Dagur - 31.01.1989, Síða 9

Dagur - 31.01.1989, Síða 9
31. janúar 1989 - DAGUR - 9 Sutton Utd. steínlá gegn Norwich - Forest og Man.Utd. áfram - Brentford sigraði Man. City Um helgina var leikin 4. umferð í FA-bikarnum á Englandi og fengu leikmenn því frí frá bar- áttunni um stig í deildakeppn- inni. Það var hart barist í flest- um leikjum, en utandeildaliðin tvö sem eftir voru í keppninni urðu að játa sig sigruð og eru úr leik. Óvænt úrslit sáu þó dagsins Ijós og ýmsum viður- eignum er ólokið vegna jafn- teflisleikja sem verða endur- teknir í vikunni. Lítum þá nán- ar á leikina 15 sem fram fóru á laugardag. • Sutton Utd. sem kom svo mjög á óvart er liðið sló Coventry úr bikarnum í 3. umferð átti ekki nokkra möguleika á útivelli gegn Norwich. Leiknum var sjónvarp- að hér heima og menn sáu leik- Kevin Sheedy hélt Everton áfram í bikarnum er hann jafnaði gegn Plymouth úr vítaspyrnu. Úrslit FA-bikarinn 4. umferð. Aston Villa-Wibledon 0:1 Blackburn-Sheffield Wed. 2:1 Bradford-Hull City 1:2 Brentford-Manchester City 3:1 Charlton-Kettering 2:1 Grimsby-Reading 1:1 Hartlpool-Bournemouth 1:1 Manchester Utd.-Oxford 4:0 Millwall-Liverpool 0:2 Norwich-Sutton Utd. 8:0 Nottingham For.-Leeds Utd. 2:0 Plymouth-Everton 1:1 Sheffield Utd.-Colchester 3:3 Stoke City-Barnsley 3:3 Swindon-West Ham 0:0 Watford-Derby 2:1 Úrslit frá fyrri viku. FA-bikarinn 3. umferð. Manchester Utd.-Q.P.R. 3:0 Þetta var þriðji leikur liðanna, en tveimur fyrri leikjum lauk með jafntefli og Man.Utd. vann sér rétt til að leika heima gegn Oxford í 4. umferð. Deildarbikarinn 5. umferð. Southamton-Luton 1:2 Endurtekinn jafnteflisleikur liðanna og Deildarbikarmeist- arar Luton mæta West Ham í undanúrslitum í tveimur leikj- um, en hin viðureignin í undanúrslitunum er milli Nottingham For. og Bristol City. menn Norwich yfirspila áhuga- mennina með nettum og hröðum fótbolta. Það var aðeins tíma- spursmál hvenær Norwich tæki forystu. Það gerðist snemma í leiknum eftir hornspyrnu, Trevor Putney skoraði með föstu skoti. Malcolm Allen og Robert Fleck bættu tveim mörkum við fyrir hlé. í síðari hálfleiknum bætti Allen við þrem mörkum og skor- aði því fjögur í leiknum og Fleck skoraði tvö í síðari hálfleik þann- ig að hann var með þrennu j leiknum. 8:0 sigur Norwich var ekki of stór, mörkin hefðu hæg- lega getað orðið fleiri, en áhuga- mennirnir gáfust þó aldrei upp og börðust af fremsta megni allt til leiksloka. • Hitt utandeildaliðið Kettering mætti 1. deildarliði Charlton á útivelli og var óheppið að tapa leiknum. Þó virtist í hálfleik að sigur Charlton væri í höfn og leikmenn liðsins gætu notað síð- ari hálfleikinn til skotæfinga. Paul Williams kom Charlton yfir á 18. mín. og 5 mín. síðar bætti Robert Lee öðru marki við. Steve Mackenzie fékk opið færi til að bæta því þriðja við fyrir hlé, en datt um boltann. í upphafi síðari hálfleiks skoraði Robbie Cooke fyrir Kettering og mikil barátta upphófst á vellinum sem var eitt drullusvað eftir miklar rigningar. Rétt undir lokin átti Ernie Moss skot rétt framhjá marki Charlton og þar fór mögu- leiki Kettering á aukaleik sem það átti skilið. • Óvænt úrslit urðu í leik 3. deildarliðs Brentford og 2. deild- arliðs Manchester City. Brent- ford sem Steve Perryman gamli Tottenhamleikmaðurinn stjórnar lék mjög vel og 3:1 sigur liðsins var fyllilega verðskuldaður. Aðeins góð markvarsla Andy Dibble í marki City kom í veg fyrir stærra tap liðsins. Gary Blis- sett og Richard Cadette miðherj- ar Brentford voru mjög virkir og á 10. mín. náði Blissett foryst- unni eftir sendingu Cadette. Þrem mín. fyrir hlé skoraði Keith Jones annað mark Brentford með skoti