Dagur - 06.12.1988, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - 6. desember 1988
Vinningstölur 3. desember 1988
Heildarvinningsupphæð kr. 5.604.166.-
5 tölur réttar kr. 2.580.206.-
Skiptist á milli 2ja vinningshafa kr. 1.290.103.- á mann.
Bónustala + 4 tölur réttar kr. 448.162.-
Skiptist á milli 13 vinningshafa kr. 34.474.- á mann.
4 tölur réttar kr. 772.920.-
Skiptist á milli 180 vinningshafa kr. 4.294,- á mann.
3 tölur réttar kr. 1.802.878.-
Skiptist á milli 5.599 vinningshafa kr. 322,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
*
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
Skrifstofutækni
Markmið með náminu er að mennta fólk til starfa á
nútíma skrifstofum. Megináhersla lögð á viðskipta-
greinar og notkun tölvu.
★ Almenn tölvufræði
★ Stýrikerfi
★ Töflureiknar og
áætlanagerð
★ Gagnasafnsfræði
★ Tölvufjarskipti
★ íslenska
★ Bókfærsla
Ath. Nú er nær fullbókað á janúarnám-
skeið.
Innritun lýkur 9. desember.
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34 • Sími 27899.
★ Tölvubókhald
★ Verslunarreikningur
★ Toll- og verðútreikningar
★ Innflutningur
★ Stjórnun og mannleg
samskipti
★ Viðskiptaenska
★ Almenn skrifstofutækni
Siglingasaga
Sjómannadagsráðs
- 50 ára afmælissaga Sjómannadagsráðs komin út
Ut er komin bókin Siglingasaga
Sjómannadagsráðs, eftir Ásgeir
Jakobsson.
í bókinni er rakin 50 ára saga
Sjómannadagsráðs í Reykjavík
og Hafnarfirði í máli og
myndum. Bókin er mikil að
vöxtum, um 500 bls. og prýdd á
annað hundrað mynda.
Bókinni er skipt í fimm hluta:
I. hluti fjallar um aðdragandann
og fyrsta Sjómannadaginn, II.
hluti segir frá árunum 1939 til
1961, þegar 23 ára formannstíma
Henrys Hálfdanssonar lýkur. Þá
tekur við formannstími Péturs
Sigurðssonar, sem enn stendur,
að undanskildu einu ári, 1961-2,
og þar hefst III. hlutinn. IV. hlut-
inn hefst þegar Hrafnista í Hafn-
arfirði er vígð 1977 og þar er yfir-
lit um öll fyrirtæki Sjómanna-
dagsráðs sem nú eru í gangi:
Hrafnistu í Reykjavík, Hrafnistu
í Hafnarfirði, orlofshúsahverfi í
Hraunkoti í Grímsnesi, Laugar-
ásbíó, Happdrætti DAS og Sjó-
mannadagshaldið sjálft. í V.
hluta eru síðan skrár um vinn-
ingshafa á Sjómannadaginn, alla
þá sem heiðraðir hafa verið, þá
sem hlotið hafa afreksverðlaun
dagsins og loks fulltrúatal Sjó-
mannadagsráðs í 50 ár.
Inn í þessa frásögn alla er
blandað sjávarútvegssögu tíma-
bilsins, einkum að því leyti, sem
breytingar í sókn og úthaldi skipa
hafa haft áhrif á sögu Sjómanna-
dagsins og sjómannslífið.
I kynningu frá útgefanda segir
m.a.: „Siglingasaga Sjómanna-
dagsráðs er loftsiglingarsaga.
Þeir tóku stefnuna á loftsýn. í
stað þess að eyðast eins og loft-
sýnir hafa náttúru til, þegar farið
er að eltast við þær, þéttist þessi
og varð æ skýrari eftir því sem
þeir reru lengur með stefnuna á
hana. 'Loftsýnir eiga það líka til
að verða jarðlægar, ef menn trúa
nógu sterkt á þær og þessi varð
jarðlæg, kastalabygging, sem
veitir 600 gamalmennum skjól í
ellinni. En það gekk mikið á áður
en það varð, mikill veltingurinn
og ágjöfin og stundum vildi einn
rifa seglin, þegar annar vildi
hækka.
Menn halda að þessi loftsigling
nokkurra sjómanna sé séríslenskt
fyrirbæri. Slík sigling sé ekki
þekkt með sjómönnum annarra
þjóða.“
Það er Fulltrúaráð Sjómanna-
dagsins í Reykjavík og Hafnar-
firði sem gefur bókina út en öll-
um ágóða af sölu hennar verður
varið til greiðslu kostnaðar við
nýendurreistan minnisvarða
„Óþekkta sjómannsins." Þetta er
tvímælalaust jólagjöf sjómanns-
ins í ár.
Allur ágóði af sölu bókarinnar „Siglingasaga Sjómannadagsráðs“ rennur til
minnisvarðar „Óþekkta sjómannsins.“
Nafiiabrengl
Ranglega var farið með nafn eins
af eigendum líkamsræktarstöðv-
arinnar „Flott form“ í blaðinu
nýverið. Hann var sagður heita
Hermann Sigtryggsson en rétt
nafn hans er hins vegar Gunnar
Sigtryggsson. Eru hlutaðeigandi
beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.