Dagur - 07.01.1989, Page 8

Dagur - 07.01.1989, Page 8
8 - DAGUR - 7. janúar 1989 Helgarviðtal við Margreti Boasdottur og sr. Kristján Val Ingólfsson: Helgarviðtalið í dag er við tvo Suður-Pingeyinga, hjónin Margréti Bóasdóttur söng- konu og sr. Kristján Val Ingólfsson á Grenjaðarstað. Práttfyrir miklar annir hjá báð- um á aðventunni, en meðal annars stóðu þá sem hœst æfingar á óperunni Amal og nœt- urgestirnir, fannst dagsstund til að veita blaðamanni Dags umbeðið viðtal. Hannfékk það svona á tilfinninguna að þau hjónfyndu yfirleitt tíma til að koma hlutunum í verk. Pað var tekið vel á móti gestinum og ekkert „stress“ merkjanlegt á heimilisfólkinu. Pó var húsmóðirin aðfara á söngœfingu með kirkjukórunum í Kelduhverfi og Öxarfirði um kvöldið og húsbóndinn, sem ætlaði að vera hjá drengjunum þeirra tveim, Bóas er 6 ára og Benedikt ársgamall, átti eftir að semja rœðurfyrir níu messur um hátíðarnar. Pað var sr. Kristján Valur sem fyrst var spurður í þaula um œsku og uppvaxtarár. „Ég er fæddur og uppalinn á Grenivík og foreldrar mínir eiga heima þar. Þau eru Ingólfur Bene- diktsson og Hólmfríður Björns- dóttir. Hann er frá Jarlsstöðum í Höfðahverfi og hún er frá Nolli. Faðir minn starfaði lengst af sem málari og við áttum heima í Dal, rétt ofan við Grenivík. Við syst- kinin erum tíu og yfirleitt erum við á þessu horni, á svæðinu frá Grenivík upp í Mývatnssveit, með viðkomu á Akureyri. Kom hingað sem fjósastrákur Já, ég tel að það hafi verið mjög gott að alast upp þarna. Það er þó alltaf álitamál, af því ég hef ekki prófað að alast upp annars- staðar. Þess ber að vísu að geta að í haust eru 27 ár síðan ég kom í þetta hús og hef verið hér við- loðandi síðan, svo ég er enginn nýgræðingur hér. Ég kom hingað sem fjósastrákur þegar ég var nýfermdur. Er ég hafði lokið fulln- aðarprófi í barnaskóla var ekki tii í dæminu að ég færi eitthvað til að læra meira, því ekki voru til neinir peningar, t.d. til að borga uppihald á Laugum. En þá gafst þessi kostur, bræður mínir tveir, tvíburar, voru búnir að vera hér þremur árum áður og hér lærðu þeir undir Laugaskóla, jafnhliða bústörfum. Ég kom því hér til að vera í fjósinu og læra undir Laugaskóla.“ - Kviknaði áhugi þinn á prest- skap hérna? „Þegar ég var 14 ára, var það einn desemberdag, hér frammi í eldhúsinu, sem ég ákvað að verða prestur. Áður ætlaði ég að verða læknir og var búinn að skera eitthvað í tuskudúkkur og setja súpulit í sárið. Ef ég sá blóð þá leið alltaf yfir mig. Að vísu lagaðist þetta síðar meir, þegar ég fór að vinna á sláturhúsi en samt taldi ég læknisstarfið ekki gáfulegan kost fyrir mig. Forveri minn hér á staðnum á sinn þátt í þessu vegna þess að hann var einhverntíma búinn að segja: „Ja, þú verður náttúrlega prestur.“ Ég man vel eftir þegar ég stóð við eldhúsbekkinn, sem nú er horfinn, og ákvað að verða prestur. Þegar ég fór að Laugum fylgd- umst við eiginlega öll að héðan, Halldór Sigurðsson er jafnaldri minn og næsta vetur var sr. Sigurður skólastjóri í veikinda- forföllum Sigurðar Kristjánsson- ar. Að loknu námi við Lauga- skóla fór ég í Menntaskólann á Laugarvatni og útskrifaðist þar 1968 og 1974 lauk ég námi við guðfræðideildina.“ - Hvar kynntist þú konu þinni? „Ja, ég er nú enn að kynnast henni. Ég sá hana fyrst þegar hún var 14 ára, hún var samtíða syst- ur minni á Laugum. En svo sung- um við saman í Þingeyingakórn- um í Reykjavík og það var ákveðinn hópur af Laugamönn- um sem hélt saman fyrir sunnan. Við kynntumst í kórnum sem var undir stjórn Sigríðar Schiöth. Hún stjórnaði þó ekki beinlínis í þessu en hefði vafalaust gert það ef hún hefði átt þess kost. Síðan sungum við saman í Kór Lang- holtskirkju og hann hefur verið dálítil hjúskaparmiðlun, að vísu ekki að yfirlögðu ráði. Við gift- um okkur eiginlega út úr kórnum. Annars höfum við aldrei verið rekin úr kórnum og teljum því að við séum félagar í honum enn.