Dagur - 21.10.1988, Blaðsíða 16
mm
Akureyri, föstudagur 21. október 1988
Haldið veisluna eða fundinn
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
íbúðabyggingar aldraðra á Akureyri:
Framkvæmdir við Víði-
lund 20 að heQast
- Fjölnismenn sf. fengu verkið fyrir 84,8% af kostnaðaráætlun
Framkvæmdir við byggingu
síðara fjölbýlishúss aldraðra við
Víðilund 20 á Akureyri eru að
hefjast þessa dagana. Fjölnis-
menn sf. voru með lægsta til-
boð í verkið, tæpar 118 millj-
ónir króna, sem er 84,8 prós-
ent af kostnaðaráætlun. Híbýli
hf., sem byggði fyrra fjölbýlis-
húsið, Víðilund 24, var með
hæsta tilboðið, 127,8 milljónir
króna.
Magnús Garðarsson hefur eftir-
lit með framkvæmdum við Víði-
lund 20 og 24 fyrir hönd Fram-
kvæmdanefndar um íbúðabygg-
ingar fyrir aldraða. Hann sagði
að verktaki að grunninum, Guð-
mundur Kristjánsson, hefði skil-
að honum af sér um miðjan mán-
uðinn, en starfsmenn Hitaveitu
Akureyrar væru að vinna við
heitavatnslögn í götunni. Stefnt
er að því að ljúka við botnplötu
hússins sem fyrst og koma kjall-
aranum upp í haust ef veður leyf-
ir. Fjölnismenn eiga að skila
verkinu á miðju ári 1990.
í máli Magnúsar kom fram að
vissulega væri tilboð Fjölnismanna
í lægri kantinum en hér væri um
Verktakar á Akureyri:
Tímí undirboða
að renna upp?
„Það er til ýmislegs að vinna
með svona verkefni, þetta er
tveggja ára vinna fram í tím-
ann og mér skilst að greiðslur
séu öruggari þarna en á öðrum
stöðum. Það eru líka pening-
ar,“ sagði Sverrir Þór Kristjáns-
son hjá Fjölnismönnum sf.
vegna Víðilundar 20.
Sverrir hefur rekið bygginga-
fyrirtækið Fjölnismenn ásamt
félaga sínum Þorgeiri Jóhanns-
syni frá því í júní á síðasta ári.
Götur á Þórshöfn:
SMag
næsta sumar
Helstu framkvæmdir á vegum
Þórshafnarhrepps í sumar voru
jarðvegsskipti í götum og þar
með voru fyrstu skrefin í átt að
bundnu slitlagi utan aðalgatna
í þorpinu stigin. Aðalgatan í
gegnum þorpið hefur þó verið
með bundnu slitlagi, en þá er
upptalið.
Skipt var um jarðveg í um það
bil 30% af gatnakerfi Þórshafnar
sem gerði um 7000 rúmmetra af
jarðvegi sem skipt var um.
Daníel Árnason sveitarstjóri á
Þórshöfn sagði að þessum fram-
kvæmdum yrði fylgt eftir og
bundið slitlag lagt á götur á næsta
ári, en smá forskot var tekið á
sæluna í haust og slitlag lagt á
eina götu.
Verið er að ganga frá umhverfi
hafnarsvæðisins í plássinu, m.a.
er verið að steypa plön og götu
að frystihúsinu. „Þetta er bylting
miðað við aðstöðuna sem fyrir
var,“ sagði Daníel.
Fyrsta bundna slitlagið á þjóð-
vegi kringum Þórshöfn var lagt í
sumar, en það nær frá þorpinu
inn undir Hafralónsá og er um 6
kílómetrar. Afar lítið er um
bundið slitlag á þjóðvegum í
Norður-Þingeyjarsýslu. Brúar-
gerðin yfir Hafralónsá er á loka-
stigi og er þessa dagana unnið að
vegargerð að brúnni. mþþ
Þeir eru með verkefni við mið-
álmu Verkmenntaskólans auk
síðara fjölbýlishúss aldraðra við
Víðilund. Sverrir sagði að þeir
félagar hefðu gert tilboð í smíð-
ina á grundvelli reynslutalna
þeirra sjálfra úr öðrum verkum
en það væri ekki skoðun sín að
tími undirboða og taps verktaka
væri að renna upp á ný, þrátt fyr-
ir að fyrirtækið hefði boðið 10
milljónum króna minna í blokk-
ina við Víðilund en verktakinn
að fyrri blokkinni, Híbýli hf.
„Eg vil vara sterklega við því
að menn færu aftur inn á þá braut
undirboða sem tíðkaðist hér í
bænum um og upp úr 1980. En ég
vil ekki dæma einn eða neinn, til
þess hef ég ekkert umboð,“ sagði
Hörður Tuliníus hjá Híbýli hf.
Hann taldi ýmis merki vera um
að tímabil undirboða gæti farið
að renna upp á ný. Það væri
vissulega sorglegt ef verktakar
ætluðu að feta þá braut í ljósi
reynslu undanfarinna ára. EHB
ungt fyrirtæki að ræða með litla
yfirbyggingu. Eldri verktakar
væru margir með skuldahala á
eftir sér og þyldu því ekki að
bjóða í verk þannig að þeir
fengju ekki nema fyrir vinnu og
tækjum, eins og þar stendur.
Eldri verktakar þyrftu að fá það
mikið út úr verkum að þeir gætu
skorið niður eldri skuldir. „Ég
átti persónulega von á að fá til-
boð í kringum 88 til 91 prósent.
Tilboð Híbýlis í fyrri blokkina
var ríflega 92 prósent af þeirri
áætlun og ég viðurkenni að tilboð
Fjölnismanna var heldur lægra en
ég átti von á,“ sagði Magnús.