frá vítateig. Nigel Gleghorn sem komið hafði inná sem varamaður lagaði stöðuna fyrir Man. City rétt eftir hlé með Jan Molby átti mjög góðan leik fyrir Liverpool gegn Millwall. góðu marki, en lokaorðið átti Blissett með marki úr þvögu um miðjan síðari hálfleikinn og óvæntur sigur liðsins í höfn. • 2. deildarlið Watford þurfti 4 leiki gegn Newcastle í 3. umferð til að komast í þá fjórðu, en liðið afgreiddi 1. deildarlið Derby í fyrstu tilraun á laugardag. Wat- ford hafði undirtökin í leiknum, en Derby fékk þó sín tækifæri. Watford skoraði fyrsta og síðasta markið og 3 mín. fyrir leikslok varði Peter Shilton markvörður Derby vítaspyrnu frá Neil Redfearn. Redfearn var þó fyrir- gefið því það var hann sem skor- aði sigurmark Watford 11 mín. fyrir leikslok með marki úr auka- spyrnu. Richard Holden tók for- ystu fyrir Watford 7 mín. fyrir hlé, en varamaðurinn Gary Micklewhite jafnaði fyrir Derby á 75 mín. eftir að Rob Hind- march hafði skotið í þverslá. Vörn Watford náði að halda Dean Saunders í skefjum í leikn- um og réð það mestu um úrslitin. • FA-bikarmeistarar Wimble- don ætla ekki að gefa bikarinn eftir baráttulaust eins og Aston Villa fékk að kynnast á heima- velli sínum. Gífurleg barátta og harka leikmanna Wimbledon ásamt stórleik Hans Segers í marki liðsins sem varði m.a. víta- spyrnu frá Allan Evans, kom leikmönnum Villa úr jafnvægi. Villa fékk góð færi, David Platt tvívegis í fyrri hálfleik og aftur í þeim síðari en Segers lét ekkert fram hjá sér fara. Vinny Jones skoraði sigurmark Wimbledon eftir klukkutíma leik úr þvögu og þrátt fyrir að Eric Young væri rekinn af leikvelli 8 mín. fyrir leikslok tókst liðinu að halda út. • Rauði herinn frá Manchester er nú kominn í gang og lið Utd. þurfti ekki að hafa mikið fyrir sigri sínum gegn Oxford. Mark Hughes skoraði eftir 10 mín. er Ralph Milne sendi til hans. Vonir Oxford brustu síðan á þrem mín. í síðari hálfleik, á 61 mín. bætti Steve Bruce við öðru marki liðs- ins með skalla eftir hornspyrnu Gordon Strachan og síðan stýrði Jimmy Phillips skoti Mal Donaghy í eigið mark. Bryan Robson skor- aði fjórða markið 8 mín. fyrir leikslok eftir sendingu Milne og Manchester Utd. stefnir nú á sig- ur í FA-bikarnum. • Colchester er neðst í 4. deild og náði óvænt jöfnu gegn Sheffield Utd. á útivelli, en Sheffield er í hópi efstu liða í 3. deild. Liðið náði raunar tveggja marka for- ystu með mörkum Stuart Hick og Colin Hill. Mark Todd lagaði stöðuna fyrir Sheffield fyrir hlé og komst síðan yfir með mörkum Brian Deane og Ian Bryson. En tveim mín. fyrir leikslok jafnaði Stephen Hetzke fyrir Colchester. • Grimsby náði jöfnu heima gegn Reading, Steve Saunders skoraði sjálfsmark hjá Grimsby á 48. mín., en Marc North tókst síðan að koma knettinum í rétt mark og leikmenn Grimsby skor- uðu því bæði mörk leiksins. • 4. deildarlið Hartlepool náði óvænt jafntefli gegn 2. deildarliði Bournemouth á heimavelli. Brian Honour náði reyndar forystu fyr- ir Hartlepool, en Luther Blissett jafnaði fyrir Bournemouth úr vítaspyrnu. • Stoke City og Barnsley skildu jöfn í miklum markaleik 3:3 þar sem Barnsley komst í 2:0 og síð- an 3:1. David Currie skoraði tvö fyrir Barnsley og John Mac Don- ald eitt, mörkin fyrir Stoke City gerðu Dave Bamber, George Berry og Peter Beagrie sem jafn- aði í lokin. • 1. deildarlið Sheffield Wed. tapaði úti gegn Blackburn úr 2. deild. Simon Garner skoraði fyrir Blackburn á 1. mfn. síðari hálf- leiks og síðan missti Sheffield mann út af, Colin West rekinn í bað fyrir gróft brot. Tony Finnig- an bætti öðru marki við fyrir Blackburn, en eina mark Sheff- ield skoraði David Hirst sem komið hafði inná