Dagur - 31.01.1989, Side 8

Dagur - 31.01.1989, Side 8
8 - DAGUR - 31. janúar 1989 íþróttir t Úrvalsdeildin í körfu: Öruggur sigur Tindastóls - á ÍS 84:65 Tindastóll sigraði ÍS örugglega í Úrvalsdeildinni í körfuknattleik þegar liðin mættust á heimavelli Stúdenta í fyrrakvöld. Lokatöl- urnar urðu 84:65 eftir að staðan hafði verið 46:32 í leikhléi. Það voru Stúdentar sem skoruðu fyrstu stigin í leiknum og komust í 4:0 og síðan 6:2. Þessu undu norðan- mennirnir illa og jöfnuðu 7:7 en Valdim'ar K. Guðlaugsson, besti maður ÍS í leiknum, svaraði með tveimur fallegum körfum og breytti stöðunni í 11:7. Næstu mínúturnar höfðu Stúdentar góð tök á leiknum en þegar 11 mínútur voru liðnar jafn- aði Tindastóll í annað sinn í leiknum og komst yfir stuttu síðar. Við það var sem vindurinn væri úr Stúdentum en Tindastólsmenn hresstust að sama skapi. Það sem eftir lifði leikhlés bættu Tindastólsmenn jafnt og þétt við og höfðu yfir, 46:32, í leikhléi. Þeir bræður, Eyjólfur og Sverrir, fóru á kostum í Tindastólsliðinu í síðari hálfleik. Samvinna þeirra var oft á tíðum stórskemmtileg og kunnu Stúdentarnir engin ráð til að stöðva þá. Samanlagt gerðu þeir bræður 47 stig, þar af gerði Eyjólfur 10 stig úr vítaskotum. Eyjólfur átti stórleik gegn ÍS og skoraði 32 stig. Þegar á síðari hálfleikinn leið fór að koma berlega í ljós hversu mikill styrkleikamunurinn var á liðunum. Eftir því sem á leikinn leið keyrðu Tindastólsmenn upp hraðann en aft- ur á móti virtist heldur draga af Stúd- entum. Svo virtist sem þeir hefðu ekki fullt úthald í leikinn og réðu því ekki við hraðann. Körfuskot þeirra voru mjög óvönduð og oft á tíðum ótímabær. Þau rötuðu því sjaldnast rétta leið en Valur Ingimundarson var að vanda sterkur undir körfunni og hirti fjölda frákasta. Eftir fáeinar mínútur af síðari hálfleik var orðinn yfir 20 stiga mun- ur á liðunum og hélst sá munur út leikinn. Lokatölur, 84:65. Valdimar K. Guðlaugsson var góður í fyrri hálfleik en í síðari hálf- leik bar enginn af í liði Stúdenta. Eyjólfur, Sverrir og Valur voru sterkastir norðanmanna en einnig átti Haraldur Leifsson ágætan leik. JÓH Stig Tindastóls: Eyjólfuí Sverrisson 32, Valur Ingimundarson 17, Sverrir Sverrisson 15, Kári Marísson 8, Haraldur Leifsson 8, Björn Sigtryggsson 4. Stig IS: Valdimar K. Guðlaugsson 23, Helgi Gústafsson 8, Heimir Jónasson 8, Jón Júlíusson 8, Porsteinn Guðlaugsson 7, Bjarni Haraldsson 6, Sólmundur Jónsson 4, Gísli Pálsson 1. Handknattleikur/2. deild og Bikarkeppni: Tvö töp Þórsara Þórsarar riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum við Ármenn- inga um helgina. Ármenningar sigruðu í fyrri leik liðanna 23:20 og var sá leikur liður í 2. deildinni. Gestirnir slógu einnig Þór úr bikarkeppninni með því að sigra þá 25:20. Birgir Björnsson þjálfari Þórsara hafði ekki stór orð uppi eftir leikinn þrátt fyrir tapið. „Við verðum að gera okkur grein fyrir því að þarna voru að mætast lið sem hefur verið í botnbaráttunni og svo aftur lið úr toppbaráttunni og getumunurinn var hreinlega of mikill.“ Þrátt fyrir þessi orð þjálfarans er ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að Þórsarar hafa oft leikið betur en í þessum tveimur leikjum. Ármannsliðið virkar ekki mjög sterkt og hefði lítið upp í 1. deildina að gera. Þeirra besti maður er þjálf- arinn Hannes Leifsson og er hann allt í öllu hjá liðinu. Það var jafnræði með þessum tveimur liðum framan af leiknum í fyrri hálfleik og var m.a. jafnt 5:5. En þá settu Ármenningar í annan gír og komust yfir 10:8 þegar gengið var til búningsherbergja. Þessi munur hélst allan síðari hálf- leik og munaði aldrei meira en fjór- um mörkum. En Þórsurum tókst ekki að draga gestina uppi og leikur- inn endaði því með þriggja marka sigri Glímufélagsins 23:20. Mörk Pórs: Kristinn Hreinsson 5, Sævar Árnason 5, Páll Gíslason 4, Jóhann Jóhanns- son 3, Ingólfur Samúelsson 1, Hörður Harð- arson 1, Atli Rúnarsson 1. Mörk Ármanns: Hannes Leifsson 8, Haukur Haraldsson 5, Friðrik