Dagur - 06.01.1989, Page 15
6. janúar 1989 - ÐAGUR- t5
Knattspyrna:
Bírgír farínn og Jónasi sagt að hætta
mikil blóðtaka fyrir Þórsliðið - 4 lykilmenn úr leik
Það á ekki af Þórsliðinu að
ganga. Birgir Skúlason, varn-
armaðurinn sterki, hefur
ákveðið að hætta að Ieika með
félaginu og og læknar hafa til-
kynnt Jónasi Róbertssyni að
hann verði að hætta í knatt-
spyrnunni vegna hnémeiðsla.
Þar með hafa fjórir fastamenn
úr Iiðinu seinasta sumar helst
úr lestinni, þ.e. Halldór
Áskelsson, Guðmundur Valur
Sigurðsson og nú Birgir Skúla-
son og Jónas Róbertsson.
Jónas Róbertsson var skorinn
upp í hné skömmu fyrir jól og nú
hafa læknar tilkynnt honum að ef
hann hætti ekki knattspyrnuiðk-
un gæti hann átt á hættu að enda
með staurfót.
Ástæðan er sú að þegar var
búið að taka úr Jónasi liðþófann
og nú kom í ljós að brjóskið í
hnénu er líka sprungið. Þar með
er álagið of mikið á hnéð til að
standast álag við íþróttaiðkun.
Jónas er einn af leikreyndustu
mönnum Þórsliðsins með 122 1.
deildarleiki og hefur einungis Nói
Björnsson leikið fleiri leiki eða
129. Það er því stórt skarð sem
Jónas skilur eftir sig.
Birgir Skúlason lék með
Völsungi um árabil en skipti yfir
til Þórsara í fyrra og var eini leik-
maðurinn, fyrir utan Nóa
Björnsson, sem lék alla leiki
Þórsliðsins í 1. deildinni í fyrra-
sumar.
Ástæðuna fyrir því að hann
ætli ekki að leika með Þórsurum
næsta sumar segir Birgir vera að
hann sé þreyttur á því að þeytast
landshluta á milli vegna fótbolt-
ans. „Ég bý og starfa fyrir sunnan
og það er þreytandi að taka sig
alltaf upp á vorin og fiyta norður
í 3-4 rnánuði," sagði Birgir í sam-
tali við Dag í gær.
Hann segist ekki vera búinn að
gera upp við sig fyrir hvaða félag
hann muni spila næsta sumar en
það verði eitthvert 1. deildarfélag
á Reykjavíkursvæðinu. „Það
hafa nokkur félög sett sig í sam-
band við mig en ég ætla að taka
mér nægan tíma til að ákveða
mig,“ sagði Birgir.
Það er víst ekki hægt að segja
annað en mannaflótti herji nú á
Þórsliðið. Þeir hafa nú þegar
misst fjóra lykilmenn; Halldór
Áskelsson til Valsmanna, Guð-
mund Val Sigurðsson til FH, og
nú Birgi Skúlason og Jónas
Róbertsson. Einnig bendir nú
margt til þess að Siguróli Krist-
Hver verður íþrótta-
maður KA 1988?
- úrslit gerð kunn annað kvöld
Á morgun verður gert kunnugt
hver hlítur titilinn íþróttamað-
ur KA 1988. Er þetta í fyrsta
skipti í sögu félagsins sem þessi
útnefning fer fram. í tilefni
stórafmælis KA á síðasta ári,
gaf KA-klúbburinn í Reykja-
vík veglegan farandbikar sem
afhentur verður að þessu
tilefni, auk þess sem íþrótta-
maður KA hvers árs fær minni
bikar til eignar.
Kjör íþróttamanns KA hefur
þegar farið fram og hefur þremur
efstu mönnum verið boðið til
hófs í KA-heimilinu á morgun.
Klukkan 21.30 verður húsið opn-
að og geta þá KA-menn og aðrir
velunnarar komið og fylgst með
þegar úrslitin verða gerð kunn
kl. 22.00. Eru félagsmenn hvattir
til að mæta og samfagna á þess-
um tímamótum.
Auk þess að heiðra íþrótta-
mennina, verður aðstandendum
KA-bókarinnar sem kom út fyrir
jól veitt viðurkenning fyrir vel
unnin störf. Bókinni hefur verið
vel tekið enda er hún hin vegleg-
asta í alla staði. VG
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Guðmundur skorar á
Björn Axelsson
Guðmundur Lárusson fór létt með Stefán Arnaldsson í getrauna-
leiknum fyrir jól. Að vísu var Guðmundur ekki nema með fjóra
rétta „en sigur er alltaf sigur,“ eins og hann orðaði það sjálfur.l
Guðmundur hefur nú skorað á Björn Axelsson golfleikara og
„rjúpnaskyttu" og segist Guðmundur vera þess fullviss að hann
geti bætt enn einum sigrinum í safnið.
Núna er það bikarkeppnin sem er á dagskrá og má þar búast
við mörgum óvæntum úrslitum, eins og oft kemur fyrir í bikarn-
um. Vert er að benda á leik Bradford og Tottenham sem Ríkis-
sjónvarpið sýnir í beinni útsendingu á morgun laugardag því
búast má við að Guðni Bergsson leiki þann leik, eins og sein-
ustu leiki Tottenhamliðsins.
