Dagur - 08.10.1988, Qupperneq 5
8. október 1988 - DAGUR - 5
myndbandarýni
Skassið
ógurlega
Hentu mömmu af lestinni
Útgefandi: Háskólabíó 1988
Leikstjóri: Danny DcVito
Aðalhlutverk: Danny DeVito, Billy Crystal,
Kim Greist, Anne Ramsey
Aldurstakmark: Ekkert
Nóttin er rök. Þannig hefst skáld-
saga háskólakennarans Larrys og
þannig hefst einnig smásaga
nemanda hans, Owens. Þeir eiga
fleira sameiginlegt. Larry á í
vandræðum með fyrrverandi eig-
inkonu sína og Owen er í stök-
ustu vandræðum með mömmu
gömlu, sem er hinn mesti harð-
stjóri. Þessar ólíku persónur
stilla saman strengi sína og
útkoman er sprenghlægileg.
Hentu mömmu af lestinni
(Throw momma from the train)
er vinsæl gamanmynd og maður
bjó sig því undir 90 mínútna hlát-
urskast. Ekki gekk það alveg eft-
ir en vissulega er þetta skemmti-
leg mynd. Danny DeVito
(Owen) er sem oft áður litli,
þybbni sprelligosinn, en gríðar-
lega uppáþrengjandi, hálfgerður
NÖRD. Hann ásækir Larry, sem
leikinn er af Billy Crystal
(homminn í Löðri), og vill endi-
lega fá hann til að myrða mömmu
gömlu, býðst meira að segja til að
myrða fyrrverandi eiginkonu
Larrys í staðinn.
Hæfilegur misskilningur, hæfi-
legur ofleikur og skondnar uppá-
komur gera myndina skemmti-
lega. Danny og Billy sýna báðir
afbragðs gamanleik en mamma
gamla stelur þó senunni. Ekki
veit ég hvernig í ósköpunum
Danny DeVito, sem leikstýrir
sjálfum sér og öðrum, hefur farið
að því að grafa upp slíka kerling-
arherfu. Hún er óborganleg, hið
ferlegasta skass í útliti og fram-
göngu allri. Hentu mömmu af
lestinni er mynd sem óhætt er að
mæla með, en þeir sem þola ekki
litia nagginn Danny DeVito (ég
hef heyrt um nokkra) ættu þó að
halda að sér höndum. SS
ISIENSKUR T£XTI
v' ACCLAIMED BY CRITICS
AROUND THE WORLD AS THE
BEST WAR MOVIE EVER MADE
Stanley Kubrick's .—.
FULl •«?
HETAL
JACKET
mi m-: m
mm% mvmm ihkw mwsi mwm
«mm - m mt "æsssawvm
Tilgangsleysi
stríðsbrölts
Full Metal Jackct
Útgefandi: Steinar hf.
Lcikstjóri: Stanley Kubrick
Aðalhlutverk: Matthew Modine, Adam
Baldwin, Vincent D’Onofrio
Bandarísk, 1987, sýningartími 112 mín.
Aidurstakmark: 16 ár
Nei, ekki enn ein myndin um
Víetnamstríðið, gæti fólk hugsað
með hryllingi þegar Full Metal
Jacket ber á góma. En verið
alveg óhrædd, Stanley Kubrick
fer ekki troðnar slóðir frekar en
fyrri daginn og hefur hér skapað
hrottalega góða mynd. Hrotta-
lega segi ég því vissulega eru
hrottalegar senur í Full Metal
Jacket og ástæða til að minna
fólk á aldurstakmarkið.
Fyrri hluti myndarinnar er helg-
aður þjálfun hermanna. Þeir eru
keyrðir áfram, niðurlægðir og
svívirtir og auðvitað endar þetta
með því að einhverjir brotna.
Aðrir komast í gegn, grjótharðir
dráparar. Þetta eru raunsæjar
lýsingar og ekkert gert til að
draga úr ljótleika veruleikans né
fegra málstaðinn.
Þegar á hólminn er komið heldur
Kubrick uppteknum hætti. Það
er ekkert rómantfskt við stríð,
þótt sumir kvikmyndafram-
leiðendur hafi haldið því fram,
og tilgangsleysi Víetnamsstríðs-
ins er algjört, samkvæmt túlkun
Kubricks. Þetta er snörp og
skemmtilega útfærð ádeila.
Kubrick þarf ekki stórkostlegar
eldglæringar eða gríðarlegt
mannfall til að sýna fáránleika
stríðsins. Hann fylgir ákveðnum
hópi hermanna allt frá því þeir
byrja í þjálfun þar til þeir ráfa
skelfingu lostnir um borgarrústir
með leyniskyttur yfirvofandi í
hverjum glugga. Meira að segja
hetjurnar fá á baukinn. Frekari
orð eru óþörf. Myndin talar sínu
máli og hún er sannarlega áhrifa-
rík. SS
ISUNSKUR T6XTI
RICHARD
CHAMBIRLAIN
THi
ere.D
IACLYN
SiVtlTH
BOURNE
IDENTSTY
Hæfllega
spennandi
The Bourne ldentily
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjórí: Roger Young
Aðalhlutverk: Richard Chamberlain, Jaclyn
Smith, Anthony Quayle, Robert Vaughan
Bandarísk, 1988, 177 min. (2 spólur)
Aldurstakmark: 16 ár
Spennusagnahöfundurinn
Robert Ludlum er býsna vinsæll
af kvikmyndagerðarmönnum og
hér er saga hans, The Bournc
Identity, komin á tvær spólur.
Ekki eru neinir aukvisar á ferð í
aðalhlutverkum, allir þekkja
Richard Chamberlain og honum
til aðstoðar er Jaclyn Smith, sem
er mjög eftirstótt í „míni-seríum"
(sbr. Vindmyllur guðanna).
