Dagur - 08.10.1988, Blaðsíða 9

Dagur - 08.10.1988, Blaðsíða 9
 8. október 1988 - DAGUR - 9 poppsíðon Umsjón: Valur Sæmundsson. Sitthvað um Europe: Við erum vist þungarokkarar - segir Joey Tempest argur Eins og flestum er kunnugt, sló sænska hljómsveitin Europe í gegn með plötunni The Final Countdown fyrir um tveimur árum. Nýlega kom svo út ný plata með sveitinni. En spurningin er sú, hvort hljómsveit- inni takist að fylgja vinsældum sín- um eftir með nýju plötunni, Out of this World. Það er sjálfsagt tíminn einn sem getur leitt það í Ijós en það sakar ekki að heyra örlítið hvernig liggur á meðlimum sveitarinnar, nú þegar nýja platan er nýkomin út. Þegar Final Countdown kom út voru skoðanir skiptar um hvort Europe væri þungarokkshljómsveit eða bara iðnaðarframleiðslupopp- hljómsveit. Margir þungarokks- aðdáendur vildu meina að þessir Ijósabekkjabrúnu piltar með tann- kremsbros og blásið hár hefðu ekk- ert með þungarokk að gera. Aðrir þungarokksaðdáendur tóku Europe tveim höndum og sáu í hljómsveit- inni möguleikann á að þungarokkið kæmist á vinsældalistana. „Fólk getur kallað okkur hvað sem það vill,“ segir Joey Tempest söngvari. „En við erum tvímæla- laust þungarokkshljómsveit. Fólk hefur orðið margt hvert mjög undr- andi þegar það hefur komið á hljóm- leika hjá okkur og heyrt að við erum mun þyngri þar en á Final Countdown." Jæja já. Það er best að hætta þessum vangaveltum um þyngsli eður ei. í næstu viku mun ég sennilega glugga dálítið í viðtal við John Norum fyrrverandi gítarleikara Europe en hann yfirgaf einmitt hljómsveitina á Final Countdown timabilinu, vegna tónlistarlegs ágreinings. Hann hefur vissar skoðanir á því, hvort Júróp er heví eður ei. En sumsé, titillag Final Countdown varð óhemju vinsælt og komst í efsta sæti vinsældalista í 27 lönd- um og breiðskífan hefur nú selst í 5.893.417 eintökum. Sirka. Afleiðingin varð sú að strákarnir í hljómsveitinni urðu ríkir. Græddu glás af seðlum, skiljiði. Þarafleið- andi urðu þeir að pakka seðlunum og öðrum farangri niður í tösku og yfirgefa heimalandið sökum óhagstæðra kjara fyrir fjármagns- eigendur á greiðslum til samneysl- unnar í því landi. Og þeir eru það séðir að þeir skipta alltaf um búsetuland á fjögurra mánaða fresti til að losna við að borga skatt. Samt sem áður segja þeir að þeir líti alltaf Þetta er hljómsveitin Europe. Horfið vel á strákana. Eru þeir þungarokkslegir eða ekki? á Sviþjóð sem heimalandið og ætla sér að snúa aftur þegar um hægist, eftir 2,4 eða 10 ár. Það fer sjálfsagt eftir þvi hvursu lengi þeir eru að eyða peningunum. En Europe þarf að glíma við fleira en skattavandræði. T.d. við þær raddir og rógtungur sem segja að nýja platan sé endurtekning á Final Countdown. Hr. Tempest er ekki aaaalveg sammála þessu og hitnar mjög í hamsi ef þessu er hreyft. „Bull. Við höfum einmitt reynt að vera eins langt frá Final Countdown og hægt er. Það er ekkert lag á Out of this world sem má líkja við Final Countdown. Það eina sem þessar plötur eiga sameiginlegt er að á þeim báðum er mjög fjölbreytt úrval laga, róleg lög og rokkuð í bland. En að okkar mati er Out of this world mun sterkari skífa. En það er hins vegar almennings að dæma. Við vorum ánægðir með Final Countdown á sínum tíma en þegar ég hlusta á hana í dag, finnst mér hún úrelt, „out of date“. Líkist okkur ekki almennilega," segir Joey Tempest og er greinilega ekki rótt. Við látum þetta gott heita í bili en af þeim í Europe er það hins vegar að frétta að hljómsveitin var að Ijúka tónleikaferð um Bandaríkin með Def Leppard. Síðan heldur hún alein af stað í heimsreisu. Kannski kemur hún til íslands? Ný plata frá Bubba: Skortir allan metnað Ný plata frá Bubba Morthens vekur alltaf athygli, þar eð maðurinn er meðal virtustu og jafnframt vinsælustu tónlistarmanna þjóðar- innar. Það fer ekki alltaf saman en Bubbi hefur sýnt það að hann er afburðatónlistarmaður eins og plöt- ur hans Fingraför og Kona sýna og sanna. Vinsæll er hann, ekki skal því neitað. Frelsi til sölu seldist grimmt og Dögun bætti um betur, mér hefur skilist að sú plata sé að nálgast 20.000 seld eintök. Dágott. Vegna