Dagur - 25.11.1988, Qupperneq 9
25. nóvember i988 - DAGUR - 9
Páll Gíslason:
„Heyrði ég tvö og segir Arnar og reynir að hífa upp verðið á karl-
mannsnærbuxuin.
ÓIi fer fimum höndum um brjósta-
haldarana og greinilegt á öllu að þar
er vanur maður að verki.
Það var nóg að gera hjá starfsfólki bæjarfógetacmbættisins, þeim Einari
Björnssyni og Unu Sveinsdóttur, að skrá niður og reikna öll boðin sem fram
komu.
Enn um snjótroðara
- svargrein vegna troðarakaupa Akureyrarbæjar
Kæru Akureyringar.
Nú er líklega hæfilega langt um
liðið síðan snjótroðarakaup
Akureyrarbæjar voru í hámæl-
um. í hita og þunga leiksins sjá
menn oft ekki skóginn fyrir
trjánum.
Við, umboðsmenn Leitner
höfum alltaf gert okkur fulla
grein fyrir því að Akureyri er
okkur lokað markaðssvæði, mið-
að við núverandi aðstæður. Við
höfum fundið okkur til undrunar
að margir Akureyringar hafa
ekki áttað sig á þessu eða horft
framhjá þessari staðreynd. Það
er oft gott að taka dæmi, sem allir
skilja. Þætti það ekki óeðlilegt ef
forstöðumaður Vélamiðstöðvar
Reykjavíkurborgar væri jafn-
framt forstjóri Scania umboðsins
og keypti eintómar Scania bif-
reiðar án útboðs? Hver er mark-
aðsstaða keppinautanna við slík-
ar aðstæður? Að sjálfsögðu fjall-
aði íþróttaráð Akureyrar um
kaupin á troðaranum. Umboðs-
maðurinn, sem að sjálfsögðu er
tryggur sínum umbjóðendum
hafði unnið sitt verk það vel að
íþróttaráði þótti engin ástæða til
að kanna ofan í kjölinn aðra
möguleika. Undirritaður hafði
samband við íþróttafulltrúa og
fullyrti hann að aðrir möguleikar
hefðu verið kannaðir. Það skal
skýrt tekið fram að okkur barst
aldrei nein fyrirspurn, hvorki um
verð né annað. íþróttafulltrúa
var alla vega ekki kunnugt um að
troðarar sömu gerðar og Dalvík-
ingar eiga, hafa ekki verið fram-
leiddir síðastliðin tvö ár, en í allri
umræðu manna á Akureyri var sá
bíll hafður sem viðmiðun. Leitn-
er troðarar dagsins í dag eru mik-
ið breyttir.
Iþróttaráð festi því kaup á Kass-
bohrer troðara án þess að kanna
annað á markaðinum. íþróttafull-
trúi taldi sér það þó til málsbóta í
samtali við undirritaðan að hann
gerði einhverja könnun á mál-
inu fyrir einu eða tveimur árum.
Þessar málsbætur má hver meta
fyrir sig. Hér er um alvarlegan
brest að ræða gagnvart almenn-
ingi, sem á féð sern verið er að
ráðstafa. Grundvallaratriði sem
menn ættu að hafa manndóm til
að viðurkenna, hafa verið þver-
brotin.
Frá mínum bæjardyrum séð,
ættu nefndarmenn að skoða
áframhaldandi setu sína í nefnd-
inni eða bjóða þessi kaup út nú
þegar.
Eg hef hér að ofan aðeins tekið
til umfjöllunar siðferðilegan þátt
þessa máls en ekki tæknilegan.
Ég á þó von á svari, þar sem
kaupin eru réttlætt frá tæknilegu
sjónarmiði. Þá spyr ég, hvernig
geta nefndarmenn réttlætt kaup-
in frá tæknilegu sjónarmiði þegar
þeir miða við Leitner troðara,
sem ekki er lengur í framleiðslu?
Ég á von á að menn telji þetta
einnig réttlætanlegt vegna þess
að annar troðari sömu gerðar er
til staðar. Þetta er að einhverju
leyti rétt en nýi troðarinn er ekki
eins og sá gamli. Hér má líka
taka dæmi, sem allir skilja. Ef
Akureyrarbær á einn gamlan
Volvo vörubíl á bærinn þá fram-
vegis að kaupa Volvo án þess að
kanna verö á öðrum gerðum
vörubíla?
