Dagur - 06.12.1988, Side 15
Umræður á Alþingi um sjávarútvegsskóla:
Skólakerfinu ekki treystandi
fyrir sjávarútvegsfræðslunni?
- burðarás í Háskólanum á Akureyri
eða enn einn framhaldsskólinn í skólaborginni Reykjavík?
„Ég sé fyrir mér að til verði
samfellt fræðslukerfi í sjávar-
útvegi á Islandi þar sem tekin
eru inn námskeiðin, vinnu-
staðirnir, grunnskólarnir, fram-
haldsskólarnir, endurmennt-
unarkerfi og háskóli. Að mínu
mati er það eitt brýnasta verk-
efni menntamála í þessu landi
að endurvekja hina gömlu
hugsjón sem lá að baki alþýðu-
fræðslunni á íslandi því ég hef
verulegar áhyggjur af þróun
menntamála í landinu. Ég hef
áhyggjur af því unga fólki sem
dettur út úr skólakerfinu og á
ekki leið inn í það aftur. Því
spyr ég hvar sé betra að opna
skólakerfið með skipulegum
og sveigjanlegum hætti en ein-
mitt í sjávarútveginum,“ sagði
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, í umræðum um sjávar-
útvegsskóla á Alþingi á dögun-
um.
Á fímmta þúsund manns á
starfsfræðslunámskeiðum
fískvinnslunnar
Þingmennirnir Finnur Ingólfsson
og Jón Kristjánsson lögðu fram
fyrirspurn til menntamálaráð-
herra um hvort hann hyggist
beita sér fyrir stofnun sjávar-
útvegsskóla á framhaldsskólastigi
eins og starfshópur, skipaður af
menntamála- og sjávarútvegsráð-
herra, lagði til í skýrslu til
menntamálaráðherra haustið
1986.
Finnur Ingólfsson sagði í ræðu
sinni á Alþingi að nú hafi 4600
manns sótt starfsfræðslunám-
skeið fiskvinnslunnar og sagði
það mál erlendra manna sem til
þekkja að íslendingar hafi nú náð
lengst í að kenna verkafólki sem
„starfandi er á gólfinu“. „Hinar
Norðurlandaþjóðirnar líta mjög
til þess verks sem hér hefur verið
unnið. Ég er sannfærður um að
þessi fræðsla sem farið hefur
fram á vegum sjávarútvegsráðu-
neytisins og aðila vinnumarkað-
arins mun ekki til lengdar verða í
höndum þessara aðila heldur þarf
hún að flytjast inn í skólakerfið.
En ég held líka að flestir séu sam-
mála um að skólakerfinu, eins og
það er í dag, sé ekki treystandi til
að sjá um þessa fræðslu," sagði
Finnur Ingólfsson.
Niðurstöður þeirrar nefndar
sem skilaði af sér haustið 1986
voru þær að stofnaður verði
sjávarútvegsskóli í Reykjavík er
taki við hlutverki Stýrimanna-
skóla íslands, Fiskvinnsluskólans
í Hafnarfirði og Vélskóla íslands.
Skólinn verði sérskóli á fram-
haldsskólastigi og heyri undir
menntamálaráðuneytið. Aðfara-
nám að skólanum og nám á ein-
stökum brautum geti einnig farið
fram í öðrum framhaldsskólum
landsins. Þessu til viðbótar verði
stofnað fræðsluráð sjávarútvegs
skipað fulltrúum hagsmunasam-
taka, rannsóknastofnana og
ráðuneyta sem verði stefnumark-
andi í fræðslumálum sjávarút-
vegsins.
Margar hugmyndir uppi
um sjávarútvegsfræðsluna
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, sagði að frá því fyrr-
greind nefnd skilaði áliti ' hafi
Alþingi samþykkt lög um fram-
haldsskóla þar sem kveðið er á
um að menntamálaráðherra skipi
fræðsluráð sjávarútvegs til fjög-
urra ára í senn.