alls þessa ber maður ákveðnar væntingar í brjósti og gerir ákveðnar kröfur þegar Bubbi sendir frá sér plötu. Persónulega finnst mér Kona vera yfirburðaplata frá Bubba hendi nú á nýliðnum árum. Ég er alls ekki sáttur við Frelsi til sölu og ekki nógu sáttur við Dögun. Nýja platan ber heitið 56 og ætla ég að hafa nokkur orð um hana hér. Það frumlegasta við þessa plötu er sennilega nafnið en þó dofnar frumleikinn nokkuð ef raunin er sú að nafnið sé dregið af fæðingarári listamannsins en Bubbi er fæddur 1956. Annað óvenjulegt við þessa plötu er hversu stutt hún er, aðeins fimm lög eru á skífunni, og telst það henni ekki til tekna. Margar illar hugsanir komast á kreik. Átti Bubbi ekki fleiri lög? Af hverju beið hann þá ekki með að senda frá sér efni þangað til hann átti nóg á alvöruplötu? Þurfti að koma plötunni út í hvelli út af titillaginu úr Foxtrot? Eru hin lögin þá til uppfyllingar? Svör við þessum spurningum hef ég ekki á reiðum höndum. Ef ég segi mína skoðun á tónlistinni, þá finnst mér hún ... andlaus. Það er eins og maður hafi heyrt öll þessi lög áður. Ég hef þetta raunar líka á tilfinningunni þegar ég hlusta á Dögun. Foxtrot sjálft er þó bærilega þokkalegt lag. Ballaðan um Kósakkastelpuna er ágæt en gjörsamlega steingeld. Hljómar eins og 10 aðrar ballöður Bubba gera, auk þess sem lagið er allt of langt. Klóakkrossfarar. Ekkert um það að segja. Textinn þó býsna góður á köflum. Sársauki er litlaust lag. Freedom for sale er hallærislegt diskólag. Umslag plötunnar er kvöl og pína. Bubbi á Bláa lóninu eða einhverju svoleiðis landslagi, (hafiði nokkuð séð það áður?). Hljóðfæra- leikur á plötunni er með ágætum. Ha? Jú, þetta er ekki missýn. Eftir allan þennan leiðindaupptalning er tilvalið að luma hrósi að í lokin. Ef ég reyni að draga þessar sundurleitu hugsanir saman, þá er álit mitt þetta: Platan 56 með Bubba Morthens hefði aldrei átt að koma út. Það er ekkert nýtt að finna á þessari plötu. Vissulega er þetta ekki slæm plata í þeim skilningi en maður gerir meiri kröfur til Bubba því maður veit hvað hann getur. Besta lausnin að mínu mati hefði verið sú að gefa út tveggja laga tólftommu með lögunum úr Foxtrot, titillaginu og Frozen feelings. Sérstök plata með Bubba þjónar engum tilgangi að svo stöddu. En platan selst þó vel, þrátt fyrir skort á tónlistarlegum metnaði. Kannski var það tilgangurinn með útgáfunni. Að koma út öruggri söluvöru. Sá grunur læðist óhjákvæmilega að manni. Bubbi karlinn er farinn að endurtaka sig fullmikið á plötunni 56 og raunar fyrr. Vonandi á þetta eftir að lagast. Vinsældalistar Hljóðbylgjan - vikuna 1/10-8/10 1988 Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi 1. (1.) (4) Frozen Feelings Jan Bang 2. (5.) (5) Foxtrot Bubbi Morthens 3. (2.) (5) Gerum okkar besta Handboltalandsliðið 4. (3.) (7) Wild world 5. (7.) (8) I know you're out there somewhere Moody Blues 6. (6.) (9) Kvöldsagan 7. (9.) (3) Locomotion 8. (N) (1) I need you B.V.S.M.P. 9. (N) (1) She wants to dance Ftick Astley 10. (10) (2) The only way is up ... Yass & the Plastic P. Rás 2 - vikuna 30/9-7/10 1988 Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi 1. (1) (9) Foxtrott Bubbi Morthens 2. (3.) (4) Frozen feelings Jan Bang 3. (4.) (4) Groovy kind of love Phil Collins 4. (2.) (6) Gerum okkar besta . Laddi og ísl. landsliðiö 5. (5.) (4) Cocomo Beach boys 6. (6.) (6) My love Stevie Wonder & Julio Iglesias 7. (7.) (7) Yeke Yeke Morey Kante 8. (30.) (2) One moment in time Whitney Houston 9. (22.) (2) De smukke unge mennesker Kim Larsen 10. (8.) (9) Im nin alu Ofra Haza íslenski listinn - vikuna 1/10-7/10 1988 Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi 1. (1.) 6 Gerum okkar besta 2. (2.) 6 Foxtrott 3. (4.) 4 Frozen feelings 4. (3.) 3 Wildworld Maxi Priest 5. (8.) 3 Groovy kind of love Phil Collins 6. (7.) 3 One moment tin time Whitney Houston 7. (5.) 13 Nothing's gonna change my love for you ... Glenn Medeiros 8. (20.) 3 Don’t worry be happy Bobby McFerrin 9. (10.) 4 The only way is up Yazz & Plastic population 10. (22.) 2 Cocomo Beach Boys

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.