Dagur - 06.09.1988, Síða 14
14 - DAGUR - 6. september 1988
pv
QljM-
A*p0
< aUÖ
Vinningstölur 3. september 1988.
Heildarvinningsupphæð kr. 4.189.572.-
1. vinningur kr. 2.098.936.-
Skiptist á milli tveggja vinningshafa kr. 1.049.468.-
2. vinningur kr. 628.230.-
Skiptist á milli 215 vinningshafa kr. 2.922.- á mann.
3. vinningur kr. 1.462.406.-
Skiptist á milli 6043 vinningshafa sem fá 242 kr. hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá mánu-
degi til laugardags og loka ekki fyrr
en 15 mínútum fyrir útdrátt.
Minning:
Ólafur G. Guðmundsson
Fæddur 18. ágúst 1911 - Dáinn 24. ágúst 1988
Aldrei er svo bjart
yfir öðlingsmanni,
að eigi geti syrt
eins sviplega og nú,
og aldrei svo svart
yfir sorgarranni,
að eigi geti birt
fyrir eilífa trú! M s
Þegar ég frétti að Ólafur G.
Guðmundsson væri látinn kom
mér strax í hug síðasta heimsókn
mín til hans. Það var í endaðan
júlí og Ólafur hafði gert mér boð
um að líta til sín áður en ég færi
úr bænum, en þá var hann orðinn
rúmfastur.
Við töluðum saman stutta
stund og ég kvaðst mundu sjá
hann aftur er ég kæmi til baka
eftir mánuð. Ólafur taldi óvíst að
svo yrði og ljóst var að honum
fannst komið að leiðarlokum.
Þar reyndist hann sannspár og nú
er vegferðinni lokið í þessa heims
vist og næst hittumst við trúlega
eins og um var rætt á grænum
grundum í annarri tilveru þegar
þar að kemur.
Ólafur Guðmundur Guð-
mundsson fæddist í Fosskoti í
Ólafsfirði 18. ágúst 1911 og í
þeim fallega firði átti hann sitt
heimili alla tíð. Hann kvæntist
konu sinni Erlu Kristólínu Sig-
urðardóttur 1. júní 1947 og þau
urðu þeirrar hamingju aðnjót-
andi að eignast 6 börn. Erla lifir
nú mann sinn ásamt börnunum
öllum en þau eru: Aðalbjörg Þór-
ey, Ragnar Sigurður, Guðmund-
ur, Margrét Sigrún, Gunnlaug
Jóna og Sigfús.
Annars er ég ekki fróður um
æviskeið Ólafs og get því lítið
fjallað um það, en vil með þess-
um kveðjuorðum þakka honum
innilega fyrir ánægjuleg og góð
kynni þau ár sem við áttum ágætt
samstarf. Það birtist í ýmsu.
Fyrstu samskiptin voru þau að
hann sá um að koma póstsend-
ingum til skila, einkum fundar-
boðum og öðrum sendingum sem
brýnt var að kæmust fljótt og vel
til viðtakenda. Þetta stóðst alltaf
með ágætum.
Þegar skrifstofa bæjarins var
við Kirkjuveg 12 hafði ég þann
sið að aka norðan við kirkjuna og
leggja þar. Af meðfæddum þráa
vildi ég gera svo þótt ófært væri
af snjó. Kom þá fyrir að ég festi
gamla jeppann minn og vandaði
þá hvorki honum né skaflinum
kveðjurnar. Ólafur birtist þá
gjarna, sagði einhver mildandi
orð, hjálpaði til við moksturinn
og þar með hurfu öll vandræði
eins og dögg fyrir sólu.
Annað dæmi er mér vel í
minni. Ólafur hafði fregnir af því
að mig vantaði ermahnappa. Ég
leitaði stundum til sonar hans í
þeim efnum þegar mikið lá við.
Eitt sinn boðaði Ólafur mig á
sinn fund og hvert var erindið?
Jú, það var að gefa mér forláta
ermahnappa. Þetta gladdi mig
mjög mikið og mér þykir afar
vænt um þessa gjöf. Hún var gef-
in af svo góðum hug og velvild til
mín sem hafði þó ekki á nokkurn
hátt til hennar unnið og hún var
gefin þrátt fyrir það að veraldleg-
ur auður væri aldrei mikill í búi
Ólafs. En af öðru var nóg og það
gerði gæfumuninn.
