Dagur - 31.01.1989, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 31. janúar 1989
Óslax hf. Ólafsfirði:
Hiutafé aukíð um
5 milljónir króna
Ákveðið hefur verið að auka
hlutafé Ólafsfjarðarbæjar I
laxeldisstöðinni Óslaxi hf. um
400 þúsund krónur eða 50%.
Unnið er nú að því að auka
hlutafé í fyrirtækinu um 5
milijónir króna, úr 10 milljón-
um í 15 milljónir króna sam-
kvæmt ákvörðun hlutafjár-
fundar frá liðnu hausti.
Ákvörðun um að auka hlutafé
bæjarins í Óslaxi hf. var frestað á
liðnu hausti en málið var tekið
upp aftur og ákveðið að leggja
fram 400 þúsund í viðbót til fyrir-
tækisins.
Að sögn Ármanns Þórðarson-
ar er seinni gjalddagi á hlutfé í
febrúar og segir hann undirtektir
hluthafa við aukningu hlutafjár
hafa almennt verið góðar. Af
stórum hluthöfum í Óslaxi hf.,
auk Ólafsfjarðarbæjar, má nefna
Sambandið, Kaupfélag Eyfirð-
inga, Eimskip, Skeljung hf.,
útgerðarfélagið Sæberg hf. og
frystihúsin í Ólafsfirði. óþh
Umferðarslys 1988:
Slösuðum íjölgar á höfuð-
borgarsvæðinu en stór-
fækkar á landsbyggðiimi
- slösuðum fækkar yfir 50%
milli ára á Austurlandi
3. og 4. bekkingar grunnskóla:
„Verum viðbúin“
Verkefnabókum í tengslum við sameiginlegt verkefni Bandalags íslenskra
skáta og Kiwanisumdæmisins á íslandi, „Verum viðbúin“ hefur nú verið
dreift til allra barna í 3. og 4. bekk í grunnskólum landsins. Börnin í 4.
bekk í 8. stofu í Barnaskóla Akureyrar fengu sínar bækur á dögunum og
hér eru þau ásamt Þorsteini Konráðssyni frá Kiwanis, Helgu Gunnlaugs-
dóttur frá Skátahreyfingunni og Pétri Ólafssyni kennara sínum . Mynd: GB
Árskógshreppur falast eftir heitu vatni frá Hamri:
Þessi viðbót skiptir engu
máii fyrir svæðið á Hamri
í nýjum gögnum frá Umferð-
arráði kemur fram að fjölgun
slasaðra í umferðinni er ein-
göngu í tveimur kjördæmum
landsins, Reykjavík og Reykja-
neskjördæmi. í höfuðborginni
einni fjölgar slösuðum úr 239
árið 1987 í 318 árið 1988. Hins
vegar kemur í Ijós að fækkun
slasaðra í umferðinni er mest á
Norðaustur- og Austurlandi.
Árið 1987 slösuðust 75 manns í
umferðinni Norðausturlandi
og 44 á Austurlandi. Á síðasta
ári voru þeir 38 á Norðaustur-
landi og 20 á Austurlandi.
Alls slösuðust og létust 939
manns í umferðarslysum hér á
landi árið 1988. Látnum í
umferðarslysum fjölgaði úr 24
árið 1987 í 29 árið 1988. Slysum
fjölgaði í þéttbýli úr 430 1987 í
459 á síðasta ári. í dreifbýli
fækkaði slysum hins vegar um
23% milli ára, úr 243 á árinu 1987
í 187 á síðasta ári.
Ef litið er á einstök kjördæmi
landsins kemur í ljós að á
Norðurlandi urðu tvö banaslys á
árinu, eitt í Húnavatnssýslum og
eitt í Skagafjarðarsýslu. Á Akur-
eyri urðu 256 slys árið 1988, eigna-
tjón varð í 239 þeirra en í 17 til-
Á fundi blaðstjórnar Dags,
föstudaginn 20. janúar sl. lét
Valur Árnþórsson, fráfarandi
kaupfélagsstjóri, af störfum
sem formaður blaðstjórnar
Dags. Á fundinum var Sigurð-
ur Jóhannesson, aðalfulltrúi
kaupfélagsstjóra KEA og
bæjarfulltrúi á Akureyri, kjör-
inn formaður blaðstjórnar frá
sama tíma.
