Dagur


Dagur - 30.11.1988, Qupperneq 6

Dagur - 30.11.1988, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 30. nóvember 1988 Ingunn St. Svavarsdóttir oddviti í Prcsthólahrcppi: „Það verður leitað allra leiða til að koma atvinnumálunum í rétt horf,“ segir oddvitinn, en fclagslífið er öflugt í héraðinu og segir Ingunn í rauninni ótrúlegt hversu virkt fólkið sé varðandi þátttöku í margs konar félagslífi. Myndir: tlv Einn af Ijósu punktunum í atvinnumálum á Kópaskeri er fiskeldið. Á þessari mynd eru bæki- stöðvar Arlax á staðnum, en þeir Árlaxmenn hafa í hyggju að stórauka matfiskeldi á Kópa- skeri á næstu árum. Við höfum ekki hugsað okkur ai - segir Ingunn St. Svavarsdc Á síðasta ári lögðu 565 íbúar við Öxarfjörð 270 milljónir króna tii þjóðarbúsins. Þar af voru hreinar gjaldeyristekjur um 150 milljónir króna. Ef deilt er í íbúafjöldann kemur í ljós að hver einstaklingur hef- ur lagt til tæplega hálfa milljón króna í þjóðarbúið. „Þetta er ekki svo lítið ef miðað er við fólk í þéttbýli. Það er taliö að ein fjölskylda í sveit útvegi fimm fjölskyldum í þéttbýli atvinnu,“ sagði Ingunn St. Svavarsdóttir oddviti á Kópa- skeri. Blaðamenn Dags komu við á skrifstofu Presthóla- hrepps á ferð um héraðið fyrir skömmu og spjölluðu við hana um mannlífið á staðnum. Presthólahreppur hefur tals- vert verið til umfjöllunar í fjöl- miðlum undanfarið vegna bág- borinnar stöðu rækjuvinnslunnar Sæbliks, sem nú hefur verið Iýst gjaldþrota. Sæblik er um sextán ára gamalt fyrirtæki og sagði Ing- unn málefni þess mjög alvarleg nú. Hún benti hins vegar á að margvíslegir möguleikar væru fyrir hendi í héraðinu og nefndi einkum fiskeldið í því sambandi. ísno hf. í Kelduhverfi hefur verið starfandi um nokkurra ára skeið og hefur gengið vel, markviss uppbygging hefur verið hjá fyrir- tækinu. Þá má einnig nefna Silf- urstjörnuna og Árlax, sem eru ört vaxandi fyrirtæki á sviði fiskeldis og Árlax hefur til að mynda hug á að stórauka mat- fiskeldi á Kópaskeri á næstu árum. 150 milljónir í hreinar gjaldeyristekjur „Við höfum ekki hugsað okkur að leggja árar í bát þótt móti blási. Við ætlum að vinna okkur út úr þessu erfiðleikatímabili; til þess eru vandamálin að leysa þau,“ sagði Ingunn. Eins og áður sagði var heildar- framleiðsluverðmæti héraðsins á síðasta ári 270 milljónir, þar af voru hreinar gjaldeyristekjur til þjóðarbúsins frá íbúum við Öxarfjörð um 150 milljónir króna. Tekjur af laxeldi voru tæplega 70 milljónir króna, af rækjuvinnslu rúmlega 44 milljón- ir og tekjur af fiski tæplega 21 milljón króna. Grásleppuhrogn voru framleidd í héraðinu fyrir 13 milljónir króna og refaskinn fyrir rúmlega 3 milljónir króna. Land- búnaðarafurðir, kjötsöluverð- mæti, gærur og ull voru framleidd í héraðinu fyrir um 120 milljónir króna. Af þessari upptalningu má ljóst vera að héraðið hefur lagt fram sinn skerf til þjóðarbús- ins. Dagvist fyrir aldraða Á Kópaskeri er heilsugæslustöð og þar hefur verið starfandi lækn- ir í fjögur ár, en síðustu fimmtán árin þar á undan var héraðinu þjónað frá Húsavík. Læknirinn á staðnum þjónar tveimur læknis- héröðum, Raufarhafnarlæknis- héraði og Kópaskerslæknishér- aði. Apótek er á staðnum, en það er útibú frá apótekinu á Húsavík. Ingunn sagði að heilsu- gæsluþátturinn væri í góðu lagi á