Dagur - 08.10.1988, Qupperneq 12
- 'nLvV'X! - 68ÖÍ 'QdCVÍAO .8
12 - DAGUR - 8. október 1988
Aðalfundur
Leikklúbbsins Sögu
verður haldinn sunnud. 9. okt. kl. 13.30 í Dyn-
heimum.
Nýir félagar hjartanlega velkomnir.
sakamálasaga
Nútímaafbrot
Stjórnin.
„Eitt eiga afbrotamenn víst:
Þegar til lengdar lætur fá þeir að
þjást fyrir afbrot sín.“ Vittorio
Alfieri, ítalskur leikritahöfund-
ur (1749-1803).
Kynnum
RANK XEROX
Ijósritunarvélar
og margs konar skrifstofubúnað
dagana 11.-13. október 1988
á Hótel KEA, Akureyri.
Opnunartímar:
11. október kl. 14.00-22.00
12. október kl. 14.00-22.00
13. október kl. 10.00-18.00
Sýningin er opin öllum.
GÍSLI J. JOHNSEN SF.
n i
Bókabúðin Eddal
I Hafnarstræti 100 Akureyri Sími 243341
Nútímasjóræningjar
Það er ekkert heillandi við sjó-
ræningja. Á tímum seglskip-
anna voru þeir blóðþyrstir
morðingjar. Nú til dags eru þeir
jafn hættulegir og miskunnar-
lausir og nokkru sinni fyrr.
Munurinn er sá, að sjóræningj-
arnir á dögunt Svartskeggs og
Kidds skipstjóra, enduðu
venjulega feril sinn annaðhvort
í gálganum eða á hafsbotni.
Nútímasjóræningjar aftur á
móti komast venjulega undan.
Það er ákaflega sjaldgæft, að
upp um þá komist.
Sjórán er aftur orðið að plágu
hingað og þangað á jarðar-
kringlunni. Verst er ástandið í
Karabíska hafinu, í strandhér-
uðum Vestur-Afríku og í Aust-
urlöndum fjær. Mörg þeirra
skipa, sem fara úr höfn í Singa-
pore, eru nú orðið með vopn-
aða varðmenn um borð. Sjó-
ræningjarnir þar um slóðir
skjótast út frá nærliggjandi eyj-
um á hraðskreiðum bátum.
Á gámaflutningaskipi einu
frá Filippseyjum ákvað skip-
stjórinn, sem var breskur, að
leggjast við akkeri til að bíða af
sér storm. Hann hélt, að hann
og áhöfn hans væru örugg. En í
NUDD = Betri lióan
Vissir þú ad:
NUDD slakar á og sefar taugar í húðinni.
NUDD skerpir blóðrás og sogæðakerfi.
NUDD eykur blóðstreymi til vöðva.
NUDD bætir þanþora (teygju) og afl vöðva.
NUDD losar um stirðleika og þreytu.
NUDD losar um bólgur.
NUDD eykur starfsemi húðkirtla.
SLÖKUN
Nudd stuðlar að bæði andlegu og líkamlegu
heilbrigði. Hugsaðu eins vel um þig og þú
hugsar um bílinn þinn.
Ljósabekkir kr. 320.- 27 mín.
★ Nýjar perur. Opið frá kl.
★ Sauna. 10.00-22.00 mánud.-föstud.
★ Nuddpottur. 10.00-19.00 laugard.
★ Hvíldarherbergi. 10.00-18.00 sunnud.
ATH: Barnagæsla innifalin frá kl. 10.00 til 16.00.
Kaffitería.
Sjáumst! Starfsfólk KA heimilis.
KA heimilið - betri líðan
Sími 23482.
Það Kemst
til skila T Degi
Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^^
skjóli myrkurs komu sjóræn-
ingjar á fiskibáti upp að skip-
inu, köstuðu krókum yfir lunn-
inguna og klifruðu um borð.
Sjóræningjarnir fóru beint inn í
klefa skipstjórans, miðuðu á
hann skammbyssu og kröfðust
peninga. Skipstjórinn, Arthur
Dyason, neitaði. Hann hreyföi
sig svolítið til þess að komast úr
skotlínunni, en þá skutu sjó-
ræningjarnir hann til bana.
Það voru einnig sjóræningjar
sem frömdu fjöldamorð við
Tawi tawi eyjarnar u.þ.b. 70
sjómílur norðan við Manila.
Þar lá farþegaskipið Nuria við
akkeri inni á sléttri vík, þegar
tveir úr áhöfninni og tveir
laumufarþegar réðust skyndi-
lega á hina farþegana. Með
skotvopnum, sem þeir höfðu
stolið af vopnabirgðum
skipsins, ráku þeir alla um borð
yfir að annarri lunningunni og
rændu þá öllu, sem vert var að
ræna. Síðan hófu þeir skothríð.
Ellefu manns féllu fyrir kúlun-
um. Þeim var hent fyrir borð.
Það braust út ofsahræðsla og
tuttugu manns til viðbótar var
hent í sjóinn og drukknuðu þeir
allir.
Bardagaglaðir heimamenn
Tveir fiskibátar, sem verið
höfðu í nágrenninu, lögðu nú
upp að Nuria og með þeim
hurfu sjóræningjarnir á braut.
Tuttugu manns lifðu af. Það var
hald manna, að sjóræningjarnir
væru heimamenn, en þeir náð-
ust aldrei.