Jóhannesson 4, Einar Eiríksson 3, Björgvin Bárðarson 2, Haukur Ólafsson 1. Bikarinn búinn fyrir Þórsara Ekki gekk Þórsurum betur á sunnu- deginum. Að vísu byrjuðu þeir betur og voru yfir 2:1 og áttu möguleika á þvx að skora þriðja markið. Það mis- heppnaðist og þess í stað skoruðu - gegn Ármenningum Ármenningar sjö mörk í röð og gerðu þannig út um leikinn. Eftir þennan hræðilega leikkafla var það einungis formsatriði að ljúka leiknum. Mestur var munurinn níu mörk undir lok leiksins 24:15 en Þórsarar náðu að klóra í bakkann og skora fimm mörk á lokakaflanum og lokatölur voru sem sagt 25:20. Hjá Þór bar mest á Páli Gíslasyni og Sævari Árnasyni en þeir hafa oft leikið betur en núna um helgina. En það þýðir ekkert fyrir Þórsstrákana að örvænta þrátt fyrir þessi úrslit. Ármannsliðið er á toppnum og hinir ungu leikmenn Þórs verða að halda haus í hinni hörðu botnbaráttu deild- arinnar. Mörk Þórs: Páll Gíslason 5, Rúnar Sigtryggs- son 5, Sævar Árnason 4, Ingólfur Samúelsson 4, Aðalbjörn Svanlaugsson 1 og Jóhann Jóhannsson 1. Mörk Ármanns: Haukur Ólafsson 6, Hannes Leífsson 5, Jón O.Davíðsson 4, Einar Eiríks- son 3, Haukur Haraldssson 3, Guðmundur Jónsson 2, Friðrik Jóhannsson 1. Ingólfi Samúelssyni og fclögum hans í Þórsliðinu tókst ekki að veita Ármenningum verðuga keppni um helgina. Mynd: tlv Eiríkur Sigurðsson stóð fyrir sínu en það dugði ekki Þórsurum til sigurs, ÍR lagði Þór nokkuð öragglega - 92:80 í Höllinni Þórsarar urðu að sætta sig við enn eitt tapið á heimavelli sín- um í Úrvalsdeildinni í körfu- knattleik. Nú voru það ÍR-ing- ar sem héldu heim á leið með tvö stig í pokahorninu eftir að hafa lagt þá rauðklæddu að velli 92:80 á sunnudagskvöld- ið. Það var mikill tröppugangur í leik Þórsliðsins að þessu sinni. Þrisvar sinnum náðu ÍR-ingar öruggu forskoti en tvisvar náðu heimamenn að jafna leikinn og um miðjan síðari hálfleikinn tókst þeim meira að segja að komast yfir í nokkurn tíma. En ÍR-ingar bættu í og sigruðu örugglega 92:80, eins og áður sagði. Þórsara skoruðu fyrstu körf- una en ÍR-ingar svöruðu með 10 stigum í röð. Fram undir miðjan hálfleikinn skiptust liðin síðan á að skora en þá tóku Þórsarar góð- an kipp og jöfnuðu leikinn 35:35. ÍR hleypti þá nýjum krafti x spilið og skoruðu leikmenn liðs- ins aftur 10 stig í röð án þess að Þórsurum tækist að svara fyrir sig. Gestirnir höfðu því yfir 52:40 þegar dómararnir flautuðu til leikhlés. ÍR-liðið virkaði mun frískara fyrstu mínúturnar í síðari hálfleik og jók forskot sitt um nokkur stig. En þá var eins og Þórsurum hefði verið gefin vítamínsprauta í rassinn og fóru þeir að spila eins og englar. Baráttan varð miklu betri í vörninni og flest skot þeirra röt- uðu rétta leið ofan í körfu ÍR- inga. Á stuttum tíma náðu þeir að jafna leikinn og komasLyfir 66:61. En þar með var allur dampur úr leikmönnum Þórs. ÍR-ingar komust fljótlega yfir aftur og eftir það var sigur þeirra aldréi í hættu. Leikmenn Þórs komust í hin mestu villuvandræði í síðari hluta hálfleiksins og voru allir byrjunarleikmennirnir með fjór- ar villur og það var því ekki að undra að þeir gætu beitt sér á fullu. Eins og oft áður í leikjum gegn ÍR áttu Þórsararnir í mestu vand- ræðum með að stöðva bakverði þeirra, þá Jón Örn Guðmunds- son og Karl Guðlaugsson, og fengu þeir að skora næstum því að lyst. Hjá Þórsliöinu áttu menn mjög köflóttan leik. Jóhann Sigurðs- son var mjög góður í fyrri hálf- leik og hefur sjaldan leikið betur í vetur en þá. Hins vegar bar ekki mikið á honum eftir leikhlé. Konráð og Guðmundur áttu góða kafla í leiknum en duttu niður þess á milli. Stig Pórs: Konráð Óskarsson 20, Jóhann Sigurðsson 17, Guðmundur Björnsson 16, Björn Sveinsson 12, Eirlkur Sigurðs- son 11 og Stefán Friðleifsson 4. Stig ÍR: Karl Guðlaugsson 18, Jóhannes Sveinsson 18, Jón Örn Guðmundsson 17, Sturla Örlygsson 16, Bragi Reynisson 11, Björn Steffensen 6, Ragnar Torfason 4 og Gunnar Þorsteinsson 2.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.