Dagur - 25.11.1988, Blaðsíða 7

Dagur - 25.11.1988, Blaðsíða 7
25. nóvember 1988 - DAGUR - 7 „Stelpur í stuttum pilsum fari í efstu rim,“ var góðfúsleg ábending nokkurra pilta, þegar stillt var upp fyrir þessa myndatöku. Þær voru hins vegar ekkert á því að fara eftir skipunum kárlpeningsins; ákveðnar stúlkurnar á Kópa- skeri. Myndir: TLV Með krökkum á Kópaskeri: Kossinn er út af! - líf og pr á diskóteki í skólanum Miðlungar og öldungar í skólanum á Kópaskeri stilla sér upp til myndatöku: Bjarki, Hnikar, Óskar, Arinbjörn, Rebekka, Lísa, Hróar, Árni, Lydía, Brynja, Kristveig, Sigga og Herdís. Það var heldur dimmt yfír skólanum á Kópaskeri. Svona ef tekið var mið af áreiðanleg- um upplýsingum um að þar ætti að standa yfír diskótek. Engin tónlist barst að eyrum blaðamanna Dags, sem ætluðu að kíkja snöggvast á krakkana dansa. Var búið að fresta dansæfíngunni? Við afréðum að freista inngöngu; kanna málið ofan í kjölinn. Því var svifíð í salinn. Mikið rétt. Það heyrðust hljóð, pískur, hlátur, þegar inn í anddyrið var komið. Og blaða- menn vissu ekki fyrr til en einn guttinn var kominn upp í fang þeirra. Sá hafði verið á miklum harðahlaupum, ekki átt gesta von og því farið á fullri ferð fyrir hornið. Enginn datt. Kópaskers synir og dætur tóku óvæntum gestum prýðisvel og buðu að ganga til salar, hvar stunduð er leikfimi sem og dans- menntir. Þó svo blaðamenn séu nokkuð við aldur þóttust þeir óljóst muna að diskótekum fylgdi hávaði allmikill og allt upp í að vera ærandi - þ.e.a.s. að mati þeirra sem komnir voru ögn yfir tvítugt, og láta nýjustu danslögin pirra sig, stilli snúður græjurnar í botn. - Er kannski ekkert diskótek í kvöld? Ójú, það var diskótek, svör- urðu krakkarnir hver í kapp við annan - afar sannfærandi reynd- ar. Þegar nánar var leitað eftir svörum og skýringum á ljósleys- inu, komu nokkrar vöflur á suma, aðrir hlupu brott, en einn pilturinn hvergi banginn svaraði að bragði: Við vorum í dálitlum leik. Og stuttu síðar: Hann heitir Kossinn er út af. Krakkarnir voru allir sammála um að skólinn þeirra væri skemmtilegur, og þeir sem höfðu samanburð við aðra skóla kváðu að skólinn á Kópaskeri væri skóla skemmtilegastur. Félagsstarfið er mikið í skólanum og utan hans. Opið hús er að jafnaði haldið einu sinni í viku og stelpurnar sögðust halda saumaklúbba reglulega. „Það er rosalega spennandi að fara í heimsókn í saumaklúbbana," sögðu piltarnir og lýstu því hvernig þeir hefðu laumað sér inn um svaladyrnar nokkrir saman þegar stúlkurnar söfnuðust síðast saman til hann- yrða. Nýlega kom upp sú hugmynd að stofna ríkisstjórn við skólann og voru þá stofnaðir tveir flokkar, Framfaraflokkurinn og Baráttuflokkurinn - sem einkum er skipaður stúlkum. Á fundi sem haldinn var til að ræða hin ýmsu málefni líðandi stundar var með- al annars rætt um hvað gera ætti við peninga þá sem til eru í þjóð- félaginu. „Stelpurnar vildu láta byggja leikskóla," sögðu strák- arnir, sem sjálfir vildu verja fénu til skipakaupa. Á málfundum sem haldnir hafa verið hefur einnig verið rætt um bílprófið og hvort núgildandi reglur eigi að halda sér, ellegar að hækka aldursmörkin upp í 21 ár. Ekki var búið að leiða það mál til lykta þegar blaðamenn voru á staðnum. í skólanum er krökkunum skipt upp í nokkra hópa. Það eru puttar, þumlungar, miðlungar og öldungar og skiptast eins og nöfn- in gefa til kynna eftir aldri. Eink- um voru það miðlungar og öld- ungar sem mættir voru til leiks í skólanum þetta kvöldið, enda áttu puttar og þumlungar að vera komnir í rúmið. Áður en við kvöddum stilltu þessir frísklegu krakkar sér upp til myndatöku og árangurinn sjáum við hér á síð- unni. mþþ JjfL Jólabasar verður laugardaginn 26. nóvember kl. 14.00 að Hvannavöllum 10. Laufabrauð. Mikið af kökum og munum. Komið og gerið góð kaup. Hjálpræðisherinn. Félagsfundur í LAUF Norðurlandsdeild Landssambands áhuga- fólks um flogaveiki heldur félagsfund að Hótel KEA laugardaginn 26. nóvember nk. kl. 14.00. Einar Valdimarsson, sérfræðingur í heila- og tauga- sjúkdómum, flytur erindi og svarar fyrirspurnum. Félagsmálin rædd. Kaffiveitingar. Nýir félagsmenn velkomnir. Stjórnin. ‘Dcývttitiman Aldrei þessu vanf hljómsveit í kvöld Hljómsveitin Rokkabilly-band Reykjavíkur leikur fyrir dansi. Mætum snemma. Uuw&eimcvi RÍKISSJÓDUR ISLANDS Spariskírteini ríkissjóðs ★ Bera allt að 8% vexti umfram verðbólgu ★ Þau fást í 10,50 og 100 þúsund króna einingum Verðtryggð spariskírteini rikissjóðs til sölu núna: Flokkur Lánstími Ávöxtun Gjalddagi 2. fl. D 3 ár 8,0% 1. sept. '91 2. fl. D 5 ár 7,5% 1. sept. '93 2. fl. D 8 ár 7,0% 1. apr. '96 Spariskírteini ríkissjóðs seljast á 2-3 dögum í endursölu á Verðbréfaþingi íslands. Gengi Einingabréfa 25. nóvember 1988 Einingabréf 1 3.375.- Einingabréf 2 1.920.- Einingabréf 3 2.192,- Lífeyrisbréf 1.697,- Skammtímabréf 1,179 é'é f KAUPÞING NÖRÐURLANDS HF Ráðhústorg 5 Akureyri • Sími 96-24700

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.