Dagur - 25.11.1988, Page 4

Dagur - 25.11.1988, Page 4
4 - DAGUR - 25. nóvember 1988 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, FRfMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Verkalýðshreyfingin 36. þingi Alþýðusambands íslands lýkur í dag. Segja má að ASÍ-þingið hafi að þessu sinni verið haldið undir allsérkennilegum kringumstæðum. Launahækkanir hafa nefnilega verið bannaðar með lögum og verða það áfram enn um sinn. Sam- tök launamanna hafa því tímabundið verið dæmd til að láta*af því meginhlutverki sínu að semja um kaup og kjör sinna umbjóðenda. Þing Alþýðusam- bandsins hefur eðhlega borið nokkurn keim af þessum neyðarlegu aðstæðum. Þær eru þó fyrst og fremst merki þess að verkalýðshreyfingin hefur ekki staðið sig sem skyldi. Ár eftir ár hefur verkalýðsforystan talað um að laun þeirra, sem minnst bera úr býtum, séu allt of lág. Árum saman hefur sama forysta talið það eitt af sínum helstu baráttumálum að hækka þessi laun verulega, án þess að hækkunin gangi upp eft- ir öllum launastiganum. Jafnlengi hefur verkalýðs forystunni mistekist þetta ætlunarverk sitt. Enn eru lágmarkslaun í landinu allt of lág - reyndar til háborinnar skammar - og ennþá hækka laun sem hlutfall af hundraði. Þegar 40 þúsund króna mán- aðarlaun hækka um 2 þúsund krónur, hækka 100 þúsund króna laun um 5 þúsund krónur. Það er 5% launahækkun í báðum tilfellum. Vart getur þetta talist réttlátt, enda er launamunur í landinu allt að 14-faldur. Gífurlegur launamunur talar sínu máli um árangurinn af starfi verkalýðsforystunnar síð- ustu árin. Verkalýðsforystan viðurkennir, eins og aðrir, að krónufjöldinn í launaumslaginu segir ekki alla söguna. Það er kaupmátturinn sem skiptir öllu máli. Hlutverk verkalýðsforystunnar ætti því fyrst og fremst að vera fógið í því að standa vörð um kaupmáttinn en ekki krónutölu eða prósentuhækk- anir. Hún á fyrst og fremst að tryggja það að umsaminn kaupmáttur launa haldist. En það er jafnframt á ábyrgð verkalýðsforystunnar að kröfu- gerð launþegasamtaka sé innan raunhæfra marka. Ef kröfugerðin er óraunhæf og hærri en undir- stöðuatvinnuvegirnir þola, þarf að grípa til gam- alkunnra aðferða, svö sem gengisfellingar. Því miður hefur verkalýðsforystan að þessu leyti ekki staðið sig sem skyldi. Á þingi Alþýðusambandsins nú var Ásmundur Stefánsson endurkjörinn forseti þess. Það þarf ekki endilega að hafa í för með sér óbreytta stefnu ASÍ. Reynsla síðustu mánaða hefur vonandi kennt verkalýðsforystunni sitt af hverju, eins og öðrum. Verkalýðsforystan þarf nauðsynlega að breyta um áherslur í meginatriðum, ef hún ætlar að valda því hlutverki sem umbjóðendurnir hafa falið henni. Það gerir hún best með því að ganga að samninga- borðinu með festu en umfram allt ábyrgð að leið- arljósi. Raunhæf samningagerð er það sem koma skal. BB. Áskell Einarsson: Þjóðfélagslegt hlutskipti byggðastefnu á íslandi Sérstaða íslenskrar landsbyggðarstefnu Það sem skilur að íslenska lands- byggðarstefnu og svonefnda byggðastefnu nágrannalandanna eru tvö megin atriði. 