Valur Arnþórsson hefur verið
formaður blaðstjórnar Dags um
nær tveggja áratuga skeið. Hann
er nú, sem kunnugt er, á förum
til Reykjavíkur þar sem hann
tekur við starfi bankastjóra
Landsbanka íslands. í stjórnar-
formannstíð Vals hefur Dagur
eflst og dafnað og m.a. breyst úr
vikublaði í dagblað. Þá hefur
orðið gjörbylting á allri starfs-
aðstöðu í fyrirtækinu. Um leið og
nýr blaðstjórnarformaður er boð-
inn velkominn til starfa eru Vali
vikum var um að ræða slys með
meiðslum. Dalvík og Ólafsfjörð-
ur skera sig nokkuð úr hvað
Norðurland varðar þar sem á
þessum stöðum urðu engin
meiðsl á fólki í umferðarslysum á
síðsta ári, aðeins var um eigna-
tjón að ræða. JÓH
Hugsanlegt er að lögð verði
hitaveita á Árskógsströnd inn-
an fárra ára. Að sögn Sveins
Jónssonar, oddvita Árskógs-
hrepps, verður á næstunni
unnið að nákvæmri rekstrar-
áætlun fyrir hugsanlega hita-
veitu og að því búnu má gera
Valur Arnþórsson.
færðar hugheilar þakkir fyrir sér-
lega farsæl störf í þágu blaðsins
ráð fyrir að ákvörðun verði
tekin um næstu skref í málinu.
Hitaveita fyrir Árskógshrepp
snýr einnig að Hitaveitu Dalvík-
ur og Dalvíkurbæ því hugmyndin
er að vatn fyrir hana verði fengið
úr heitavatnsæðum Dalvíkinga
við Hamar. Sveitarstjórn
Sigurður Jóhannesson.
og honum óskað velfarnaðar á
nýjum starfsvettvangi. Ritstjóri.
Árskógshrepps sendi bréf til
veitunefndar Dalvíkur þar sem
farið er fram á kaup á 85-90 þús-
und rúmmetrum af vatni á ári.
Þetta mun vera um 10% af vatns-
notkun Dalvíkinga á ári hverju.
Veitunefnd lagðist ekki gegn
þessum hugmyndum, enda yrði
verð fyrir vatnið fyrstu tvö árin
25% af smásöluverði en 50% af
smásöluverði eftir það.
Nokkuð snarpar umræður
urðu um þessa bókun veitunefnd-
ar á fundi í bæjarstjórn Dalvíkur
í liðinni viku. Nokkrir bæjar-
stjórnarmenn töldu ástæðu til að
fara varlega í sölu á heitu vatni
frá Hamri. Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri á Dalvík,
segir að rétt sé að taka fram að
bókun veitunefndar sé á engan
hátt endanleg ákvörðun í þessu
máli. Ekki megi líta svo á að
gengið hafi verið frá sölu á heitu
vatni til hugsanlegrar hitaveitu
Árskógshrepps. Hins vegar
standi ekkert í vegi fyrir því að
sveitarstjórn Árskógshrepps láti
vinna nákvæma rekstraráætlun
fyrir veituna miðað við það verð
á vatninu sem veitunefnd Dalvík-
ur hefur sett upp. Kristján Þór
segir að ef ákvörðun verður tekin
um að ráðast í lagningu hitaveit-
unnar muni málið að sjálfsögðu
koma aftur til umsagnar hlutað-
eigandi aðila á Dalvík.
Ólafur G. Flóvenz, hjá Orku-
stofnun, segir að samkvæmt
rannsóknum jarðvísindamanna á
jarðhitasvæðinu við Hamar, sé
ekki talin nein hætta því samfara
fyrir Hitaveitu Dalvíkur þótt
hugsanleg hitaveita fyrir
Árskógshrepp fengi umrætt
vatnsmagn til afnota. Hann segir
að hér sé um að ræða svo lítið
magn að ekki sé talin nein hætta
á ferðum. „Þetta er það afkasta-
mikið svæði að þetta viðbótar-
vatn á ekki að skipta neinu máli,“
segir Ólafur. Aðspurður segir
hann að líftími jarðhitasvæðisins
við Hamar sé ríflega mannsaldur,
eða allt að 150 ár. óþh
Bændaklúbbsftmd-
ur í Hlíðarbæ
Fimmtudaginn 2. febrúar n.k.
verður haldinn Bændaklúbbs-
fundur í Hlíðarbæ.
Frummælandi á fundinum verður
Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaðarráðherra. Hann mun
ræða um ástand og horfur í
íslenskum landbúnaði.
Fundurinn hefst kl. 21.00.
55 milljómr!
í frétt í Degi sl. laugardag um
ráðstafanir ríkisstjórnarinnar til
að styðja við bakið á loðdýra-
ræktinni var ranglega farið með
eina mikilvæga tölu. Tíl lækkunar
á framleiðslukostnaði verður var-
ið 55 milljónum króna en ekki 35
milljónum, eins og ranglega er
sagt í fréttinni.
Blaðstjórn Dags:
Valur lætur af formennsku