Dagur - 21.10.1988, Blaðsíða 15

Dagur - 21.10.1988, Blaðsíða 15
21. október 1988 - DAGUR - 15 íþróttir Þórstap suður með sjó - núna 92:77 gegn ÍBK Björn Svcinsson var drjúgur í skoruninni aö vanda Mynd: EHB íslenskar getraunir: Kynnmgarfimdur áAkureyri - nýja kerfið kynnt Þórsarar voru frekar auðveld bráð fyrir sterka Keflvíkinga í Flugleiðadeildinni í körfu suð- Haukar í Höllimii íslandsmeistarar Hauka mæta Þórsurum í Flugleiða- deildinni í körfubolta á sunnudagskvöldið í Höll- inni. Þórsurum hefur ekki gengið allt of vel í deildinni hingað til en þeir veittu þó Völsurum verðuga keppni í seinasta heimaleik. Haukar byrjuðu mótið frek- ar illa, en hafa nú verið að sækja í sig veðrið. Þeir eru með snjalla leikmenn innan- borðs t.d. Pálma Sigurðsson, Reyni Kristjánsson, sem er þekktastur fyrir það að vera bróðir fréttastjórans og Stór- þórsarans hér á blaðinu Kristjáns Kristjánssonar, og síðan eru Haukarnir með einn efnilegasta körfuboltamann íslands í dag, Jón Arnar Ingvarsson. Pórsarar náðu sér vel á strik í seinasta heimaleik og leik- menn liðsins eru orðnir hungr- aðir eftir sigri. Það má því búast við hörkuviðureign í Höllinni á sunnudagskvöldið. Ingimar Eydal tafðist við skyldustörf fyrir vítaskota- keppnina og mætti því of seint á keppnisstað seinast. En Gestur Einar Jónasson bráða- banasérfræðingur er drengur góður og hefur því ákveðið að gefa Ingimar annan möguleika á keppni. Þeir munu því etja kappi í háifleik. Tindastóll keppir við Njarð- vík á sama tíma suður með sjó. Veggbolti: Opið mót Opið veggboltamót verður haldið að Bjargi föstudaginn 21. og laugardaginn 22. október. Mótið er fyrir alla áhugamenn um veggbolta og hefst það stundvíslega kl. 19 á föstudagskvöldið. Að sögn forráðamanna mótsins er sífellt meira um að Akureyringar sæki í veggbolt- ann og búast þeir því við góðri þátttöku á þessu móti. Þolrauna- keppni hjá UFA Ungmennafélag Akureyrar stendur fyrir þríþrautar- keppni á Akureyri um helg- ina. Keppnin er byggð á „Iron-Man“ keppninni sem fer einmitt fram á Hawaii nú um helgina. Þá er synt, hjól- að og skokkað í ákveðinn tíma og þykir þetta einhver erfiðasta keppni sem til er. UFA-keppendurnir munu þó ekki leggja jafn mikið á sig og erlendu keppendurnir, enda er þetta hugsað meira sem kynning á nýjum mögu- leikum í íþróttum. Byrjað verður að synda í Akureyrar- laug kl. 14.30 og eftir góðan sundsprett verður hjólað og skokkað. ur með sjó í gær. Leiknum Iauk með sigri ÍBK 92:77, eftir að þeir höfðu verið 49:32 yfir í leikhléi. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar og eitthvað fór það í taugarnar á hinum banda- ríska þjálfara Keflvíkinga, Lee Nobert. Hann skipti því öllu byrjunarliðinu út af og sendi algjörlega nýtt lið inn á völlinn. Áfram var jafnt á öllum tölum fram í miðjan hálfleikinn en þá fengu byrjunarleikmenn heima- manna aftur að spreyta sig. Það var eins og við manninn mælt að þeir komu fílefldir inn á og ger- samlega stungu Þórsara af. Á stuttum tíma breyttist staðan úr 12:12 í 25:12. Á þessum leikkafla réðust úrslit leiksins, því þeir rauðklæddu náðu aldrei almenni- lega að vinna þennan mun upp. Síðari hálfleikur þróaðist rnjög svipað og sá fyrri. Jafnræði var með liðunum, Þórsurum tókst Lilja María Snorradóttir Tindastól hreppti sín önnur bronsverðlaun á Ólympíuleik- um fatlaðra í Seoul í fyrrinótt, synti 100 m skriðsund á 1:16,51 mín, sem er nálægt hennar eig- in íslandsmeti í greininni. Þá hlaut Sóley Axelsdóttir Reykjavík bronsverðlaun í sín- um flokki í 100 m skriðsundi Þriðju bronsverðlaun íslend- inga þessa nótt hlaut Haukur Gunnarsson í 200 m hlaupi, bætti eigið Islandsmet og hljóp á 26,27 sek. Alls hafa íslensku keppendurnir hlotið 9 verð- laun í Seoul, eftir keppni í fyrrinótt. Elvar Thorarensen Akureyri keppti í borðtennis á miðviku- dag, en komst ekki í úrslit, tapaði Hið árlega Grétarsmót í kraft- lyftingum verður haldið í IþróttahöIIinni laugardaginn 22. október og hefst það kl. 14.00. Þar mæta til leiks allir sterkustu kraftlyftingamenn íslandsmótið í handknattleik unglinga hefst