1. íslensk byggðastefna byggist á því að hinir dreifðu landkostir, sem eru undirstaða gjaldeyr- isbúskapar þjóðarinnar, séu virkjaðir jöfnum höndum í landinu og að hin dreifða bú- seta, sem þess vegna er nauð- synleg hagsmunum þjóðfé- lagsins, njóti sem mest af- raksturs og margfeldisáhrifa þessara landkosta. 2. Hin félagslegi þáttur íslenskr- ar byggðastefnu byggist ekki á því að útrýma atvinnuleysi og koma í veg fyrir fátækt, eins og tíðkast í mörgum ná- grannalöndum, heldur er hann sá að íbúar landsins, hvar sem þeir búa, njóti jafn- ræðis um uppbyggingu grunn- gerðar þjóðfélagsins og um aðra samfélagslega aðstöðu, þrátt fyrir dreifða búsetu, sem er óhjákvæmileg vegna þjóð- arhagsmuna. Ahríf félagslegrar fjármögnunar á þróun landsbyggðar Á íslandi er tvennt sem sker sig úr varðandi fjárhagslega upp- byggingu á byggðaþróunarsvæð- um, miðað við það sem tíðkast í nágrannalöndunum. Bæði í Skotlandi, á Norðurlöndum og í Evrópu hefur megin styrkur op- inberra byggðaaðgerða beinst að því að fá fyrirtæki, til að flytja rekstur sinn frá þéttbýlissvæðum til vanþróaðra byggða. Þessu stjórntæki er einnig beitt gagn- vart erlendum fyrirtækjum, sem hyggjast koma upp starfsaðstöðu í viðkomandi löndum. Um þetta eru tæplega marktæk dæmi hér á íslandi. Það sem einkennir íslenska uppbyggingu félagslegrar fjár- mögnunar er: 1. Samfélagsleg uppbygging atvinnufyrirtækja m.a. fyrir samstarf samvinnufélaga, sveitarfélaga og einstaklinga, með söfnun stofnframlaga, án krafna um fjárhagslega arð- semi eigenda. 2. Sérstakt framtak einstaklinga og hópa þeirra um að leggja fram fjármagn til atvinnustarf- semi í heimabyggð, sem eins konar byggðaaðgerð, án krafna um ákveðna arðsemi. Af þessum ástæðum eru betri samfélagsleg skilyrði á íslandi en víða erlendis um raunhæfar byggðaaðgerðir, en þar er hvorki fyrir hendi félagslegur hvati til atvinnuuppbygginga, né framtak framsækinna heimamanna. í mörgum löndum tíðkast ekki að sveitarfélag standi í atvinnu- rekstri eða að samvinnufélag láti sig atvinnumál varða. Þetta er íslensk sérstaða í byggðamálum, sem verður að vernda efnahags- lega. Sama er að segja um fram- tak einstaklinga, sem ávaxta fé sitt í heimabyggð, þrátt fyrir enga hagnaðarvon. Efnahagslegt umhverfi á íslandi andstætt byggöastefnu Menn hljóta að velta fyrir sér hvers vegna sama efnahagssveifl- an endurtekur sig á íslandi aftur og aftur. Skýringin er í raun ein- föld. Yfirbygging þjóðfélagsins og þjónustubáknið verður æ frek- ara á fóðrum. Þegar harðnar á dalnum hjá útflutningsatvinnu- vegunum kemur ætíð í ljós að þjónustubáknið sættir sig ekki við þau hlutaskipti, sem fram- leiðsluatvinnuvegirnir hafa fram að færa í þjóðarbúið. Atkvæða- þungi þessara hópa er slíkur að stjórnmálaflokkarnir verða að taka tillit til þeirra, þar sem æ grisjast það lið, sem er á hinum vængnum, þ.e. landsbyggðin, þrátt fyrir nokkra skekkju í vægi atkvæða landsbyggðinni í hag. Stendur landsbyggðin á elleftu stundu? Miðað við hlutverkaskipti í íslensku samfélagi, eins öflugs þéttbýliskjarna annars vegar og landsbyggðar hins vegar, sem fulltrúa