Dagur - 06.01.1989, Page 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMKNR
SiGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Flædilínan í gang
eftir flmmtánda
- vinna hafin í rækjuvinnslunni
Rciknað er með að vinnsla
hefjist á ný rétt eftir miðjan
mánuðinn í Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur, en þar er nú unnið
við uppsetningu á flæðilínu.
Togarinn Kolbeinsey ÞH-10
fer á veiðar nú um helgina og
Júlíus Hafsteen ÞH-1 heldur
til rækjuveiða. Vinna hófst í
rækjuvinnslu Fiskiðjusamlags-
ins í gærmorgun og er þar unn-
ið úr hráefni sem hefur verið
fryst.
Tryggvi Finnsson fram-
kvæmdastjóri FH sagðist reikna
með að hægt yrði að hefja vinnslu
eftir næstu helgi, töluvert fyrir-
tæki væri að setja upp flæðilínuna
en því ætti að vera lokið í hinni
vikunni.
Kolbeinsey heldur til veiða um
þessa helgi. Skipið hefur verið á
Akureyri að undanfönu, bæði
vegna smávægilegra lagfæringa
sem unnið var að í Slippstöðinni
og eins vegna þess að þar er
öruggari höfn en á Húsavík.
Tryggvi sagði að stillt hefði verið
saman hvenær skipið kæmi úr
veiðiferð og vinnsla gæti hafist á
ný í húsinu, enda væru kvótarnir
þannig að ekki skipti öllu máli
hvort farið væri deginum fyrr eða
seinna til veiða.
í næstu viku stendur til að
ganga frá bráðabirgðakjarasamn-
ingi við starfsfólk, sem gildi á
meðan á tilraunavinnslu stendur
með nýja fyrirkomulaginu, en
síðan á að ganga frá varanlegri
kjarasamningi.
Miðað við sama magn af hrá-
efni og sömu úrvinnslu þarf færra
starfsfólk til að vinna við fisk-
vinnsluna eftir að flæðilínan er
komin í gagnið. „Við göngum út
frá að það fólk sem er á skrá hjá
okkur haldi sinni vinnu,“ sagði
Tryggvi. Talsverð hreyfing er
alltaf á starfsfólki og að undan-
förnu hefur nýtt fólk ekki verið
ráðið í stað þess sem hætt hefur.
A síðustu 2-3 árum hefur starfs-
fólki FH fækkað verulega. IM
Eina með öllu - takk.
Mynil: GB
Valur Arnþórsson fer ekki í Landsbankann fyrr en um næstu mánaðamót:
Ég er ekki að bijóta
nein lög um bankastjóra
- segir Valur sem lætur sér í léttu rúmi liggja þó verið sé að flargviðrast um
„Kjarni málsins er sá að ég hef
ekki enn hafið störf sem
bankastjóri í Landsbanka
Islands. Bankaráðið samþykkti
að ráða mig þegar frá 1. janúar
1989 en ég tjáði formanni
bankaráðsins að ég gæti ekki
hafið störf þá og það varð að
samkomulagi að ég kæmi til
ráðningu hans í bankann í ijölmiðlum
starfa síðar í janúar eða í síð-
asta lagi 1. febrúar,“ sagði
Valur Arnþórsson kaupfélags-
stjóri KEA í samtali við Dag í
gær.
Eins og reyndar komið hefur
fram, mætti Valur í Landsbank-
ann á mánudaginn en hélt síðan
norður strax aftur, þar sem hann
á eftir að ganga endanlega frá
sínum málum hjá KEA og Sam-
bandinu. Vegna þessa hefur
skapast mikil umræða um málið í
fjölmiðlum og víðar og m.a. ver-
ið rætt um að Valur sé að brjóta
bankalögin með því að starfa enn
sem m.a. kaupfélagstjóri KEA
og stjórnarformaður Sambands-
ins.
ÚNÞ á Þórshöfn:
Stakfellið veiddi fyrir 220 miiljónir
Nýliðið ár reyndist Útgerðar-
félagi Norður-Þingeyinga á
Þórshöfn fremur þungt í skauti
því auk þess sem ytri aðstæður
Siglu^örður:
Allir togar-
amir á veiðum
Siglufjarðartogararnir eru allir
á veiðum eftir hlé um jól og
áramót. Stapavíkin var fyrsta
skipið til að halda á veiðar og
lagði hún af stað 27. desember.
Á hafnarskrifstofunni í Siglu-
firði fengust þær upplýsingar að
Siglfirðingur, Stálvík og Sigluvík
hefðu farið á veiðar mánudaginn
2. janúar.
Verið er að gera smærri báta
klára en þeir hafa ekki ennþá
hafið veiðar vegna veðurs, ef þrír
línubátar eru undanskildir. Aðrir
eru að undirbúa bátana fyrir
veiðar með þorskanet. EHB
vélarbilun í Súlnafelli setti strik í reikninginn
voru óhagstæðar sjávarútvegi
þá var Súlnafell ÞH-361 aðeins
á veiðum í tæpa 7 mánuði á
árinu vegna vélarskipta og
endurbóta. Afgangurinn af
kvóta Súlnafells færðist yfir á
Stakfell ÞH-360 og var kvóti
beggja togaranna fullnýttur.
