Dagur - 25.11.1988, Side 2

Dagur - 25.11.1988, Side 2
2 - DAGUR - 25. nóvember 1988 Fyrirhugaðar breyt- ingar á Neistanum Þórsarar fagna fok- heldu félagsheimili Hvað á barnið að heita? Þórsarar halda laugardaginn hátíðlegan, en þá fagna þeir þeim merka áfanga að félags- heimili þeirra er fokhelt orðið. Félagsheimilið er á félagssvæði Þórs í Glerárhverfi á Akureyri og verður því formlega gefið nafn næstkomandi laugardag. Fagnaðurinn hefst klukkan 15.00 og vona forráðamenn Miðstjórnarkjör á ASÍ þingi: Aðeins sex konur kjömar - sjö af níu varamönnum í miðstjórn eru konur Sex konur voru kosnar í mið- stjórn ASÍ en sjö konur voru kosnar sem varamenn í miðstjórn. Fyrir þingið hafði verið búist við að íleiri konur yrðu kosnar í miðstjórn en raunin varð á. í kjöri til mið- stjórnar hlutu kosningu allir þeir fulltrúar er kjörnefnd hafí tilncfnt en í kjöri varamanna í miðstjórn kom tillaga um Birnu Þórðardóttur VR og komst hún inn í varamanna- hópinn. Þar með eru sex af níu varamönnum í miðstjórn konur. Þeir sem hlutu kjör í miðstjórn voru eftir atkvæðatölu; Grétar Þorsteinsson form. Trésmíðafél. Rvík. (56600), Kristín Hjálmars- dóttir form. Iðju Ak. (55775), Óskar Vigfússon form. Sjómanna- sambandsins (55300), Þórunn Sveinbjörnsdóttir Sókn (55100), Hansína Á. Stefánsdóttir Versl. Árn. (54675), Magnús Geirsson form. Rafiðnasamb. (54575), Guðmundur Þ. Guðmundsson forrn. Iðju Rvík. (54425), Jón A. Eggertsson Vlf. Borgarness (54400), Sævar Frímannsson form. Einingar Ak. (54175), Þóra Hjaltadóttir form. Alþýðus. Norðurlands (53925), Guðmund- ur Hallvarðsson Sjómannafél. Reykjavíkur (53425), Halldór Björnsson varaform. Dagsbrúnar (52250), G.uðríður Elíasdóttir form. Framtíðarinnár (51400), Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir VR (51300), Hrafnkell Jónsson form. Arvakurs Eskifirði (49925), Kar- vel Pálmason Vlf. Bol. (43275), Þórður Ólafsson Vlf. Boðinn (43125) og Sigurður Óskarsson Vlf. Rangæingi. JÓH Egilsstaðir: Víðáttubijálæði fyrstu dagana - leikskólinn í nýtt húsnæði í byrjun nóvember var tekin í notkun ný bygging fyrir leik- skólann Tjarnarland á Egils- stöðum. Þar með var hægt að bæta við 10 nýjum börnum í vistun svo biðlistinn eftir plássi styttist aðeins. Valborg Vilhjálmsdóttir fóstra er forstöðumaður Tjarnarlands og sagði hún í samtali við Dag, að þetta væri 70 barna leikskóli en öll börn eru þar í hálfs dags vistun. „Það er alveg fullskipað hjá okkur, en gamla húsið verður seinna tekið undir dagheimili'svo börn af leikskólanum koma til með að fara þangað þegar þar að kemur. Þá reiknum við með að biðlistar verði úr sögunni,“ sagði hún. Börnin á Tjarnarlandi eru á aldrinum 2ja til 5 ára gömul á tveimur deildum. Alls starfa 9 manns á leikskólanum, þar af tvær fóstrur. Valborg sagði það hafa verið mikil viðbrigði að komast í nýja húsið. „Það er svo miklu stærra en það gamla að fyrstu dagarnir fóru í hálfgert „víðáttubrjálæði", en við erum að læra inn á þetta.“ VG félagsins að sem flestir velunnar- ar Þórs láti sjá sig í hinu fokhelda félagsheimili. Farið verður yfir byggingarsögu hússins, en nú eru liðnir fjórtán mánuðir frá' því fyrsta skóflustungan var tekin að húsinu. Enn er mikið eftir svo starfsemi geti farið fram í húsinu og verður gerð grein fyrir fram- tíðaráætlunum í byggingarmálum hússins. Húsinu verður og gefið nafn á laugardag, en Þórsarar vildu ekki gefa upp hvað barnið verður látið heita fyrr en á hátíðarstundinni. Aflijúpað verður listaverk, sem Hjálmar Pétursson hefur gefið félaginu til minningar um tvo félagsmenn þess, en þeir fórust í keppnisferð fyrir allmörgum árum. Byggingarnefndin kynnir jóla- kort sem hún hefur látið gera til fjáröflunar og að þessu öllu loknu verða á boðstólum