Dagur - 25.11.1988, Page 3

Dagur - 25.11.1988, Page 3
25. nóvember 1988 - DAGUR - 3 Mikil og stöðug eftir- spurn eftir lánsfé - en bankarnir draga úr lánveitingum og einbeita sér að „björgunaraðgerðum“ Bankarnir hafa reynt að sporna við útlánum undanfarið í kjölfar þrengri stöðu á pen- ingamarkaðinum. Forráðamenn útibúa Landsbankans og Bún- aðarbankans á Akureyri sögðu að reynt væri að halda útlánum í lágmarki en starfsemi bank- anna einkennist allmikið af skuldbreytingum eða „björg- unaraðgerðum“ til að forða viðskiptaaðilum frá vanskilum um þessar mundir. Alltaf er stöðug eftirspurn eftir nýjum lánum, víxlum og skuldabréfum, í bönkunum og biðstofur útibússtjóranna fullar á degi hverjum. „Pað virðist alltaf vera sama traffíkin hérna en það er þrengra með útlán um þessar mundir, við höfum einfaldlega ekki peninga í það. Að vísu reyn- um við að hjálpa okkar viðskipta- mönnum nema þeir séu þeim mun verr staddir. Mér virðist því miður vera meira en áður um vandamál hjá fólki og töluvert er um skuldbreytingar. Við höfum reynt skuldbreytingar frekar en að láta fólk vera í bullandi van- skilum," sagði Helgi Jónsson, útibússtjóri Landsbanka Islands. Að sögn Helga hefur ástandið verið frekar þröngt undanfarið ár en Landsbankinn er með viðskipti við mörg stór atvinnufyrirtæki við Eyjafjörð. „Við erum að draga úr pers- ónulegum lánveitingum eins og aðrir en ýmsar björgunaraðgerðir eru efst á blaði núna, bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Tími uppgjörs fer nú í hönd, að mínu mati," sagði Gunnar Hjart- arson, útibússtjóri Búnaðar- banka fslands á Akureyri. Gunn- ar sagði varðandi vaxtamálin að bankamönnum litist illa á blikuna ef vextir ættu að fara mjög neðar- lega og þeir mætti ekki verða nei- kvæðir. „Það er alltaf jafn mikil eftirspurn eftir lánsfé því eyðslan í þjóðfélaginu er orðin ofboðs- leg. Því miður koma vandamálin of oft í ljós eftir á og margir ein- staklingar og fyrirtæki hafa skuldbundið sig um of og vantar eigið fé,“ sagði Gunnar Hjartar- son. EHB Samstaða hefur ekki náðst um drög að stofnsamningi um héraðsnefnd Austur-Húnavatnssýslu: Málinu vísað til umsagnar félagsmálaráðuneytisins Samkvæmt lögum á að ieggja sýslunefndir niður um næstu áramót og er héraðsncfndum ætlað að taka við hlutverki sýslunefndanna. Búið er að vinna drög að stofnsamningi fyrir héraðsnefnd í Austur- Húnavatnssýslu en ekki hefur náðst samkomulag um samn- ingsdrögin og hefur þeim nú verið vísað til félagsmálaráðu- neytisins til umsagnar varðandi ágreiningsatriðin. Nú þegar hafa átta hrepps- nefndir samþykkt samningsdrög- in með undirskrift en hrepps- nefnd Bólstaðarhlíðar- og Svínavatnshrepps geta ekki fellt sig við þau samningsdrög sem fyrir liggja. Ágreiningsatriðin eru aðallega tvfþætt. í fyrsta lagi er ágreining- ur um fjölda fulltrúa hvers sveit- arfélags í héraðsnefndinni. í samningsdrögunum er gert ráð fyrir einum fulltrúa fyrir hverja 250 íbúa eða brot af þeirri tölu. Það þýðir í reynd að Blöndós- ingar koma til með að eiga fimm fulltrúa í nefndinni, Skagstrend- ingar þrjá og önnur sveitarfélög einn fulltrúa hvert. Hins vegar greinir á um leiðir til tekjuöflunar fyrir héraðsnefnd- ina en í samningsdrögunum er gert ráð fyrir að hún fái framlag frá sveitarfélögunum. Helmingur teknanna reiknist sem hlutfall af fjárhagsáætlun þeirra og verði það helmingur framlagsins sem verði byggður á þeim grunni. Hinn helminginn er fyrirhugað að reikna út frá tekjustofnum viðkomandi sveitarféiaga, útsvari fasteignaskatti og aðstöðugjaldi en um þessi atriði hefur ekki orð- ið samstaða. Gert er ráð fyrir að héraðs- nefndin taki við þeim verkefnum sem fram til þessa hafa fallið und- ir verksvið sýslunefndar. Þá er í samningsdrögunum gert ráð fyrir því að gerður verði sérstakur samningur um ýmis samstarfs- verkefni sveitarfélaganna. í þeim lögum sem kveða á um að sýslunefndir skuli lagðar niður og héraðsnefndir taka við þeirra verksviði er ekki kveðið skýrt á um með hvaða hætti skuli leysa ágreining sem þennan og var því sá kostur valinn að vísa málinu til umsagnar félagsmálaráðuneytis- ins. fh Skátafélagið Klakkur í kjallara Glerárskóla Skátafélagið Klakkur á Akureyri undirritaði fyrir skömntu leigusamning vegna 173 fermetra húsnæðis í kjallara Glerárkirkju. Á myndinni eru, f.v.: Bára Stefánsdóttir, Tryggvi Marinóssun, Þorbjörg Ingvadóttir, Marinó Jónsson, Ingólfur Armannsson og Gunnhildur Ásgeirsdóttir. Mynd: ehb Njóttu ferðarinnar! Aktu eins og þú vilt að aðrir aki Góðaferð! ||^™

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.