Mig langar í lokin að koma
nieð smá sölumannsáróður þó
það sé alls ekki aðalatriði þessa
máls. Að sjálfsögðu teljum við
okkar troðara þá bestu. Okkar
troðarar eru á stálspyrnum, sem
henta okkar grýtta landi. Erlend-
is eru skíðabrekkur oftast á grasi
og álspyrnurnar því ekki í hættu.
Mér er kunnugt um að beltavið-
hald í Hlíðarfjalli sé mikið. Frá
1981 hafa Dalvíkingar keypt eina
beltaspyrnu. Krafa dagsins í dag
er að ökumannshúsið sé hljóðlátt
og þægilegt. í Kassbohrer er öku-
mannshúsið ofan á vélinni en í
Leitner er vélin fyrir aftan húsið
fyrir miðjum bíl. Þessi gerð
„Kassbohrer PB 39.170D“ er
því orðin gamaldags. A síðasta
vetri seldum við fimm nýja
Leitner troðara en Kassbohrer
engan. Við erum atvinnumenn í
sölu og þjónustu vinnuvéla og
Þórshainar hf. er þjónustuaðili
okkar á Akureyri.
Páll Gíslason, véltæknifræðingur.
Sölumaður Leitner á íslandi.
Arnar Sigfússon uppboðsstjóri lyftir hér einum brjóstahaldara og hvetur
menn til að bjóða í þessa gersemi. í kassanum bíða 114 önnur stykki þolin-
móð eftir því að skipta um eiganda. Þess má geta að í kassaröðinni fyrir aft-
an hann eru 4000 þúsund einnota gúmmívettlingar.
„Hvað í ósköpunum ætlar ÓIi að sýna núna?“ gæti Arnar Sigfússon verið að
hugsa á þessari mynd. Eins og sést á myndinni var fullt út úr dyrum í kjallara
lögreglustöðvarinnar þegar uppboðið var haldið.
Ólafur Ásgeirsson hinn fílefldi yfirlögregluþjónn lyftir hér öflugu „spíttgíra"
reiðhjóli til að allir uppboðsgestir geti séð dýrðina.
Það var fólk á öllum aldri á þessu uppboði. Það vakti þó athygli blaðamanns
(þetta er að vísu hans fyrsta uppboð N.B.) að mjög fáar konur voru á
staðnum.
UEPbO Ð!
- einnota gúmmíhanskar, brjóstahöld, nærbuxur o.fi.
Nýlega var haldið uppboð á
veguin bæjarfógetans á Akur-
eyri í kjallara lögreglustöðv-
arinnar. Þar kenndi ýmissa
grasa og fjölmenntu bæjarbúar
til að virða fyrir dýrðina. Það
sem mesta kátínu vakti hjá
uppboðsgestum var þegar
Arnar Sigfússon fulltrúi bauð
upp 115 brjóstahöld í ýmsum
stærðum allt frá 34 A til 44
DD.
Einn gestanna bauð fjögur
hundruð krónur í gersemarnar og
kvaðst ætla að stórgræða á því.
Þegar hann var spurður hvernig
hann ætlaði að gera það kvaðst
hann ætla að klippa brjóstahöldin
í tvennt, lita þau svört og selja
þau gyðingum sem kollhúfur!
Þegar honum var bent á að
mjög fáir gyðingar byggju á Is-
landi og fæstir strangtrúaðir hætti
hann að bjóða í brjóstahöldin.
Að lokum fóru síðan 115 stykkin
(eða 230 skálarnar) á 600 krónur.
Einnig vakti hrifningu uppboðs-
gesta þegar boðnir voru upp 4000
gerilsneyddir einnota gúmmí-
hanskar. Sá galli var á ’ gjöf
Njarðar að seinasti öruggi notk-
unardagur er 29. nóvember.
Hanskarnir fóru nú samt á 2500
krónur og varð mönnum á orði
að kaupandinn þyrfti að hafa
snarar hendur til að nýta sér eign
sína fyrir úreldingu.
En margt annað forvitnilegt
var boðið upp, m.a. fleiri kassar
af karlmannsnærbuxum með
klofbót og fóru þeir á rúmlega
þrjú þúsund krónur. Samkvæmt
tölum frá Hagstofu íslands dugar
hver kassi, um 80 nærbuxur,
meðalkarlmanni í um 20 ár.
En nú er tími til kominn að
þessu málæði linni og látum
myndirnar frá uppboðinu tala
sínu máli.
Myndir og texti: AP