framleiðsluhagsmuna, þarf ekki skarpan mann til þess að sjá, að það er í síðasta sinn, sem nást í gegn millifærsluað- gerðir og leiðréttingar framleiðsl- unni í hag, eftir pólitískum leið- um. Viðbrögðin við niðurfærslu- leiðinni voru þannig í raun að stórir hópar, eins og launþega- samtökin og milliliðirnir í þjóð- félaginu, voru ekki tilbúnar að skilja hættuástandið. Með öðrum orðum, þessir hópar töldu sig ekki varða um hag landsbyggðar og um leið framleiðsluhagsmuni þjóðfélagsins. Þetta er alvarleg staðreynd, sem kallar á ný viðhorf. Ný efnahagsleg vidhorf í byggðamálum Báðir höfuðatvinnuvegir lands- byggðar búa við framleiðslutak- markanir, sem hljóta að hafa byggðaleg áhrif á margvíslegan hátt. Landbúnaðurinn á undir högg að sækja vegna offramleiðslu miðað við heimamarkað. Verð- lagning landbúnaðarafurða er við það miðuð að atvinnugreinin standi í stað. Sjávarútvegurinn hefur búið við strangar aflatak- markanir, sem hefur hamlað getu atvinnuvegarins. í íslensku þjóðfélagi hefur við- gengist sú meginstefna að miða gengisskráningu við geðþótta stjórnvalda um að beita gengis- skráningunni, sem hemil á verð- lagsþróun í landinu. Á sama tíma og verðlagsmynd- un í landinu er frjáls og laun þorra launþega fylgja verðlagi, eru útflutningsatvinnuvegirnir með bundna verðskráningu á aflafé sínu í erlendum gjaldeyri. Hér er verðlagsmótuninni snúið Hættur að hafa gaman af því að keyra - spjallað við Guðna Oddgeirsson héraðsstjóra hjá Vegagerðinni á Þórshöfn „Ég er búinn að vera í vega- gerðinni svo lengi sem elstu menn muna,“ sagði Guðni Oddgeirsson héraðsstjóri Vegagerðarinnar með aðsetur á Þórshöfn. Hann býr þó á Raufarhöfn, þar sem hann er fæddur og uppalinn, en þar dvelur hann yfirleitt ekki nema um hclgar. Guðni hefur verið fastur starfsmaður hjá Vega- gerðinni frá því á árinu 1970, en áður hafði hann unnið sem sumarmaður eða við afleysing- ar við ýmis störf. Héraðsstjóri hefur hann verið frá því haust- ið 1986. Umdæmi Guðna er stórt, nær frá Auðbjargarstöðum í Keldu- hverfi, suður um til Grímsstaða á Fjöllum, austur að Brekknaheiði og allt Langanesið. Kílómetra- fjöldinn er þó nokkur, frá Auð- bjargarstöðum að Þórshöfn eru 178 kílómetrar svo dæmi sé tekið og auk vega á fyrrgreindum stöð- um eru sýsluvegir í Norður-Þing- eyjarsýslu 125 kílómetrar í það heila. Starf Guðna felst m.a. í umsjón með þessum vegum. Auk hans eru þrír fastir starfsmenn hjá Vegagerðinni í sýslunni, þar af einn á Kópaskeri. Eins og gefur að skilja er tals- verður akstur fólginn í starfinu. „Ég er löngu hættur að hafa gam- an af því að keyra,“ sagði Guðni. „En mér þótti það býsna skemmtilegt í kringum 17 ára aldurinn.“ Yfir vetrarmánuðina eru smíð- aðar snjóstikur á verkstæðinu og sagði Guðni það orðið nokkuð umfangsmikið starf. Félagasam- tök hafa tekið að sér að ganga frá stikunum við vegina og sagði Guðni það heppilega fjáröflunar- leið fyrir þau. „Þetta fyrirkomu- lag er vonandi beggja hagur,“ sagði hann, en þeir hjá Vega- gerðinni á Þórshöfn reyndu það í

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.