Dagur - 06.12.1988, Blaðsíða 1

Dagur - 06.12.1988, Blaðsíða 1
71. árgangur Akureyri, þriðjudagur 6. desember 1988_____________232. tölublað Smóking Kjólföt HERRADEILD V. Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sfmi 23599^ 18 dagar til jóla Veður og færð: Jólasnjórinn ekkikominn til að vera - hlýindi framundan „Nei, þið eruð ekki búin að fá jólasnjóinn,“ sagði Eyjólf- ur Þorbjörnsson veðurfræð- ingur hjá Veðurstofunni þeg- ar við töluðum við hann í gær. Desembersnjórinn staldrar stutt við að þessu sinni og bjóst Eyjólfur við að hann hyrfi að mestu í dag. Samkvæmt veðurspánni verð- ur sú breyting á, að sunnanáttin verður ríkjandi í dag og hlýnar þá töluvert í veðri. Hitinn verð- ur á bilinu 4-7 stig næsta sólar- hringinn, en úr því fer að kólna. „Það verður samt ekki mikið,“ sagði Eyjólfur. Á miövikudag birtir upp á ný, en Eyjólfur sagði að búast inætti við ein- hverri vætu. Suðvestan og vest- an átt verður í aðalhlutverki fram í vikuna. Aliir vegir á Norðurlandi eru færir, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá vegaeftirlitinu. Á stöku stað var verið að hreinsa vegi, en engar sögur fóru af umtalsverðum snjó. Veður út með Eyjafirði var þó slæmt, og í gær var ekki vitað hvort fært var yfir Múlann, þar sem eftirlitsmenn höfðu vegna veðurs ekki athugað aðstæður þar. mþþ Þórshöfn: Súlnafell reyndist vel með nýrri vél - aíli hins vegar tregur Súlnafell ÞH-361, annar togara Útgerðarfélags Norð- ur-Þingeyinga á Þórshöfn, hélt til veiða 11. nóvember eftir vélaskipti og reyndist skipið mjög vel. Það kom að landi sl. föstudag ineð 42 tonn, en afli hefur verið tregur, bæði hjá Súlnafelli og Stakfelli. Kvóti skipanpa á að endast fram að áramótum. Þorskkvót- inn er að vísu á þroturn þannig að útlit er fyrir skrap á næst- unni. „Maður getur hins vegar ekki gengið að ýsu og öðrum tegundum. Þær cru teknar með öðru. Sala á karfa er hreinlega ekki fyrir hendi eins og er og því greinilegt að það er þorsk- urinn sem gildir,“ sagði Hrafn Ingimundarson hjá ÚNÞ. Hann sagði að aflabrögð hefðu verið góð hjá línubátum að undanförnu og væri það kærkomin uppbót á sumarið, sem hefði verið magurt hjá bát- um og trillum. Að lokum gat hann þess að jólalegt hefði ver- ið um að litast á Þórshöfn sl. þriöjudag. Nýfallinn snjór og skínandi jólaljós um allan bæinn. SS Víðir Trausti frá Hauganesi fiskar grimmt fyrir Útnes á Kópaskeri: Akureyri: 400 böm á biðlista - eftir dagheimilis- eða leikskólaplássi Um 400 börn eru nú á biðlista eftir dagheimilis- eða leikskóla- plássi á Akureyri, þar af er um þriðjungur börn undir tveggja ára aldri. Helmingur barn- anna, þ.e. um 200 eru búsett utan Glerár og hinn helming- urinn sunnan ár. Flest eru börnin sem bíða á aldrinum 2-3 ára gömul. Sigríður M. Jóhannsdóttir dag- vistarfulltrúi Akureyrarbæjar segir að eins og staðan sé í dag verði engin breyting á biðlistan- um þar sem nýjar dagvistir séu ekki á döfinni á næstunni. Fyrirhugað er að hverfisfóstra taki til starfa á svæðinu sunnan Glerár og vantar fóstru í þá stöðu. Sigríður segir að enn vanti 10 fóstrur til starfa í bænum, en dagvistirnar séu þó ágætlega mannaðar í það heila. Hins vegar megi lítið út af bregða svo ekki skapist vandræðaástand. mþþ Ágæt loðnuveiði Ágæf veiði hefur verið undan- farna daga á loðnumiðunum og höfðu mörg skip fengið full- fermi þrátt fyrir brælu í gær og á sunnudag. Súlan EA 300 landaði 780 tonnum í Krossanesi í gærkvöld. Þórður Jónasson landaði 600 tonnum á sunnudag, einnig í Krossanesi, og Björg Jónsdóttir frá Húsavík landaði 540 tonnum á Þórshöfn. Örn KE 13 hefur ekki verið á veiðum undanfarna daga. Loðnuskipin hafa haldið sig norðaustur af Vopnafjarðar- grunni undanfarna sólarhringa. Spáð er batnandi veðri á miðun- um. EHB Það er stíft staðin vaktin þessa dagana hjá þeim Útnesmönn- um á Kópaskeri. Víðir Trausti, 65 tonna bátur frá Hauganesi, hefur séð fiskverkuninni Útnesi fyrir hráefni frá miðjum nóvember og gert það heldur betur gott. I 14 róðrum hefur báturinn fengið um 85 tonn eða að jafnaði rúm 6 tonn í róðri. Víðir Trausti er á línu og sér starfsfólk Útness um að beita og gera bátinn kláran fyr- ir hvern róður. Hjá Útnesi vinna nú yfir 20 manns. Frá því að Víðir Trausti byrjaði að leggja upp hjá fyrir- tækinu hefur verið unnið upp á hvern einasta dag að einum sunnu- degi undánskildum. Menn hafa þurft að haga seglum eftir vindi með vinnu og unnið þegar á hef- ur þurft að halda. Næturvinna hefur verið mikil því gert er að aflanum strax og hann berst á land. Víðir Trausti landar á hverjum degi einhvern tímann frá kl. 17-21. Auðun Benediktsson hjá Útnesi segir að til að byrja með hafi verið vissir erfiðleikar með beitinguna, hún hafi gengið seint sökum ónógrar þjálfunar beiting- arfólksins. Að jafnaði starfa 5-6 menn við beitinguna, þar af eru 2 konur. Vinna hefst klukkan fimm á morgnana og oft er beitt fram undir kvöldmat. Auðun segist hafa sjálfur gripið í beitinguna svona rétt til þess að rifja upp gamlar góðar stundir en hann vann við beitingu í Vestmanna- eyjum 11 vertíðir samfleytt hér á árum áður. „Þá komst ég niður í 29 mínútur með balann en nú má ég þakka fyrir að hafa hann á klukkutíma,“ segir Auðun. Hilmir Sigurðsson hjá Trausta hf., sem gerir út Víði Trausta, segir að Útnesmönnum hafi verið boðinn afli bátsins vegna þess að á Hauganesi hafi ekki verið næg- ur mannskapur til að vinna við fiskverkun og beitingu. Hann segir að vissulega hefðu eigendur bátsins frekast viljað leggja upp á Hauganesi og verka sjálfir aflann en þess hefði einfaldlega ekki verið kostur sökum manneklu. Fastlega má gera ráð fyrir áframhaldandi vinnutörn hjá Útnesi til jóla. Hvað verður uppi á teningnum á nýju ári er ekki ljóst á þessari stundu en Auðun Benediktsson kvaðst vongóður um framhaldið. óþh Jólasnjórinn sem kætti Norðlendinga í gærmorgun mun ekki endast lengi. Mynd: TLV Beitingarjaxlar rifja upp handtökin

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.