Ráðherra sagði að þrjár hug-
myndir standi nú hæst í umræð-
unni um sjávarútvegsfræðslu hér
á landi. í fyrsta lagi að sjávar-
útvegsnám verði burðarás í
Háskólanum á Akureyri. í öðru
lagi eru uppi hugmyndir um sér-
skóla á framhaldsskólastigi í sjáv-
arútvegsfræðum, einnig brautir
innan hins almenna framhalds-
skólakerfis. í þriðja lagi er ljóst
að ýmsir staðir óska eftir að þar
verði stofnaðir sjávarútvegsskól-
ar á framhaldsskólastigi t.d. Dal-
vík og Vestmannaeyjar.
„í ljósi þessa tel ég nauð-
synlegt að taka á þessum málum í
heild. Ég er sammála Finni
Ingólfssyni um að nauðsynlegt er
að taka sérstaklega á þeim mál-
um sem hafa verið í gangi og
snerta starfsnámskeiðin. Ég
treysti mér ekki til að slá því
föstu að þessi skóli verði
nákvæmlega eins og nefndin
gerði tillögu um m.a. vegna
seinni ákvarðana Alþingis. Auð-
vitað á að koma í veg fyrir marg-
verknað og stórfelldan auka-
kostnað sem hlýst af því að menn
eru að gera sama hlutinn svo að
segja á sama svæðinu. Hér er
hreyft mjög mikilvægu máli sem
ég mun vinna að og ræða við
sjávarútvegsráðherra sem og
aðra hlutaðeigandi aðila,“ sagði
Svavar Gestsson við umræður á
Alþingi. JÓH
„Græðum ísland“
- Nýtt grimdvallarrit um landgræðslumál,
í tilefni af 80 ára afmæli Landgræðslu ríkisins
Út er komið á vegum Land-
græðslu ríkisins veglegt rit í
tilefni af 80 ára afmæli Land-
græðslunnar árið 1987. Forseti
Islands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir, fylgir ritinu úr hlaði og
segir þar m.a.: „Of sjaldan og
of stutta stund í senn höfum
við þrek til að skoða gróður-
eyðingu og önnur náttúruspjöll
og játa: Sekur er ég, ættjörð
mín góð.“
Þjóðin á landinu skuld að
gjalda, það hefur henni orðið æ
betur ljóst, og nú hefur orðið eins
konar þjóðarvakning í þessum
efnum. Én til þess að takast á við
vandann þarf að kunna á honum
skil. í bókinni „Græðum ísland“
er að finna mjög aðgengilegan
fróðleik um gróðursögu landsins
og baráttu við uppblástur og eyð-
ingu. Brautryðjendum á sviði
landgræðslu, sem lengi töluðu
fyrir daufum eyrum, eru gerð skil
svo og starfi Landgræðslu ríkis-
ins. Einnig eru kynnt framtíð-
armarkmið í landgræðslu- og
gróðurverndarmálum.
í höfuðdráttum er efni bókar-
innar þetta: „Landgæði á íslandi
fyrr og nú“, „Saga gróðurverndar
frá öndverðu“, „Starf Land-
græðslu ríkisins", „Helstu þættir
nútíma gróðurverndar" og
„Landgræðsla framtíðarinnar.“
Margar myndanna í bókinni vekja
lcsandann til alvarlegrar umhugsun-
ar um stöðu landgræðsiumála hér á
landi. Mikið verk er greinilega
óunnið.
Bókin er besta yfirlitsrit um gróð-
urfar landsins, sem komið hefur
út á íslensku. Alls eru 25 greinar
í bókinni. Ekki er getið höfunda
við nokkrar þeirra, t.d. „Land-
græðslan í 80 ár“ og „Land-
græðsluframkvæmdir í Rangár-
vallasýslu“, og eru þær unnar
sameiginlega af Sveini Runólfs-
syni, Stefáni H. Sigfússyni og
Andrési Arnalds, sem er ritstjóri
útgáfunnar. Af öðrum höfundum
má nefná- Árna G. Eylands,
Gunnlaug Kristmundsson,
Jóhannes G. Helgason, Jón
Helgason, Jón R. Hjálmarsson,
Jónas Jónsson, Pál Sveinsson,
Runólf Sveinsson, Sveinbjörn
Dagfinnsson og Valtý Stefáns-
son. Um 140 ljósmyndir, flestar í
lit, prýða bókina og tengjast þær
allar landgræðslustarfinu, braut-
ryðjendum og landvinningum.