núna um helg- ina. A Norðurlandi verður keppt í 4. flokki stúlkna í Gler- árskóla og á Húsavík verður keppt í 4. flokki karla. Þórsarar verða á faraldsfæti um helgina; 4. flokkur karla ekki að minnka muninn að neinu ráði og Keflvíkinga virtist vanta metnað til að hrista gestina af sér. Bestu norðanmennirnir voru þeir Guðmundur Björnsson, sem átti mjög góðan leik, og Eiríkur Sigurðsson sem var mjög drífandi þegar hann var inni á vellinum. Konráð Óskarsson og Björn Sveinsson áttu góða spretti undir lok leiksins, en þá var það orðið of seint. Hjá ÍBK bar mest á Magnúsi Guðfinnssyni, en einnig átti leikstjórnandinn Egill Viðarsson ágætan leik. Urslit í öðrum leikjum urðu að KR vann UMFG 74:56 og Hauk- ar unnu ÍS 119:47. Stig ÍBK: Magnús Guðfinnsson 18. Guðjón Skúlason 17, Sigurjón Ingimundarson 17, Jón Kr. Gíslason 11, Falur Harðarson 6, Einar Ein- arsson 5, Egill Viðarsson 2, Gestur Gylfason 2 og Nökkvi Jónsson 1. Stig Þórs: Guðmundur Björnsson 24. Björn Sveinsson 18. Konráð Óskarsson 17, Eiríkur fyrir Svía og Kóreumanni, sem báðir eru mjög sterkir borðtenn- ismenn. Dagur hafði samband við Ingi- björgu Guðjónsdóttur á Sauðár- króki í gær, sem þjálfað hefur Lilju Maríu í sundinu, og var hún að vonum ánægð með árangur hennar í Seoul. Ingibjörg sagði að árangur Lilju í 400 m skriðsundinu hafi komið á óvart, en þar lenti hún í 4. sæti, aðeins sekúndubroti frá bronsinu, og bætti íslandsmetið um heilar 16 sekúndur! Lilja María á eina grein eftir í Seoul, en það er 200 m fjórsund sem hún syndir í nótt. Ingibjörg sagðist eiga von á góð- um árangri í þeirri grein hjá Lilju, sem og öðrum greinum hennar á leikunum. -bjb norðan heiða, með Torfa Ólafsson í fararbroddi. Norðanmenn hafa æft vel fyrir mótið og má því búast við hörku keppni. Mótið er Akureyrarmót og að öllum líkindum það síðasta sem nefnt er Grétarsmót. keppir í Laugardalshöll og 2. flokkur karla keppir á Akranesi. Ekki er síður þeytingur á KA unglingunum. Stúlkurnar í 4. flokki keppa í Fellaskóla, 2. flokkur karla keppir í Kópavogi og 4. flokkur karla keppir á Húsavík. íslenskar getraunir halda almennan kynningarfund, um hið nýja fyrirkomulag get- rauna, í KA-heimilinu á laug- ardaginn 22. kl. 15. Öllum áhugamönnum um getraunir er velkomið að koma á þennan fund, en sala hinna nýju get- raunaseðla hefst 31. október fyrir umferðina sem fram fer 5. nóvember. Eins og fram hefur komið í blaðinu eru Getraunir komnir í samvinnu við Lottóið og verður hægt að fylla út getraunaseðla hvar sem er á landinu, þar sem lottókassar eru, allt fram að leik- tíma eftir hádegi á laugardegi. Þema fundarins er hvernig hin einstöku félög geta nýtt sér þetta nýja fyrirkomulag, en öllum áhugamönnum er einnig boðið Keppnin í Glerárskóla og á Húsavík hefst kl. 19 í kvöld og verður síðan líka keppt á laugar- dag og sunnudag. Vert er að hvetja fólk til að mæta og fylgjast með krökkunum í keppni því það er oft engu síðra að fylgjast með leikjum í yngri flokkunum en meistaraflokksleikj um. að koma. Sigurður Baldursson frá íslenskum getraunum mætir á fundinn, með nýju seðlana, og kynnir beinlínutenginguna og hvaða möguleika hún gefur. BlaJkíð byijar hjá KA Vertíðin hjá blakfólkinu í KA hefst núna um helgina. Liðið flýgur suður og mætir ÍS í Haga- skóla á laugardag og hefst leikur- inn hjá stúlkunum kl. 14 og hjá strákunum strax á eftir. Á sunnu- daginn er síðan keppt við Þrótt á sama stað og sama tíma. Uppskeruhátíð hjá Þór Knattspyrnudeild Þórs held- ur uppskeruhátíð sína næst- komandi sunnudag. Veröur hún haldin í starfsmannasal KEA í Sunnuhlíð og hefst kl. 14. Þar verða veittar viðurkenn- ingar fyrir árangur sumarsins í öllum flokkum. Allir Þórsar- ar, yngri sem eldri, eru boðnir hjartanlega velkomnir. Sigurðsson 6, Jóhann Sigurðsson 6, Kristján Rafnsson 4, Stcfán Friölcifsson 2, Einar Karls- son 1. JOH/AP Heimsleikar fatlaðra: Lilja María með sín önnur bronsverðlaun Lyftingar: Grétarsmótið í íþróttahöUinni Handbolti: Unglmgahandboltinn byijar að rúila núna um helgrna

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.