Dagur


Dagur - 06.01.1989, Qupperneq 4

Dagur - 06.01.1989, Qupperneq 4
2 - HUOACJ - GOfir leunsi .8 4 - DAGUR - 6. janúar 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, FRIMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavlk vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Sveifluþjóðfélag í áramótaávarpi sínu til þjóðarinnar fjallaði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra m.a. um hinar miklu sveiflur, sem einkenna íslenskan þjóðarbúskap. Um þær sagði forsætisráðherra m.a.: „Þegar afli er mikill og gott verðlag á sjávar- afurðum erlendis, streymir fjármagnið inn í efna- hagslífið. Lífskjörin teljast þá með því besta sem þekkist á meðal þjóða. Útgerðin fær sér stærri og fullkomnari togara og nýjar og glæsilegar versl- anir opna. Einstaklingar og fjölskyldur byggja, kaupa nýja bifreið eða ferðast. En eins og nótt fylgir degi, dregst aflinn saman, uppspretta auðsins þornar. Fyrirtækin lenda í erfiðleikum með nýju tækin eða byggingarnar og einstakling- arnir og fjölskyldurnar ekki síður. Nú er ástandið að því leyti verra en fyrr, að fjármagnið tekur ekki þátt í erfiðleikunum ef ég má orða það svo; það flýtur ofan á eins og korktappinn, tryggt í bak og fyrir, hvað sem á gengur. “ Þessi orð forsætisráðherra lýsa íslenska efna- hagsvandanum í hnotskurn. Á góðæristímabilum vex þenslan í þjóðfélaginu upp úr öllu valdi og þegar samdráttur verður að nýju er engu líkara en skollin sé á kreppa, svo mikil eru viðbrigðin. Þjóðin er nýbúin að ganga í gegnum eitt góð- æristímabilið. Lífskjörin voru afar góð og fjárfestingaræðið í algleymingi. Enginn hikaði við að slá fjárfestingarlán ef þau á annað borð fengust. Afleiðingarnar blasa við hvarvetna. Á höfuðborgarsvæðinu er t.d. offramboð á verslun- ar- og skrifstofuhúsnæði svo mikið að líklega þyrfti ekki að byggja eina einustu verslunarhöll til viðbótar næstu áratugina. í fermetrafjölda er talið að þetta offramboð samsvari sjö til átta verslunarmiðstöðvum á stærð við Kringluna. En svo tók góðærið enda eins og jafnan áður. Tekjurnar minnkuðu og þar með hófst þrotlaus barátta við vanskil og vaxandi skuldir, því engir varasjóðir voru fyrir hendi. Fæstir höfðu verið svo framsýnir að leggja eitthvað til hliðar til mögru áranna. Þessi erfiða barátta stendur nú sem hæst. En fyrr en varir kemur „betri tíð með blóm í haga“, eins og þar stendur og fjármagn streym- ir á ný inn í þjóðfélagið. Og forsætisráðherra spyr þjóðina: „Hvað gerum við þá? Fáum við okkur stærri skip og fleiri bifreiðar, byggjum við stærri hús og glæsilegri verslunarhallir, eða tekst okkur íslend- ingum að læra af reynslunni; látum við vítin okk- ur til varnaðar verða?“ Svörin við þessum spurningum munu fást inn- an nokkurra ára. En flestum er vonandi ljóst að við verðum að láta dýrkeypta reynslu í þessum efnum okkur að kenningu verða. Eða eins og forsætisráðherra komst að orði í ávarpi sínu: „íslenskt sjálfstæði þolir ekki margar kollsteypur enn." BB. Akureyri: SÁÁ-N opnar skrifstofu og ráðgjafarþjónustu - Ingjaldur Arnþórsson ráðinn starfsmaður Frá stofnfundi Norðurlandsdeildar SÁÁ, sem haldinn var í Borgarbíói í byrjun október 1988. í dag, réttum þremur mánuðum síðar, verður skrif- stofa samtakanna formlega opnuð. Samtök áhugafólks um áfeng- isvarnir á Norðurlandi opna í dag klukkan 14.00 skrifstofu og ráðgjafarþjónustu að Gler- árgötu 28, 2. hæð. Starfsmaður hefur verið ráðinn að skrif- stofu samtakanna, sem er Ingjaldur Arnþórsson. Sú þjónusta sem boðið verður upp á er hin fyrsta sinnar teg- undar utan Reykjavíkur. Um þessar mundir er um ár liðið frá því fyrst var farið að ræða hugmynd að þeirri starfsemi sem nú er að fara í gang, en samtökin, SÁÁ-N voru formlega stofnuð síðastliðið haust. Ekki hefur í langan tíma verið boðið upp á þjónustu af því tagi sem fyrirhug- að er að