veiting- ar í boði kvennadeildar Þórs. mþþ Félagsheimili Þórs er fokhelt, en hvað á barnið að heita? Mynd: GB Þóra Hjaltadóttir um miðstjórnarkjörið á ASÍ þinginu: „Kvennabyltingin rann hreinlega út í sandinn“ - segist hafa haft lítinn áhuga á varaforsetaembættinu „Við vonuðum að fleiri konur kæmust í miðstjórn en raunin varð á þannig að kvennabylt- ingin okkar rann út í sandinn,“ sagði Þóra Hjaltadóttir, for- maður Alþýðusambands Norðurlands, á ASI þinginu í gær þegar Ijóst varð að hlutur kvenna í kosningum á þinginu var mun minni en margir höfðu búist við. Nokkur kurr var meðal kvenna á Alþýðusambandsþing- inu í gær þegar kjörnefnd kunn- gerði tillögur um aðalmenn í 18 manna sambandsstjórn. Aðeins voru nöfn fimm kvenna á listan- um þrátt fyrir að þingið hafi gert samþykkt um að leitast skyldi við að ná sem jöfnustum hlut kynja í stjórnum og ráðum ASÍ. „Það er ljóst að flokksböndin héldu í miðstjórnarkjörinu og ekkert varð af kvennabyltingum eða pólitískum byltingum. Þetta sést á því hve uppstillingar kjör- stjórnar breyttust lítið. Kjör- stjórnin virtist því ekki vera hlið- holl konum fyrr en komið var út í varamannakjör til miðstjórnar," sagði Þóra um miðstjórnarkjörið. Þóra sagðist vera hissa á hve lítið hafi verið tekist á um skipu- lagsmál á þessu þingi ASÍ. Þetta stórmál hafi runnið í gegnum þingið fyrirstöðulítið. Um önnur mál á þinginu sagðist Þóra vonast til að breið samstaða náist um kjara- og efnahagsmál og atvinnu- mál sem ályktað verður um í dag. „Mér finnst vera vilji hjá nefnd- armönnum um að ná vel saman um þessi mál.“ Miklar umræður og vangavelt- ur voru á þessu þingi ASÍ um hvort Þóra ætlaði að gefa kost á sér til varaforseta ASI. Það gerði hún hins vegar ekki, þrátt fyrir mikinn stuðning og ítrekaðar áskoranir. Þingfulltrúar úr stuðn- ingsmannahópi Þóru sögðu við Dag í gær að veruleg óánægja væri þeirra á meðal með fram- komu Ásmundar Stefánssonar í þessu máli en hann vildi ekki fá Þóru sem varaforseta sér við hlið. „Ég var búin að lýsa því yfir fyrir hálfum mánuði að ég gæfi ekki kost á mér. Satt best að segja hafði ég ósköp litla löngun til að fara í þetta embætti en auð- vitað var mjög erfitt að standa á móti þegar svona miklar áskoran- ir eru á mann að fara fram. Engu að síður gerði ég það.“ JÓH ASÍ þing: Fækkunar- tillagan felld Þing ASÍ felldi tillögu Alþýðu- sambands Norðurlands þess efnis að fulltrúum á ASÍ þingi verði fækkað úr 512 í 322. Miðstjórn ASÍ hafði mælt með að tillagan yrði samþykkt. Öll nótt er samt ekki úti enn því þingið samþykkti að senda tillöguna til milliþinganefndar sem fjalla mun um hana. Því er ljóst að fækkunartillagan verður aftur tekin upp á næsta þingi. JÓH Hvammstangi: Fyrir tveimur árum var Útgerðarfélag Vestur-Hún- vetninga stofnað. Eina skip félagsins er Neisti, 100 tonna bátur sem gerður hefur verið út á úthafsrækju. Utgerð skipsins hefur gengið illa og hefur það legið langtím- um saman í höfninni á Hvamms- tanga. Nú er fyrirhugað að gera ýmsar breytingar á skipinu og meðal annars á að lengja það um Lóðin við Tjarnarland er hin vistlegasta og börnin virðast hafa það gott, eins og sjá má á innfelldu myndinni. 2 m og byggja yfir það að aftan. Myndir: gb Vinna við breytingu á skipinu var boðin út og lægsta tilboð sem barst var frá Skipavík í Stykkis- hólmi, liðlega 10 millj. króna. Ekki er þó allt sem fyrirhugað er að gera fyrir skipið innifalið í til- boðinu og er reiknað með að heildarkostnaður við breytingu á því geti orðið allt að 15 milljónir. Báturinn er of stór til að fá leyfi til að vera á innfjarðarrækj- unni og þar sem ekki eru frysti- tæki um borð hafa veiðar á úthafsrækjunni ekki gengið vel. fh

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.