Þannig var hann. Hjálpsamur
og hlýr. Þetta birtist glöggt í
störfum hans við kirkjuna en
hann var um langt skeið umsjón-
armaður hennar og kirkjugarðs-
ins. Þar nýttust þessir kostir hans
vel og þeirra hafa margir notið á
viðkvæmum stundum í áranna
rás.
Við sjáum, að dýrð á djúpið slær,
þó degi sé tekið að halla.
Það er eins og festingin færíst nær
og faðmi jörðina alla.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar
bleikum væng,
svo brjóstið þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn
blítt og hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt
og svanur á bláan voginn.
D.S.
Um leið og ég þakka Ólafi fyrir
ánægjulega samfylgd sendi ég
konu hans, börnum og aðstand-
endum öllum mínar innilegustu
samúðarkveðjur og bið þeim
blessunar Guðs á erfiðri stundu.
Valtýr Sigurbjarnarson.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111
AKUREYRARB/íR
Öldrunarráð Akureyrarbæjar
auglýsir eftir:
Starfsmanni til að veita upplýsingar
um þjónustu fyrir aldraöa, taka á móti og
vinna úr umsóknum um þjónustu, meta þjónustu-
þörf og hafa milligöngu um útvegun þjónustunn-
ar. Æskilegt er að starfsmaðurinn hafi reynslu af
öldrunarþjónustu og menntun af sviði hjúkrunar,
félagsráðgjafar, sjúkra- eða iðjuþjálfunar. Skrif-
legum umsóknum skal beint til félagsmálastjóra
Akureyrarbæjar, Félagsmálastofnun, Strandgötu
19 b, Akureyri, sími 96-25880, en hann veitir jafn-
framt upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 20. sept. nk.
Hjúkrunarforstjóra hjúkrunarheimilis-
ins á Hlíð.
Krafist er menntunar og reynslu af sviði hjúkrun-
arfræða en þekking á öldrunarþjónustu og stjórn-
unarstörfum er æskileg. Skriflegum umsóknum
skal beint til hjúkrunaiiorstjóra Hlíðar, Önnu
Guðrúnar Jónsdóttur, Dvalarheimilinu Hlíð, Aust-
urbyggð 17, sími 96-27932, en hún veitir jafn-
framt upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 20. sept. nk.
AB-búðin Kaupangi
Skólavörur — föndur-
vörur — spil
Gallery-myndir og
margt fleira
Líttu inn, næg bílastæði.
AB-búðin Kaupangi
Vegna breytinga
40%
afsláttur
á öllum vörum
KOMPAN
SKIPAGÖTU 2 AKUREYRI SÍMI 96 25917
Athugasemd
- vegnar greinar
um endurvígslu
Kaupangskirkju
Nýlega var sagt frá endurvígslu
Kaupangskirkju í Eyjafirði hér í
blaðinu. Þar var saga kirkjunnar
rakin í stuttu máli og nefndir
nokkrir aðilar sem viðstaddir
voru endurvígsluna. Því miður
féllu niður nokkur nöfn í grein-
inni, og er beðist velvirðingar á
því.
Auk þeirra, sem nefndir eru í
greininni, voru viðstaddir endur-
vígsluna Kristján Hannesson,
bóndi í Kaupangi, og Ólafur
Tryggvason á Ytra-Hóli, sókn-
arnefndarmenn, - en Ólafur átti
að öðrum ólöstuðum einna
stærsta þáttinn í að endurbætur
voru gerðar á kirkjunni.
Tónlistarmennirnir Þuríður
Baldursdóttir, mezzósópran, og
undirleikararnir Magna Guð-
mundsdóttir, Guðrún Þórarins-
dóttir og Hulda Björk Garðars-
dóttir, sáu um tónlistarflutning
við athöfnina ásamt þeim Atla
Guðlaugssyni, trompetleikara,
og Þórdísi Karlsdóttur, organ-
ista. Öllum þessum aðilum eru
færðar bestu þakkir fyrir þátt-
töku sína í endurvígslunni. ÉHB
DAGIJR
Ilúsavík
0 9641585
Norðlcnskt dagblað