Einnig er að finna í bókinni ýmis
gagnleg kort og töflur, sem varpa
frekara ljósi á stöðu íslenskrar
landgræðslu.
í fréttatilkynningu frá út-
gefanda segir m.a.: „Við höfum
fengið ísland til varðveislu. Því
miður er ekki sjálfgefið að okkur
auðnist fremur en forfeðrunum
að skila því óspilltu til komandi
kynslóða. Pekking á gróðursög-
unni er mikilvæg. í vitneskju
okkar um horfinn gróður og jarð-
veg felst ákveðin viðmiðun,
markmið sem ber að keppa að í
landgræðslu og gróðurvernd og
jafnframt fyrirheit um árangur.“
Bókin „Græðum ísland" er 236
bls. að stærð. Dreifingu annast
Landgræðsla ríkisins, Gunnars-
holti, Rangárvallasýslu og
Laugavegi 120, Reykjavík.
Ástæða er til að hvetja alla,
sem láta málefni gróðurverndar
og landgræðslu til sín taka, að
tryggja sér eintak af þessu veg-
lega afmælisriti Landgræðslu
ríkisins. BB.
6. desember 1988 - DAGUR - 15
Rafvirki
óskar eftir atvinnu frá áramótum á Akureyri.
Upplýsingar í síma 91-74901 eftir kl. 19.00.
Framkvæmdastjóri
Hér með er auglýst laust til umsóknar starf fram-
kvæmdastjóra við frystihús Kaldbaks h/f
Grenivík.
Umsóknarfrestur er til 20. desember 1988.
Umsóknum skal skilað til Jakobs Þórðarsonar,
Stórasvæði 3, 610 Grenivík, og veitir hann nánari
upplýsingar.
Vinnusími 96-33216 - heimasími 96-33113.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Hjúkrunarfræðingar -
Sjúkraliðar
Við á F.S.A. leitum að starfsfólki, sem er tii-
búið til að takast á við nýtt verkefni á Lyf-
lækningadeild F.S.A.
Hvað bjóöum við?
- sveigjanlegan vinnutíma.
- skipulagða fræðslu.
- skipulagða aðlögun.
- áhugavert og uppbyggjandi starf.
Hvert er verkefnið?
Ætlunin er að skipta Lyflækningadeildinni, sem er sú
eina sinnar tegundar á sjúkrahúsinu, í 2 minni ein-
ingar. Á annari verða m.a. sjúklingar með hjarta-,
æða- og lungnasjúkdóma, en aðallega sjúklingar
með meltingarfærasjúkdóma á hinni.
Um er að ræða tilraunaverkefni.
Hvaða starfsfólk vantar okkur?
Deildarstjóra, sem hefur áhuga á stjórnun og skipu-
lagningu.
Hjúkrunarfræðing í K1 stöðu.
Hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, sem hafa áhuga á
lyflækningahjúkrun.
Þeir sem hafa áhuga, geta fengið nánari upplýsingar
hjá hjúkrunarframkvæmdastjóra, Sonju Sveinsdóttur
í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Móöir okkar,
GUÐNÝ INGVARSDÓTTIR,
Lundargötu 13b,
lést aö Dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn 3. desember.
Kolbrún Sigurlaugsdóttir,
Ágúst Sigurlaugsson.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og hlýhug við
andlát og jarðarför,
BRYNHILDAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Köldukinn II.
Guö blessi ykkur öll.
Kristófer Kristjánsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Allar auglýsingai sem þarf að vinna sérstak-
lega, þurfa að berast til auglýsingadeildar
tveimur til þremur dögum fyrir birtingu.
Auglýsingadeild Dags.