Guðmundur:
Barnsley-Chelsea 2
Birmingham-Wimbledon 1
Bradford-Tottenham 1
Brighton-Leeds x
Derby-Southampton 1
Man.Utd.-Q.P.R. 2
Millwall-Luton 1
Newcastle-Watford x
Portsmouth-Swindon 1
Stoke-Crystal Palace x
W.B.A.-Everton 2
Sunderland-Oxford 1
Björn:
Barnsley-Chelsea 1
Birmingham-Wimbledon 2
Bradford-Tottenham 1
Brighton-Leeds x
Derby-Southampton 1
Man.Utd.-Q.P.R. 2
Millwall-Luton 1
Newcastle-Watford 1
Portsmouth-Swindon 2
Stoke-Crystal Palace x
W.B.A.-Everton x
Sunderland-Oxford 2
1X21X21X21X21X2 1X21X21X21X2
Birgir Skúlason og Jónas Róbertsson munu ekki klæðast Þórspeysunni næsta sumar.
Mynd: TLV
jánsson gangi til liðs við Vals-
menn á Reyðarfirði og leiki þá í
3. deildinni næsta sumar.
Á móti kemur að með júgó-
slavneska þjálfaranum kemur
a.m.k.einn leikmaður og svo má
ekki gleyma því að Þórsarar eiga
marga unga og efnilega leikmenn
sem hafa verið að banka á dyrnar
hjá meistaraflokknum. Þar að
auki eru fyrir hjá félaginu menn
eins og Nói Björnsson, Kristján
Kristjánsson, Júlíus Tryggvason,
Hlynur Birgisson, Bjarni Svein-
björnsson og fleiri leikreyndir
jaxlar.
Iþróttir helgarinnar:
Aknreyrarmót UFA
í fijálsum íþróttum
- handbolti og blak fyrir sunnan
Margir UFA-félaga eru ungir að
árum en hafa æft vel í vetur.
Ungmennasamband Vestur-
Húnvetninga varð að lúta í
lægra haldi gegn UBK í Bikar-
keppni KKI sl. miðvikudags-
kvöld. Þetta var fyrri leikur
liðanna og var leikinn á Húna-
völlum. UBK vann með 59
stigum gegn 47 stigum USVH.
Staðan í hálfleik var 35:24,
Blikunum í vil.
Árangur V-Húnvetninga verð-
ur að teljast þokkalegur, þar sem
Blikar leika í 1. deild, en þeir eru
ekki með lið í íslandsmóti.
Leikurinn var jafn fyrstu mínút-
urnar og um miðjan fyrri hálf-
leikinn var staðan 13:11 fyrir
UBK. Þá fóru gestirnir að herða
á og juku forskot sitt jafnt og þétt
út hálfleikinn.
Það sem hæst ber á íþrótta-
sviðinu um helgina er Akur-
eyrarmót UFA í frjálsum
íjþróttum sem haldið verður í
Iþróttahöllinni á laugardag
kl. 14. En íþróttafélögin eru
ýmislegt annað að bardúsa.
Þórsarar halda t.d. Þrettánda-
gleði á Þórssvæðinu í kvöld og
KA heiðrar íþróttamann KA
fyrir þetta árið í KA-heimilinu
Gunnarsson 4, Gunnar Þórarins-
son 2 og Birgir Theodórsson 1
á laugardagskvöldið.
Akureyrarmótið í frjálsum
íþróttum innanhúss á vegum hins
nýja ungmennafélags, UFA, er
hið fyrsta í mörg herrans ár. Þar
verður keppt í ýmsum greinum
m.a. hlaupum, stökkum og köst-
um og eru keppendur á öllum
aldri.
KA-liðið í handknattleik held-
ur suður um heiðar og keppir við
Víking í Laugardalshöllinni kl.
20 á sunnudagskvöldið og er það
seinasti leikur liðsins fram í mars
vegna B-heimsmeistarkeppninn-
ar.
KA-liðin í blaki keppa tvo leiki
um helgina í Reykjavík. Strák-
arnir leika gegn Fram á laugar-
dag í Hagaskóla kl. 14 og stelp-
urnar gegn Víkingi á sama stað á
sunnudeginum.
stig. -bjb
íþróttamaður
Norðurlands 1988
Nafn íþróttamanns: íþróttagrein:
L
2.
3.
|/ o r»|Vj •
USVH lá fyrir UBK
- í bikarkeppni KKÍ
Blikarnir héldu uppteknum
hætti í byrjun seinni hálfleiks á
meðan ekkert gekk upp hjá Hún-
vetningunum. Mestur varð mun-
urinn 22 stig í síðari hálfleik og
varð þá ljóst hvernig úrslit yrðu.
Síðustu mínútur leiksins tókst
heimamönnum að klóra í bakk-
ann og minnka muninn í 12 stig
áður en blásið var til leiksloka.
Stigahæstur Húnvetninga var
Albert Jónsson með 19 stig.
Aðrir stigaskorarar voru Ingi
Bjarnason 10, Grétar Eggertsson
7, Jóhann Albertsson 4, Örn
4.
5.
Nafn:
Sími
Heimilisfang:
Sendið til: íþróttamaður Norðurlands 1988
c/o Dagur Strandgötu 31 600 Akureyri
Skilafrestur er til 18. janúar 1989.