Dagur - 06.01.1989, Blaðsíða 2

Dagur - 06.01.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 6. janúar 1989 Viðskiptaráðuneytið: Bankakerfið undir smásjá - nefnd skipuð til að kanna þróun kostnaðar við bankaþjónustu hérlendis Viðskiptaráðherra hefur skip- að nefnd til að kanna þróun bankakerfisins og kostnaðar við bankaþjónustu hér á landi undanfarin ár. Nefndinni er meðal annars ætlað að kanna þróun vaxtamunar inn- og út- lána í innlánsstofnunum og bera hana saman við vaxtamun í viðskiptabönkum í nágranna- löndunum. Samkvæmt upplýsingum frá viðskiptaráðuneytinu bendir ýmislegt til að munur útláns- og innlánsvaxta í bankakerfinu sé meiri hér á landi en í nágranna- löndunum og að þessi mikli vaxtamunur eigi sinn þátt í háum raunvöxtum undanfarin misseri. Telur ráðuneytið óhagkvæmni í skipulagi og rekstri banka og sparisjóða gæti verið ein skýring á miklum vaxtamun. Úrbætur á því sviði gætu verið mikilvæg forsenda lækkunar á raunvöxt- um. í nefndinni eiga sæti: Birgir Árnason hagfræðingur í við- skiptaráðuneytinu, Eiríkur Guðnason aðstoðarbankastjóri í Seðlabankanum, Eyjólfur Sverr- isson forstöðumaður á Pjóðhags- stofnun, Hinrik Greipsson for- maður Sambands íslenskra bankamanna, Lilja Mósesdóttir hagfræðingur ASÍ, Ólafur Örn Ingólfsson forstöðumaður í Landsbankanum og Sigurður Helgason framkvæmdastjóri Björgunar hf. JÓH Óperan Amal og næturgestimir eftir Menotti verður sýnd að Ýdölum í Aðaldal þriðjud. 10. jan. kl. 21.00. Miðapantanir í síma 96-43581, mánudag kl. 17-20. Hafralækjarskóli. Létt leikfimi fyrir konur Mánudaga og fimmtudaga kl. 17.00. Sérstakt tillit tekið til bakveikra. Leiðbeinandi: Höskuldur Höskuldsson, sjúkraþjálfari. Innritun í síma 25616 eða á Endurhæfingarstöðinni, Glerárgötu 20, Akureyri. Endurhæfingarstöðin. III FRAMSÓKNARMENN |||| AKUREYRI || 1| Bæjarmálafundur verður mánudaginn 9. janúar kl. 20.30 í Hafnarstræti 90. Dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar rædd. Önnur mál. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Á myndinni eru: Vilhjálmur Jónasson formaður Loðdýraræktarfélags Suður-Þingeyinga, Jón Sveinn Þórólfsson deiidarstjóri Fóðurstöðvar KÞ og Sigurður Ólafsson loðdýrabóndi, Sandi Aðaldal. Húsavík: Skiimasýning í kaupfélaginu - skinnin Á svæði Fóðurstöðvar Kaup- félags Þingeyinga er skinna- framleiðsla um 11.100 minka- skinn og 3.600 refaskinn á árinu, en það þýðir gjaldeyris- öflun upp á 24 til 26 milljónir króna. Þessar upplýsingar komu fram á athyglisverðri sýningu í anddyri verslunarhúss KÞ, einn mesta verslunardaginn fyrir jólin. Það voru Loðdýraræktarfélag Suður- Þingeyinga og Fóðurstöð KÞ sem stóðu fyrir sýningu á refaskinnum og minkaskinnum, sýnishornum af flestum afbrigðum sem ræktuð eru á svæðinu. Að sögn Vilhjálms Jónassonar, formanns Loðdýraræktarfélags Suður-Þingeyinga, sýndi fólk mikinn áhuga á að skoða skinnin. Enda gefst almenningi ekki á hverjum degi tækifæri til að skoða slík skinn sem seld eru beint til útlanda eftir verkun. Deildarstjóri Fóðurstöðvar KÞ er Jón Sveinn Þórólfsson. Stöðin framleiðir nú um 1.100 tonn á ári en helstu hráefnin eru um 750 tonn af fiskúrgangi og um 90 tonn af sláturúrgangi. Hjá forsvarsmönnum sýningar- innar kom fram að í heildina