Dagur - 30.11.1988, Page 16

Dagur - 30.11.1988, Page 16
Efnilegir myndlistarmenn í Barnaskóla Akureyrar: Friðardúfur Helgu Rakelar munu fljuga til Amenku - mynd ellefu ára stúlku tekur þátt í alþjóðlegri samkeppni um friðarveggspjald Lionshreyfingarinnar „Þetta var auðvitað dálítið gaman,“ sagði Helga Rakel Kristjánsdóttir, ellefu ára gam- all nemandi í Barnaskóli Akur- eyrar, en í gær fékk Helga Rakel að vita að mynd sem hún gerði hefði verið valin til að taka þátt í alþjóðasam- keppni um friðarveggspjald fyrir Lionshreyfinguna. Ein mynd var valin til að taka þátt í keppninni fyrir íslands hönd og varð mynd Helgu Rakelar fyrir valinu. Helga Rakel gerði mynd af tveimur dúfum, önnur var brún að lit og hin hvít, „þær voru flæktar saman og ein var með gaddavír og hin var með blóm,“ sagði hún þegar hún lýsti mynd- efninu fyrir okkur í teiknistofu Barnaskólans í gær. Epli falla sjaldnast langt frá eikinni og sagði Aðalsteinn Vestmann myndmenntakennari Helgu að hæfileikarnir væru í blóðinu. Faðir hennar, Kristján Jóhanns- son, kennir í Myndlistaskólanum og móðir hennar, Anna G. Torfadóttir hefur unnið í grafík. Aðalsteinn sagðist að sjálf- sögðu vera ánægður með fram- mistöðu nemenda sinna, en eins og mönnum ætti að vera í fersku minni náði Axel Árnason, átta ára nemandi við skólann langt í teiknisamkeppni barna í tengsl- um við Ólympiuleikana í Seoul. Aðalsteinn sagði að krakkarnir hefðu margir valið sér dúfur að viðfangsefni og greinilegt að þær væru tákn friðarins. Einnig hefðu margir valið handabandið sem yrkisefni í myndum sínum. „Ég átti alls ekki von á að vinna, þetta kom mér á óvart,“ sagði Helga Rakel, en var afar ánægð með að mynd hennar skyldi verða fyrir valinu. Landinu er skipt upp í tvö Lionsumdæmi og til að byrja með voru valdar þrjár myndir í hvoru þeirra. Síðan var valin ein mynd úr hvoru umdæmi og í gær var til- kynnt að mynd Helgu af dúfun- um tveimur hefði borið sigur úr býtum og færi áfram í alþjóðlegu keppnina. mþþ Helga Rakel Krístjánsdóttir með myndmenntakennaranum sínum, Aðal- steini Vestmann, í teiknistofu Barnaskólans. Helga sagðist vera ánægð með að friðardúfur sínar næðu að komast alla leið til Bandaríkjanna og Aðalsteinn var líka ánægður með frammistöðu nemenda sinna. Mynd: tlv Verðlaunamynd Helgu Rakelar. Mynd: TLV Möl og sandur hf. á Akureyri: Nægileg verkeftii fyrirliggjandi - tíðarfar hefur verið húsbyggjendum hagstætt í vetur „Þetta er mjög svipað hjá okk- ur núna og var í fyrra en við náum ekki alveg sama steypu- magni og þá. Það er nánast steypt á hverjum degi,“ sagði Hólmsteinn Hólmsteinsson, forstjóri hjá Möl og sandi hf. á Akureyri, þegar hann var spurður um steinsteypufram- leiðsluna, en tíðarfar hefur undanfarið verið húsbyggjend- um hagstætt. Hólmsteinn sagði að mikið væri um verkefni framundan ef veðrátta héldist áfram eins góð og hún hefur undanfarið verið. Af stærri verkefnum í bænum mætti helst nefna fjölbýlishús Híbýlis hf. við Helgamagrastræti og síðara fjölbýlishús aldraðra við Víðilund, en það byggja Fjölnismenn. Þá eru nokkrar byggingar hálfkláraðar í bænum. Möl og sandur hf. hefur með höndum víðtæka starfsemi því auk steinsteypuframleiðslu og almennrar verktakastarfsemi framleiðir fyrirtækið gangstéttar- hellur, steypt rör, brunna, keilur, hleðslusteina, húseiningar og þakeiningar, svonefndar rifjaplöt- ur. „Það er mikið framundan hjá okkur á þessu sviði því við eigum litlar birgðir en ætlum okkur að eiga miklar birgðir næsta vor, bæði af rörum, hellum og hleðslusteinum,“ sagði Hólm- steinn, en tíðarfarið í fyrra gerði það að verkum að unnt var að sinna steypuútkeyrslu nálega all- an veturinn og lítið um að starfs- menn steypustöðvarinnar hefðu tíma til að vinna að framleiðsl- unni á rörum og steinum. „Við bjuggumst alltaf við því að mennirnir færu í salina um leið og snjórinn og frostið byrjuðu en það varð lítið um slíkt. Þess vegna voru birgðirnar litlar. En það