Dagur - 25.11.1988, Qupperneq 19
25. nóvember 1988 - DAGUR - 19
íþrótfir
Valur Ingimundarson var stigahæstur Tindastólsmanna en hittnin var afleit
hjá honum eins og reyndar öllu liðinu í seinni hálfleik.
Hrun í síðarí hálfleik
- IBK lagði
Tindastóll hcimsótti Keflvík-
inga í gærkvöld og laut í lægra
haldið 99:64. Jafnræði var með
liðunum í fyrri hálfleik og var
staðan í leikhléi 49:44 fyrir
heimamenn. Scinni hálfleikur
var hins vegar afspyrnu lélegur
hjá Tindastól og unnu Keflvík-
ingar því auðveldan sigur á
gestunum.
Fyrri hálfleikur var fjörugur og
vel leikinn af báðum liðum og var
[rví hin hesta skemmtun fyrir
áhorfendur. Keflvíkingar náðu
fljótlega forystunni en 1’indastóll
náði jafnharðan að jafna leikinn.
Um miðjan hálfleikinn tókst
heimamönnum að komast yfir
26:16 en ungmennafélagsdreng-
irnir frá Sauðárkróki gáfust ekki
upp og söxuðu á það forskot og
þegar leikmenn gengu til bún-
ingsherbergja höfðu Keflvíkingar
5 stiga forskot 49:44.
I síðari hálfleik stóð ekki
steinn yfir steini hjá Tindastóls-
mönnum. Það var einungis fyrstu
fjórar mínúturnar sem eitthvað
vit var í sóknarleiknum hjá þeim
en eftir það var leikurinn ein-
stcfna.
Akureyrarmót í bekkpressu:
Ágætur árangur hjá lyftmgamönnum
- tvö Islandsmet sett á mótinu
UMFT 99:64
Það verður hins vegar að
viðurkennast að ekkert gekk upp
hjá þeim í sókninni á tímabili og
þá fylltust menn vonleysi. Eink-
um var þeim Eyjólfi og Val fyrir-
munað að koma tuðrunni ofan í
körfuna. Flest þeirra skot döns-
uðu á körfuhringnum, Keflvík-
ingar hirtu frákastið, brunuðu
upp og skoruðu. Afleiðingin varð
sú að á smá tíma juku þeir for-
skot sitt upp í 20 stig 66:46 og þá
gáfust Sauðkrækingarnir eigin-
lega upp.
Hjá Keflavík bar mikið á þeim
Guðjóni Skúlasyni, Jóni Kr.
Gíslasyni og Sigurði Ingimundar-
syni. Einkum var Sigurður örugg-
ur í vítaskotunum og gerði hann
nokkrar fallegar þriggja stiga
körfur.
Valur og Eyjólfur áttu mjög
góðan lcik í fyrri hálfleik en, eins
og áður sagði, virtust lukkudís-
irnar algjörlega hafa yfirgefið þá
félagana í þeim síðari.
En það þýðir ekkert að láta
deigan síga, KR-ingar mæta á
Krókinn á sunnudaginn og nú
verða Tindastólsmenn að standa
sig á heimavelli.
Einn annar leikur var í Flug-
leiðadeildinni í gærkvöld, ÍR
vann óvæntan sigur á KR 59:58 í
hörkuspennandi leik.
I 1. deildinni í handboltanum
sigruðu hins vegar KR-ingar Vík-
inga í leik hinna glötuðu varna
með 31 marki gegn 26.
Flugleiðadeildin í körfu:
Akureyrarmót drengja og ungl-
inga í bekkpressu fór fram sl.
laugardag. Keppendur voru 13
talsins. Margir efnilegir piltar
tóku vel á því að sett voru tvö
íslandsmet drengja í keppn-
inni.
Helgi Jónsson, 17 ára, bætti
metið í 52 kg flokknum er hann
lyfti 60 kg og hinn atorkumikli
Jónmundur Gunnarsson, 15 ára,
setti met í 82,5 kg flokki með því
að lyfta 85 kg. Aðrir sem vöktu
athygli manna voru þeir Guð-
mundur Marteinsson þrælskafinn
fótboltahetja úr Þór, Rúnar
Friðriksson „sveitavargur“
Bændaskólanum Hólum og
Sverrir Gestsson „sperró", bróðir
Sigurðar Gestssonar vaxtarrækt-
arfrömuðar. „Loðfíllinn" Torfi
Ólafsson náði einnig ágætum
árangri en hann puðar nú af
kappi fyrir Evrópumót unglinga
sem fram fer í Luxemborg í des-
ember.