Stakfellið veiddi alls um 3.500
tonn og var aflaverðmætið 220
milljónir króna. Afli Súlnafells
var hins vegar um 900 tonn og
verðmæti hans 29,5 milljónir
króna. Að sögn Grétars Friðriks-
sonar útgerðarstjóra setti vélar-
bilunin í Súlnafelli verulegt strik í
reikninginn og olli útgerðinni erf-
iðleikum. Hefði bilunin ekki
komið upp hefði ÚNÞ reynt að
kaupa viðbótarkvóta og auka
þannig aflaverðmætið.
„Þetta var erfitt, fjármagns-
kostnaðurinn var allt oí mikill.
Gengisfellingarnar á síðasta ári
skiluðu sér ekki vegna þess að
það var engin bremsa á innlend-
an kostnað. Við vorum ekki farn-
ir að fá greitt fyrir freðfiskinn á
nýju gengi er stóraukinn viðhalds-
kostnaður og annar innlendur
kostnaður hafði étið þá hækkun
upp og gott betur,“ sagði Grétar.
Hann sagði að hliðarráðstafan-
ir virtust hafa gleymst og ekki
hefðu nema örfá fyrirtæki getað
staðið undir 50-60% vöxtum á
viðskiptavíxlum á síðasta ári auk
álagningar. Hann taldi 4%
gengisfellingu á dögunum ekki
hjálpa neinum nema þeim sem
ekki skulduðu erlend lán, auk
þess sem gengisfelling ein og sér
væri aldrei til hagsbóta.
Nú í upphafi árs eru báðir
togarar ÚNÞ á Þórshöfn í góðu
lagi. Súlnafellið fór á veiðar sl.
þriðjudag og Stakfellið á mið-
vikudag og útgerðin því að vakna
til lífsins á ný, en Grétar sagði að
kvótinn væri lítill. SS
Barnaball á Húsavík:
Linda heiðursgestur
Linda Pétursdóttir fegurðar-
drottning verður heiðursgestur
á barnaböllunum hjá Kvenfé-
lagi Húsavíkur á laugardaginn.
Húsvískum börnum, 6 ára og
yngri er boðið á barnaball frá
kl. 15-18 og börnum á barna-
skólaaldri á ball frá kl. 20-24.
Það hefur tíðkast alveg frá
aldamótum að Kvenfélag Húsa-
víkur bjóði börnum í bænum á
jólatrésskemmtanir en þetta mun
þó vera í fyrsta sinn sem alheims-
fegurðardrottning er heiðursgest-
ur á barnaballi á Húsavík. Barna-
böllin verða haldin í Félagsheim-
ili Húsavíkur. Auk Lindu koma
fleiri góðir gestir á samkomuna
m.a. jólasveinar. Hjónin Line
Werner og Árni Sigurbjarnarson
munu syngja jólasöngva með
börnunum og hljómsveit, skipuð
ungum piltum frá Húsavík, leik-
ur fyrir dansi.
„Ég er ekki að brjóta nein lög
um bankastjóra þó ég sé enn í
mínum fyrri störfum. Það er
augljóst að þegar ég hcf störf í
Landsbankanum, þá væntanlega
1. febrúar, verð ég áður búinn að
ljúka öllum þeim störfum sem ég
er í núna,“ sagði Valur ennfrem-
ur.
„I þessu sambandi er rétt að
rifja það upp að stjórn Kaupfé-
lags Éyfirðinga hafði farið þess á
leit við mig að ég gegndi starfi
mínu sem kaupfélagsstjóri áfram
allt til aðalfundar í vor. Ég hefði
fyrir mitt leyti gjarnan viljað
verða við því og hefði út af fyrir
sig taliö heppilegast að ég skilaði
af mér við aðalfund. En þegar ég
fór þessa á leit við formann banka-
ráðs Landsbankans að ég yrði hér
alveg til vors, taldi hann og banka-
stjórarnir að það væri of langur
umþóttunartími og ég yrði að
koma fyrr. Það barst aðeins í tal,
hvort ég gæti þá í staðinn fengið
að bíða til 1. mars en einnig það
var talið of langt og þá varð þetta
að samkomulagi, að ég fengi
umþóttunartíma fram eftir jan-
úarmánuði og þá allt til 1. febr-
úar eins og þegar hefur komið
fram.
Það er á grundvelli þess sam-
komulags sem ég hef ekki enn
sem komið er hafið störf í Lands-
bankanum og er enn í mínu starfi
sem kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Eyfirðinga.
Ég læt mér að sjálfsögðu í léttu
rúmi liggja þótt menn séu að
fjargviðrast eitthvað út af þessu í
fjölmiðlum. Ég hef alveg hreinan
skjöld í málinu, er í mínum fulla
rétti og vil vona það að banka-
ráðið muni vilja fallast á þetta
samkomulag mitt og formanns
bankaráðsins en það er ekki mitt
mál út af fyrir sig,“ sagði Valur
einnig. -KK