Dagur - 31.01.1989, Síða 7

Dagur - 31.01.1989, Síða 7
Skíðavertíðin hafin: Krístínn og Valdemar fyrstir í svigi - Einar sigursæll á Siglufirði Vertíðin hjá íslenskum skíða- mönnum hófst um helgina með mótum á Siglufirði og ísafirði. Keppt var í göngu á Siglu- fírði og í alpagreinum á Isa- fírði. Isfírðingar voru sigursæl- ir í norrænu greinunum en Akureyringum gekk vel fyrir vestan. Á Siglufirði setti veður strik í reikninginn og komust ekki allir keppendur til bæjarins í tæka tíð. Annars urðu úrslitin þessi: Bikarmót: Karlar 15 km, hefðbundin aðferð: 1. Einar Ólafsson í. 51,05 2. Sigurgeir Svavarsson Ó. 51,41 3. Baldur Hermannsson S. 53,30 Piltar 17-19 ára 10 km: 1. Daníel Jakobsson f. 34,41 2. Sveinn Traustason Flj. 35,45 3. Sölvi Sölvason S. 36,46 Konur 16 ára og eldri: 1. Hulda Magnúsdóttir S. 21,16 Punktamót SKÍ: Karlar 10 km, frjáls aðferð: 1. Einar Ólafsson í. 35,52 2. Sigurgeir Svavarsson Ó. 36,44 3. Baldur Hermannsson S. 53,30 Piltar 17-19 ára, 7,5 km: 1. Daníel Jakobsson í. 34,41 2. Bjarni Brynjólfsson í. 28,14 3. Guðmundur Óskarss. Ó. 28,45 Stúlkur 16 ára og eldri, 2,5 km: 1. Hulda Magnúsdóttir S. 11,05 Kristinn og Valdemar stóðu sig vel á ísafirði Á Isafirði var haldið fyrsta punktamót vetrarins í alpagrein- um. Veðrið var ágætt báða keppnisdagana, þótt aðeins hafi farið að hvessa undir lok mótsins. Kristinn Svanbergsson og Valde- mar Valdemarsson skiptu verð- laununum með sér í karlaflokki en Anna María Malmquist varð að láta sér annað sæti lynda. Keppendur voru 16 í karla- flokki og 8 í kvennaflokki. Illa gekk hjá strákunum að klára brautina fyrri daginn og stóðu einungis 5 alla brekkuna. Stelp- urnar kláruðu hins vegar allar með glans. Betur gekk síðari daginn og stóðust flestir kepp- endurnir þrautina. En úrslitin urðu þannig fyrri daginn: Svig karla: 1. Kristinn Svanbergsson A. 104,24 2. Egill Ingi Jónsson R. 105,62 3. Steingrímur Waltherss. R. 107,17 Svig kvenna: 1. Asta Halldórdóttir í. 108,30 2. Anna María Malmquist A. 110,30 3. Þórdís Hjörleifsdóttir R. 113,15 Svig karla: Seinni dagur: 1. Valdemar Valdemarss. A. 103,86 2. Kristinn Svanbergsson A. 104,02 3. Arnór Gunnarsson f. 105,14 Svig kvenna. 1. Asta Halldórsdóttir í. 111,05 2. Anna M. Malmquist A. 113,94 3. Pórdís Hjörleifsdóttir R. 114,52 Knattspyrna: Hörður með Eflingu - hættir hjá Leiftri Hörður spilar með Eflingu næsta sumar. Hörður Benónýsson hefur ver- ið ráðinn þjálfari hjá Ung- mennafélaginu Eflingu. Hörð- ur lék með Leiftri í 1. deildinni í fyrra en hefur einnig leikið með Völsungi, Magna og HSÞb. Hörður mun einnig leika með Eflingu í 4. dcildinni í sumar. Sverrir Haraldsson formaður Eflingar segir að þeir séu mjög ánægðir með að hafa fengið Hörð til liðs við félagið. Það hafi vant- að sókndjarfan miðjumann hjá þeim í liðið og með komu Harðar sé liðið tilbúið í toppslaginn í deildinni. Hörður mun einnig þjálfa yngri flokka Eflingar en að sögn Sverris er mikill áhugi hjá félags- mönnum að gera vel í öllu starfi knattspyrnudeildarinnar. Lið Eflingar er að mestu leyti skipað heimamönnum og verður það líka næsta sumar. Kristinn Svanbergsson sigraði í svigi á ísafirði. Lyftingar: Freyr s-norskur meistari - vinakeppni Akureyrar og Stavanger Freyr Aðalsteinsson. Freyr Aðalsteinsson, fyrrver- andi formaður LRA, varð um sl. helgi s-norskur meistari í kraftlyftingum. Freyr hefur verið búsettur í Stavanger um nokkurra ára skeið og verið þar virkur keppnismað- ur. Á meistaramótinu voru hátt í 100 keppendur og þar af 15 í 82 kg flokki en þar keppir Freyr. ' Freyr lyfti 200 kg í hnébeygju, 142,5 í bekkpressu, 242,5 í rétt- stöðulyftu, 585 í samanlögðu. Þetta dugði honum til sigurs en næsti maður lyfti 582,5 kg þannig að keppnin var mjög jöfn. Freyr var reyndar óheppinn að ná ekki 600 kg í samanlögðu, en það þykir alltaf töluverður við- burður í Noregi þegar sá múr er brotinn. Ákveðið hefur verið að koma á bæjakeppni í lyftingum milli Akureyrar og Stavanger. Fyrsta keppnin fer fram í Stavanger 27. maí næstkomandi og verður keppt í 5 manna úrvalssveitum. Nánar verður sagt frá þessari bæjakeppni síðar. Körfuknattleikur: TindastóD og Þór í kvöld Það verður norðanslagur í Úrvalsdeildinni á Sauðárkróki í kvöld. Þar mætast Tindastóll og Þór. í fyrri leik þessara liða unnu Sauðkrækingar nauman sigur í spennandi leik. Það má því búast við hörkuviðureign á Króknum í kvöld og vert að hvetja fólk til að mæta. Þórsurum hefur ekki gengið sem skyldi í vetur og ætla sér sjálfsagt að sýna nágrönnum sínum á Sauðárkróki í tvo heimana. Tindastóll vann öruggan sigur á ÍS á sunnudaginn og hefur verið að tapa naumt síðustu heima- leikjum. Þeir mega ekki við að tapa fyrir fullu húsi áhorfenda þannig að búast má við spenn- andi leik í kvöld á Sauðárkróki.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.