fást um 25 milljónir króna í gjaldeyri skila 25 milljónum í gjaldeyri fyrir framleiðsluna á svæðinu, og fyrir utan efni til nýbygginga er sáralitlu af gjaldeyri eytt til fram- leiðslunnar. Þar sem ekki eru aðstæður til að framleiða mjöl úr úrganginum sem fer í fóðrið, yrði að henda honum ef fóðurstöðv- arnar nýttu hann ekki. Þó rekstr- argrundvöllur refaræktar sé ekki góður í ár skilar hún þó gjaldeyri, mestmegnis úr hráefni sem ekki er hægt að nýta til annars. Einn refabændanna sagði að nú væri rekstrargrundvöllur búanna mjög slæmur en ef refabændur þrauk- uðu í 1-2 ár fengju þeir aftur vitlaust verð fyrir skinnin sín. IM Bandalag háskólamenntaðra , ríkisstarfsmanna: Arás á launafólk hrínt í komandi saimrnigum Bandalag háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna hefur mót- mælt harðlega gengisfellingu krónunnar nú fyrr í vikunni og hótar aðgerðum til að hrinda þeirri árás á launafólk sem þeir segja að gerð hafi verið með gengisfellingunni og tekju- öflunarfrumvörpum ríkis- stjórnarinnar. Samráðsfundur aðildarfélaga BHMR fundaði síðastliðinn mið- vikudag þar sem þessi mál voru rædd. I ályktun fundarins segir: „Samráðsfundur aðildarfélaga BHMR haldinn miðvikudaginn 4. janúar 1989 mótmælir harð- lega ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fella gengi íslensku krónunnar og reka þannig enn einu sinni erindi útflytjenda á kostnað launafólks. Ný tekjuöflunarfrum- vörp ríkisins og afnám samnings- réttar frá maí á síðasta ári hafa skert kaupmátt launafólks stór- lega. Aðildarfélög BHMR stefna að því að hrinda þessari árás í komandi samningum." Ulja María kjörin Norðlendingur ársins 1988 - af hlustendum RÚVAK Lilja María Snorradóttir sund- konan frækna úr Tindastóli var sl. þriðjudag kjörinn „Norð- lendingur ársins 1988“ af hlust- endum svæðisútvarpsins á Akureyri. Hlustendur hringdu inn af miklum móð og hlaut Lilja yfirburðakosningu. Útnefning þessi þarf vart að koma á óvart, árangur Lilju Maríu á Heimsleikum fatlaðra í Seoul sl. haust var glæsilegur, hún kom heim með eitt gull og tvö brons og er hún sannarlega vel að titli þessum komin. í samtali við Dag sagðist Lilja María vera ánægð með þessa útnefningu, sem sýndi það að Norðlendingar stæðu með sér. „Það er viss heiður að hljóta þennan titil. Annars kom mér þetta á óvart, það var búið að til- Norðlendingur ársins 1988, Lilja María Snorradóttir, með verðlauna- peningana þrjá sem hún vann í Seoul, eitt gull og tvö brons. Mynd: -bjb kynna á Rás 2 að þetta væri ekki fyrir Skagfirðinga og Húnvetn- inga, þar sem þeir ná ekki útsendingum svæðisútvarpsins, þannig að ég bjóst ekki við þessu,“ sagði Lilja María. Lilja var spurð hvað henni fyndist um útkomu sína í kjöri íþróttafréttamanna á íþrótta- manni ársins, en þar hlaut hún 12 stig og varð í 15. sæti. Lilja sagði að sér fyndist það vera í lagi. „Það skiptir mig svo sem ekki miklu, en það eina sem mér finnst við þetta er hvað það lentu fáar konur á listanum, við vorum bara þrjár. Það hljóta fleiri konur að hafa staðið sig vel í íþróttum á síðasta ári,“ sagði Lilja María að lokum, og óskar Dagur henni til hamingju með titilinn „Norð- lendingur ársins 1988“. -bjb

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.