Dagur - 07.01.1989, Side 7
poppsíðan
\j Umsjón: Valur Sæmundsson.
7. janúar 1989 - DAGUR -'7
Phil Collins 4. hluti:
Hitt og þetta um
- þetta er lokaþáttur
Stórhljómsveitin Lost verður að sjálfsögðu meðal þeirra sem fram koma á stórtónleikunum í Borgarbíói. Stórathyglisvert.
Er tónlistarlífiö á Akureyri að vakna af dvala?:
Stórtónleikar íBorgaitíói
- flestar hljómsveitir bæjarins koma fram
Það verða haldnir stórtónleikar á
Akureyri í næstu viku þar sem fram
koma að mér skilst allar eða a.m.k.
allflestar starfandi hljómsveitir í
bænum. Tónleikar þessir verða í
Borgarbíói og eftir því sem ég hef
fregnað eiga þeir að vera á miðviku-
dagskvöldið. Þó held ég að affara-
sælast sé fyrir áhugafólk að fylgjast
grannt með auglýsingum um uppá-
komuna. En eins og ég gat um er
meiningin að starfandi hljómsveitir í
bænum komi fram. Vonandi allar.
Má þar nefna númer eins og Lost,
sem óþarfi ætti að vera að kynna,
Bíó, sem mér skilst að hafi lent í
öðru sæti í hljómsveitakeppninni á
Melgerðismelum um verslunar-
mannahelgina og vonir standa til að
Drykkir innbyrðis komi fram en þeir
eru búnir að starfa saman í allnokk-
ur ár og eru þekktir fyrir vandaða
tónlist og vandaðan flutning. Síðast
en ekki síst mun stórsveitin Mesta
furða troða upp. Þrátt fyrir að dreng-
irnir hafi ekki oft komið fram, er ég
„næsta viss“ um að þeir eigi eftir að
ná langt.
Þá eru upptalin þau nöfn sem ég hef
heyrt getið varðandi konsert
þennan. Að sjálfsögöu verða allir að
koma, það þýðir ekkert annað.
Rjóminn af akureyrsku tónlistarl ífi
samankominn á einum stað. Ekki
skemmir það fyrir að líklega er
Borgarbíó sennilega albesti staður
fyrir svona viðburð sem finnanlegur
er í bænum. Ef mönnum leiðist geta
þeir þá bara hæglega fengið sér
hænublund I bólstruðum hægindum
staðarins. En til þess kemur þó
varla.
var í leðurjakka en ekki í jakkaföt-
um. Engu máli skipti þótt Phil
útskýrði að leðurjakkinn væri dýrari
heldur en allir jakkarnir sem í veit-
ingahúsinu væru.
En annars hefur Phil gert svona hitt
og þetta. Lagið Easy lover með
honum og Philip Bailey varð óhemju
vinsælt, sömu sögu er að segja af
laginu Don’t take a look at me now
úr kvikmynd hverrar nafn ég man
ekki í augnablikinu. Phil hefureinn-
ig trommað með hinum og þessum,
en þó ekki eins mikið með neinum
eins og bræðingshljómsveitinni
Brand X.
Phil er líka mjög eftirsóttur sem
upptökustjóri og frumraun hans á
því sviði var að stjórna upptökum á
sólóplötu Annifrid Lyngstad úr
ABBA. Síðustu árin hefur hann ver-
ið hægri hönd Eric Clapton, svona
aðallega. Þá kemur Genesis saman
við og við og gerir plötu.
Phil sneri sér að kvikmyndaleik á
síðasta ári þegar hann lék titilhlut-
verkið í kvikmyndinni Buster. Nokk-
ur lög úr umræddri mynd hafa náð
vinsældum, þó engin viðlíka miklum
og lög Collins, Two hearts og
Groovie kind of love (sem er að vísu
ekki eftir hann sjálfan). Þar með
erum við komin í hring, þar sem
umfjöllunin hófst einmitt á þessu
tauti um Buster.
Þá tel ég umfjöllun um Phil Collins
vera lokið. Einhver atriði hafa ef-
laust orðið útundan enda ferill
mannsins orðinn langur og litríkur.
Það verður bara að hafa það. Það
sakar þó ekki að geta þess í lokin
að Phil er mikill áhugamaður um
bíla og á 20 slíka sjálfur.
