Dagur


Dagur - 31.01.1989, Qupperneq 11

Dagur - 31.01.1989, Qupperneq 11
hér & þar Brúðhjónin voru hamingjusöm daginn sem giftingarnar fóru fram. Fjölskylduböndin urðu þó meira en lítið flókin. 19 ára brúðgumi varð stjúpfaðir fimm bama - og mágur systur sinnar - brúðurin varð mágkona sonar síns Fjölskyldutengsl geta verið bæði flókin og einföld eftir ástæðum. Þau fjölskyldubönd . sem hér verður sagt frá verða að teljast til hinna flóknari. í bæ einum í Bandaríkjunum voru tvenn brúðhjón gefin saman í það heilaga sama daginn. 43 ára gömul kona, Pam Pearce, fimm barna móðir og amma, giftist 19 ára pilti, Mick að nafni. Brúð- guminn varð stjúpfaðir barnanna sem öll voru eldri en hann sjálfur. Sama dag giftist Tonie, 22 ára sonur brúðarinnar Pam Pearce, systur brúðgumans. Þá varð Pam mágkona sonar síns en Mick varð stjúpfaðir systur sinn- ar (!). „Þetta er kannski flókið fyrir aðra en við erum svo ástfangin að ekkert annað skiptir máli,“ sagði frú Pearce, sem er yfir sig ánægð með hinn 19 ára gamla eigin- mann sinn. Hún segir að stærsta óskin sé að eignast eigið hús og barn með nýja manninum. Pam segist aldrei gleyma því þegar Mick kom inn í líf hennar og batt endahnútinn á 27 ára hjónaband hennar. Kvöld eitt kom sonur hennar heim með vin sinn. Þegar mamman sá þennan unga mann féll hún þegar í stað fyrir honum. Hún reyndi að telja sjálfri sér trú um að hún væri að verða vitlaus, orðin amma og 43 ára að hugsa slíkar hugsanir en allt kom fyrir ekki. Mick brosti aðeins til hennar og talaði við hana um alla heima og geima. Skömmu síðar mættust þau af tilviljun á götu og þá vissi hún að hún var orðin ástfangin. Mick kom í heimsóknir til hennar og dag einn sagðist hann elska hana. „Ég hélt að ég myndi springa af hamingju en lét ekki á neinu bera og bað hann um að hugsa um eitthvað annað. Mick tók utan um mig og þá gat ég ekki annað en viðurkennt að ég elskaði hann líka,“ sagði Pam. Daginn eftir bar Mick upp bónorðið við gifta konuna. Hún neitaði í fyrstu en þegar Mick gaf sig ekki og bar bónorðið upp aft- ur gat hún ekki neitað lengur, skildi við fimmtugan eiginmann sinn og flutti inn til kærastans. Þegar dóttir hennar og bróðir Micks ákváðu að giftast vildi hún ekki hika lengur og steypti sér í það heilaga. „Við gleðjumst mömmu vegna,“ segja börn hennar. „Foreldrar mínir hafa náð sér eftir áfallið og eru jákvæð gagnvart okkur núna. Við eru heppin að upplifa þessa miklu ást,“ segir brúðguminn 19 ára. X / SAA-N: XII Zetor 7045 árg. ’85 til sölu. Ekinn 1675 tíma. Tilboð óskast. Upplýsingar í símum 96-61781 og 96-61771. Einangrtmarstöð ríksins, Hrísey. Tilkynning Iðnfulltrúi Norðurlandsumdæmis eystra verður í fríi frá 1. febrúar til 20. febrúar 1989. ATH! frá þeim tíma verður skrifstofa hans fyrst um sinn að Hvammshlíð 2, 603 Akureyri. Sími 96-21347. Viðtalstímar auglýstir síðar. Marinó Jónsson, iðnfulltrúi. Sjávarútvegs- ® ráðuneytið Með tilvísun til 5. gr. laga nr. 3 8. janúar 1988 um stjórn fiskveiða ber útgerðum að velja milli aflamarks og sóknarmarks fyrir 1. febrúar. Hafi skriflegt svar ekki borist fyrir ofangreindan tíma verður skipi hlutaðeigandi útgerðar úthlutað veiði- leyfi samkvæmt 1. valkosti: Botnfiskleyfi með afla- marki. Sjávarútvegsráðuneytið, 26. janúar 1989. Ilil framsóknarmenn llll AKUREYRI Aðalfundur Framsóknarfélags Eyjafjarðar verður haldinn í Hafnarstræti 90, miðvikudaginn febrúar kl. 20.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin. Fræðslunámskeið fyrir alkóhólista Samtök áhugafólks um áfengis- vandamálið á Norðurlandi, SÁÁ-N, efna til fræðslunám- skeiðs fyrir alkóhólista næstu vikurnar og hefst það mánu- daginn 6. febrúar. Áfengis- meðferð er ekki skilyrði fyrir þátttöku en viðkomandi verð- ur helst að hafa a.m.k. þriggja mánaða edrúmennsku að baki til að námskeiðið nýtist honum. „Þetta námskeið er hugsað sem viðbótarfræðsla fyrir þá sem hafa farið í meðferð en þó er meðferð ekki skilyrði heldur edrúmennska," sagði Ingjaldur Arnórsson, starfsmaður SÁÁ-N. Hér er um kvöldnámskeið að ræða, einu sinni í viku, 12 skipti alls. Þátttakendur eru beðnir að skrá sig hjá skrifstofu SÁÁ-N og þar geta þeir líka fengið nánari upplýsingar um námskeiðið. „Staðreyndin er sú að það er töluvert af fólki sem er edrú en líður ekki vel í sinni edrú- mennsku. Þannig á þetta ekki að vera. Markmiðið með námskeið- inu er að fá fólk til að vinna í sín- um málum. Það að hætta að drekka er ekki bati heldur for- senda batans,“ sagði Ingjaldur. Hann sagði ennfremur að til væri fólk sem færi í gegnum áfengismeðferð í frekar slæmu ástandi og megnið af dagskrá meðferðarinnar hefði farið fyrir ofan garð og neðan hjá því. Þetta námskeið væri ágæt upprifjun og gæti vonandi kveikt þann neista sem vantaði hjá sumum. SS Gleymið ekki að gefa smáfuglunum. iMvaiíM \m V/SA Bmm Dags. SVARSEÐILL Beiðni um miilifærslu áskriftargjalds □ Er áskrifandi □ Nýr áskrifandi Undirritaöur óskar þess aö áskriftargjald Dags veröi framvegis skuldfært mánaðarlega á greiöslukort mitt. Kortnr. Gildir út: Nafnnr.: Strandgötu 31 Sími 96-24222 ASKRIFANDI: HEIMILI: PÓSTNR.-STAÐUR: SÍMI: UNDIRSKRIFT.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.