinsson hrl. og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Reynivöllum 4, miðhæð, Akur-
eyri, þingl. eigandi Arnór Þor-
geirsson o.fl., föstudaginn 9.
september 1988 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Gunn-
ar Sólnes hrl., Ólafur Birgir
Árnason hdl., Iðnaðarbanki
(slands hf., Veðdeild Lands-
banka íslands og Bæjarsjóður
Akureyrar.
Vallargötu 5, Grímsey, þingl.
eigandi Sigurður Bjarnason
o.fl., föstudaginn 9. september
1988 kl. 15.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Ævar
Guðmundsson hdl., Ólafur Birg-
ir Árnason hdl., Gunnar Sólnes
hrl. og Þórólfur Kr. Beck hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
ÖKUM EINS OG MENN!
Drögum úr hraða
- ökum af skynsemi!
|| UMFERÐAR
Sú gata sem varð hvað mest
fyrir barðinu á skriðunum sem
komu úr Tindaöxl á Ólafsfirði
á dögunum var Hlíðarvegur.
Skriðurnar tvær ruddust á
nokkur hús í götunni, og milli
þeirra og runnu yfir Horn-
brekkuveg. Við Hlíðarveg nr.
69 búa hjónin Arni Sæmunds-
son og Hanna Maronsdóttir.
Glæsileg lóð þeirra gjörsam-
lega splundraðist í skriðunum
og 16 ára garðyrkjustörf fóru á
nokkrum sekúndum, með hátt
í 400 plöntutegundir, sunnu-
daginn 28. ágúst, daginn sem
sjálfsagt fiestir Ölafsfirðingar
vilja gleyma sem fyrst.
Þegar blaðamaður Dags var á
ferðinni í Ólafsfirði í síðustu viku
heimsótti hann Árna og Hönnu
að Hlíðarvegi 69. Búið var að
hreinsa mestu drulluna af göt-
unni, en lóðirnar voru hrikalegar
ásýndum, ekkert nema aurdrulla
og grjót. Einstaka trjáplöntu var
að sjá, en þær voru teljandi á
fingrum annarrar handar. Það
var fyrri skriðan sem lenti á lóð
þeirra og síðan kom seinni skrið-
an norðan við húsið. Þau voru
stödd í húsinu þegar ósköpin
byrjuðu.
Arni lýsir hvernig þau brugð-
ust við: „Eg sat inni í stofunni og
Hanna var í eldhúsinu. Tengda-
dóttir okkar var inni á baði með
syni sínum og allt í einu hljóðaði
hún upp yfir sig og við uppgötv-
uðum hvað var að gerast. Við
sáum skriðuna koma niður, hún
var svona 6-8 metra há þegar hún
kom niður með tilheyrandi drun-
um og látum. Ég sá að hún
stefndi á húsið og meira sunnan
við það. Ég kallaði á fólkið allt
saman og sagði því að hlaupa út
og fara norður fyrir húsið og út á
götu. Það fóru allir út og það
bara greip hver eitt barn, en einn
sonur minn var í kjallaranum og
náði ekki almennilega þessum
hrópum og köllum. Hann fór út í
bíl með konu sína og barn og þau
voru rétt komin í bílinn þegar
skriðan skall yfir og tók bílinn
með sér. Hann stoppaði svo á
húsinu fyrir neðan. Skriðan tók
líka minn bíl, sem stóð fyrir
aftan. Þetta gerðist allt saman
svo snöggt að maður hafði engan
tíma til að hugsa um annað en að
koma sér frá húsinu og í skjól.
Það hafa liðið svona 30 sekúndur
frá því að við hlupum út úr hús-
inu þar til skriðan skall yfir.“
Garður Árna og Hönnu var
þéttskipaður alls kyns jurtum,
plöntum og trjám, og var lítið um
grasspildur. „Hanna eyddi öllum
sínum tíma í garðinn, þetta voru
hennar tómstundir. Ég var nú
bara í hlaupaverkunum, s.s. taka
þökur upp, sem ég setti niður, til
að koma fyrir fleiri plöntum,"
sagði Árni. Þau eru nú að safna
að sér myndum af garðinum til að
geta sýnt tryggingamönnum
hvernig hann leit út. Þau sögðust
ekki hafa tekið myndir af garðin-
um sjálf og ætluðu m.a. að fá
myndband frá systur Hönnu, sem
býr í Ameríku. Svo fjölskrúðug-
ur var garðurinn að garðyrkju-
meistarinn Hafsteinn Hafliðason,
sem oft hefur heimsótt Árna og
Hönnu, hefur sagt að það ætti að
vera útilokað að rækta allar þær
tegundir sem í garðinum hafa
verið.
Hanna og Árni voru staðráðin
í að byrja upp á nýtt í garðinum
en sögðu að óneitanlega yrði það
erfitt, eftir jafn mikla vinnu í
garðinum í 16 ár. „Sú vinna sem
lögð var í þetta verður aldrei
bætt, þær bætur sem við komum
til með að fá munu varla duga
fyrir plöntukostnaði,“ sagði
Arni.
Þvottahúsið fylltist af drullu,
og eyðilagðist flest það sem þar
var inni. Að öðru leyti slapp
innbú þeirra Árna og Hönnu.
Tveir gluggar á bílskúrnum, sem
sneru að skriðunni sluppu og
töldu þau að það væri einum
planka að þakka sem stoppaði á
húsinu og snúrustaur, og náði að
stýra mesta flóðinu frá bílskúrn-
um. í bílskúrnum var m.a. heil
búslóð sonar þeirra, sem nýflutt-
ur var frá Reykjavík, og höfðu
hann og Árni sett búslóðina inn
nokkrum klukkutímum áður en
skriðan kom.
Árni er sjómaður, á trillu sem
hann sækir út á og Hanna vinnur
í sundlaug Ólafsfirðinga. Oftast
er það þó svo þegar slíkar ham-
farir dynja yfir fólk að því tekst
að finna ljósa punkta á tilverunni.
Leyfum Hönnu að eiga lokaorðin:
„Það stóð bútungstunna við
þvottahúsdyrnar og á einhvern
óskiljanlegan hátt barst hún með
skriðunum og endaði niðri við
sundlaug, sem er nú góður spotti
í héðan og stóð þar upprétt. Þeir
voru að hlæja að þessu gárun-
garnir, af því að ég vinn í sund-
lauginni, að bútungstunnan hefði
vitað hvert hún átti að fara.“
-bjb
Bútungstunnan frá Árna og Hönnu sem endaði niðri við sundlaug, þar sem
Hanna vinnur. Það sést í húsið þeirra efst í brekkunni, hvítt að lit.