“ Afskaplega góður tími á Raufarhöfn Nú er svo langt komið sögunni að best er að biðja Margréti að byrja á byrjuninni og segja frá sínum uppvaxtarárum, skólagöngu og framhaldsnámi. „Ég er uppalin í Mývatnssveit, elst níu systkina. Ég get rakið föðurætt mína í Grenjaðarstað, sonardóttir sr. Jóns Jónssonar fluttist austur í Reyðarfjörð og giftist langafa mínum. Foreldrar mínir eru Kristín Sigfúsdóttir frá Vogum og Bóas Gunnarsson, verkstjóri hjá Kísiliðjunni. Að loknu námi í Laugaskóla fór ég í Kennaraskólann en stundaði tónlistarnám samhliða og að loknu prófi í Kennara- skólanum sneri ég mér eingöngu að tónlistarnámi. Fór í tónmennta- kennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík og hélt áfram ein- söngsnámi, sem ég hafði byrjað áður við Tónlistarskólann í Kópa- vogi, og lauk burtfararprófi úr þessum tveimur skólum 1975. Þá fluttist ég til Raufarhafnar en Kristján Valur hóf störf þar haustið áður. Þar vorum við til haustsins 1977 og það var afskap- lega góður tími. Á Raufarhöfn býr gott fólk og þar er mjög gott að starfa. Frá Raufarhöfn fórum við til Þýskalands. Ég stundaði nám við tónlistarháskólann í Heidelberg- Mannheim, hjá ágætis kennur- um, og lauk einsöngskennara- prófi og svokölluðu konsertprófi. Einnig stundaði ég sérnám í ljóðasöng við Tónlistarháskólann í Stuttgart. Samhliða náminu kenndi ég einsöng og raddþjáif- aði kóra. Strax fyrsta árið fékk ég tækifæri til að syngja opinberlega og það hlóð utan á sig svo þetta var orðið gífurlega mikið starf. Síðustu tvö árin var ég ekki í námi en vann sem söngkona og kennari." - Starfarðu ekki, að hluta til, enn sem söngkona í Þýskalandi? „Þegar maður dvelur svona lengi festir maður rætur á vissan hátt og fær tengsl við músíkfólk sem heldur áfram að færa upp sína músík. Það er mjög ánægju- legt að þetta fólk hefur leitað til mín áfram og einnig hefur verið bent á mig annars staðar frá. Þannig að þetta hefur haldið áfram og eins og þetta hefur þró- ast gæti ég farið oftar út til að syngja en ég geri. En ég hef hugs- að mér, að ef ég gæti farið tvisvar á ári, fyrir sex til sjö tónleika í hvert skipti, er það afskaplega mikilvægt til að halda mér í formi sem söngkona. Þó ég geti ekki kvartað yfir verkefnaleysi hér, segir það sig sjálft að það er ekki hægt að bera sarhan aðstæður, og ekki heldur hefð á flutningi stærri kirkjulegra verka í Þýskalandi, sem er meiri en nokkurntíma get- ur orðið hér. Þetta eru verk sem krefjast yfirleitt þó nokkuð stórs kórs, einsöngvara og hljómsveit- ar. Líka hef ég unnið með píanist- um úti og okkur hefur tekist að halda því samstarfi með hléum. Núna í nóvember fór ég út og söng m.a. ferna ljóðatónleika. Það gerir langmestar kröfur til manns af öllu, að syngja heila tónleika með kannski 20-25 mis- munandi verkefnum.“ Okkur langaði bæði að læra meira En sr. Kristján Valur stundaði einnig framhaldsnám í Þýska- landi. „Þetta byrjaði með því að meðan ég var í háskólanum stundaði ég sérnám í messusöng og söng í tíðagerðum hjá dr. Róbert Abraham Ottosyni. Hann var að reyna að búa til úr mér þann aðila sem leiðir þennan gamla söng. Dr. Róbert dó fyrir aldur fram áður en ég lauk þessu námi og ég ákvað þá að reyna einhvern tíma að komast í þá aðstöðu að ég gæti klárað það. Eftir að við komum til Raufar- hafnar fórum við að hugsa um hvernig við gætum staðið að þessu því okkur langaði bæði að fara og læra meira. Ég sótti um styrk frá Heimsráði kirkna í Genf, sem hér hefur ranglega verið nefnt Alkirkjuráðið. Eg fékk styrk til að læra svokölluð lítúrgísk fræði. Þetta er sérsvið sem ekki er auðvelt að fá aðgang að, en eftir að ég var búinn að skrifa til um 20 háskóla þá valdi ég þrjá úr og svo ákváðu þeir sem veittu styrkinn endanlega hvert ég færi. Margrét gat ekki ákveðið hvert hún færi fyrr en búið var að ganga frá þessu en okkur reyndist mjög vel að fara til Heidelberg. Ég stundaði einnig almennt kennimannlegt nám, sem við get- um kallað hagnýta guðfræði, og var undir handarjaðri prófessors sem leiddi sjálfstæða safnaðar- þjónustustofnun þar sem stúd- entum er kennt skipulag og upp- bygging safnaðarþjónustu. Þetta nám sem ég stundaði var mjög hagnýtt og miklu betra heldur en ég hafði sjálfur haft vit á að hugsa mér að gæti orðið. Ég fékk styrk í fimm ár og þegar tímar liðu fram fór ég að vinna að doktors- ritgerð sem fjallar um þróun guðsþjónustunnar hér á íslandi og þá möguleika sem að helgi- siðabækur geyma.