Árið 1981 var stofnað Inter-
national Maritime Bureau (Al-
þjóðlega sjóferðaskrifstofan) í
Barking í Essex. Tilgangur
hennar er að skrá og safna
sönnunargögnum um afbrot
framin á hafi úti. Stör hluti
þeirra mála sent skrifstofan fæst
við eru tryggingasvik. Rann-
sóknarmenn stofnunarinnar fá
sífellt fleiri og fleiri tilkynningar
um hrein sjórán. í einni af
fyrstu skýrslum skrifstofunnar
var greint frá því, að bardaga-
glaðir heimamenn, vopnaðir hníf-
um og eitruðum örvum, væru
ráðnir til verndar skipum, sem
sigldu meðfram afrísku vestur-
ströndinni.
En það er Karabíska hafið,
sem er miðstöð sjóránanna. Á
fimm árum, frá 1977 til 1982, er
talið að allt að 1500 manns hafi
verið myrt af sjóræningjum.
Lystisnekkjan Belle Esprit
komst með naumindum inn til
Nassau með 50 kúlnagöt á
skrokknum. Skipstjórinn, Aust-
in Evans, hafði varist árás fimm
hraðbáta, þar til eftirlitsflugvél
lögreglunnar bjargaði honum
undan þeim. Þá réðust sjóræn-
ingjar einnig á þrjá seglbáta
sem voru á leið til Bahama. Þeir
rændu öllu fé þeirra, sem voru
um borð og nauðsynjum.
Hjón myrt
Hjónin William og Pat Kam-
ere frá Fort Meyers í Flórida
voru myrt, þegar þau af tilviljun
urðu vitni að eiturlyfjaflutningi
við Exumas eyjarnar. Frá Bim-
ini til Flórida eru aðeins 12 sjó-
mílur, en á þeirri leið hurfu
Walter Falconer og félagi hans
sporlaust ásamt skipi sínu Poly-
ner III. Ættingjarnir hétu háum
verðlaunum þeim, sem gætu
gefið upplýsingar um afdrif
þeirra. Þeim skilaboðum var
komið til þeirra, að mennirnir
tveir hefðu verið myrtir og
bátnum siglt til Suður-Amer-
íku.
Peter Beamborough og Mie-
hael Collesta hröktu á braut
fjóra báta, sem réðust á þá í
nágrenni Williams eyjanna.
Þeir sögðu frá því síðar, hvernig
þeim hefði tekist, meðan á
heiftarlegri skothríð stóð, að
sigla 12 metra seglbát sínum,
Snowbound, í örugga höfn.
Breski verslunarmaðurinn Mic-
hael Crocker var kyrktur af
vopnuðum árásarntönnum um
borð í 9 metra skútunni sinni,
Neen.
Ástæða flestra þessara árása
er blómleg og, að því er virðist,
takmarkalaus eiturlyfjaverslun.
Sjóræningjar fyrri tíma vildu
gull, en í dag eru þeir að sækjast
eftir marijúana, kókaíni og
heróíni. Flutningaleiðarnar eru
frá Suður-Ameríku til Flórida-
strandarinnar með viðkomu á
karabísku eyjunum. Flutninga-
skip með allt að 62 þúsund
tonna farm af marijúana hafa
sést liggja fyrir akkerum utan
lögsögu, bíðandi myrkurs og
komu smábáta, sem taka við
farminum og fara með hann áfram
til óþekktra geymslustaða.
Sum fórnarlambanna hafa orðið
vitni að þannig eiturlyfjaflutn-
ingum á sjó. Á aðra hefur verið
ráðist og þeir drepnir til þess að
ná bátum þeirra og eru þeir síð-
an notaðir við eiturlyfjaflutn-
ingana.
„Takið með ykkur
skotvopn“
Lögreglustjórinn á Cayman
eyjum auglýsti sex flugvélar til
sölu. Allar höfðu þær verið
gerðar upptækar frá eiturlyfja-
smyglurum. Hann sagði: „Það
er ekkert sem hindrar eitur-
lyfjasöluna. Náum við einhverj-
um farartækjum þýðir það ein-
faldlega, að fleiri bátum og flug-
vélum er stolið til að koma í
stað þeirra."
Það eru eiturlyfjahringir
Kólumbíu, sem eru að baki
flestum árásum á hafi úti, en
margir eyjabúanna taka þátt í
sjóránunum.
Crafton Iffel, yfirmaður
rannsóknarlögreglu Bahama
segir: „Hér eru 700 smáeyjar
dreifðar á 260 þúsund ferkíló-
metra svæði. Með takmarkað
rekstrarfé er ómögulegt að
halda uppi gæslu á svo stóru
svæði. “
Bandarískt tímarit um báta
og siglingar varar lesendur sína
við: „Takið með ykkur
skotvopn, því stærri þeim mun
betri. Látið þau sjást þegar aðr-
ir bátar nálgast. Hafið samfylgd
einhverra, sem þið þekkið, þeg-
ar þið siglið í höfn. Verðið ykk-
ur úti um besta hugsanlega fjar-
skiptaútbúnað."
Mike Green er skipstjóri,
sem hefur verið í strandsigling-
um á Flórida í meira en tuttugu
ár. Hann segir: „Hræðslan hef-
ur tekið völdin. Enginn hlustar
lengur á fiskisögur. Nú orðið
tala menn helst unt kúlnaför í
skrokknum og kappsiglingu
undan sjóræningjum. Það, sem
ég hef að segja við þá, sem allt
lífið hefur dreymt um að sigla á
þessum slóðum, er mjög einfalt:
Gerið það ekki. Maður er
hvergi öruggur lengur. Þessar
slóðir tilheyra nú orðið smygl-
urum og sjóræningjum."
I