Dagur - 06.12.1988, Side 5
6. desember 1988 - DAGUR - 5
jf bœndur & búfé J
Byggingastofiiun landbúnaðar-
ins er í stöðugrí þróun
- Eðli verkbeiðna hefur breyst mikið
Byggingayfirvöld hafa víðs veg-
ar aukið mjög kröfur sínar til
teikninga húsa og láta sér ekki
duga sá frágangur sem leyfðist
fyrir nokkrum árum. Kröfur
byggjenda sjálfra hafa einnig
aukist svo mun meira verk liggur
að baki hverri teikningu nú en
áður.
Byggingastofnun landbúnaðar-
ins sem þjónar bændum á þessu
sviði á upphaf sitt í Teiknistofu
Byggingar- og landnámssjóðs.
Fyrstu teikningarnar voru sendar
út í mars 1929 og urðu þær um
tuttugu talsins það ár. Nokkrar
nafnabreytingar urðu á stofnun-
inni, en það er ekki fyrr en 1971
sem hún fær nafnið Bygginga-
stofnun landbúnaðarins. Áður
hafði hún borið nafnið Teikni-
stofa Búnaðarbankans og síðar
Teiknistofa landbúnaðarins. Frá
ársbyrjun 1972 hefur Gunnar M.
Jónasson gegnt starfi forstöðu-
manns.
Tölvuvætt upplýsingakerfi
í allmörg ár hefur verið búist við
að drægi úr getu bænda til fram-
kvæmda, en það hefur ekki orðið
hvað varðar fjölda verkbeiðna
því hann hefur ekki minnkað sem
neinu nemur. Þróunin er sú að
meira er nú um breytingar, hag-
ræðingar, stækkanir og þess hátt-
ar en minna um heilar, nýjar ein-
ingar. Tímafrekara er að vinna
að teikningum fyrir breytingar en
nýbyggingar og miðað við fjölda
verka og umfang er stofnunin
mjög undirmönnuð.
Frá 1980 hefur verið mjög mik-
il vinna lögð í þróun á íoðdýra-
húsum og það svo að margt ann-
að hefur orðið að sitja á hakan-
um. Það sést á því að 1987 var
byggt yfir 31.650 minkalæður í
landinu en aðeins 1.640 kindur.
Árið 1978 var hins vegar byggt
yfir 23.860 kindur en enga
minkalæðu. Byggingastofnunin
átti aðild að svokölluðum húsa-
hópi sem var rannsóknarhópur
unt húsvist loðdýra ásamt Búnað-
arfélagi íslands, Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins og
Sambandi ísl. loðdýraræktenda.
Kröfur um alls kyns upplýsing-
ar frá BL fara hraðvaxandi og
stöðugt koma fyrirspurnir allt frá
stjórnvöldum til einstakra
manna. Svo virðist sem tilfinnan-
legur skortur sé á áreiðanlegri
vitneskju í þjóðféiaginu um fjár-
festingu og byggingar í sveitum.
Stofnunin hefur þó hafið undir-
búning að því að hefjast handa
við skipulagningu upplýsinga-
kerfis í tölvu og skráningar inn í
það og getur það komið til með
að leysa þennan vanda sé hægt að
koma þessu við.
íslenskur byggingarstíll
Segja má að útihús hér á landi
séu vandaðri en víða í nágranna-
löndunum vegna þess að þau
verða að þola mun verra veðurfar
og standast venjulega jarð-
skjálfta. Þau endast vel, en
aldursmörk fjárhúsa hér á landi
er talið 35 ár og fjósa 30 ár. Síðan
geta þau enst miklu lengur séu
þau gerð upp, en það getur kost-
að allt að 70-80% af nývirði og
spyrja þá margir hvort ekki borgi
sig að byggja nýtt. Vegna þess
hve okkar útihús eru vönduð
kosta þau mun meira en í löndum
sem hafa mildara loftslag. Þetta á
ekki síst við um loðdýrahús sem
eru mun dýrari hér en á Norður-
löndunum þar sem þau eru raun-
Umsjón:
Atli
Vigfússon
ar bara þak. Timbur hér á landi
er líka dýrara, en í timburfram-
leiðslulöndunum er sá efniviður
mun meira notaður því hann er
ódýr.
Stíll íslenskra útihúsa er sér-
stæður að því leyti að hann á sér
enga sérstaka erlenda fyrirmynd
þó svo að nokkurt samband sé
haft við erlenda aðila. Þetta má
kalla „íslenskan arkitektúr," sem
hefur verið að þróast smátt og
smátt síðustu áratugina.
Samskipti við aðrar stofn-
anir, innanlands og utan
Forstöðumaður BL hefur verið
félagi í CIGR (Commission Int-
ernationale du Genie Rural), í
um áratug og á sæti í stjórnar-
nefnd þeirra sem fulltrúi Islands.
Þetta eru alþjóðleg samtök vís-
indamanna í hinum ýmsu grein-
um landbúnaðar og hafa aðsetur
í París. Ekki hefur verið talið
fært að fara á nema einn stjórn-
arfund á öllum þessum tíma.