sem varamaður 9 mín. fyrir leikslok. • Sean McCarthy náði forystu fyrir Plymouth gegn Everton á 65. mín., en Kevin Sheedy jafn- aði fyrir Everton með marki úr vítaspyrnu á 80 mín. og liðin mætast því aftur. • Nottingham For. sigraði Leeds Utd. 2:0, Lee Chapman skoraði fyrra markið á 7 mín. er varnarmönnum Leeds Utd. mis- tókst að hreinsa frá eftir auka- spyrnu. Minnstu munaði að Ian Baird tækist að jafna stuttu síðar, en skot hans var vel varið. Gary Parker komst einn í gegn á 25. mín., en Mervyn Day varði frá honum. Parker bætti síðan við síðara marki Forest undir lokin og margir telja að nú takist Brian Clough loks að sigra í bikarnum. • Bradford sem sló Tottenham úr keppninni í 3. umferð tapaði á heimavelli gegn Hull City. Leigh Palin var rekinn út af í fyrri hálf- leik hjá Bradford og Hull City hafði yfir í leikhléi með marki Billy Whitehurst. Keith Edwards bætti öðru marki við fyrir Hull City í síðari hálfleik áður en Mark Leonard skoraði eina mark Bradford. • Og það var aðeins eitt marka- liverpool lagði Millwall - Rush og Aldridge skoruðu Sextándi leikurinn í 4. umferð FA-bikarsins fór fram á sunnu- daginn, er Millwall tók á móti meisturum Liverpool. Og það var Liverpool sem hafði betur, sigraði 2:0 og margir spá því að Liverpool muni leika til úrslita í keppninni á Wembley í vor, en liðið getur orðið litið á þann völl sem sinn annan heimavöll. Leikurinn var mikill báráttu- leikur og varnir beggja liða sterkar. Kenny Dalglish lét Alex Watson leika í vörninni og Jan Molby var sweeper, bæði Peter Beardsley og Ray Houghton voru á varamannabekknum. Þessi taktík tókst vel og Molby átti mjög góðan leik. Bruce Grobbelaar átti ekki í vandræð- um með þau skot sem að marki Liverpool komu. Liverpool náði forystu á 12. mín. síðari hálf- leiks, John Aldridge frír eftir hornspyrnu John Barnes skallaði í netið. Aðeins sex mín. síðar bætti liðið síðara markinu við, samspil Aldridge og Barnes opn- aði leiðina fyrir Ian Rush sem skoraði með skoti í stöng og inn. Millwall lagði allt í sölurnar í lok- in drifnir áfram af þeim Les Bril- ey og Terry Hurlock, en marka- skorararnir Tony Cascarino og Teddy Sheringham komust ekk- ert áleiðis gegn sterkri vörn Liverpool og sigur liðsins ekki í hættu. laust jafntefli í leikjunum 15 á laugardag. Swindon náði að halda hreinu gegn hinu mikla bikarliði West Ham sem nú fær annað tækifæri á heimavelli sínum. Þ.L.A. Vinny Jones skoraði mark bikar- meistara Wimbledon gegn Aston Villa. Bikarkeppni: Létt hjá stórliðunum Dregið hefur verið í 16-Iiða úrslitum ensku bikarkeppn- innar. Stórliðin fengu flest létta leiki, nema e.t.v. Nott- ingham Forest sem þarf að heimsækja Watford. Liver- pool fer til hafnarborgarinn- ar Hull og ætti að komast áfram. En lítum þá á dráttinn: Hull-Liverpool Stoke/Barnsley-Plymouth/Everton Norwich-Sheffield Utd./Colchester Charlton-Swindon/West Ham Wimbledon-Grimsby/Reading Hartlepool/Bournemouth-Man Utd. Blackburn-Brentford Watford-Nott.For. Staðan 1. deild Arsenal 21 13- 5- 3 46:22 44 Norwich 22 11- 8- 3 33:24 41 Liverpool 22 9- 8- 5 28:18 35 Coventry 21 10- 5- 6 30:21 35 Nott.Forest. 22 8-10- 4 31:24 34 Man.Utd. 22 8- 9- 5 31:19 33 Millwall 21 9- 6- 6 32:27 33 Derby 21 9- 5- 7 23:16 32 Everton 21 8- 6- 7 26:23 30 Middlesbro 22 8- 5- 9 29:34 29 Wimbledon 21 8- 4- 9 25:29 28 Aston Villa 21 6- 9- 6 31:34 27 Luton 22 6- 8- 8 24:26 26 Tottenham 21 6- 7- 8 32:33 25 QPR 22 6- 6- 9 23:22 24 Southampton 22 5- 9- 8 32:42 24 Charlton 22 5- 8- 9 24:32 23 Sheff.Wed. 21 5- 8- 8 18:29 23 West Ham 22 4- 5-13 19:39 17 Newcastle 22 4- 5-13 17:40 17

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.