“ Farprestur á ísafirði „Það var orðið að ýmsu leyti mjög áríðandi að við kæmum okkur heim 1985, m.a. af fjár- hagsástæðum. Á þessum sama tíma flutti aðalkennarinn minn til Rúmeníu. Ég gat lagt það sem ég var með af ritgerðinni fram sem doktorsritgerð, en að mínum dómi var lokakafli þessarar rit- gerðar alls ekki búinn. Ég var þeirrar skoðunar að ef ég kláraði svona^ án þess að Ijúka við þetta þá mundi ég aldrei gera það. Því hafnaði ég þessum möguleika og ákvað að fara út seinna, og í haust fór ég út til að tala við pró- fessora um að stefna að því að Ijúka þessu á næsta ári. Þetta er búið að taka lengri tíma en ég hugsaði mér en það er þannig að maður hleypur ekkert í þetta frá öðrum störfum. Presturinn á ísafirði hélt til tveggja ára framhaldsnáms 1985 og þá flytjum við til ísafjarðar, ég í embætti farprests. Það er mjög einkennilegt að koma frá útlönd- um á stað sem maður hefur aldrei komið á áður og vera kominn heim. Allir sem hafa sofið undir súð, eins og ég hef gert, verða svo glaðir þegar þeir koma á ísafjörð. Það er svo notalegt að hafa svona þykk og stór fjöll í kring um sig.“ „Svo er ísafjörður svo mikil heimsborg, en líka íslensk og hjartahlý," segir Margrét og Kristján samsinnir því, segir að Isafjörður sé sérstakur heimur og stórkostlegur. Sr. Kristján Valur þjónaði ekki sem farprestur nema eitt ár á ísa- firði því nú fóru að gerast tíðindi, bæði Húsavíkurprestakall og Grenjaðarstaðarprestakall losn- uðu sumarið 1986. Var spurning um hvort þeirra ætti að sækja? „Það var stór spurning og tók langan tíma að taka ákvörðun. Hér eru 747 manns, auk 120 nemenda við Laugaskóla sem ég vanræki algjörlega og hef alltaf slæma samvisku útaf. Hér hef ég yfirsýn yfir það sem ég er að gera og get hugsanlega skipulagt það þannig að verkefnið sé viðráðan- legt. Jafnvel skipulagt^ það þannig, eins og ég hugsaði mér, að ég hefði líka tíma til að ganga frá því sem ég var að gera áður. Það eru líka vissir hlutir sem ég hef áhuga á að gera út á við og ég hef tíma til hérna. Hinsvegar er Húsavík staður sem krefst alls.“ Auk Grenjaðarstaðakirkju þjónar sr. Kristján Valur Nes- kirkju í Aðaldal, Einarsstaða- kirkju í Reykjadal og Þverár- kirku í Laxárdal. „Þverá er létt sókn en þar er að vísu kirkjusókn betri en gerist annars staðar í ver- öldinni því þar er aldrei minna en 120% kirkjusókn og yfir 200%, en það er ekki messað oftar en fjórum sinnum á ári.“ Ætlum að verða samferða „Þegar maður er búinn að búa lengi í útlöndum og á auk þess lítil börn, finnst okkur það for- réttindi að búa úti í sveit, hafa grænt gras í kring um húsið og vakna við lóusöng," segir Mar- grét er Kristján Valur ræðir kosti Grenjaðarstaðar. Hann segir staðinn vel í sveit settan, nefnir byggðasafnið, og stutt sé að Sumarbúðum þjóðkirkjunnar við Vestmannsvatn. „Ég þekki þetta fólk hérna, það er búið til úr sama efni og ég.“ Hann er spurð- ur hvort þau séu nokkuð á förum frá staðnum á næstunni. „Ég er ekkert á förum héðan en hef samt ekki tekið frá legstað í garðinum. Erlendis er víða not- uð sú regla að prestur sé ekki nema tíu ár á sama stað og svo færi hann sig. Ég tel þetta góða reglu. Við vitum ekki hvað lengi við verðum hér, en við vitum eitt; við ætlum að fara samferða þeg- ar við förum.“ - Margrét, hvernig kannt þú Fjölskyldan á Grenjaðarstað. Sr. Kristján Valur og Margrét ásamt drengj- unum sínum, þeir heita Benedikt og Bóas.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.