A unglingsárum las ég margar
spennusögur sem fjölluðu um
mann sem hafði misst minnið,
þekkti ekki sjálfan sig, eða var
einfaldlega ekki hann sjálfur!
TBI fjallar einmitt um Jason
Bourne sem misst hefur minnið
og skilur ekkert í því af hverju
hann á fjórar milljónir Banda-
ríkjadala í svissneskum banka.
Enn síður skilur hann hvers
vegna allir vilja hann feigan.
Smám saman verður honum ljóst
hvers konar varmenni hann er,
en eru það fullnægjandi upplýs-
ingar?
Mynd af þessu tagi byggist á
spennu í kringum hið óþekkta og
því skal ég ekki fara nánar í sögu-
þráðinn. Eitt er víst að þættirnir
eru spennandi og maður bókstaf-
lega verður að sjá seinni spóluna
strax á eftir hinni fyrri. Roger
Young tekst vel að byggja upp
spennu með því að raða upp nýj-
um og óvæntum upplýsingum
meö jöfnu millibili og auk þess er
myndin ágætlega gerð.
Jaclyn Smith og Chamberlain eru
bara hclvíti góð í TBI, þótt bless-
aður kallinn hann Chamberlain
sé vissulega ofnotaður í þáttaröð-
um af þessu tagi. Það kom mér á
óvart hve myndin var góð, hæfi-
lega flókin, hæfilega ótrúleg, en
hæfilega spennandi engu að
síður. SS
Kolgeggjaður
útvarpssáli
Kxri sáli (The Couch Trip)
Útgetandi: Háskólabíó 1988
Leikstjóri: Michacl Ritchie
AAalhlutverk: Dan Aykroyd, Charles
Grodin, Walter Matthau, Donna Dixon
Aldurstakmark: Fkkcrt
Kæri sáli er þrælskemmtileg gam-
anmynd sem byggir þó á algeng-
um skotspónum á borð við sál-
fræðinga. Hve oft höfum við ekki
fengið að sjá hinn kolgeggjaða
sálfræðing sem hvorki getur
læknað sjálfan sig né aðia? Enn í
dag er sálfræðin talin bull og vit-
leysa og óspart gert grín að þeim
sem leggja stund á þetta starf. í
þessari mynd má þó finna nýstár-
legan flöt, nefnilega útvarpssál-
fræðing, en slíkt fyrirbæri hefur
verið að ryðja sér til rúms á síð-
ustu árum og er mjög áberandi í
Bandaríkjunum.
Ekki gerir Kæri sáli irikinn
greinarmun á geðveika fanganum
(Dan Aykroyd), kolruglaða
umhverfisverndarmanninum
(Walter Matthau), eða útvarps-
sálfræðingnum (Charles Grodin).
Allt er þetta kolruglað lið og get-
ur hver komið í annars stað.
Enda gengur myndin út á það að
fanginn strýkur úr geðsjúkrahús-
inu og hleypur í skarðið fyrir sála
í útvarpinu. Hann vekur geysi-
lega athygli og læknar fólk í þús-
undavís með bulli sínu.
I öllu þessu rugli gæti leynst
dálítill sannleiksvottur og er sú
staðreynd bandarísku þjóðinni
ekki til hróss. Margar uppákom-
ur í myndinni eru sprenghlægi-
legar og er það ekki síst að þakka
afbragðstilþrifum hjá þeim Dan
Aykroyd og gamla refnum Walt-
er Matthau. Hinn einhæfi gaman-
leikari Charles Grodin er hins
vegar jafn einhæfur og vanalega,
en sjálfsagt þykir mörgum leikur
hans fyndinn og er það vel.
Myndin er góð en takið boðskap-
inn ekki alvarlega. SS
Norður-Þingeyingar
Höfum opnað eftir breytingar nýja
og glæsilega verslun.
Mikið úrval af teppum, dúkum, flísum og parketi.
10% afsláttur af gólfefnum í október og 30% afsláttur af til-
teknum gerðum flísa.
Bjóðum mjög glæsilegt úrval af baðherbergisinnréttingum.
Seljum einnig sjónvörp - útvörp - hljómflutningstæki o.fl.
Leitið ekki langt yfir skammt.
Sendum í póstkröfu.
Byggingavörudeild.
Húsavík s. 41444.
ÞÚ HEFIIR T/EKIFÆRI
TIL Afl NÝTA ÞÉR
12 ÍRA REYNSLU
SÉRFRflEDINGA
FJÁRFESTINGAR-
FÉLAGSINS, ÞÉR AD
KOSTNAOARLAUSU.
skrifstofu Fjárfest-
____ ingarfélagsins við Ráð-
hústorgið er Guðmundur B.
Guðmundsson til aðstoðar
við viðskiptavini félagsins,
bœði í sambandi við kaup
og sölu verðbréfa, ráð-
leggingar og upplýsingar
varðandi ávöxtun sparifjár,
söfnun lífeyris og fjár-
málaumsjón.
KJARABRÉF, MARKBRÉF,
TEKJUBRÉF, SKYNDIBRÉF,
NÝ SPARISKÍRTEINI RÍKIS-
SJÓÐS, ELDRI SPARI-
SKÍRTEINI, HLUTABRÉF,
ÖNNUR VERÐBRÉF, FRJÁLSI
LÍFEYRISSJÓÐURINN.
FJÁRFESTINGARFÉIAGIÐ
Ráðhústorgi 3, 600 Akureyri S (96) 25000
7.e"kí. 1988 Kjarabréf 3,305 - Markbréf 1,736 - Tekjubréf 1,538 - Fjölþjóðabréf 1,268 - Skyndibréf 1,016