Dagur - 08.10.1988, Blaðsíða 8

Dagur - 08.10.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 8. október 1988 Viðskiptavinir! Opið frá ki. 8.00 á morgnana alía daga nema sunnudaga. Á kvöldin eftir samkomulagi. ] } — ; 1 Athugið að Björk, hárgreiðslu- stofa er ekki í símaskrá, heldur Lóa larðadóttir. 1 r-v v rs r“ i r-v i i iARGRF ÐS * I I/ \l VVw/1\l_ I L/\JI MÁNAHLÍÐ 2, AKUREYRI SÍMI 24091 Lóa Barðadóttir, hárgreiðslumeistari. Björgunarskóli LHS: Spennandi námskeið í nýrri vetraráætlun Björgunarskóli Landssambands hjálparsveita skáta (LHS) er að hefja sitt tólfta starfsár undir kjörorðunum: „Aukin kunnátta - bætt þjálfun - betri árangur." Dagskrá skólans er fjölbreytt að vanda. í nýútkominni vetraráætl- un skólans eru tímasett ýmis framhaldsnámskeið og leiðbein- endanámskeið fyrir björgunar- sveitamenn og aðra sem tengjast björgunarstörfum. Björgunarskóli LHS býður upp á fjölda námskeiða og er lýs- ing á þeim í námskrá skólans, sem endurnýjuð var fyrir ári og send öllum björgunarsveit- um, almannavarnanefndum og lögregluembættum. Þessir aðilar geta pantað önnur námskeið fyrir sitt fólk og útvegar skólinn þá leiðbeinendur og kennslugögn. Á hverju ári heimsækja leiðbein- endur Björgunarskóla LHS fjölda sveita og á síðasta ári sóttu yfir 200 manns námskeið hjá skólanum. í vetur verða einnig haldin námskeið í ferðamennsku fyrir almenning, eins og verið hefur undanfarin ár á vegum hjálpar- sveitanna. Verða þau kynnt nán- ar síðar. M MMr ekti afi stliga feiHliu Ef þú ert meðal þeirra, sem óttast áhrif vaxandi verðbólgu en veist ekki hvað þú átt að gera, er mál til komið að fá ráðleggingar og aðstoð hjá Fjárfestingarfélaginu. Það er óráðlegt að stinga höfðinu í sandinn og bíða eftir betri tíð. Þetta á sérstaklega við þá, sem þurfa að geyma peninga í skemmri tíma, peninga sem ættu að bera háa vexti, en það gera Skyndibréf Fjárfestingarfélagsins. Skyndibréfln bera nafn sitt með rentu! Þeim er ætlað að leysa vanda þeirra, sem þurfa að ávaxta fé til skamms tíma með hæstu mögulegum vöxtum. Þessi bréf henta því bæði fyrir- tækjum og einstaklingum. Skyndibréf eru tilvalin fyrir þá sem þurfa t.d. að geyma og ávaxta peninga á milli sölu og kaupa á fasteignum. Skyndibréfin eru sem sagt ætluð til skammtíma fjármála- lausna. Ávöxtun þeirra er á bilinu 7-9% umfram verð- bólgu. Skyndibréf eru að jafnaði innleyst samdægurs, - án innlausnargjalds. Kostir þeirra eru óumdeilanlegir. FJÁRFESTINGARFÉIAGIÐ Haf narstræti - Kringlunni - Akureyri Aðili að Verðbréfaþingi íslands Hluthafar: Verslunarbankinn, Eimskip, Tryggingamiðstööin, Lífeyrissjóður Verslunarmanna auk rúmlega 400 fyrirtækja og einstaklinga. Fjármál þín — sérgrein okkar Bautamót Bridgefélags Akureyrar: Grettir og Frímann efstir Bræðurnir Grettir og Frímann Frímannssynir hafa forystu í Bautamóti Bridgefélags Akur- eyrar þegar tveimur umferðum af þremur er lokið. Skammt er þó í næstu pör og útlit fyrir að úrslit ráðist ekki fyrr en í síð- ustu spilunum. Staða efstu para er þessi: Stig 1. Grettir Frímannsson - Frímann Frímannsson: 538 2. Soffía Guðmundsdóttir - Hermann Tómasson: 514 3. Páll Pálsson - Þórarinn B. Jónsson: 486 4. Kristinn Kristinsson - Gunnlaugur Guðmundss.: 481 5. Jón Sverrisson - Hilmar Jakobsson: 458 6. Kristján Guðjónsson - Stefán Ragnarsson: 454 7. Skúli Skúlason - Stefán Stefánsson: 453 8. Anton Haraldsson - Pétur Guðjónsson: 451 9. Reynir Helgason - Tryggvi Gunnarsson: 449 Alls taka 22 pör þátt í mótinu að þessu sinni. Keppnisstjóri er Albert Sigurðsson en tölvuút- reikning annast Margrét Þórðar- dóttir. Þriðja og síðasta umferð Bautamótsins verður spiluð þriðjudaginn 11. október og hefst spilamennskan kl. 19.30 í Félags- borg. ■ ^ i i ..■■■—.... Samtök jafnréttis og félagshyggju: Alinennur fundur í Vín Samtök jafnréttis og félagshyggju verða með almennan fund, fimmtudagskvöldið 13. október í Blómaskálanum Vín. Þar mun m.a. Stefán Valgeirs- son gera grein fyrir atburðum síðustu daga og vikna í sambandi við stjórnarmyndunina. Starfið framundan verður rætt og fjallað verður um stofnun vinnuhópa, þar sem áhugafólk getur komið með ábendingar um tillögur og frumvörp á Alþingi og látið álit sitt í ljós. Á þennan hátt vilja Samtökin opna hverjum einstaklingi mögu- leika á að hafa áhrif á gang mála í þjóðfélaginu án þess að við- komandi þurfi að vera í einhverj- um nefndum eða ráðum eins og tíðkast hjá stjórnmálaflokkunum í landinu. Vafalaust mun margt athygl- isvert koma fram á fundinum. Hann hefst kl. 21.00.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.