Þarna hittast og starfa færustu
menn í hverri grein og því mikill
akkur í að eiga við þá persónuleg
samskipti.
í samtökum norrænna land-
búnaðarvísindamanna NJF (Nor-
disk Jordbruksteknisk Forening)
eiga sæti Gunnar Jónasson og
Sigurður Sigvaldason. Nokkurt
starf hefur BL innt af hendi á
umliðnum árum, m.a. hefur
Sigurður starfað að nýjum álags-
reglum fyrir landbúnaðarbygg-
ingar og Gunnar hefur átt sæti í
samnorrænum vinnuhópi á veg-
um samtakanna.
Forstöðumaður BL var boðað-
ur á fund á vegum NEJS (Nor-
disk Embedsmanskomite for
Jord- og Skovsspörsmal) sem
heyrir undir Norðurlandaráð.
Fundurinn var í Danmörku og
var haldinn til undirbúnings að
hugsanlegri stofnun norræns
rannsóknarráðs í landbúnaðar-
fræðum. Enn er verið að ræða
þessa hugmynd, en í framhaldi af
fundinum var forstöðumaður
skipaður í vinnuhóp ásamt einum
aðila frá hverju hinna Norður-
landanna, til að útbúa samnor-
rænar reglur fyrir landbúnaðar-
byggingar. Sú vinna hófst fyrir
alvöru í byrjun þessa árs.
Samvinna hefur verið um langt
skeið við Rala (Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins) og BL á
fulltrúa í Ráðgjafanefnd Rann-
sóknarstofnunar byggingariðnað-
arins.
Það er meginvandamál BL
hversu litlu er varið til rannsókna
á landbúnaðarbyggingum sér-
staklega og tóm til skipulegra
rannsókna gefst lítið. Það er
skoðun Gunnars M. Jónassonar
forstöðumanns BL að rannsóknir
á húsakosti og sambandi dýra og
húsa þyrftu að vera miklu meiri.
Tafla I
Fjöldi fjósa sem Stofnlánadeild
landbúnaðarins hefur lánað út á
að einhverju eða öllu leyti árin
1975-1987.
Ár Fjöldi Básafjöldi Meðalstærð
1975 46 1.384 30,1
1976 47 1.422 30,3
1977 39 1.320 33,9
1978 36 890 24,7
1979 17 455 26,8
1980 16 350 21,9
1981 20 508 25,4
1982 21 505 24,0
1983 26 579 22,3
1984 23 774 33,6
1985 31 741 23,9
1986 22 504 22,9
1987 17 416 24,5
Tafla II
Fjöldi fjárhúsa sem Stofnlána-
deild landbúnaðarins hefur lánað
út á að einhverj u eða öllu leyti
1975-1988.
Ár Fjöldi Fjárfjöldi Meðalstærð
1975 75 19.885 265
1976 69 19.995 290
1977 69 20.245 293
1978 72 23.860 331
1979 46 14.240 310
1980 36 11.740 326
1981 34 9.185 270
1982 27 8.910 330
1983 31 10.190 329
1984 18 6.400 355
1985 18 6.440 358
1986 10 2.765 276
1987 6 1.640 273
1988 3 672 224
Bflar tíl sölu
Spacewagon 2000 4WD, árgerð 1987, ekinn 27 þ. km.
Skoda 130 GL, árgerð 1988, ekinn 4.000 km.
Draupnisgötu.
Sími 22255.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
Símaskráin 1989
Tilkynning til símnotenda
Breytingar í símaskrá 1989 þurfa að berast fyrir
15. desember n.k.
Nota má eyðublaðið á bls. 817 í núgildandi
símaskrá.
Breytingar á heimilisfangi þarf ekki að tilkynna
sérstaklega.
Ritstjóri símaskrár.
SkáiafeU,
Auglýsing um lausar
íbúðarhúsalóðir
Búðarfjara: 5 einbýlishúsalóðir. Einnar hæðar
hús með nýtanlegu risi.
Hafnarstræti: 1 lóð fyrir tveggja hæða einbýlis-
hús.
Áætlað er að lóðirnar verði byggingarhæfar 15.
júní 1989.
Bogasíða: 2 lóðir fyrir einnar hæðar raðhús, 4
íbúðir og 3 íbúðir.
Þessar lóðir eru byggingarhæfar.
Upplýsingar um þessar lóðir og aðrar lausar lóðir
eru veittar á skrifstofu byggingafulltrúa Akureyr’-
ar, Geislagötu 9, á viðtalstíma kl. 10.30-12.00.
Umsóknarfrestur er til 16. 12. 1988.
Akureyri 02. 12. 1988,
Byggingafulltrúi Akureyrar.
Laufabrauð * Laufabrauð
Erum farin að taka niður pantanir í okkar vinsæla iaufabrauð.
Athugid að panta tímanlega, það er allra hagur.