Ég var nokkurn veginn búinn að
rekja það helsta úr sólóferli Phil
Collins í fyrri greinum en nokkrir
lausir endar eru þó enn eftir. Þegar
við skildum við Collins fyrir jólin, var
þriðja sólóplatan hans nýkomin út.
Hún hét No jacket required og er
nafnið þannig til komið að Phil var
eitt sinn meinaður aðgangur að f ínu
veitingahúsi vegna þess að hann
Spéfuglinn Phil Collins er fyrirliði Genesis í dag. Hljómsveitin kemur saman þegar hann hefur tíma.
Uppgjör ársins 1988:
Glæsilegur árangur Sykurmola
- í Melody Maker og NME
að Pixies skyldi verða fyrir valinu
því að undir lok ársins komst ég yfir
plötuna með sveitinni. Pixies er
nokkuð góð hljómsveit í sjálfu sér,
hrár og kraftmikill flutningur ein-
kennir sveitina, kannski óþarflega
hrár á köflum fyrir minn smekk.
Þessi plata sem gerði það að verk-
um að Pixies voru valdir besta
hljómsveit nýliöins árs í Bretlandi,
heitir Surfer Rosa og hefur lítillega
fengist í verslunum á Akureyri.
Sérstök ástæða er hins vegar til að
vekja athygli á hljómdisknum með
Pixies. Þar er nefnilega að finna,
auk plötunnar Surfer Rosa, plötu
Pixies síðan í fyrra. Hún heitir
Come on Pilgrim og er ekki alveg
eins hrá eins og Surfer Rosa, að
mínu mati. Það er semsé veglegri
bónus á þessum diski en flestum
öðrum. Heil plata.
En i sambandi við vinsældakosn-
ingarnar þá mun ég greina nánar frá
niðurstöðum þeirra er ég hef fengið
þær í hendur.
þá í breskum popptímaritum. Það
þarf því ekki nauðsynlega að koma
mjög á óvart að þeir skuli vera ofar-
lega á blaði þegar árið 1988 er gert
upp í viðkomandi blöðum. Mér hafa
borist til eyrna tíðindi af uppgjöri
tveggja þekktustu tímaritanna,
nefnilega New Musical Express
(NME) og Melody Maker. Það er
kannski eins og að bera bakka í full-
an lækinn (eða eitthvað í þá áttina)
að fjalla um þessar kosningar áður
en ég hef barið þær augum í heild
sinni en ég get ekki stillt mig um að
minnast á kosningar á bestu hljóm-
sveitum ársins í þessum blöðum.
Sykurmolarnir náðu nefnilega þeim
glæsilega árangri að vera valdir
önnur besta hljómsveit ársins / bád-
um þessum blöðum. Hreint út sagt
stórkostlegur árangur. NME og Mel-
ody Maker voru einnig sammála um
hver besta hljómsveit ársins 1988
væri. Hún heitir Pixies og er senni-
lega fremur lítt þekkt hér á landi.
Það kom mér skemmtilega á óvart
Það er kunnara en frá þurfi að
greina, að Sykurmolarnir eru í miklu
uppáhaldi hjá Englendingum og má
nær vikulega lesa lofgerðarrullu um
Vinsældalisti
Rás 2
- vikuna 30/12 1988-6/1 1989
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1.) (6) Þig bara þig Sálin hans Jóns mins
2. (2.) (10) Handle with care Traveling Wilburys
3. (3.) (3) Bless
4. (5.) (3) Angel of Harlem U2
5. (6.) (4) Missingyou
6. (8.) (5) Gott
7. (5.) (5) Meö vottorð i leikfimi Bjartmar Guðlaugsson
8. (3.) (9) Það er svo undarlegt Bítlavinafélagið
9. (4.) (5) Hólmfríður Júliusdóttir Ný Dönsk
10. (9.) (6) Froðan ... Geiri Sæm & Hunangstunglið
11. (10) (6) Frostrós
12. (13) (4) Loco in Acapulco The Four Tops
13. (16) (3) Geta pabbar ekki grátið Síðan skein sól
14. (14) (6) Girl you know it’s true Milli Vanilli
15. (17) (4) Ekki segja góða nótt Valgeir Guðjónsson
16. (26) (4) Lastnight Traveling Wilburys
17. (11) (9) Two hearts
18. (12) (10) I’m gonna be (500 miles) .... The Proclaimers
19. (28) (2) Dagar
20. (20) (3) Grímfreður