Kópaskeri. Fyrir einu ári gaf aldraður maður á Kópaskeri hreppnum hús sitt með þeim skilyrðum að þar risi dvalarheimili fyrir aldr- aða. Er nú unnið af kappi við að gera húsið tilbúið til þeirrar starfsemi og eru lagfæringar að komast á lokastig. Ingunn sagði að fyrirhugað væri að í húsinu yrði fyrst og fremst dagvist fyrir aldraða og ef til vill svokölluð hvíldardvöl sem er hugsuð til skemmri tíma. Kvenfélagið á staðnum, hreppurinn og Fram- kvæmdasjóður aldraðra hafa um það samvinnu að koma húsinu í gagnið og hefur kvenfélagið lagt fram eina milljón króna til verk- efnisins og framkvæmdasjóður aldraðra 650 þúsund krónur á þessu ári. Ingunn sagði að kostn- aður vegna viðgerða og breytinga væri kominn í tvær og hálfa milljón. „Það þurfti ýmislegt að \ gera til að færa húsið í það horf sem æskilegt er undir starfsemi af þessu tagi. En við erum ákaf- lega stolt yfir þessu framtaki. Það er brýn þörf fyrir starfsemi sem þessa í héraðinu. Hlutfall aldr- aðra er hér mjög hátt, ef ekki það hæsta sem þekkist hjá sveitarfé- lögum, yfir 16% íbúanna í hreppnum eru eldri en 67 ára,“ sagði Ingunn og bætti við að von- ir stæðu til að starfsemin kæmist í gang fljótlega eftir áramótin. Enn hefur ekki að fullu verið gengið frá hvernig rekstrarfyrir- komulaginu verður háttað, en Ingunn sagði að það yrði gert í Mikill tónlistaráhugi á Kópaskeri: Flestir að læra á píanó og orgel - spjallað við Elísabetu Hauge skólastjóra og Lydiu Huld Grímsdóttur nemanda Á Kópaskeri er mikill áhugi fyrir tónlist og þar hefur verið starfandi tónlistarskóli frá árinu 1979. Nú stunda tæplega 40 manns nám við tónlistar- skólann og eru nemendur á aldrinum frá 6 ára upp í 60 ára. Tónlistarskólinn er starfræktur í hinum skemmtilega skóla stað- arins og þangað lögðu blaða- menn Dags leið sína er þeir heim- sóttu Kópasker um daginn. Skólastjóri tónlistarskólans er Elísabet Hauge og sagði hún að tónlistaráhugi Kópaskersbúa væri mikill og hefði farið vaxandi á undanförnum árum. Alls stunda 37 nemendur nám við skólann í vetur og sagði Elísabet það háa prósentu miðað við íbúa- fjölda í hreppnum. „Flestir eru að læra á píanó eða orgel,“ sagði Elísabet, auk þess sem nokkuð vinsælt er einn- ig að læra á blokkflautu og gítar. Elísabet hefur kennt við skólann í þrjú ár, á undan henni hafa Elísabet skólastjóri leiðbeinir Lydiu Huld við orgelið. Lydia er ákveðin í að halda áfram að læra að spila. nokkrir komið við sögu, þar á meðal tveir Bretar, en Elísabet er frá Noregi. Tónlistarskólinn á Kópaskeri starfar í náinni sam- vinnu við Tónlistarskóla Húsa- ' víkur og hefur ætíð gert. Nemendur í tónlistarskólanum halda að jafnaði tvenna tónleika á starfsárinu, aðra fyrir jólin og hina að vori. Að auki hafa nem- endur spilað á tilfallandi tón- leikum, til dæmis í tengslum við uppákomur í skólanum og í sambandi við leikrit sem þar eru sýnd. Elísabet var að leiðbeina Lydiu Huld Grímsdóttur þegar blaðamenn heimsóttu skólann. Lydia er á þriðja ári og er að læra á orgel. „Það er gaman að kunna að spila,“ sagði hún. Hún sagðist spila sitt lítið af hverju, en þó lítið af popplögum, sem kæmi samt fyrir við tækifæri. „Ég er ákveðin í að halda áfram að læra að spila,“ sagði Lydia sem er 12 ára gömul. mþþ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.