Dagur


Dagur - 08.10.1988, Qupperneq 19

Dagur - 08.10.1988, Qupperneq 19
8. október 1988 - DAGUR - 19 'l helgarkrossgátan Verslun til sölu! ->-Á' ■ A tfroiú Kœh Fumin Veikin Tölur Vafinn Hcstuf 'Att Ta ia Jnntjfia mjr 1 1 l\*l (* *. 1 oxit’ Skawrrí- sic'Cun Tvo p f. L 3 Vi (keila/ 8. x. A ' Frelc Samhl- Ætt- t eYc þbtta q. Mann i 5. þverr- andi iuetgl þrtjstin 3. G ub GÖfaC F11’ o 4ut annct > t. V Bleyian ■ —\ mt Heió - ingi Runna V UttqC $amt HeiddC ii. >* Hauq Tala Fan^ * b. «• Hluii of he&pu Merki Tauqa St'o Trqqq /í. * * ; * Gremir Sjór- Tipi I Uu A Oflot RikC- daittis T Flug - {e Laq 10. SaiU MÓnui Kiossa F orsebi. A T rS ■ A s a m S t. s óaiií ur Staf Tr-ejt 4. Leió Oreíóa /3. L e ió i S íafur Lán •> ► : • v A ^ H. GletUnr) | Tekið skal fram að skýr greinarmunur er gerður á grönnum og breiðum sérhljóðum. Þegar þú hefur ráðið gátuna, skaltu skrifa stafina í tölusettu reitunum á lausnarseðilinn hér að neðan. Klipptu síðan lausnarseðilinn út og sendu til Dags, Strandgötu 31, 600 Akureyri, merktan: „Helgarkrossgáta nr. 44“ Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send vinningshafa. Verðlaunin fyrir krossgátuna að þessu sinni er bókin „Skáldað í skörðin“, eftir Eyjamanninn þjóðkunna, Ása í Bæ. í bókinni bregður höfundur upp hverri svipmyndinni annarri fróðlegri og skemmtilegri af forfeðrum, vinum, kunningjum, furðufuglum, skáldum og skipstjór- um. Útgefandi er Iðunn. Fjóla Jóhannsdóttir, Hlíðarlandi, Árskógsströnd, 601 Akureyri, hlaut verðlaunin fyrir helgarkrossgátu nr. 41. Lausnarorðið var Sjóstakkur. Verðlaunin, bókin „Ýmsar verða ævirnar“, verða send vinningshafa. Helgarkrossgáta nr. 44 Lausnarorðið er ... Nafn .............. Heimilsfang ....... Póstnúmer og staður Til sölu og afhendingar strax er verslunin Garöshorn Mjög góðir möguleikar fyrir duglegt fólk. Fasteigna- og skipasala Norðurlands, sími 25566 Pétur Jósefsson sölustj. heima 24485. jfc Auglýsing frá ® iðnaðarráðuneytinu Ráðuneytið vekur athygli á eftirfarandi atriði í yfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar um fyrstu aðgerðir og stefnu í ríkisfjármálum, með vísan til bráðabirgðalaga nr. 83, 28. september 1988: „Gjaldskrár fyrirtækja á vegum ríkis og sveitar- félaga, og gjaldskrár sjálfstætt starfandi sérfræð- inga, verða óbreyttar til 28. febrúar 1989, að öðru leyti en því, að heimilt verður að taka tillit til hækk- ana á erlendu innkaupsverði aðfanga. Sama gildir um hvers kyns útselda vinnu og þjónustu." Þannig munu gjaldskrár hitaveitna og rafveitna yfir- leitt haldast óbreyttar til 1. mars á næsta ári. Þá er einnig vakin athygli á því, að útseld vinna sér- fræðinga rannsóknastofnana ríkisins mun haldast óbreytt til 1. mars á næsta ári, sem og annarra sjálf- stætt starfandi sérfræðinga. Styrkir til náms s® í Sambandslýðveldinu Þýskalandi og Sviss 1. Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslenskum stjórnvöldum að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir handa (slendingum til náms og rannsóknastarfa í Sambands- lýðveldinu Þýskalandi á námsárinu 1989-’90. a) Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi. b) Nokkrir styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið 1989. Umsækjendur skulu hafa lokið eins árs háskóla- námi og hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu. c) Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rannsóknastarfa um allt að fjögurra mánaða skeið. 2. Svissnesk stjórnvöld bjóða fram í löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu 15-19 styrki til háskólanáms í Sviss háskólaárið 1989-’90. Styrkirnir eru eingöngu ætlaðir til framhaldsnáms við háskóla og skulu umsækjendur eigi vera eldri en 35 ára. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi nægilega þekkingu á frönsku eða þýsku og þurfa þeir að vera undir það búnir, að á það verði reynt með prófi. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 15. nóvembernk. Sérstök umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 5. október 1988. Gjöf Jóns Sigurðssonar Samkvæmt reglum skal veita fé úr sjóönum Gjöf Jóns Sigurðssonar „til verðlauna fyrir vel samin vísindaleg rit og annars kostar til þess að styrkja útgáfu merkilegra heimildar- rita“. Heimilt er og að „veita fé til viðurkenn- ingar á viðfangsefnum og störfum höfunda, sem hafa vísindarit I smíðurn". Öll skulu rit þessi „lúta að sögu íslands, bókmenntum þess, lögum, stjórn og framförum". Þeir sem óska að rit þeirra verði tekin til álita um verð- launaveitingu skulu senda nefndinni eitt til þrjú eintök. Æskilegt er að umsögn viður- kenndra fræðimanna, sérfróðra um efni ritsins, fylgi. Framangreind gögn skulu send I Forsætis- ráðuneytið, Stjórnarráðshúsinu, 150 Reykja- vík, en stíluð til verðlaunanefndarinnar, fyrir 15. nóvember næstkomandi. Reykjavík, 3. október 1988 Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar Magnús Már Lárusson, Sigurður Hróarsson, Sigurður Líndal.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.