Tilboðin voru opnuð f síðasta
mánuði. Híbýli hf. bauð kr.
127.815.604 eða 91,88% af
kostnaðaráætlun. SJS verktakar
kr. 123.787.354 og 88,99%
áætlun, Aðalgeir Finnsson hf.
bauð 122.500.000 og 88,06% af
áætlun. Lægstir voru Fjölnis-
menn sf. með 117.958.956
krónur, sem er 84,8% af kostn-
aðaráætlun. EHB
Framkvæmdir við byggingu síðara fjölbýlishúss að Víðilundi 20 á Akureyri
eru að hefjast. Mynd: gb
Skagaströnd:
Unnið að markaðssetningu
á framleiðslu Marska
- forráðamenn fyrirtækisins hóflega bjartsýnir
Hjá Marska á Skagaströnd er
nú unnið að því að markaðs-
setja framleiðslu fyrirtækisins
og verður unnið að því fram á
næsta ár og staða og rekstrar-
grundvöllur fyrirtækisins þá
metin.
Stjórn Skagstrendings hf. verð-
ur jafnframt stjórn Marska þótt
það sé ekki að fullu frágengið
enn. Sveinn Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Skagstrendings
skrifaði hluthöfum Skagstrend-
ings hf. bréf nýverið þar sem
hann skýrir frá því að Skag-
strendingur hf. hafi gert samning
við Rækjuvinnsluna hf. og Hóla-
nes hf. um kaup á hlutabréfum
þeirra í Marska hf. og nú sé
Skagstrendingur einn eigandi
allra hlutabréfanna.
Stjórn Skagstrcndings -befur
ákveðið að láta reyna á hvort
ekki sé hægt að vinna Marskavör-
um fastan sess á matvælamarkaði
hér og erlendis og stendur sú til-
Annað besta laxveiðiár sögunnar:
Laxveiði á stöng á Norður-
landi vestra jókst um 21%
- veiðifræðingar búast við veiðitoppi á Norðurlandi eystra
og Austijörðum næsta sumar
Laxveiði á Norðurlandi aö margir þættir ráði hversu
vestra í sumar var 21% meiri mikill munur er á veiðinni
eftir landshlutum.
en á síðasta sumri, samkvæmt
bráðabirgðatölum Veiðmála-
stofnunar. Ails veiddust þar
um 10.000 laxar. Á Norður-
landi eystra jókst veiðin um
5% frá fyrra ári og var í sum-
ar um 5.000 laxar. Eftir metár
á Austurlandi 1987 minnkaði
veiði þar um 20% í sumar,
alls veiddust þar um 3.400
fískar. Aukning í stangveið-
inni var mest á Suður- og
Vesturlandi og segir Guðni
Guðbergsson fískifræðingur
„Hluti af skýringunni er sá að
hlutfall smálaxa í veiði á
Norðurlandi vestra og Suður-
og Vesturlandi er mun hærra.
Að sama skapi er hlutfall stór-
laxanna hærra á austanverðu
Norðurlandi og Austfjörðum.
Því má búast við að þessi veiði-
toppur sem er á sunnan- og
vestanverðu landinu skili sér á
austanverðu Norðurlandi og
Austfjörðum á næsta ári,“ segir
Guðni.
Alls veiddust 47.500 laxar á
stöng í sumar sem svarar til
40% aukningar frá fyrra ári. í
net veiddust 23.500 fiskar. Þetta
þýðir að sumarið 1988 er annað
besta laxveiðisumarið frá því
reglubundnar skráningar
hófust, aðeins árið 1978 var
betra. Um 60.000 laxar endur-
heimtust úr hafbeit sem er met.
Alls er því heildarveiði á laxi
árið 1988 um 131.000 fiskar.
Heildarveiðin 1987 var mun
minni eða 62.000 laxar og mun-
ar mest um aukningu á endur-
heimtum laxi í sumar.
JÓH
raun fram eftir næsta ári en þá
verður staðan skoðuð og athugað
með framhaldið.
Adolf H. Berndsen er nú fram-
kvæmdastjóri Marska og hefur
unnið þar gott starf. Hann og
Steindór Haraldsson hafa unnið
að sölu og þróun á pönnukökum
með ýmiss konar fyllingum í sam-
vinnu við SÍF og Iðntæknistofnun
íslands sem styrkja verkefnið.
Asiaco hf. í Reykjavík hefur
komið á sambandi við sænska
stórfyrirtækið Abba.
Menn eru ekki vonlausir um að
þolanlegur rekstrargrundvöllur
náist.
Þá hafa Marskamenn unnið að
ýmsum öðrum framleiðsluvörum
svo sem rækjukarbonaði, fisk-
farsi og marskaborgurum sem
hafa verið vinsælir hjá Hagkaupi.
Nú sér Marska um að selja
Örvarsfiskinn á innanlandsmark-
aði og er hann vigtaður sundur og
verðmerktur áður en hann fer í
búðirnar.
Það hefur verið haldinn fundur
með mönnum frá Abba og að
sögn Sveins Ingólfssonar voru
þeir mjög ánægðir og geta sætt
sig við verðið á framleiðslunni frá
Marska. Þeir koma aftur til fund-
ar að hálfum mánuði liðnum til
að ræða um frekari viðskipti.
Auðheyrt er að forráðamenn
Marska ætla sér ekki að byggja
neinar skýjaborgir en eru hæfi-
lega bjartsýnir á að það sem þeir
stefna að muni takast. Nú eru
málin skoðuð og unnið að mark-
aðssetningu á framleiðslu fyrir-
tækisins á innlendum og erlend-
um vettvangi. fh