Dómarár voru Jóhannes
Hjálmarsson „fíragott“, Sigurður
Gestsson og Flosi Jónsson. Var
haft á orði að þeir hefðu af skör-
ungsskap dæmt. Stangarmenn
voru hinir reffilegu Hjörtur
„Arnold" Guðmundsson og
Kjartan „Gatti“ Helgason og
þóttu handtök þeirra hin snör-
ustu. Stjórnandi mótsins var Kári
Elíson.
Næsta bekkpressukeppni verð-
ur 3. desember, en þá mætast
úrvalssveitir kraftlyftingamanna
og vaxtarræktarmanna og verða
þá eflaust hrikaleg átök.
Knattspyrna:
KAmeð
aðalfund
Aðalfundur knattspyrnu-
deildar KA verður haldinn í
KA-heimilinu mánudaginn
28. nóvember n.k. kl. 20.30.
Á dagskrá eru venjuleg
aðalfundarstörf og eru KA-
félagar hvattir til að mæta.
Torfi Ólafsson æfir nú stíft fyrir
Evrópumeistaramót unglinga í des-
ember.
Akureyrarmót drengja og ung-
linga í Bekkpressu........
Drengir 14-17 ára:
Flokkur kg
52 kg 1. HelgiJónsson 60,0
60 kg 1. Jóhann Guðmannsson 52,5
75 kg 1. Sverrir Gestsson 105
75 kg 2. Hlynur Konráðsson 90
82,5 kg I. JónmundurGunnarss. 85
82,5 kg 2. Sigmar Ásgrímsson 72,5
Unglingar 18-23 ára:
75 kg 1. Rúnar Friöriksson 102,5
82,5 kg 1., JónNorðfjörð 110
90 kg í. Pétúr Broddason 130
90 kg 2. Guðm. Marteinsson 130
100 kg I. Björn Broddason 130
100 kg 2. Jón G. Þorsteinsson 120
+125 kgl. Torfi Ólafsson 190
Dómarar voru þeir Jón Otti Jónsson og Jón
Bendcr og dæmdu þeir ágætlcga.
Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 25, Jón Kr. Gísla-
son 21, Sigurður Ingimundarson 17, Magnús
Guðfinsson K, Albcrt Óskarsson 7, Axel Niku-
lásson 6, Nökkvi Jónsson 6, Falur Harðarson 5,
Einar Einarsson 2 og Gcstur Gylfason 2.
Stig Tindastóls: Valur Ingimundarson 20,
Eyjólfur Sverrisson 17, Svcrrir Svcrrisson 13,
Björn Sigtryggsson 10, Ágúst Kárason 2 og
Guðbrandur Stefánsson 2. JÓH/AP
Önnur úrslit í gærkvöld:
ÍR - KR í körfubolta 59:58
KR - Víkingur í handbolta
31:26
Knattspyrna:
Vaskur með félagsftmd
- allir knattspyrnuáhugamenn velkomnir
Knattspyrnufélagið Vaskur
boðar til almenns félagsfundar
að Bjargi á sunnudaginn kl.
16.00. Allir knattspyrnuáhuga-
menn eru hvattir til að mæta á
fundinn, en þar verður rætt um
framtíð félagsins.
Bikarkeppni:
KA keppir við F
- Þór fær Ármann og ÍBV
Dregið hefur verið í 32 liða
úrslitum í bikarkeppni HSÍ og
16 liða úrslitum í kvenna-
flokki. í meistaraflokki karla
þarf KA að heimsækja 3.
deildarlið Fylkis og Þór fær
Ármenninga í heimsókn. Þórs-
stelpurnar fá Vestmannaeyj-
armeyjarnar í heimsókn.
Annars lítur drátturinn þannig
út:
í»ór Ak - Ármann
Fylkir - KA
Grótta b - ÍR
ÍBV b - ÍH
Selfoss - KR a
KR b - UBK
Leiftri - Ármann
Fram - Víkingur
Valur b - Valur a
UMFN - FH
ÍBK - UMFA
HK - ÍBV b
Haukar - Grótta a
Hjá stúlkunum:
Þór Ak. - ÍBV
KR - Grótta
Stjarnan - Haukar
UMFA - Fram
UBK - ÍBK
ÍR - Víkingur
Þróttur - FH
Selfoss - Valur.
Þrjú lið sátu hjá í karlaflokki:
Stjarnan, Þróttur og Haukar.
Félagið hefur verið í nokkurri
lægð en nýir menn hafa nú komið
inn í félagið og fullur vilji er fyrir
því að rífa félagið upp og skapa
þannig verkefni fyrir hina mörgu
knattspyrnuáhugamenn á Akur-
eyri og í nágrenni.