liggur mikið fyrir bæði í loft- einingum og veggeiningum og við eigum 2-3 mánaða vinnu fram- undan þar,“ sagði Hólmsteinn Hólmsteinsson. EHB Við að Hugsanlegt að dómstólar úrskurði um mörk Aðaldæla- og Reykjahrepps: erum ekki æstir fara í málaferli - segir Dagur Aðaldælingingar íhuga að leita til dómstóla til að fá skorið úr um legu marka Aðaldælahrepps og Reykjahrepps. Málinu var skotið til félagsmálaráðuneyt- isins en það taldi ekki vera í þess valdi að skera úr um málið. Dagur Jóhannesson, oddviti Aðaldælahrepps, segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort málinu verði vísað til dómstóla. „Við erum ekkert að flýta okkur. Við erum ekki æstir að fara í málaferli því að við eigum mik- ið samstarf við Reykjahrepp og hugsanlega verða þessi tvö Jóhannesson oddviti Aðaldælahrepps sveitarfélög sameinuð síðar meir.“ Forsaga málsins er sú að mörk- um tveggja jarða, Laxamýrar og Núpa, sem áður lágu á hreppa- mörkum, var breytt fyrir hundr- að árum síðan. Með þessum breytingum var litið svo á að hreppamörkum hafi líka verið breytt en Dagur Jóhannesson segir að í raun hafi aldrei verið formlega gengið frá þeirri marka- hliðrun og nú sé vilji fyrir því af hálfu Aðaldælinga að fá gömlu hreppamörkin, sem reyndar eru merkt inn á hin svokölluðu her- foringjaráðskort, staðfest. „Við teljum að hluti af Laxamýrar- landi sé ennþá í Aðaldælahreppi og að sú jörð tilheyri enn tveimur hreppum," segir Dagur. Samkvæmt núverandi skipan mála koma gjöld af flugstöðvar- húsinu við flugvöllinn í Aðaldal í hlut Reykjahrepps. Dagur segir að þar sé um að ræða 50-60 þús- und krónur á ári. Flugstöðin er hins vegar innan marka Aðal- dælahrepps ef mið er tekið af hreppamörkum sem giltu fyrir 100 árum síðan. Þá koma einnig í hlut Reykjahrepps fasteignagjöld af sumarbústöðum sem sam- kvæmt fornu hreppamörkunum ættu að renna í kassa Aðaldæla- hrepps. óþh Súlan landar í FaTeyjum Krossanesverksmiðjan hefur ekki getað tekið á móti loðnu frá því á sunnudag en þá fylltist þróarrými hennar. Súlan EA, Þórður Jónasson EA og Örn KE hafa því þurft að landa hjá öðrum loöubræðslum. Á sunnudaginn landaði Súlan EA 300 um 800 tonnum í Krossa- nesi. Þórður Jónasson EA 350 landaði tæpum 700 tonnum sama dag hjá verksmiðjunni og Eyborgin frá Hrísey landaði nokkru magni af síld til bræðslu. Þetta þýddi að verksmiðjan lok- aði fyrir móttöku í bili en afkasta- geta hennar mun vera um 400 tonn á sólarhring. Súlan EA sigldi í gær til Fær- eyja með fullfermi af loðnu. Þórður Jónasson EA landaði full- fermi á Seyðisfirði í gær og Örn KE 13 landaði í Bolungarvík á mánudaginn. Loðnan hefur undanfarna daga mokveiðst norður af Langanesgrunni. EHB Egilsstaðir: Áhyggjur af atvinnuástandi kvenna Yfirleitt er nokkuð gott atvinnu- ástand á Egilsstöðum um þess- ar mundir, fyrir utan það, að nokkrar áhyggjur eru vegna ástands í atvinnumálum ófag- lærðra verkakvenna. Sigurður Símonarson bæjar- stjóri, sagði þá helst hafa verið í vandræðum með þennan hóp. „Það er lítið af atvinnutækifærum fyrir hann, sérstaklega eftir að við misstum prjónastofuna Dyngju sem veitti um 20 konum störf. Vinna við sláturhús er tímabundin auk þess sem fé hér hefur fækkað verulega og vinna í sláturhúsum því dregist enn meira saman. Þetta lendir allt á sama hópnum; sömu konunum." í byggíngariðnaði virðist enn vera nóg að gera og yfir verktaka- starfsemi þarf ekki að kvarta. VG Smábátar: Þokkaleg aflabrögð Smábátasjómenn á Norður- landi hafa víðast hvar veitt þokkalega á línu að undan- förnu, en þó kvarta þeir yfir því hve fiskurinn er smár. Af þeim sökum hefur þurft að grípa til lokana á miðunum, t.a.m. á Grímseyjarsundi. Örn Pálsson hjá Landssam- bandi smábátaeigenda sagðist ekki hafa nýjar tölur um afla smábáta en af fréttum frá sjó- mönnum mætti ráða að aflinn hefði verið allþokkalegur á Norð- urlandi upp á síökastið, sérstak- lega á línu. SS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.