veita á skrifstofu sam- takanna hér á Norðurlandi og fólk sem átt hefur við áfeng- isvandamál að stríða hefur þurft að leita sér aðstoðar í Reykjavík. „Þetta er merkur áfangi og við væntum mikils af honum, við höfum í rauninni stefnt að þessu í eitt ár,“ sagði Stefán B. Einars- son einn af hvatamönnum þess að samtökin voru stofnuð. í starfi ráðgjafar og leiðbein- ingarstöðvarinnar verður rík áhersla lögð á ráðgjöf til þeirra er við áfengisvandamál eiga að etja á einn eða annan hátt og verður sérstök áhersla lögð á málefni fjölskyldunnar. Ingjaldur Arnþórsson starfs- maður samtakanna á Norður- landi hefur víðtæka reynslu á þessu sviði, en hann hefur starfað sem leiðbeinandi hjá SÁÁ og unnið að stofnun meðferðar- stöðva í Svíþjóð. Þá hefur hann og annast fræðslunámskeið í Fær- eyjum og á Grænlandi. Akureyrarbær lagði. fram 150.000 krónur til samtakanna og hefur það fé verið notað til að koma starfseminni í gang, en stjórn samtakanna mun á næstu dögum leita til einstaklinga og fyrirtækja um fjárstuðning. Margir hafa sýnt málefninu mik- inn velvilja og lagt fram fjárupp- hæðir til starfsins. Við opnunina í dag mun Davíð Kristjánsson formaður SÁÁ-N halda stutt erindi sem og einnig Ingjaldur Arnþórsson og Þórar- inn Tyrfingsson læknir. Á eftir verður fyrirspurnum svarað. mþþ Heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu: Forsetinn heiðrar 21 íslending Forseti íslands hefur samkvæmt tillögu orðunefndar sæmt eftir- talda íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu: Birgittu Spur, safnstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í þágu höggmyndlistar. Björgvin Frederiksen, iðnrek- anda, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í þágu iðnaðarins. Bryndísi Víglundsdóttur, skóla- stjóra, Garðabæ, riddarakrossi fyrir störf í þágu þroskaheftra. Egil Ólafsson, bónda, Hnjóti, Örlygshöfn, Barðastrandarsýslu, riddarakrossi fyrir söfnun og vörslu sögulegra minja. Elísabetu G.K. Þórólfsdóttur, húsfreyju, Arnarbæli, Fells- strönd, Dalasýslu, riddarakrossi fyrir húsmóður- og uppeldisstörf. Guðjón Magnússon, formann Rauða kross Islands, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að líkn- armálum. Guðrúnu Magnússon, sendi- herrafrú, Reykjavík, riddara- krossi fyrir störf í opinbera þágu. Herstein Pálsson, fv. ritstjóra, Seltjarnarnesi, riddarakrossi fyrir ritstörf. Hörð Sigurgestsson, forstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að samgöngumálum. Jóhannes Stefánsson, fv. forseta bæjarstjórnar, Neskaupstað, riddarakrossi fyrir störf að bæjar- og atvinnumálum. Jón Pórarinsson, tónskáld, Reykjavík, stórriddarakrossi fyr- ir störf að tónlistarmálum. Jónas Jónsson, búnaðarmála- stjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í þágu landbúnaðarins. Jórunni Viðar, tónskáld, Reykja- vík, riddarakrossi fyrir störf að tónlistarmálum. Kjartan Guðnason, formann Sambands íslenskra berkla- og brjósholssjúklinga, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að félags- og tryggingamálum. Margréti Guðnadóttur, prófess- or, Reykjavík, riddarakrossi fyrir kennslu- og vísindastörf. Pál Flygenring, ráðuneytisstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í opinbera þágu. Sigurð J. Briem, deildarstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í opinbera þágu. Sigurlín Gunnarsdóttur, hjúkr- unarfræðing, Reykjavík, riddara- krossi fyrir störf í þágu sjúkra. Skapta Áskelssyni, skipasmið, Akureyri, riddarakrossi fyrir brautryðjandastarf í skipasmíð- um. Vilhjálm Jónsson, forstjóra, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að atvinnumálum. Séra Þorstein Jóhannesson, fv. prófast, Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að krikjumálum. fálkaorðu fyrir brautryðjendastarf í skipasmíðum. Mynd: GB

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.