Hlutavelta
hjá
Þórsurum
Körfuknattleiksdeild Þórs
heldur stórhlutaveltu til
styrktar starfsemi sinni á
sunnudaginn kl. 14 í Húsi
aldraðra.
Vinningarnir eru margir
stórglæsilegir, m.a. ferðavinn-
ingar frá Ferðaskrifstofu
Akureyrar og Samvinnuferð-
um/Landsýn.
Allir velunnarar félagsins
eru hvattir til að mæta og sýna
þannig stuðning sinn í verki
við starfsemi deildarinnar.
Svona í lokin er vert að geta
þess að engin núll eru á hluta-
veltunni.
íþróttir
um helgína
Að vanda er ýmislegt um að
vera á íþróttasviðinu um
heigina. Þar ber hæst leik
KA og ÍS í 1. deildinni í
blaki á laugardaginn í Gler-
árskóla og leik Tindastóls og
KR í Flugleiðadeildinni í
körfu á sunnudagskvöldið. í
íþróttahöllinni á Akureyri
sjá Þórsarar um einn riðil í
4. flokki karla, svokallaða l.
dcild. Þar mætast bestu lið
landsins í 4. flokki og er vel
þess virði að fylgjast meö
þessum ungu handknattieiks-
inönnum. Á Laugum fer hið
árlega Laugainót í innan-
hússknattspyrnu fram.
KA og IS mætast í bæði
karla- og kvennaflokki á laug-
ardaginn. KA-drengirnir eru á
fljúgandi ferð í blakinu og
sigruðu Próttara glæsilega um
síðustu helgi. ÍS er núverandi
íslandsmeistari þannig að það
má búast við hörkuleik á laug-
ardaginn.
Stúlkunum í KA-liðinu hef-
ur ekki gengiö eins vel, en þær
eru staðráðnar að gera sitt
besta gegn Stúdínum. Leikur-
inn hjá stúlkunum hefst k.
14.30 og strákarnir spila strax
á eftir.
Tindastóll mætir KR í Flug-
leiöadeildinni í körfu á Sauð-
árkróki á sunnudagskvöldið.
KR rétt marði þá á heimavelli
sínum og eru Sauökrækingar
staðráðnir í því að hefna
harma sinna. Áhorfendur eru
því hvattir til að mæta og
styðja við bakið á sínum
mönnum.
Þórsstrákarnir t' 4. flokki,
sem komu mjög á óvart á sein-
asta fjölliðamóti með því að
ná 3. sæti í 1. deild, reyna að
cndurtaka afrek sitt í Höllinni
um helgina. Mótiö hefst á
föstudagskvöldið kl. 20.15, og
verður framhaldið á laugardag
kl. 13.15 og sunnudag kl. 9 um
morguninn.
Ef fólk vill einungis sjá
Þórsleikina þá spila strákarnir
viö FH á föstudagskvöld kl.
21.05, á laugardag leika þeir
við Hauka kl. 14.05, Stjörn-
una 17.25, og Víking kl.
20.45. Á sunnudag leika þeir
viö Fram kl. 10.40 og KR kl.
13.10.
20 lið á Laugum
Á Laugum verður haldið hið
árlega innanhússknattspyrnu-
mót fyrir meistarallokk karla.
Þar mæta sterkustu lið
Norðurlands allt frá Kormáki
á Hvammstanga til 1. deildar-
liðs HSÞb úr Þingeyjarsýsl-
unni. Einnig taka KÁ, KS,
Tindastóll, IMA, Hvöt og 13
önnur lið þátt í mötinu.
Laugamótið hefst á laugar-
dagsmorgun og úrslitaleikirnir
verða st'ðan spilaðir á sunnu-
dag.
Yngri flokkar Þórs, KA og
Völsungs verða á fullu um
helgina. 4. flokkur Þórs leikur
á Akureyri, eins og áður
sagði. í KR-húsinu spilar 2.
flokkur Þórs í l. deild og 4.
flokkur kvenna Þórs og Völs-
ungs leika í Njarðvík. KA
sendir 4. flokk karla til keppni
á Seltjarnarnesi og í þeim riðli
leika einnig Völsungar frá
Húsavík. Síðan er það 4.
flokkur kvenna hjá KA sern
leikur í Réttarholtsskóla.
Islandsmótið í karate fer
fram á laugardag í Laueardals-
höll og er þetta fjórða Islands-
mótið í þessari grein. Kepp-
endur verða 25 frá sex félög-
um og hefst keppnin kl. 14 á
laugardag.